Morgunblaðið - 15.03.1987, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 15.03.1987, Blaðsíða 20
20 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MARZ 1987 Fyrst í völundarhús - síðan að altarinu Völundarhúsum má líkja við lífið sjálft. Enginn veit hvert leiðir liggja og ungu fólki í giftingarhugleiðingum ráðlegg ég eindregið að leggja ekki leið sína upp að altarinu fyrr en það er búið að reyna á sambandið innan veggja völundarhúss. Þannig kemst Yamanaka nokkur að orði, en Yamanaka er, eins og nafnið gefur til kynna japanskur og þar að auki stjóm- andi stærsta völundarhúss Japana, Gran Maze, en völund- arhús eru vinsælasta dægradvöl- in í Japan um þessar mundir. Og það ekki af minni gerðinni. Völundarhúsið sem Yamanaka stýrir var hannað af Ástralíubú- anum Stuart Landsborough, sem hefur búið til nokkur slík áður, en þó ekkert af þeirri stærðargráðu sem Gran Maze er. Þar geta eittþúsund manns orðið vegvilltir á sama tíma. Reyndar segir sagan að Lands- borough þessi hafi sjálfur þurft á aðstoð varða að halda er hann heimsótti sína eigin smíð og gafst upp við að fínna útgöngu- leið eftir klukkutíma þrautar- göngu. Leikurinn er til þess gerður að menn komist í gegnum völ- undarhúsið á sem skemmstum tíma og er komutími gesta stimplaður á þar til gerð kort. Áður en yfír líkur þurfa viðkom- andi svo að hafa komið við á ijórum stöðum öðrum í völund- arhúsinu og hlotið stimpla þar. Þeir sem eru heppnir komast í gegn á tæpum hálftíma, en metið er 14 mínútur og hand- hafí þess ekki ýkja hár í loftinu, a.m.k. ekki nógu hár til að svindla og sjá yfír veggina. Hann er þriggja ára gamall og hefur farið um völundarhúsið 26 sinn- um. Reyndar segja kunnugir að baminu hljóti að vera gefín öflugri skilningavit en flestum öðrum, því að ekki dugir að muna leiðina sem síðast var far- in, völundarhúsið er þannig gert að veggir þess eru færðir og leiðum breytt reglulega. Flestir gesta eru því lengur en korter á leiðinni og sá sem á metið á hinn veginn er tvítugur maður sem kom út úr Gran Maze eftir að hafa villst þar í fímm klukkustundir - og lét það verða sitt fyrsta verk að ráð- leggja öðrum að leggja leið sína á náðhús í upphafí ferðar. Þó eru verðir á hverju strái til að leiðbeina vegvilltum og stundum, til stilla til friðar þegar samfylgdarmenn em komnir í hár saman yfír hver hafí af- vegaleitt hópinn eða hver skuli ráða ferðinni. Segja þeir hinar öflugustu fjölskyldueijur oft eiga sér stað og nefna sem dæmi þegar faðirinn segir móðurina hafa tekið vitlausa beygju, en hún telur hann hafa farið í rang- an farveg strax í upphafí, á meðan eitt bamið ráfar frá og villist upp á eigin spýtur og ann- að vill bara fara heim! En gestir völundarhússins em af öllum stærðum og gerðum, ef svo má að orði komast. Fyrir- tæki bjóða oft starfsmönnum sínum í þennin leik, skólar koma með nemendur sína og á meðal ungs fólks er völundarhússferð vinsælli dægrastytting en t.d. ferð í kvikmyndahús. Sem sé vinsælla hjá Japönum að fara út að skemmta sér og þjálfa hugann í leiðinni en að hafa sem minnst fyrir hlutunum. Endursagt/VE STEYPUMÓT FRÁ BREIÐFJÖRD! KRANAMÓT - HANDMÓT DOKA - VEGG JAMÓTAKERFI fyrir krana. DOKAFLEX - LOFTAMÓTAKERFI - létt og þægileg á höndum. MÓTAKRÆKJUR OG TENGI með DOKA-plötur sem klæðningu. FRÁBÆR LAUSN! MALTHUS - HANDFLEKAMÓT kerfismót sem allstaðar henta. HAKI - VERKPALLAR og undirsláttarkerfi. örugg lausn. Hvað er einfaldara? HAGSTÆTT VERÐ. Leitið upplýsinga. NÚ ER RÉTTI TÍMINN AÐ PANTA STEYPUMÓTAKERFI FYRIR VORIÐ. m BREIÐFJÖRÐS ÆJ BLIKKSMIÐJA HE SIGTÚNI 7 - SÍMI 29022. Jakob H. Magnússon eigandi Homsins og Tino Nardini mat- reiðslumeistari. Hornið: Italskt kvöld ÍTALÍA, italsk-íslenska félagið, heldur ítalskt kvöld í Djúpinu á veitingastaðnum Horninu í Hafn- arstræti 15 nk. sunnudagskvöld, 15. mars, kl. 19.30. Þar verður á boðstólum ítölsk stemmning í mat, drykk og tónlist undir hand- leiðslu matreiðslumeistarans Tino Nardini. Ætlunin er að þessi ítölsku kvöld verði síðan á dagskrá félagsins 1. sunnudag hvers mánaðar þar á eftir. Borðapantanir eru teknar niður á Hominu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.