Morgunblaðið - 05.04.1987, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. APRÍL 1987
Morgunblaðið/Einar Falur
Asgeir Uhd Jepsen útgáfustjóri Danska kennarasambandsins, Sten
Svava Olesen formaður sambandsins og Indriði G. Þorsteinsson eig-
andi Hausts hf.
Utlaginn kennslugagn
á Norðurlöndum
DANSKA kennarasambandið
hefur undirritað samning við
Haust hf., sem er eigandi kvik-
myndarinnar „Útlaginn" um
leyfi til að sýna myndina við
kennslu í dönskum skólum.
Samningurinn felur í sér að
Danska kennararsambandið hefur
rétt til að framselja „Útlagann",
sem kennslugagn um öll Norðurl-
önd. Að sögn Indriða G. Þorsteins-
sonar ritsjóra og eiganda Hausts
hf., er þetta í fyrsta sinn sem gerð-
ur er samningur um kennslugang
um ísland til notkunar á Norðurl-
öndum. Verið er að undirbúa
kennslu í Gísla sögu Súrsonar og
verður kvikmyndin notuð við
kennslu í móðurmáli við danska
skóla. Kvikmyndinni verður dreift
um skólanna á myndböndum. Steen
Leiðrétting
Skipstjóra- og stýri-
mannafélagið Aldan
elzta stéttarfélagið
RANGHERMT var I frásögn
Morgunblaðsins á laugardag, að
Samtök bókagerðarmanna væru
elzta stéttarfélag landsins, en
þau halda upp á 90 ára afmæli
á þessu ári. Elzta stéttarfélag
landsins mun vera Skipstjóra- og
stýrimannafélagið Aldan. Það
var stofnað 7. október 1893 og
er því á 94. aidursári.
Svava Olesen, formaður danska
kennararsambandsins kom af þessu
tiiefni til landsins ásamt Asger Uhd
Jepsen útgáfustjóra sambandsins.
Frá fundi Sjálfstæðiskvennafélagsins Hvatar
Alvarlegasta atlagan að samein-
ingar tákni borgaralegra afla
- sagði Sólveig Pétursdóttir á Hvatarfundi
SÓLVEIG Pétursdóttir, sem skipar 7. sæti á framboðslista
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, sagði á fundi Sjálfstæðis-
kvennafélagsins Hvatar sl. fimmtudagskvöld, að Sjálfstæðis-
flokkurinn hefði verið það stór og öflugur á undanförnum
áratugum, að engin rikisstjórn hefði treyst sér til að ganga í
berhögg við þau grundvallarsjónarmið, sem Sjálfstæðisflokkur-
inn, hefði lagt mesta áherzlu á. Hún benti jafnframt á, að nú
væri gerð alvarlegasta atlaga til þessa, að þessu sameiningar-
tákni borgaralegra afla á Islandi.
Sólveig Pétursdóttir, sagði í heldur persóna eins manns.
ræðu sinni, að Borgaraflokkurinn, A fundi Hvatar var rætt um
fjölskyldu- og jafnréttismál. Auk
Sólveigar Pétursdóttur, voru
frummælendur á fundinum
Víglundur Þorsteinsson,, fram-
kvæmdastjóri, sem skipar 6. sæti
á lista Sjálfstæðisflokksins í
Reykjaneslq'ördæmi og Sigurlaug
Sveinbjömsdóttir, varaformaður
Verzlunarmannafélags Reykjavík-
ur, sem skipar 11. sæti D-listans
væri flokkur án stefnuskrár, hann
væri í ferðalagi án fyrirheits. Þar
stæðu við stjómvölinn menn, sem
hefðu átt samleið með Sjálfstæðis-
flokknum, á meðan það hentaði
þeim, en einnig margir, sem um
áraraðir hefðu verið andstæðingar
Sjálfstæðisflokksins. Hún sagði
ekki hægt að treysta flokki, þar
sem hugsjónir skiptu ekki máli,
í Reykjavík. María Yngvadóttir,
formaður Hvatar, Ragnhildur
Helgadóttir, heilbrigðisráðherra
og Friðrik Sophusson, varaform-
a.ður Sjálfstæðisflokksins, ávörp-
uðu fundarmenn. Fundarstjóri var
Elín Pálmadóttir og fimdarritari
Anna Kristjánsdóttir.
Sólveig Pétursdóttir
••
, ...“Ús BUJf'Þ'1 SiGrtiS iilöNIÚ • 'JNUM j|
I íslensk L i)ÖNSK IúiRÐABOK tSLENSK DÖNSK orðabói iKNM' .>ÚNSh | 'Vivutoh j
B10NDALS0R0AB0K
einstæð meðal íslenskra orðabóka með 110-115 þúsund uppfletti-
orðum 09 orðasamböndum. Hún er einn af homsteinum íslenskrar
ritmenningar 09 nauðsynjarit öllum sem íslensku skrifa.
BLÖNDALSOROABÓK er tilvalin tækifærisgjöf handa fermingar-
barninu, stúdentinum, kandídatinum 09 öllum hinum sem halda
daginn hátíðlegan.
BIÖNDALSORÐABÓK er í tveimur bindum. 1098 bls.r
auk viðbætis, 200 bls.r með um 40 þúsund uppflettiorðum
09 kostar settið aðeins
kr. 4.975,-
Tíl sölu í helstu bókaverslunum
HIÐ ÍSLENZKA BÓKMENNTAFÉLAG
ÞINGHOLTSSTRÆTI 3-121 REYKJAVlK - SlMI: 21960
: VX'-
Strengja-
kvintettar
á afmælis-
tónleikum
Kammermúsík-
klúbbsins
Kammermúsíkklúbburinn
heldur nú upp á 30 ára afmæli
sitt. Á miðvikudag og föstudag
verða fluttir á hans vegum í
Bústaðakirkju sex strengjakvint-
ettar eftir Beethoven, Brahms,
Bruckner, Mozart og Ingo Sinn-
hoffer, en það er Sinnhoffer-
kvintettinn sem verkin flytur.
Sinnhoffer-kvartettinum bætist
fímmti liðsmaðurinn fyrir þessa tón-
leika og er það_ lágfíðluleikarinn
Paul Hennevogl. Á fyrstu fíðlu leik-
ur Ingo Sinnhoffer, Aldo Volpini
leikur á fíðlu, Roland Metzger leik-
ur á lágfíðlu og Peter Wöpke leikur
á knéfíðlu.
Sinnhoffer-kvartettinn hefur
leikið fjórum sinnum áður fyrir fé-
lagsmenn Kammermúsíkklúbbsins.
Sinnhoffer-strengjakvartettin-
um frá Mllnchen bætist liðsmað-
ur á afmælistónleikum
Kammermúsíkklúbbsins.