Morgunblaðið - 01.05.1987, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 1987
17
F
ÍL
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Viðar og áhöfn hans á Helgu eru væntanlega úti á sjó í dag, en
hann var að huga að netum við Reykjavíkurhöfn sl. þriðjudag,
þar sem rætt var við hann.
Viðar Benediktsson
skipstjóri á Helgu:
Staðgreiðslukerfi
skatta mesta
kjarabót sjómanna
VIÐAR BENEDIKTSSON skip-
stjóri á Helgu var að huga að
netum við Reykjavíkurhöfn,
ásamt tveimur manna sinna
fyrr í vikunni, þegar við hittum
hann að máli. Hann sagði kjör
sjómanna mjög misjöfn og
áhrifavalda þar marga, svo sem
aflabrögð, veiðarfæri og stærð
skipa. Hann sagði ennfremur,
að staðgreiðslukerfi skatta
væri áreiðanlega það sem orðið
hefði sjómönnum til mestra
hagsbóta, er litið væri til
síðustu ára.
Viðar sagði aðspurður, að
kauptrygging sjómanna gæti ver-
ið lág ef miðað væri við erfið
starfsskilyrði þeirra. Aftur á móti
væru laun margra í þjóðfélaginu
mun lægri, því miður. Aðspurður
um hvað hann teldi að setja ætti
á oddinn í verkalýðsmálum sagði
hann launamálin áreiðanlega bera
hvað hæst. Um úrslit kosninganna
og stjómarmyndum sagðist hann
hreint ekki vilja hugsa. „Þetta er
alveg agalegt", sagði hann.
Varðandi staðgreiðslukerfi
skatta sagði Viðar, að það væri
sjómönnum mikið hagsmunamál:
„Tekjur okkar eru mjög breytileg-
ar. Það gengur vel eitt árið en
kannski mjög illa það næsta. Það
gerir slík samdráttarár mun erfið-
ari að vera þá ennfremur að greiða
skatt af afkomu betra árs.“ Hann
var í lokin spurður, hvað hann
hygðist gera í dag, 1. maí. „Ætli
ég verði ekki úti á sjó, það tel ég
sennilegast," sagði hann.
- F.P.
íbúðarkaup byggjast á
mikilli yfiv- ognæturvinnu
- segja nemar í
stálskipasmíði hjá
Stálvík í Garðabæ
OFAN Á plötum að kili verðandi
9,9 tonna báts í flota okkar ís-
lendinga hittum við að máli
iðnnemana Árna Gíslason og
Stefán Arngrímsson, en þeir eru
við nám í stálskipasmíði hjá
Stálvík hf. í Garðabæ. Þeir sögð-
ust ekki þurfa að kvarta yfir
launum sínum. Það væri vel gert
við þá hjá Stálvík. Aftur á móti
þyrftu þeir á meiri vinnu að
halda, ef þeir ætluðu út í fjárfest-
ingar. Árni sagðist til dæmis vera
í þann mund að undirrita samn-
ing um íbúðarkaup og til að geta
staðið í skilum treysti hann á að
fá mikla yfir- og næturvinnu á
næstu árum.
Varðandi atvinnuöryggi stéttar
þeirra sögðu þeir lítið hafa verið
um nýsmíði nema í þessum 9,9
tonna bátum, sem allir virtust nú
vilja eignast. Þessir bátar slippu inn
fyrir mörk og kvóta, en þeir félagar
voru á því, að menn kæmust ekki
endalaust upp með að mala gull á
þennan hátt. Þeir sögðust vonast
til að úr rættist með sölu raðsmíða-
skips Stálvíkur og í framhaldi af
því fengju þeir mikla auka- og
næturvinnu.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Þeir Stefán Arngrímsson til vinstri og Árni Gíslason til hægri á vinnustað sínum, Stálvík í Garðabæ.
Aðspurðir um hver ósk þeirra
væri til handa launþegum á þessum
hátíðisdegi sögðu þeir báðir: „Bætt
kjör“ og annar þeirra bætti við:
„Mér þætti gaman að vita, hvort
Þorsteinn Pálsson gæti lifað af
24.500 kr. á mánuði". Hann gaf
með þessu boltann og í framhaldi
af því kom spumingin um óskaríkis-
stjóm. „Alþýðuflokkur, Sjálfstæðis-
flokkur og Kvennalisti. Við þurfum
að losna við Framsókn. Hún er
búin að sitja alveg nógu lengi“,
sagði Ámi og Stefán kinkaði kolli.
f lokin vom þeir spurðir, hvemig
þeir ætluðu að veija deginum í dag.
Samkvæmt svarinu sofa þeir nú
báðir, eða a.m.k. fram eftir degin-
um.
- F.P.
er flutt í Borgartún 26.
Símar 681502 og 681510.
tðKHJW IUIT
Borgartúni 26.
SVAVAR
Gestsson formaður Alþýðu-
bandalagsins í HP-yfirheyrslu.
Af hverju tapaði Alþýðubanda-
lagið fylgi? Hvað gerir Svavar?
Segir hann af sér formennsku?
14ÁRA
og leikur eins og Hendrix, eða
Clapton, á gítarinn sinn. Það var
hann sem vann kosningarnar
— a.m.k. hug og hjörtu áhorf-
enda. 68-kynslóðin skalf fyrir
framan skjáinn þegar drengur-
inn tók gítarinn.
HVALKJÖTID
í Hamþorg er þar enn. Þýsk yfir-
völd báðu um viðbótar upplýs-
ingar. Samtök umhverfisvernd-
armanna fylgjast með málinu
og nú er beðið eftir að nýr um-
hverfismálaráöherra taki við f
Þýskalandi. Brutu íslensk stjórn-
völd alþjóðlegar friðunarsam-
þykktir? Hvalurinn er f HP (dag.
STEINGRÍMUR
er vinsaelastur og mikill meiri-
hluti aðspurðra f Reykjavík vill
að hann verði áfram forsætis-
ráðherra. Hvað fær Þorsteinn
mikið fylgi, Jón Baldvin, Svav-
ar, Guðrún, eða Albert? HP-
könnun: Feti framarl
WALDHEIM
fær ekki að koma til Bandarfkj-
anna. Hann er í HP f dag.
VINKONUR
um hvað tala þær? Kannske
mest um okkur strákana?
FRAMDRIF
ÍSLENSKRA
FJÖLMIÐLA