Morgunblaðið - 01.05.1987, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 1987
Alþýðubandalagið log-
ar í innbyrðis deilum
- og gæti leysts
segir Guðmundur J.
„ÞÚ ERT búinn að hafa eftir
mér gxafskrift Alþýðubanda-
lagsins og það á hátíðisdegi
verkalýðsins. Þetta er ljóta
ástandið," sagði Guðmundur J.
Guðmundsson glettnislega í lok
viðtals sem blaðamaður Morgun-
blaðsins átti við hann á heimili
hans í gær. Efni umræðunnar
hafði verið verkalýðshreyfingin,
tengsl hennar við Alþýðubanda-
lagið og aðra flokka, en ekki síst
ástæða fylgistaps og innbyrðis
átök í flokki þeim sem Guðmund-
ur var fulltrúi fyrir á þingi
síðasta kjörtímabil. „Auðvitað
studdi ég Alþýðubandalagið í
kosningunum, annað hefði aldrei
hvarflað að mér. En ég beitti
mér ekki í kosningabaráttunni.
Það hefði aldrei hvarflað að mér
að kljúfa flokkinn, hlaupast á
brott og segjast hafa starfað með
illþýði og bófum öll þessi ár,“
sagði Guðmundur.
Kvennalistinn siglir á
bylgjti sem er að rísa
Talið barst fyrst að jafnréttis-
baráttunni. Kvennalistinn, yfirlýstur
sigurvegari Alþingiskosninganna,
jók fylgi sitt um nær helming og
alþýðubandalagsmenn telja að það
hafi komið harðast niður á þeim.
„Það er bylgja jafnréttisbaráttu að
rísa í þjóðfélaginu og á þessum öldu-
faldi sigla kvennalistakonumar, “
sagði Guðmundur. „Þær hafa átt
góðum fulltrúum á að skipa á Al-
þingi og haldið snyrtilega á sínum
málum. En barátta fyrir launajafn-
rétti kynjanna er ekki upprunin hjá
Kvennalistanum. Aðalsigramir hafa
verið unnir af verkalýðshreyfingunni
sjálfri.
Staðreyndin er að minn flokkur
hefur ekki haft nógu sterk ítök í
samtökum verkakvenna. Og það er
) í frumeindir sínar,
Guðmundsson
mjög áberandi hvað konur eru orðn-
ar sterkt afl í verkalýðsfélögum. Það
er vart það félag sem ekki hefur á
að skipa einhveijum konum í stjóm
eða fremstu víglínu. Verra er að
konur beita sér almennt ekki í fé-
lagsstarfinu, eru of daufar. Þær sem
hella sér út í baráttunna eru í mörg-
um tilvikum beittari og harðari en
karlamir við hlið þeim.“
Aumingjaskapur
verkalýðshreyfinga
Guðmundur segist telja launamis-
rétti kynjanna alvarlegasta vanda
sem verkalýðshreyfingin glími við á
þessari stundu. Það valdi ólgu í þjóð-
félaginu og hafi Kvennalistanum
tekist að ná forystu í baráttunni
fyrir bættum launum kvenna. „Það
er fjarri því að Kvennalistinn sé af-
gerandi þáttur í þessari baráttu,"
sagði Guðmundur.
„Ég er sannfærður að þetta mis-
rétti, sem raunar hefur mikið verið
leiðrétt á undanfömum árum í fisk-
vinnslunni til að mynda, er fyrst og
fremst aumingjaskap verkalýðssam-
takanna, Alþýðusambandsins,
BSRB og samtaka bankamanna að
kenna. Það er mín skoðun að eina
sem dugi til þess að ná árangri í
þessum málum sé að þessi samtök
myndi bandalag um að leiðrétta kjör-
in í eitt skipti fyrir öll.
Ég hef hinsvegar ávallt verið
þeirrar skoðunar að karl og kona,
sem vinna hlið við hlið í frystihúsi,
eigi meira sameiginlegt í pólitík en
kona sem vinnur í frystihúsi og eig-
inkona stórkaupamanns," segir
Guðmundur og leggur áherslu á orð
sín.
Þjóðviljinn kenndi ASÍ
um allt sem aflaga fór
Að þessu gefnu liggur beint við
að spyija hvers vegna Alþýðubanda-
lagið, sem hefur lýst því yfir að það
sé eini vinstri flokkurinn, nái ekki
Morgunblaðið/RAX
Guðmundur J. Guðmundsson
eyrum verkafólks. Hver sé ástæða
þess að fólk úr þessum stéttum leiti
í stað þess til Borgaraflokksins og
Sjálfstæðisflokksins, samkvæmt
niðurstöðum skoðanakannana? „Al-
þýðubandalagið hefur átt slæmt og
óheppilegt málgagn, sem heitir Þjóð-
viljinn og mér er nær að halda að
gamla blaðinu mínu væri betur borg-
ið ef það yrði lagt niður," segir
Guðmundur.
. „Þjóðviljinn hamraði á því í allan
vetur að allt sem aflaga færi væri
ASÍ að kenna, vegna þess að for-
ystumenn Alþýðusambandsins hafa
ekki hlýtt stofukommunum — sósíal-
istum — sem hefur ekki tekist að
aðlag-a sín viðhorf þróuninni í þjóð-
félaginu.
Ef Alþýðubandalagið tapaði í
kosningunum vegna þess að verka-
menn hefðu ijarlægst það, þá var
það ekki síst vegna þess að Þjóðvilj-
inn hefur einbeitt sér að árásum á
verkalýðshreyfínguna, afbökunum
og persónuníði um forystumenn
hennar. Láglaunafólk er óánægt
með sín kjör og það er rökrétt að
kjósa ekki Alþýðubandalagið þegar
málgagnið hefiir bölsóttast þannig."
Guðmundur er ómyrkur í máli um
forystusveit Alþýðubandalagsins:
„Flokkurin logar í innbyrðis deilum,"
segir hann. „Þar er nú meira kapp
lagt á að koma höggi hver á annan
en pólitíska andstæðinga. Alþýðu-
bandalagið er í raun lamað vegna
þessara deilna sem koma niður á
mönnum, málefnum og pólitík.
Flokkurinn hættur að
endurspegla viðhorf in
Ef Alþýðubandlaginu tekst ekki
að setja niður þessar deilur og sam-
einast þá er því sú hætta búin að
það leysist smám saman upp í frum-
eindir sínar. Úr þeirri öskustó gæti
hugsanlega risið einbeittur verka-
lýðsflokkur en um það er allt of
snemmt að spá.
Auðvitað hef ég þungar áhyggjur
af því að Alþýðusambandið eigi nú
ekki, í fyrsta sinn í fjölmörg ár, full-
trúa á Alþingi," segir Guðmundur
við næstu spurningu blaðamanns.
„Þetta er enn ein sönnun þess hvern-
ig Alþýðubandalagið hefur fjarlægst
þjóðina og er hætt að endurspegla
viðhorfin í þjóðfélaginu. Hvaða
sterkur verkalýðsflokkur byggist
ekki á góðu og traustu sambandi
við verkalýðshreyfinguna? Hér sé ég
það haft eftir einum forystumanni
flokksins að Alþýðubandalagið þurfi
að losna úr viðjum ASÍ. Það þykir
ekki nógu gott fyrir hinar menntuðu
þjónustustéttir," segir Guðmundur.
„Alþýðubandalagið hefur haft
harðvítugu stuðningsfólki á að skipa
sem fleytti flokkinum áfram með
störfum sínum þótt stormurinn væri
í fangið. Það er ekki til staðar leng-
ur. Þessi innbyrðis sundrung hefur
tvístrað þessu kjarkmikla og góða
fólki."
Svavar skortir gagn-
rýna samstarfsmenn
Guðmundur rifjar upp fyrri tíma
og lætur svo um mælt að á milli
eldri forystumanna flokksins hafi
vissulega risið deilur. Þá hafi eijur
hinsvegar verið leystar „innan stofu-
veggja". Hann segir jafnframt að
úr gagnrýni sinni eigi ekki að lesa
að Svavar Gestsson sé óhæfur til
þess að gegna formennsku. Hins
vegar sé ljóst að honum hafi ekki
tekist að fá forystuna til þess að
vinna saman og það sem verra sé,
að Svavar hafi ekki á að skipa þeim
samstarfsmönnum sem geti gagn-
rýnt hann í einlægni og tekið við
gagnrýni hans á móti.
„Fundur framkvæmdanefndar-
innar á miðvikudagskvöld var enn
ein staðfesting þess að sjúklingurinn
sýnir engin batamerki. Hann er
þvert á móti með hitasótt og óráð.
I minni æsku var það algengara að
menn teldu aðra hæfari til þess að
gegna forystu, en nú hafa menn það
til marks um ranglæti heimsins ef
þeim er ekki lyft í forystusætið."
Guðmundur, sem á sæti í fram-
kvæmdanefnd og miðstjóm Alþýðu-
bandalagsins, segist ekki hafa sótt
fundi þeirra í heilt ár. Hann hafi
ekki í hyggju að mæta á miðstjómar-
fundinn sem boðaður hefur verið um
miðbik maímánaðar.
Svavar gefur ekki
kost á sér aftur
Aðspurður hvort hann telji að
Svavar verði felldur úr formannsæt-
inu á landsfundi flokksins síðar á
árinu segist Guðmundur telja að til
þess muni ekki koma. Ósennilegt sé
að Svavar gefi kost á sér til starf-
ans. „Ég sé ekki að til framboðs
hans muni koma, maðurinn má vart
lengur snúa sér við án þess að það
standi allir hnífar í bakinu á honum.
Það má gagnrýna framgöngu hans.
Svavari hefur mistekist og oft illa.
En orsakanna er ekki að leita þar
eins og sumir vilja vera láta.“
Talinu víkur aftur að sambandi
ASÍ og Alþýðubandalagsins. Guð-
mundur segir að Ásmundur Stefáns-
son og Þröstur Ólafsson séu tveir
þeirra manna sem séu best fallnir
til að vera í forystu flokksins og
styrkja stoðir hans. Ásmundur hafi
ekki náð inn á þing og Þresti hafi
verið hafnað í prófkjöri.
Þyrfti ekki að óttast
úrslit í opnu prófkjöri
„Það er dæmi um hvert flokkurinn
stefnir. Þar liggur ógæfa Alþýðu-
bandalagsins. Þröstur átti engan
Jón Baldvin Hannibalsson hef-
ur fyrir hönd þingflokks Alþýðu-
flokksins ritað bréf til ráðuneyta
og stofnana og óskað upplýsinga
vegna viðræðna um stjómar-
myndun. Hefur formaður Al-
þýðuflokksins óskað eftir því, að
Morgunlaðið birti þessi bréf í
heild og fara þau hér á eftir.
Bréfin em öll dagsett 30. apríl
1987.
Hr. fjármálaráðherra,
Þorsteinn Pálsson,
§ármálaráðuneytið,
Ámarhváli,
Reykjavík.
Til undirbúnings viðræðna milli
stjómmálaflokkanna um myndun
nýrrar ríkisstjómar óskar þing-
flokkur Alþýðuflokksins eftir því að
fjármálaráðuneytið láti honum í té
sem allra fyrst upplýsingar og grein-
argerð um eftirtalin atriði:
1. Framvinda og horfur í ríkis-
búskapnum 1987.
Hvemig hefur afkoma •-•íkissjóð
verið á fyrstu mánuðum ársins
og hvemig er útlitið til loka þess?
Greinargóðar upplýsingar um
frávik frá ij'árlögum og lánsfjár-
lögum eru í þessu sambandi afar
mikilvægar. Fram þyrftu að
koma helstu ástæður fýrir slíkum
frávikum.
starfsmenn.
Óskað er upplýsinga um niður-
stöður í nýgerðum kjarasamn-
ingum ríkisins og opinberra
starfsmanna ásamt samanburði
við gildandi saminga á almenn-
um vinnumarkaði. Fram þyrftu
að koma hundraðstölur breyt-
inga og mat á áhrifum á fjárhag
ríkissjóðs.
3. Endurskoðun skattalaga.
Óskað er eftir upplýsingum um
störf starfshóps- nefndar- sem
fjármálaráðherra skipaði í nóv-
ember 1986 til þess að vinna að
endurskoðun skattalaga, einkum
hvort drög hafí verið lögð að til-
lögum um breytingar á skatt-
lagningu atvinnurekstrar, eigna
og eignatekna. Ennfremur er
óskað eftir upplýsingum um það,
hvort í ráðuneytinu hafi verið
unnið að gerð tillagna um breyt-
ingar á óbeinum sköttum, bæði
aðflutningsgjöldum og öðrum.
Loks er minnst á milliþinga-
nefnd, sem ákveðið var að skipa,
þegar lagafrumvörp um stað-
greiðslu beinna skatta einstakl-
inga voru samþykkt í mars sl.,
til þess að endurskoða skatthlut-
föll o.fl. í þeim lögum, og spurt
hvenær fyrirhugað sé að nefndin
hefji störf, og hvort fram séu
komnar nauðsynlegar forsendur
fyrir nefndina til að meta þær
stærðir sem henni er ætlað að
endurskoða.
4. Undirbúningur frumvarps
til fjárlaga og lánsfjárlaga
fyrir 1988.
Oskað er upplýsinga um undir-
búning ofangreindra frumvarpa
og meginforsendur, sem unnið
er eftir í því starfi.
5. Endurskoðun lífeyriskerf-
is.
Óskað er upplýsinga um niður-
stöður starfsnefnda (17- og
8-mannanefndar), sem starfað
hafa á vegum ráðuneytisins að
endurskoðun lífeyriskerfisins í
landinu.
Auk skriflegra greinargerða væri
æskilegt, að þeir embættismenn,
sem kunnugastir eru þeim málum,
sem um er spurt hér að framan,
gætu komið á fundi með þingflokkn-
um til frekari skýringa.
Hr. landbúnaðarráðherra,
Jón Helgason,
landbúnaðarráðuneytið,
Rauðarárstíg 25,
Reykjavík.
Til undirbúnings viðræðna milli
stjómmálaflokkanna um myndun
ríkisstjómar óskar Alþýðuflokkur
eftir því, að landbúnaðarráðuneytið
láti honum í té sem allra fyrst upp-
lýsingar og greinargerð um samning
þann, sem ráðuneytið gerði í mars
sl. við Stéttarsamband bænda um
verðábyrgð ríkisins á búvömm
næstu fjögur ár. Auk ljósrits af sjálf-
um samningum er óskað eftir
greinargerð um það, hveijar hug-
myndir um framvindu búvörufram-
leiðslu næstu fjögur ár búi að baki
honum. Æskilegt væri að þeir emb-
ættismenn, sem kunnugastir eru
þessari samningsgerð, komi til fund-
ar við þingflokkinn til frekari
skýringar, ef þörf krefur.
Hr. félagsmálaráðherra,
Alexander Stefánsson,
félagsmálaráðuneytinu,
Reykjavík.
Til undirbúnings viðræðna milli
stjómmálaflokkanna um myndun
nýrrar ríkisstjómar óskar þing-
flokkur Alþýðuflokksins eftir því að
félagsmálaráðuneytið láti honum í
té sem allra fyrst upplýsingar og
greinargerðir um eftirtalin atriði:
1. Fjárhagsstöðu og útlánaáætlun
Byggingarsjóðs ríkisins og
Byggingarsjóðs verkamanna fyr-
ir árið 1987.
2. Fjölda lánsumsókna sem bor-
ist hafa vegna lánveitinga úr
Byggingarsjóði ríkisins frá 1.
sept. 1986 til 1. maí 1987 vegna:
a. nýbygginga,
b. eldri íbúða
og áætlaðan afgreiðslutíma
þeirra.
3. Hve mörgum lánsumsóknum
hefur verið synjað úr Byggingar-
sjóði ríkisins og helstu ástæður
þess.
4. Fjölda fyrirliggjandi lánsum-
sókna úr Byggingarsjóði verka-
manna vegna:
a. nýrra saminga,
b. endursöluíbúða
og áætlun um afgreiðslutíma
þeirra.
5. Áætlað fjármagn til ráðstöf-
unar árið 1988 úr Byggingar-
sjóði ríkisins og Byggingarsjóði
verkamanna að óbreyttu ríkis-
framlagi. Hversu margar
umsóknir úr Byggingarsjóði
verkamanna og Byggingarsjóði
ríkisins er hægt að afgreiða 1987'
og 1988 miðað við ráðstöfunarfé
1987 og ofangreindar fjárhags-
forsendur fyrir árið 1988.
6. Hver var staða ríkissjóðs
gagnvart Húsnæðisstofnun ríkis-
ins 15. apríl sl.
Mikilvægt er að umbeðnar upp-
lýsingar berist eigi síðar en 6. maí
nk.
Seðlabanki íslands,
Kalkofnsvegi 1,
Reykjavík.
Til undirbúnings viðræðna milli
stjómmálaflokkana um myndun
nýrrar ríkisstjómar óskar þing-
flokkur Alþýðuflokksins eftir því,
að Seðlabankinn láti honum í té sem
allra fyrst upplýsingar og greinar-
gerðir um eftirtalin atriði:
1. Þróun innlána og útlána 1987.
Framvinda fyrstu mánuði ársins
og horfur út árið.
2. Vaxtaþróun 1987.
Breyting nafnvaxta og raun-
vaxta það sem af er ári og horfur
út árið.
3. Greiðslujöfnuður við útlönd
1987.
Alþýðuflokkur bið-
ur um upplýsingar
2. Samningar við opinbera