Morgunblaðið - 01.05.1987, Page 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 1987
fclk í
fréttum
Gestir í heimsókn
Fyrir skömmu komu góðir gestir í heimsókn á Morgunblaðið, voru það nemendur úr Þjálfunarskóla
ríkisins í fylgd með kennurum. Skoðuðu þeir allar deildir blaðsins og fengu að hjálpa til við framköllun
og gerð einnar plötu með fréttum morgundagins. Var þetta liður í kennslu í samfélagsfræðum. Á myndinni
eru (f.h.) Bergur Ingi Guðmundsson, Sigríður Jónsdóttur, kennari, Sóley Traustadóttur, Ragnhildur Bjamad-
óttur, Bjami Pálmason, Jón Róbert Róbertsson, Hróðný Garðarsdóttur, þroskaþjálfanema, Sigríður
Eyþórsdóttir, kennari og Ólafur Brynjólfsson, verkstjóri.
Eiginkonan, Kerrie, fékk koss
og sonurinn pínuflygil, er Lewis
kom í fyrstu heimsóknina eftir
fæðinguna.
Drengurinn er lifandi eftir-
mynd föður síns, segir Jerry Lee
Lewis stoltur.
Stolturfaðir
Reuter.
Alec Guinness heiðraður
Fyrir skömmu var haldin mikil veisla í veitingahúsinu Tavem on the Green í New York, þar sem leikarinn
Alec Guinness var heiðraður fyrir ógleymanlegt framlag hans til kvikmyndaiðnaðarins undanfarin 40 ár.
Fyrir samkvæminu stóð Kvikmyndafélag Lincolnmenningarmiðstöðvarinnar (the Film Society of Lincoln Cen-
tre). Fjölda manns var boðið í samkvæmið og sjúm við heiðursgestinn á þessari mynd (t.v.) ásamt leikaranum
Vincent Price.
Priscilla, ógift enn
Priscilla Presley, sem eitt sinn var gift rokkkónginum Elvis Presley
er ekkert að flýta sér í það heilaga í annað sinn, þó þeir sem
gaman hafa af slúðrí séu margbúnir að koma henni í hjónaband. Hún
nýtur nú lífsins sem aldrei fyrr með bamsföður sínum, Marco Gari-
baldi, sem er u.þ.b. 10 ámm yngri en Priscilla og sjáum við hjónaleysin
á þessari mynd.
Rokksöngvarinn Jerry Lee Lewis, sem margir íslendingar kannast við
frá fyrri tíð og einnig vegna komu hans hingað til lands í vetur er
hann söng fyrir landann, fékk í byijun ársins uppfyllta langþráða ósk er
honum fæddist sonur. Áður höfðu tveir synir hans farist af slysförum.
Fæðing Jerry Lee Lewis III gekk erfiðlega og er litli hnokkinn var loks-
ins kominn í heiminn heill á húfi, var hinn stolti faðir hreint utan við sig
af gleði.