Morgunblaðið - 01.05.1987, Síða 70
70
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 1987
Ummæli franskra blaða:
Leikurinn
rólegur
og daufur
Frá Skúla Unnari Svainaaynl, blaðamanni
FRANSKIR fjölmiðlar voru ekki
ánœgðir með landsleik Frakka og
íslendinga í fyrrakvöld. Fyrir leik-
inn var gert ráö fyrir stórsigri
Frakka, en umsagnir um leikinn
eru allar á sama veg — rólegur
og daufur leikur.
fþróttablaðið L’equipe birti
opnugrein um Ásgeir Sigurvinsson
fyrir leikinn, þar sem ferill hans var
rakinn og þess getið, að hann
hefði orðið stórstjarna með öðru
landsliði en því íslenska. Blaðið
telur hann frábæran knattspyrnu-
mann og segir hann hafa leikið
best gegn Frökkum. Bjarni Sig-
urðsson og Sigurður Jónsson fó
einnig góða dóma. En blaðið er
óánægt með leikinn — tvö léleg
mörk er fyrirsögnin. Frakkarnir
hafi barist meira en (slendingarnir
og er nýliðanum Micciche þakkað
fyrir að hafa komið Frökkum á
bragðið.
Frönsku blöðin eru sammála um
að sigurinn hafi alls ekki verið auð-
veldur og Frakkarnir hafi átt í
mestu erfiðleikum með fslending-
Drengjahlaup
Drengjahlaup Ármanns verður
haldið sunnudaginn 3. maf við
Elliðaárvog og hefst klukkan 10.
Skráning fer fram á staðnum.
Morgunbla&sini f Parfs.
ana. Þeir eigi að geta betur og
verði að gera betur til að sigra í
riðlinum og komast í úrslitakeppn-
ina.
Eins og Morgunblaðið hefur
óður greint frá, stofnaði Platini
sjóð í vetur til stuðnings baráttu
gegn vímugjöfum og í gær ræddi
hann við Francois Mitterand, for-
seta Frakklands, um málið. í lokin
barst talið að landsleiknum og
sagði Platini eftir á að forsetinn
kynni vel að meta knattspyrnu.
Víkingur
UPPSKERUHÁTÍÐ yngrí flokka
handknattleiksdeildar Vfkings
verður haldln á sunnudaginn kl.
16 í Róttarholtsskóla.
Þar verða leikmenn heiðraðir og
þeir sem skarað hafa framúr fá
viðurkenningar. Leikmenn eru
beðnir að hafa með sér búninga
vegna myndatöku.
Morgunblaöiö/Símamynd/B. Valsson
• Michel Platinl ræddi við franska fjölmiðla um frammistöðu sína f leiknum gegn íslandi, en um árabil
hefur hann neitað öllu slfku. Hlutverk hans f franska liðinu er Ifka annað og meira nú en áður — er eins
konar andlegur fólagi og fyrirmyndarfaðir hinna leikmannanna.
r íjr
’rz.fh f r
Ljósmynd/Guðmundur KR. Jóhannesson
• Linda Jónsdóttir, fþróttamaður KR, og Sveinn Jónsson, formaður
fálagsins, með hinn glæsilega farandbikar, sem Georg L. Sveinsson
f Bandaríkjunum gaf á sfnum tíma og Unda varðveitir f eitt ár.
Linda Jónsdóttir
íþróttamaður KR
LINDA Jónsdóttir, körfuknatt-
leikskona f KR, var kjörin fþrótta-
sima
HÓNUST&
GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA
ÍSLENSKRA GETRAUNA
Hér eru leikirnir!
Leiklr 2. maí 1987 1 X 2
1 Arsenal - Aston Villa 2 Charlton - Luton 3 Chelsea - Leicester
4 Coventry - Liverpool 5 Man. United - Wimbledon 6 Nott’m Forest - Tottenham
7 Oxford - Norwich 8 Sheffield Wed. - Q.P.R. 9 Watford - Southampton
10 West Ham - Newcastle 11 Derby-Leeds 12 Oldham - Plymouth
Hringdu strax!
688-322
föstudaga kl. 9.00-17.00 laugardagakl. 9.00-13.30
maður fólagsins f vikunni. Hún
er fyrsta konan, sem hlýtur þessa
nafnbót, en undanfarin tvö ár
hefur Linda orðið þrefaldur
meistari f körfubolta og boríð af
f meistaraflokki kvenna.
Linda hefur átt mikilli velgengni
að fagna í íþrótt sinni. Hún lék fyrst
með meistaraflokki KR árið 1972
og hefur á undanförnum 15 árum
orðið 11 sinnum íslandsmeistari,
sjö sinnum bikarmeistari, sjö sinn-
um Reykjavíkurmeistari og jafnan
verið stigahæst.
Undanfarin tvö ár hefur Linda
verið kosin körfuknattleikskona
vetrarins í 1. deild kvenna, verið
stigahæst bæðj árin, var með
bestu vítahittnina í fyrra og þá
næst bestu í ár.
Asgeir
meiddur
„ÉG er mjög aumur f öxlinni og
bólglnn á fæti, en vonandi get ég
verið með gegn HSV á laugardag-
inn,“ sagði Asgeir Sigurvinsson,
besti maður fslenska landsliðslns
gegn Frökkum, f gærkvöldi ný-
kominn úr læknisskoðun.
Ásgeir fékk besta marktækifæri
íslenska liðsins í landsleiknum,
þegar hann prjónaði sig í gegnum
vörnina í lok fyrri hálfleiks, en var
felldur og kom illa niður. „Mig vant-
aði hálft skref til aö ná til boltans,
en ef það hefði gerst, er aldrei að
vita, hvað hefði skeð. En eins og
mátti sjá, hefði vítaspyrna verið
óréttlátur dómur," sagði Ásgeir
aðspurður um brotið.
Læknisskoðunin leiddi í Ijós að
ekki er um brot að ræða og lið-
bönd virðast óslitin. Ásgeir fékk
einnig slæmt spark á aðra ristina
og rifnaði út frá einni nöglinni, en
hann fékk bólgueyðandi sprautur
og vonast til að leika með Stuttg-
art á morgun.
Ásgeir var ósáttur við úrslitin
og sagði að Frakkar hefðu mátt
vel við una. „Þegar við töpuðum
• Ásgeir Siguvinsson melddlst
á öxl í leiknum gegn Frökkum f
fyrrakvöld.
3:0 fyrir þeim í Nantes 1975 vorum
við heppnir að fá ekki á okkur mik-
ið fleiri mörk, en núna áttum við
möguleika," sagði Ásgeir.
Tennis:
Vormót ÍK
VORMÓT [K, sem er opið tennis-
mót í einliðaleik karla og kvenna,
verður haldið í íþróttáhúsinu
Digranesi 8. - 10. maí. Þátttöku
skal tilkynna til íþróttahússins fyrir
klukkan 21 fimmtudaginn 7. maí,
en niðurröðun fer þar fram klukkan
22 þann dag. Mótsstjóri er Guðný
Eiríksdóttir.
íþróttagetraun
Morgunblaðsins
Vinningshafar á Wembley
Morgunblaðið hefur ákveðið
að efna til fþróttagetraunar í
sumar og og hefst hún f fþrótta-
blaðinu nk. þriðjudag, 5. maf.
Getraunin, sem er hugsuð fyrir
unglinga og yngri lesendur
blaðsins, skiptist f raun f þrjár
sjálfstæðar getraunir, eina f
mafmánuði, aðra f júnf og þá
þriðju f júlfmánuði og verða
nöfn þriggja vinningshafa dreg-
In út í lok hverrar getraunar.
Nánar verður grelnt frá fyrlr-
komulaginu f blaðinu á þriðju-
dag.
Vinningshafarnir níu verða
leystir út með veglegum verð-
launum, auk þess sem sá eða
sú sem á fyrsta réttu lausnina
sem dregin verður út hverju
sinni, hlýtur aðalverðlaun, sem
eru utanlandsferð til Englands í
ágúst. Þar verður farið á Wem-
bley-leikvanginn og horft á ensku
deildarmeistaranna og bikar-
meistaranna í leik um Góðgerð-
arskjöldinn og sitthvað fleira gert
fyrir verðlaunahafa. Það er því
til mikils að vinna og óhætt að
hvetja alla unga lesendur blaðs-
ins og íþróttaunnendur að vera
með frá upphafi.