Morgunblaðið - 17.05.1987, Side 2

Morgunblaðið - 17.05.1987, Side 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. MAÍ1987 vaka of lengi. Það endaði með því að hann sofnaði á leiðinni oftar en einu sinni og lenti nú í anzi miklum vandræðum. Þetta hlýtur að hafa verið glæfraför að ein- hveiju leyti. Þama var verið að leggja út í eitthvað sem enginn vissi í raun og veru neitt um. Veðurfregnimar hafa t.d. ekki verið of ábyggilegar á þessum tíma. Hann lenti í tiltölulega slæmu veðri nema að hann fékk meðvind, það var hans heppni. Hann lenti t.d. í éljagangi og ísingum og varð að fara alveg niður undir sjó fyrir rest. Maður er hissa á því hvað flugvél, sem er ekki með neinn afísingarbúnað, hvorki á skrúfu né vængjum, hélzt uppi því nú var hún mjög þung. Vegna þyngsla flugvélarinnar ætlaði hann t.d. aldrei að ná aldr- ei að ná flugvélinni í loftið á Long Island þegar hann var að fara. Það er mjög merkilegt hvað hún flaug vel. Ég held að siglingabúnaður og annar tækjabúnaður hafi verið engin. Ég held hann hafi bara gert flugáætlun og flogið stefnu. Þegar hann var kominn niður undir sjó fór hann að spá í vind- inn og sá þá að hann var nokkum veginn eins og hann hafði reiknað með og því ekki hrakið af leið. Það má segja að siglingafræði- lega hafi hans flug verið svipað því sem menn þjuggu við hér heima til að byija með. En strax í fyrstu milliiandaferðum okkar höfðum við alltaf mann með sem átti að gera það sem hann gat til að leiðbeina okkur um flugleiðina. Svo voru komin radíóvitar, sem ég held að Lindbergh hafi ekki geta stutt sig við. Ég held að flug Lindberghs sé enn eitt mesta afrek flugsögunn- ar. Það voru að vísu margir búnir að reyna og komast anzi langt og margir að gera alls kyns til- raunir. En Lindbergh hafði heppnina með sér, enda kölluðu þeir hann yfirleitt „Lindy the Lucky" eða „Lucky Lindy“,“ sagði Magnús. Að eiiiliverju leyti giæfraflug en mjög vel undirbúið -SEGIR MAGNÚSGUÐMUNDSSON, FYRRVERANDIFLUGSTJÓRI „ÉG MAN lítillega eftir flugi Lindberghs frá New York til Parísar. Það þótti mikið afrek í þá daga og er það vissulega enn. Að einhverju leyti var þetta glæfraflug en ég tel að hann hafi undirbúið það mjög vel,“ sagði Magnús Guðmunds- son, fyrrverandi flugstjóri hjá Flugleiðum. Magnús var at- vinnuflugmaður i fjóra áratugi en hætti flugi vegna aldurs fyrir nokkrum árum. „Ég hef lesið bók Lindberghs um flugið og þar kemur fram að hann virðist hafa undirbúið flugið mjög vel. Hann lét smíða sérstaka flugvél fyrir sig og bjó hana út eftir sínu höfði. Hann fór í nokkur flug í Bandarílq'unum, ef ég man rétt, til að þjálfa sig. Það sem var sérstakt við flugvélina var að hann lagði langmest upp úr því að hafa nóg eldsneyti. Þessvegna setti hann m. a. tank fremst í hana þar sem framgluggi hefði átt að vera og af þeim sökum sá hann ekkert út, allt svo ekki fram fyrir sig, heldur varð hann að stinga höfðinu út um hliðarglugga til að sjá út. Hann beið nú lengi eftir veðri og loksins þegar hann fór var hann illa upplagður, var búinn að Magnús Guðmnundsson flugstjóri (fjórði frá hægri) í hópi ættingja, vina og starfsfélaga við kom- una til Keflavíkurflugvallar úr síðasta áætlunarflugi sínu. Flug Lindberghs gjörólíkt því sem við erum að fást við -SEGIR ALBERTBALDURSSON, FLUGMAÐUR „ÞETTA hefur verið rosalegt afrek og ég veit ekki hveiju hægt er að líkja þvi við í dag. Við erum að öllu leyti að tala um allt allt aðra hluti í dag,“ sagði Albert Baldursson, flug- maður af yngri kynslóðinni. Hann er flugmaður hjá Leigu- flugi Sverris Þóroddssonar. „Flug Lindberghs er að vísu mjög fjarlægt í huga mínum og framandi. Það var þó gjörólíkt því sem við erum að fást við í dag. Fæstir okkar þekkja það hvemig er að fljúga yfír Atlantshafíð í þeim flughæðum og við þær að- stæður, sem Lindbergh glímdi við. Það er helzt að þessir gallhörðu feijuflugmenn, sem eru að beijast hér á milli á smáflugvélum, allt niður í hæggengustu einshreyfíls- vélar, séu að fást við eitthvað sem líkist flugi Lindberghs. Þeir eru þó venjulegast með góðan leið- sögubúnað. Eftir að Lindbergh var kominn á loft hafði hann ekkert annað til að fara eftir en kompásinn og hyggjuvitið. Það hlýtur að þurfa meiriháttar kjark og árræði til að leggja út í flug af þessu tagi. Eflaust hefur mikil heppni fylgt honum í fluginu til Parísar og hann hefur verið heppinn með flugvélina líka. Hún sló aldrei feilpúst og hefur verið mjög vel hönnuð og hentað vel fyrir þetta flug. Það hefur allt lagst á eitt um að þetta gengi upp hjá honum. Við erum að tala um allt aðra hluti í dag í flugvélakosti og tækja- og leiðsögubúnaði. í dag eru flugvélamar mjög vel búnar tækjum, jafnvel þær minnstu eru með lóran leiðsögutæki. Leiðsögu- búnaður á jörðu niðri og við flugvellina er líka mjög fullkomin og gerir flug milli staða léttara en áður var. Ég veit ekki hvort hægt er að líkja nokkmm öðmm viðburði í flugsögunni við afrek Lindberghs. Manni dettur þó helzt í hug hnatt- flug Ameliu Earhart, sem að vísu tók öðm vísi endi, þegar hún hafði lagt rúmlega tvo þriðju hluta leið- arinnar að baki. En mér fínnst þeir allir vera miklir afreksmenn sem verið hafa að þreifa sig eitt- hvað áfram í fluginu fengist hafa við allt finnst mér. Tækin og bún- aðurinn hjá þessum mönnum hefur ekki verið neinn miðað við það sem við þekkjum í dag. Og ég er hræddur um að í dag mundi enginn leggja í flug með þann búnað sem þeir höfðu nema al- gjörir hálfvitar," sagði Albert. Albert Baldursson í kunnuglegu umhverfi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.