Morgunblaðið - 17.05.1987, Blaðsíða 8
8 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. MAÍ 1987
Hino ZM 1980
Þessi glæsilega vörubifreið ertil sölu, bíllinn hefur
aldrei verið notaður í malarflutninga enda lítið
keyrður eða 76.000 km.
Hann er með 9 tonna millerkrana. Árg. 1976 sem
er í toppstandi.
Dekkin eru hálfslitin en pallur mjög nýlegur og
með álskjólborðum. Verð ca. 1,7—2 millj.
Upplýsingar í síma 92-3966 og 92-4966 fyr-
ir hádegi og 92-4356 á kvöldin.
Úr skinni með þægilegu innleggi.
Einnig margar aðrar gerðir.
TOPP
---OTORIIÍN
VELTUSUNDI 1
21212
Domus Medica
S. 18519.
Blöndusement er sérstaklega
ætlað til styrktar þeim mannvirkjum
sem náttúruöf lin mæða mest á
Sementsverksmiðja ríkisins hefur
ávaiit kappkostað að framleiða
sement fyrir íslenskar aðstæður.
Eftir margra ára þróun í samvinnu viö
Rannsóknarstofnun byggingariðnað-
arins framleiðir Sementsverksmiðja
ríkisins nú nýtt „blandað“ sement
(pozzolansement). Gæði þess og
kostir eru fjölbreyttari en sambæri-
legra sementstegunda verksmiðjunn-
ar hingað til. Blöndusement hentar
best í mannvirki sem eiga að stand-
ast sérstaka áraun. hað veitir mikla
mótstöðu gegn alkalískemmdum.
Sementið harðnar hægar en venju-
legt sement og hentar því vel í
múrhúð. Það hefur þegar verið notað
með góðum árangri í Blönduvirkjun.
SEMENTSVERKSMIÐJA
RÍKISINS
Kyrjálabotn:
Olíumeng-
un á leið til
strandar
Helsinki, frá Lars Lundsten, fréttaritara
Morgnnblaðsins.
EKKI er lengur talið unnt að ná
olíumenguninni úr hafinu sunn-
an við suðurströnd Finnlands.
Næsta skref er að reyna safna
olíunni saman áður en hana rek-
ur á land. Finnsk og sovésk
olíuvarnarskip hafa undanfarna
daga reynt að safna saman olíu-
flákanum sem rann úr sovéska
tankskipinu Antonio Gramsci í
febrúar. Olíufélagið hefur
þynnst það mikið að möguleikar
á að ná olíunni úr hafinu eru
hverfandi.
Nú reyna finnsk umhverfisvemd-
aryfirvöld að koma í veg fyrir að
olían reki upp í skeijagarðinn. A
föstudaginn var reynt að koma upp
flotgirðingu svo að olían kæmist
ekki í fiskeldistöðvar á suðurströnd-
inni og einnig var reynt að veija
það svæði þar sem kjamorkuverið
í Lovísa tekur kælivatn. Olíuflákinn
var á föstudaginn 30—40 km fyrir
utan suðurströnd Finnlands og á
norðurleið. Fimm skip í olíuvamar-
flota Finnlands fylgjast með ferðum
flákans.
Fyrir viku stefndi olíuflákinn inn
í sovéska lögsögu og finnskt olíu-
vamarskip kom sovétmönnum til
aðstoðar þegar reynt var að safna
saman þeim hundmðum þúsunda
tonna hráolíu sem enn eru í sjónum.
Vegna þess að olíuflákinn hefur
þynnst og er orðinn að örþynnri
filmu á yfirborði sjávar hafa olíu-
vamarskipin ekki náð nema 10
tonnum úr sjónum undanfama viku.
Þegar sovéska tankskipið Antonio
Gramsci strandaði fyrir utan suður-
strönd Finnlands í febrúar mnnu
um 700.000 tonn af hráolíu í sjó-
inn. Talið er að nokkur hundmð
tonn hafi gufað upp og sokkið til
botns.
Aðalftmdur
Sjálfsbjargar:
Vill að gerð-
ir verði
sjónvarps-
þættir um
hjálpartæki
AÐALFUNDUR Sjálfsbjargar,
félags fatlaðra í Reykjavík og
nágrenni ^ var haldinn fyrir
skömmu. A fundinum var sam-
þykkt tillaga um að leitað verði
samninga við ríkissjónvarpið um
gerð þátta um hjálpartæki og
notkun þeirra.
Sérstaklega er í tillögunni rætt
um fræðsluþátt um val hjólastóla
og notkun þeirra og um aðstoð við
fólk í hjólastólum. Lögð er áhersla
á að við undirbúning fræðsluþátta
skuli stjóm Sjálfsbjargar leita að-
stoðar bflstjóra Ferðaþjónustunnar
annarsvegar og Hjálpartækjabank-
ans hinsvegar. Þá skoraði fundur-
inn á stjómina að undirbúa þætti
um önnur hjálpartæki í sjónvarpinu.
Á fundinum kom fram að Stjóm
málefna fatlaðra hefur úthlutað
félaginu 4 milljónum króna til und-
irbúnings að rekstri vemdaðs
vinnustaðar í Reykjavík, en félagið
fékk leyfi fyrir slíkum rekstri með
25 stöðugildum árið 1985. Hlutverk
þessa vinnustaðar mun m.a. verða
það að þjálfa upp einstaklinga í að
sinna störfum við framleiðslu og
aðstoða þá síðan í að fá vinnu úti
í atvinnulífínu.
í upphafi fundarins var minnst
fyrrverandi formanns félagsins og
fyrsta heiðursfélaga þess, Sigurðar
Guðmundssonar, ljósmyndara, en
hann lést á liðnu ári.