Morgunblaðið - 17.05.1987, Síða 14

Morgunblaðið - 17.05.1987, Síða 14
“I 14 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. MAÍ 1987 Fátt lýsti Lindbergh betur en að hann hélt að enginn mundi þeklcja hann í París og hafði því meðferðis kynnisbréf. En silf- urgrá flugvél hans hafði varla numið staðar á Le Bourget-flug- velli þegar þúsundir (enginn veit hve margir) ruddust yfír öflugar stálgirðingar og gegnum raðir hermanna og lögreglumanna, umkringdu vélina og hylltu hann ákaft. „Jæja, það tókst,“ sagði Lind- bergh brosandi. „Hann ætlaði að stökkva út, en tuttugu hendur teygðu sig til hans og lyftu honum út eins og ungbami." Síðan var hann borinn í gullstól út af flug- vellinum. Afrek Lindberghs hafði þeim mun meiri áhrif vegna þess að auk þess að vera hugrakkur var hann prúðmenni, einlægur og yfírlætisiaus. Hann var aðeins 25 ára gamall en leit úr fyrir að vera 18 ára, hávaxinn, myndar- legur og ókvæntur og gæddur þeim fágæta hæfíleika að vekja athygli án þess að virðast reyna nokkuð til þess. Hann reykti hvorki né drakk, jafnvel ekki kaffí eða Coca Cola, því að hann vildi halda dómgreind sinni óskertri. Eftirhreytur ófriðarins mikla 1914-1918 og nýjustu kenningar í vísindum og sálfræði höfðu graf- ið undan sjálfstrausti fólks, vonum þess, hugsjónum og trú. Hetjum hafði verið kastað fyrir róða, blöðin voru uppfull af frétt- um um spillingu og glæpi og höfðu kvikmyndaieikara og braskara í hávegum. En fólk virt- ist vilja dýrka eitthvað annað og þrá ævintýri, hreinskiptni og háttvísi. Lindbergh virtist fylla þessa þörf og var kallaður „Gala- had nútímans" eftir einum af riddumm hringborðs Artúrs kon- ungs í Camelot Ofsahrifning Ofsahrifningin í París breiddist út um alla heimsbyggðina. Fólk stóð á öndinni og átti varla orð til að lýsa hrifningu sinni. Blöð slógu upp fréttinni um lendinguna með stórum fyrirsögnum og þús- undir greina birtust um flug- kappann í „Spirit of St.Louis", sem varð hetja alls heimsins. Orð- um og heiðursmerkjum rigndi yfír hann og hann var vegsamað- ur, dýrkaður og heiðraður. í París var hann gerður að ridd- ara frönsku heiðursfylkingarinn- ar og mannQöldi elti hann á röndum. Að loknu sýningarflugi yfír borgina flaug hann til Briissel, þar sem hann var kynnt- ur fyrir Alberti konungi. „Ég hef hitt fyrsta konunginn," skrifaði hann, „og ef þeir eru allir eins og hann getið þið verið viss um að ég er hlynntur konungum." Næsti áfangastaður hans var Croydon-flugvöllur skammt frá London, þar sem 150,000 aðdá- endur hans ruddust út á flug- brautina, svo að hann varð að hætta við fyrstu tilraun sína til að lenda. Þegar fregnin um lendinguna barst til Bandaríkjanna voru gefín út aukablöð og blaðasalar gleymdu að taka við greiðslum í öllum æsingnum. Sextán þúsund aukaeintök af „Washington Star“ voru rifín út, 40,000 af „St. Lou- is Dispatch" og 114,000 af „New York Evening World“. Jafnvirðu- legt blað og „The New York Times“ birti fréttina með fyrir- sögn, sem náði þvert yfír alla forsíðuna. Milljónir Bandarikjamanna biðu Lindberghs með óþreyju og virtust sammála þeim dómi „Evening World" að hann hefði unnið „mesta afrek eins manns í annálum mannkynsins." Auk þess biðu hans 75,000 heillaóskaskeyti og tveir vörubflafarmar af blaða- úrklippum. Eitt skeytið, sem var frá Minneapolis og með 17,500 undirskriftum, var 175 metra langt. Þegar sigurfréttinni var brugðið upp á sýningartjöldum kvikmyndahúsa ráku áhorfendur upp fagnaðaróp og þustu út til að segja tíðindin. Calvin Coolidge forseti fól beitiskipinu „Memphis", flagg- skipi Evrópuflota Bandaríkjanna, að sækja Lindbergh og „Spirit of St.Louis“ og enginn sá nokkuð athugavert við það. Þegar beiti- skipið sigldi inn í Chesapeake- flóa komu til móts við það fjórir tundurspillar, tvö loftför og 40 herflugvélar. Þegar Coolidge fagnaði Lindbergh við komuna til Washington, lauk hann á hann lofsorði og sagði að flugafrek hans hefði verið „sama hetju- og sigursaga alþýðusonarins og skín af hverri síðu í sögu Banda- ríkjanna." Coolidge var gagnorð- asti forseti í sögu Bandaríkjanna og kunnur menntamaður kvað þetta „lengsta og áhrifamesta ávarp forsetans síðan hann flutti þinginu síðast árlegan boðskap sinn.“ í Washington var Lindbergh fyrstur manna sæmdur nýju heið- ursmerki, flugkrossinum (Dist- inguished Flying Cross), hækkaður í tign og gerður að ofursta, þótt hann væri aðeins 25 ára. Jafnvel enn glæsilegri móttökur biðu hans í New York, þar sem fjórar milljónir manna þustu út á götumar. Pappírsræm- um rigndi yfír skrúðgöngu, sem var farin honum til heiðurs á Broadway, og dagurinn náði hám- arki með stórveizlu, sem 4,000 gestir sátu. Hátíðarhöldin stóðu í fjóra daga og að þeim loknum tíndu götuhreinsunarmenn saman Calvin Coolidge forseti sæmir Lindbergh reynir að lenda á Croydon-flugvelli. Lindbergh nýju heiðursmerki. Hann varð að gera aðra tilraun. Nokkur dægurlög voru tileinkuð Lindbergh. 1,800 lestir af pappírsrusli og slógu fyrra met, sem var 155 lest- ir og frá 7.nóvember 1918 þegar vopnahléi var fagnað nokkrum dögum of fljótt. Við tóku sigurgöngur og stöð- ug veizluhöld í St. Louis og mörgum öðrum borgum. Lind- bergh fór í fjögurra mánaða ferð í „Spirit of St. Louis" til allra 48 ríkja Bandaríkjanna. Mikill manngrúi safnaðist saman hvert sem hann fór. Hann fékk ekki einu sinni frið þegar hann heim- sótti Orville Wright, frumheija flugsins. Á einum stað sat hann „Qölmennasta kvöldverðarboð til heiðurs einstaklingi í sögunni." Bær í Texas var skírður í höfuðið á honum og lagt var til að 425 metra hár Lindberghs- turn yrði reistur í Chicago. Margar götur voru kenndar við hann og fjöldi skóla, veitingastaða og fyrirtækja reyndu að nota nafn hans sér til framdráttar. Reyndur flugmaður Skrúðgöngur, fagnaðarlæti, hátíðarræður, hetjudýrkun og „§ölmiðlafár“ skyggðu á vandleg- an undirbúning sögulegrar flug- ferðar Lindberghs. Hann var atvinnuflugmaður, hafði 2,000 flugtíma að baki og var í engum vafa um að tilraunin mundi heppnast. „Hvi skyldi ég ekki fljúga frá New York til Parísar," hafði hann spurt sig í september 1926. „Ég hef fjögurra ára flu- greynslu. Ég hef flogið til bæja og sveita í rúmlega helmingi Flugvél Lindberghs skömmu eftir flugtak frá Roosevelt-flugvelli á Long Island. í

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.