Morgunblaðið - 17.05.1987, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. MAÍ 1987
B 19
Tímarit
Máls og
menningar
um karla-
bókmenntir
ANNAJÐ hefti tímarits Máls og
menningar á þessu ári geymir
margar greinar um klassískar
bókmenntir. Peter Hallberg lýk-
ur grein sinni Listin að ljúka
sögu um verk Halldórs Laxness.
Arni Bergmann og Halldór Guð-
mundsson skrifa um bókmennta-
risana Fjodor Dostojevskí og
Honoré de Balzac. Og Kristín
Geirsdóttir á Hringveri á Tjör-
nesi skrifar um Jónas Hallgríms-
son.
írska skáldið og ritstjórinn, John
F. Deane, samdi grein um írskar
bókmenntir að beiðni tímaritsins,
sem nú birtist. Hann fjallar um
skáld og sagnameistara á þessari
öld, nútímann og áhrifavalda hans.
Af einstaklingum fær Seamus
Heany mesta umfjöllun, hann kom
til íslands í hittifyrra.
Ólafur Gunnarsson á samantekt
í heftinu sem hann kallar Að kunna
skil á sínu skaz-i. Þar birtir hann
bréf sem fóru milli hans og Ólafs
Jónssonar gagnrýnanda um skáld-
söguna Ljóstoll og býr þau til
prentunar með inngangi og eftir-
mála.
Friðrik Rafnsson tók viðtal við
júgóslavneska rithöfundinn Dailo
Kis fyrir tímarit Máls og menning-
ar og þýðir líka söguna Dýrlegt
er að deyja fyrir föðurlandið eft-
ir hann. Önnur smásaga er í heftinu
eftir Sindra Freysson, ungan höf-
und: Skuggar.
Ljóð eru eftir Þorstein frá Hamri,
Steinunni Sigurðardóttur, ísak
Harðarson, Heimi Má, Sigríði Matt-
híasdóttur og Ásgeir Beinteinsson.
í ádrepunni Bernskuminningar
ræðir Guðmundur Andri Thorsson
fullyrðingar um að ungir íslenskir
rithöfundar skrifi bara um bemsku-
reynslu sína.
Umsagnir eru um fimm bækur,
Ævisögu Kjarvals eftir Indriða G.
Þorsteinsson, Bjöm Th. Bjömsson
rýnir; Blindfugl/Svartflug eftir
Gyrði Elíasson, Gunnar Harðarson
skrifar; Fátt af einum eftir Geirlaug
Magnússon, Einar Ólafsson skrifar,
raunar um fleiri bækur hans; Konur
fyrir rétti eftir Jón Óskar, Már Jóns-
son skrifar. Og loks em nokkrir
þankar Þorleifs Fiðrikssonar um
Uppruna nútímans eftir Gunnar
Karlsson og Braga Guðmundsson.
Ritstjóri tímaritsins er Silja Aðal-
steinsdóttir.
(Úr fréttatílkynningu.)
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLADASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖDINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OGÁRÁÐHÚSTORGI
Píanó — flyglar STEINWAY & SONS GROTRIAN-STEINWEG Einkaumboð á íslandi Pálmar ísólfsson & Pálsson sf. Pósthólf 136, Reykjavík. Símar: 30392 — 13214 — 11980 Tölvunámskeið fyrir fullorðna Fjölbreytt, gagnlegt og skemmtilegt byrjendanámskeið fyrir fólk á öllum aldri. Tími: 18., 20., 25. og 27. maí kl. 19-22. Innritun í símum 687590 og 686790. Jbs5s-ni TÖLVUFRÆÐSLAN Borgartúni 28, Reykjavík.
•s-l p-Á-r Sl •i\h Jíit aAK/%
pr. mann.
Verðið miðast við 2 fullorðna og 2 börn
yngri en 12 ára.
Mánuöir dags. tími
Maí 26. 14 dagar
Júní 9. 3 vikur
Júní 30. 3 vikur
Júli 21. 3 vikur
Ágúst 11. 3 vikur
September 1. 3 vikur
September 22. 3 vikur
Costa del Sol er sælustaður allrar fjöl-
skyldunnar. Það eru fáir staðir jafn ákjós-
anlegir fyrir fjölskyldufólk og Costa del
Sol. Staðurinn býður nánast upp á allt,
sem hugurinn girnist. Börn og fullorðnir
kunna vel að meta ævintýralegt umhverfi,
sundlaugar, fjörúgt strandlíf, sjóinn, sól-
ina, glæsilegt tívolí og ótal margt fleira.
Á Costa del Sol er fjöldi glæsilegra veit-
ingastaða og verslanir á hverju strái.
FJÖLSKYLDUVERÐ TERRU
KEMUR Á ÓVART.
3 vikur frá kr.
27.900,-
GÓÐA FERÐ! \V5®K
Ferðaskrifstofa Snorrabraut 29 Sími 26100