Morgunblaðið - 17.05.1987, Síða 32

Morgunblaðið - 17.05.1987, Síða 32
32 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. MAÍ 1987 * Nýtt Líf — blað I takt við tímann. Elite '67 Nýtt Líf kynnir þær stúlkur, sem komust í úrslit í fyrirsætu- keppni Nýs Lífs og Elite, en að þessu sinni komust þrettán stúlkur í úrslit. í blaðinu er fjallað um keppnina og sagt frá þeim verðlaunum sem sigurvegarinn hlýtur og úrslitakeppninni sem fram fer á Sikiley næsta haust. Sumartískan 1987 — Handavinna — Matur — Tisku- þáttur — Líf og list — Smásaga — Viðtöl og greinar. Halla Margrét Halla Margrét Árnadóttir, fulltrúi íslands í söngvakeppni sjón- varpsstöðva, átti hug og hjörtu íslendinga þegar hún söng lagið hans Valgeirs „Hægt og hljótt“. Í viðtali í Nýju Lífi ræðir Halla um sviðsljósið sem svo skyndilega beindist að henni: „Keppnin og það sem henni fylgir truflar mig ekki. Sviðsljósið getur lika verið beinlínis eyðandi — ef við látum stjórna okkur...“ ,Undir snúru — yfir skurð ér finnst þjóðfélagið koma lítið á móts við barnmargt fólk,“ segir Helga Jóhannesdóttir í viðtali við Nýtt Líf en hún og eiginmaður hennar Ómar Ragnarsson eiga sjö börn. í við- talinu ræðir hún um stöðu barnafólks í íslensku þjóðfélagi, málefni fatlaðra og hlutverk kvenna sem hafa sinnt börnum og heimili um árabil, en vilja gjarnan fara út á vinnumarkaðinn: „Ég hefði viljað fara í vinnu þar sem reynsla mín nýttist betur... en reynsla eins og mín er einskis metin...“ Helga hefur ákveðnar skoðanir á ýmsum málum og hefur nýlega haslað sér völl á vettvangi stjórnmála. Sjomennska, kennsla, Qölmiðlun.... Onundur Björnsson hefur komið óvenju víða við og það er sjaldnast lognmolla í kringum hann. Nýtt Líf hitti Önund að máli og í líflegu viðtali spjallar hann um lífið og tilveruna og ýmislegt sem á hans daga hefur drifið: „Mér finnst konur oft á tíðum raunsærri og andlega þroskaðri en við karlmennirnir. Þetta sést best á þeirri kvennabaráttu sem gengið hefur yfir síðustu ár.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.