Morgunblaðið - 22.05.1987, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 22.05.1987, Blaðsíða 5
V8ei ÍAM .02 flUOAaUTHÖ'? .aiGAJaVlUOflOM MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1987 * 5 Símon Ormsson hjá hárgreiðslu- stofunni Permu á greiðsluna, sem minnir óneitanlega á pálmatré. HUGMYNDAFLUGA Keppni í frjálsri greiðsluffree style) á vegum tímaritsins Hár og fegurðar var haldin í Broadway um síðustu helgi og þótti takast hið besta. I keppni sem þessari er lögð áhersla á að sköpunargáfa og listrænt innsæi keppenda njóti sín sem best. Mátti því sjá margar nýstárlegar og litríkar útfærslur á þessari höfuðprýði, sem við köllum hár. Ekki var þó nóg að vera frumlegur því greiðslurnar urðu einnig að bera vitni um gott handbragð. Dómendur voru bæði faglært og ófaglært fólk til að fá fram ólík viðhorf. Keppni í frjálsri greiðslu á vegum tímaritsins Hár og fegurðar er orðinn árlegur viðburður en haldnar voru tvær slíkar keppnir á síðastliðnu ári, önnur á skemmtistaðnum Broadway í Reykjavík og hin í Sjallanum á Akureyri. Að sögn Péturs Melsted, sem gefurtímaritið út, fer nemum, sveinum og meisturum, sem taka þátt í keppninni sífellt fjölgandi en að þessu sinni voru keppendur fimmtíu og þrír að tölu. Glæsileg verðlaun voru í boði. Veitt voru fjögur fyrstu verðlaun, tvö í flokki nema og tvö fyrir sveina og meistara. Verðlaunin voru bikarar, sem blaðið gefur. Einnig fengu fyrstuverðlaunahafarnirtrimmgalla frá Don Cano og skófrá skóversluninni Skæðum og Líkamsræktarstöðin í Skeifunni gaf mánaðarkort i líkamsrækt. Hárgreiðslufólki veitir nefnilega ekki af að halda sér í góðu líkamlegu ástandi. Það er erfitt að standa upp á endann allan daginn eins og hárgreiðslustarfið krefst. Tveir stigahæstu keppendurnir fengu svo vikvudvöi á þekktum hárgreiðsluskólum í London þeim Alan International og Jingles International. Auk þess gaf verslunin Leðurval þeim leðurjakka að andvirði fimmtán þúsund krónur og verslunin Tískuval gaf úttekt að upphæð fimm þúsund krónur. Við afhendingu verðlauna til þeirra stigahæstu gerðist það atvik að verðlaunin lenntu ekki strax í réttum höndum og varð annar keppandinn að skila vikudvölinni aftur. Svo vel vildi til að í salnum var Ingólfur Guöbrandsson forstjóri Útsýnar, og þegar hinn vonsvikni skilaði verðlaununum tilkynnti Ingólfurað í sárabæturfengi keppandinn ferð frá Útsýn. Þetta vakti að vonum mikla ánægju allra. Þau sem skipuðu efstu sætin í flokki nema í hárgreiðslu voru Birna Hermannsdóttir hjá hárgreiðslustofunni Permu og í öðru sæti Símon Ormsson. í efstu sætunum í hárskurði nema var Hildur Hauksdóttir frá Hár, Hafnarfirði og Invi Már hjá Hárskeranum, Skúlagötu 54 var í öðru sæti. Aðalsteinn Aðalsteinsson hjá Salon Veh var í efsta sæti í hárgreiðslu sveina og meistara og í öðru sæti Anna Friðriksdóttir hárgreiðslustofunni Klapparstíg. I hárskurði sveina og meistara var Erna Lúðvíksdóttir hjá hárgreiðslustofunni Bitsy efst en í öðru sæti Gríma Kristinsdóttir hjá Salon Ritz. Stigahæstu keppendurnirurðu Birna Hermannsdóttirog Erna Lúðvíksdóttir. Fleira var til skemmtunar þetta kvöld. þar á meðal sýndu nokkrir meðlimir Förðunarfélagsins það sem kallað er á ensku “creative makeup" og tókst sú sýning afar vel en síðar verður greint frá henni. Einnig var tískusýning, sem tímaritið Hár og fegurð stóð að. Kvöldinu lauk með verðlaunaafhendingunni en á eftir var stiginn dans. Gott handbragð sögðu dómarar þegar þeir sáu klippinguna enda hlaut sú sem það á hún Hildur Hauksdóttir hjá Hár, Hafnarfirði efsta sætið í hárskurði nema. Röndótt mær eftir Aðalstein Aðalsteinsson Salon Veh. Aðalsteinn var efstur i hárgreiðslu í flokki sveina og meistara, en það var Aðalsteinn, sem hreppti ferðina með Útsýn. Þá er komið að því hvernig barnið ver tíma sínum þegar það ereitt heima. Mikilvægasta atrið- ið í því sambandi er sú öryggistil- finning sem felst í þeirri vitneskju að enda þótt foreldrarnir séu ekki heima sé barnið ekki eitt og vegalaust, heldur hafi það álltaf einhvern til að snúa sér til. Mik- ilsvert er að semja við góðan granna um að líta til með barninu og vera ekki einungis til taks ef barnið gefur sig fram. Ágætt er að barnið hafi stundaskrá til að fara eftir í fjar- veru foreldranna. Ástæða er til að taka sérstaklega fram að myndbandstækið er ekki boðleg fóstra nokkru barni. Hér á landi eru skóladagheimili af skornum skammti, en holl iðja utan skól- atíma er fólgin í starfi hinna ýmsu félagasamtaka, s.s. íþróttafé- laga, skáta og kristilegra félaga, auk þess sem félagsmiðstöðvar eru starfandi í sumum hverfum. Þegar rætt er um lyklabörn er venjulega átt við skólabörn á aldrinum 10—12 ára, en sérfræð- ingum ber saman um að yngri börn sé ekki forsvaranlegt að skilja eftir ein nema svo sem klukkustund í senn. Ung börn hafa ekki þroska til að skipu- leggja tíma sinn, auk þess sem öryggisleysi og ótti háir þeim yfir- leitt verulega. (Úr Shape Magazine) inð dauðans dyr Ungmenni sem lifa af alvarleg veikindi og dauðadá hafa svipaðar sögur að segja af slíkri reynslu sinni við dauðans dyr og fullorðnir sem áður hafa greint frá slíkri reynslu, að því er fram kemur í American Journal of Diseases of Children. Það sem þeir er hafa að baki slíka reynslu eiga oftast sameiginlegt eru svonefndar sálfarir, en vísindamenn telja sig e.t.v. hafa öðlazt skilning á slíkum fyrirbærum. Rannsókn sem fram fór á vegum læknaskólans við Washington-háskóla leiddi í Ijós niðurstöður sem benda til að slík reynsla eigi sér taugalífefnafræðilegar orsakir. Höfundar skýrslu sem birt var að rannsókninni lokinni geta sér þess til að ástand það sem hér um ræðir sé afleiðing af örvun á taugasamböndum íheilanum. Þetta ástand hafi síðan í för með sér ofskynjanir þegar hugurinn leitist við að finna skynsamlega skýringu á slíkri skynjun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.