Morgunblaðið - 03.09.1987, Qupperneq 1
*->opr r-TT Trrrr'wr»aro r *7r A PTrrwi'7 ^Tr:/t TorT*T7o.qv>»
VIKUNA 4. TIL 10. SEPTEMBER R
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1987 BLAÐ M-Þ
Spurt & Svarað
Þeir sem hafa áhuga á að
koma fyrirspumum í þáttinn
Spurt & Svarað, geta hringt
í Morgunblaðið í síma 691100
á milli kl. 14.00 og 15.00 á
fimmtudögum.
Sp:Er ráðgert að færa útsend-
ingu Stjömunnar til Akureyrar?
- Anna Garðarsdóttir spyr.
Sv:Nei, það stendur ekki tii að
fara að útvarpa Norðanlands.
- Ólafur Hauksson, útvarps-
stjóri Stjörnunnar svarar.
Sp:Verða þættimir um Síðustu
daga Pompei endursýndir hjá
Sjónvarpinu og þá hvenær?
- Bragi Þorfinnur Ólafsson
spyr.
Sv:Það em ekki uppi áform um
að endursýna þættina um
Síðustu daga Pompei hjá Sjón-
varpinu.
- Hinrik Bjarnason, dag-
skrárstjóri erlends efnis hjá
Sjónvarpinu svarar.
Menning og afþreying
þessa vikuna
Isabel Allende, rithöfundurinn frá Chile kemur nokkuð við sögu í umfjöllun fjölmiðla þessa
vikuna, en hún er á meðal gesta á bókmenntahátíð Máls og menningar síðar í mánuðinum.
Á miðvikudag sýnir Sjónvarpið þátt frá danska sjónvarpinu þar sem rætt er við Allende og
á Rás 1 er á fimmtudag þáttur sem heitir Konan með græna hárið. Þar fjallar Guðmund-
ur Andri Thorsson um Isabel Allende og bók hennar „Hús andanna", sem kom út 1982.
Allende starfaði sem blaðamaður í Chile og hafði skrifað nokkur leikrit og sögur fyrir börn
áður en „Hús andanna" kom út. Önnur skáldsaga, „Um ást og skugga", kom út 1984
og vakti gífurlega athygli, sem og hin fyrri. Allende var náfrænka Salvadors Allende, fyrrum
forseta Chile, sem lét lífið í herforingjabyltingunni 1973 og eru afdrif lands og þjóðar henni
hugleikin, eins og fram kemur í þáttunum.
Annar gestur bókmenntahátíðarinnar er bandaríski rithöfundurinn Kurt Vonnegut, en
Sjónvarpið sýnir einmitt á laugardagskvöld kvikmyndina Sláturhús fimm sem gerð er
eftir hans frægustu bók.
Af öðrum kvikmyndum á skjánum þessa vikuna má nefna Athafnamenn og Olíugos
á Stöð 2 á laugardagskvöld, þýsku myndina Staðgengillinn á miðvikudagskvöld og Leyni-
fundi með Richard Burton og Sophiu Loren á sunnudagskvöld.
Nokkrir framhaldsþættir hefja göngu sína þessa vikuna, Góði Dátinn Sveik verður sýnd-
ur á mánudagskvöld í Sjónvarpinu en framhaldsþættirnir um þessa frægu sögupersónu
Haseks koma frá Austurríki. Fyrirmyndarfaðir birtist á nýjan leik í Sjónvarpinu á laugar-
dagskvöld, en breskur heimildarmyndaflokkur sem nefnist Sægarpar verður sýndur á
þriðjudagskvöld. Hunter nefnist ný spennuþáttaröð um lögreglumann í Los Angeles sem
hefst á Stöð 2, einnig á þriðjudagskvöld.
Af nýjum dagskrárliðum í útvarpi má svo nefna þáttinn Stjörnuklassík á Stjörnunni á
sunnudagskvöld, en þar verður leikin klassísk tónlist og rætt við tónlistarmenn sem henni
tengjast. Jóns saga Jónssonar nefnist svo ný miðdegissaga sem Haraldur Hannesson
hefur lestur þýðingar sinnar á í Ríkisútvarpinu á fimmtudag kl. 14.00. Er um að ræða
sjáfsævisögu Jóns Jónssonar frá Vogum í Mývatnssveit, en Jón fæddist 1829, braust til
mennta þrátt fyrir lítil efni, nam trésmíði í Kaupmannahöfn og lærði tungumál af sjálfu
sér. Sjálfsævisaga Jóns fannst á Landsbókasafninu löngu eftir andlát hans, en hún hafði
birst í tímaritinu Frazer's Magazine og þykir merkileg um margt.
Sjónvarpsdagskrá bls. 2—14
Útvarpsdagskrá bls. 2—14
Skemmtistaðir bls. 3
Bíóin í borginni bls. 9
Veitingahús bls. 11/13
Kvikmyndaumfjöllun bls. 11/16
Guðað á skjáinn bl. 14
Myndbandaumfjöllun bls. 16
Hvað er að gerast? bls. 16