Morgunblaðið - 03.09.1987, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1987
B 3
SKEMMTISTAÐIR
ABRACADABRA
Laugavegur116
Skemmtistaðurinn Abracadabra erdag-
lega opinn frá hádegi til kl. 01.00.
Austurlenskur matur er framreiddur á
jarðhœðinni til kl. 22.30, en í kjallaranum
eropiöfrá kl. 18.00 og til kl. 03.00 um
helgar. Kl. 22.00 erþardiskótek. Enginn
aðgangseyrir er á fimmtudögum og
sunnudögum. Síminn er 10312.
ÁRTÚN
VagnhöfAi 11
I Ártúni er leikur hljómsveitin Danssporið,
ásamt söngkonunni Kristbjörgu Löve,
gömlu dansana á föstudagskvöldum til
frá 21.00—03.00, en á laugardagskvöld-
um mætirsama hljómsveit og söngkona
til leiks frá kl. 22.00—03.00 og eru þá
bæði nýju og gömlu dansarnir. Slminn
er 685090.
Álfabakkl 8
Hljómsveit Siggu Beinteins leikur í Broad-
way á föstudagkvöld, en á laugardags-
kvöld re sýningin Allt vitlaust og tekur
svo hljómsveit Siggu Beinteins við að
henni lokinni. Aldurstakmark í Brodway
er í sumar 18 ára. Síminn er 77500.
CASABLANCA
Skúlagata 30
Diskótek er í Casablanca á föstudags-
og laugardagskvöldum frá kl. 22.00—
03.00.
ITNPÁ
EVRÓPA
Borgartún 32
Diskótek er á föstudags- og laugardags-
kvöldum frá kl. 22.00—03.00.
GLÆSIBÆR
Álfheimar74
Hljómsveit hússins leikur í Glæsibæ á
föstudags og laugardagskvöldum frá kl.
23.00—03.00. Slminn er 686220.
HÓTELBORG
Pósthússtrætl 10
Tónleikar eru á Hótel Borg á fimmtudags-
kvöldum, frá kl. 21.00. Á föstudag- og
laugardag erdiskótek frá kl. 21.00—
03.00, en gömlu dansarnir á sínum stað
á sunnudagskvöld, frá kl. 23.00—01.00 .
HÓTELESJA
SuAurlandsbraut 2
Á skemmtistaðnum Skálafelli á Hótel
Esju leikur Guðmundur Haukur á orgel
fyrir gesti. Skálafell er opið fimmtudaga
til sunnudaga frá 19.00—00.30. Aðra
dagaeropiðfrá kl. 19.00—23.30. Síminn
er 82200.
HÓTELSAGÁ
Hagatorg
Dansleikir eru I Súlnasal Hótels Sögu á
föstudags- og laugardagskvöld frá kl.
22.00—03.00 og er það hljómsveit Grét-
ars Örvarssonar sem leikur fyrir dansi. Á
Mímisbar er svo leikin létt tónlist fyrir
gesti frá kl. 22.00—03.00. Síminn er
20221.
LENNON
Austurvöllur
Diskótek er í Lennon á föstudags- og
laugardagskvöldum frá kl. 20.00—03.00
og er þá aðgangseyrir enginn til kl. 23.00
Á öðrum dögum er diskótek frá kl. 20.00
-01.00. Síminner 11322.
SIGTÚN
SuAurlandsbraut 26
Diskótekiö eropið í Sigtúni á föstudags-
og laugardagskvöldum frá kl. 22.00—
03.00, en á laugardagseftirmiðdögum
er þar skemmtidagskrá fyrir eldri borgara
frá kl. 14.00, m.a. dans, matur, félags-
vist, skemmtiatriði. Slminn er 681330.
HOLLYWOOD
Ármúla 6
Leitin að týndu kynslóðinni heldur áfram
meö í Hollywood um helgina. Hljómsveit
leikur fyrir dansi, auk þess sem diskótek
týndu kynslóðarinnar verður í gangi með
tónlist frá 7. áratugnum, bæði á föstu-
dags- og laugardagskvöld. Borðapantan-
ireru ísíma 641441.
BRAUTARHOLTÍ20.
CAFÉ
ÞÓRSCAFÉ
BrautarhoK 20
Hljómsveit Stefáns P. leikur í sumar á
efri hæðinni á föstudags- og laugardags-
kvöld, auk þess sem gestahljómsveitir
leika stundum um helgar. Á neðri hæð-
inni er svo í gangi diskótek frá kl. 22.00
- 03.00 sömu kvöld. Síminn er 23333.
19.19
Daglegir umsjónarmenn 19.19, Helgi Pétursson, Valgerður Matt-
híasdóttir og Páll Magnússon.
Stöð 2 hefur út-
sendingar 17.
september á um-
fangsmiklum
daglegum frétta-
og umfjöllunar-
þætti, 19.19
Frá því í vor hafa starfsmenn
Stöðvar 2 unnið hörðum höndum
að undirbúningi þáttar sem nú
hefur hlotið heitið 19.19. Er um
að ræða í senn frétta- og umfjöll-
unarþátt sem verður í beinni
útsendingu á hveiju kvöldi,
klukkustund í senn. Umsjónar-
maður hans er Helgi Pétursson,
en aðrir sem bera hitann og þung-
ann af útsendingunni eru Páll
Magnússon, fréttastjóri, Valgerð-
ur Matthíasdóttir, sem verður
kynnir þáttarins ásamt Helga,
Maríanna Friðjónsdóttir sem er
dagskrárgerðarstjóri þáttarins og
Björn Bjömsson, yfírmaður dag-
skrárgerðardeildar.
Tekur yf ir aðra þætti
„Þetta „fréttamagasín" hefst
eins og nafnið gefur til kynna
klukkan 19.19 og verður þáttur-
inn klukkustundarlangur alla
virka daga og örlítið styttri um
helgar," segir Helgi Pétursson.
„Þama verður blandað saman í
afmörkuðum hólfum harðri frétta-
mennsku frá fréttastofu annars
vegar og hins vegar nánari um-
fjöllun um þjóðmál sem em efst
á baugi, menningarmál, íþróttir
og nánast hvað sem er. Fréttir frá
fréttastofu koma inn í þáttinn kl.
19.30 og verða örlítið styttri en
nú er, þar sem öll nánarí fréttaum-
fjöllun færist yfír á sfðari hluta
þáttarins.
Það má segja að þátturinn
byggi á þrenns konar efni, þ.e.
fréttum, unnu efni, eins og gagn-
rýni, og svo efni sem verður til í
beinni útsendingu," segir Helgi,
en talsverðar breytingar verða á
dagskrá Stöðvar 2 með tilkomu
þáttarins, þar sem hann tekur
yfír efni ýmissa annarra þátta
s.s. Návígis, Sviðsljóssins og í
eldlínunni. Þá verður annar upp-
tökusalur Stöðvar 2 notaður
eingöngu fyrir þáttinn.
Vitringahópur
„Þetta fyrirkomulag býður upp
á að vera með hvort heldur er
eitt aðalefni eða tíu til umræðu
og við ætlum að leggja áherslu á
nánari umfjöllun með því að hafa
á okkar snæmm heilan „vitringa-
hóp“ sem við höfum kallað svo,
einstaklinga með sérþekkingu á
ólíkum sviðum þjóðlífsins, sem
koma og útskýra, sem fagmenn,
hin ýmsu mál.
100 starfsmenn
Svo er annar stór hópur sem
einnig vinnur að þáttunum og það
em gagnrýnendur. Við ætlum að
§alla vemlega um menninnguna
og allar hliðar hennar og verðum
þama með gagmýni á leikrit,
kvikmyndir, bækur, ljóð og annað
sem tiiheyrir. Þetta er mjög yfír-
gripsmikið og um 100 manns sem
vinna að gerð þáttanna.
Auk frétta og nánari fréttaum-
Qöllunar verðum við með mikið
af beinum útsendingum af höfuð-
borgarsvæðinu inni í þættinum
og vonumst til að geta aukið bein-
ar útsendingar annars staðar frá
með tíð og tíma.
Púls þjóðlífsins
Við bindum miklar vonir við
þennan þátt og höfum lagt gífur-
lega vinnu í hann. Nítján nítján
kemur alltaf til með að byggjast
fyrst og fremst á málefnum dags-
ins og með því fyrirkomulagi að
brjóta upp umfjöllun úr föstum
þáttum, vera með fréttir, menn-
ingarumfjöllun og allt annað sem
er að gerast á þessum klukk-
utíma, vonumst við til að færa
áhorfendum á einni klukkustund
púlsinn á daglegu þjóðlífí," segir
Helgi Pétursson. Þættimir 19.19
standa yfír til kl. 20.20, en tveir
auglýsingatímar koma inn í þátt-
inn, strax eftir fréttir og í lok
þáttarins.
- VE
Stöð 2:
Þrjár kvikmyndir
Fyrsta kvikmynd Stöðvar 2 i kvöld nefn-
99IO ist Lögreglusaga, (Confessions of a Lady
Cop) og eru þau Karen Black og Don
Murray í aðalhlutverkum. Söguþráður myndarinnar
er í stuttu máli sá, að Evelyn Carter, sem hefur
starfað í lögreglunni í 16 ár stendur á tímamótum
í lífí sínu. Hún kemur að vinkonu sinni sem hefur
framið sjálfsmorð, elskhugi hennar vill slíta sam-
bandinu og framganga Evelyn í máli hjóna sem
hafa verið myrt fær hana til að efast um að hún
hafí valið sér rétt ævistarf. Leikstjóri myndarinnar
er Lee H. Katzin, en myndin er bönnuð bömum.
■■■i Bandaríska kvikmyndin Togstreita á
9 0 45 Barbary strönd, (Flame on Barbary
— Coast) er næst á dagskrá, en sú mynd
er frá árinu 1945 og gerist upp úr aldamótunum.
Duke er kúabóndi frá Montana, sem kemur til San
Francisco í þeim erindagjörðum að innheimta skuld
af eiganda spilaklúbbs þar í borg. Honum mistekst
innheimtan, en hann verður þess í stað ástfanginn
af unnustu klúbbeigandans og ákveður að flytjast
til San Francisco. En jarðskjálftinn mikli er á næsta
leyti.
Með aðalhlutverk í myndinni fara John Wayne,
Ann Dvorak og Joseph Spildkraut, en leikstjóri er
Joseph Kane. Myndin fær ★ ★ V2 í kvikmynda-
handbók Schreuer.
■^■1 Lokamynd kvöldsins er Kattarfólkið,
a-| 15 (CatPeople) fráárinu 1982, meðNastass-
U1 “’ iu Kinski og Malcolm McDowell í aðal-
hlutverkum. í myndinni, sem fær ★ ★1/2 í
kvikmyndahandbókum og telst alls ekki við hæfi
bama, er fjallað um fyrstu kynni ungrar konu af
ástinni, sem umbreytir henni og hefur örlagaríkar
Úr lögreglusögu.
afleiðingar í fór með sér. Tónlist í myndinni er eftir
Giorgio Moroder og David Bowie, en leikstjóri er
Paul Schrader.
Faber-Castell
Rétti penninn
fyrir
tæknideildina
Sérstakt
kynningarverÁ
Kr. 1.99S
áþriggja
pennasetti
Faber-Castell kemur nú
enn á óvart og býður
upp á hinn
einstaka TC 1 tæknipenna
Penninn er með sérlega vel hannaðan teikniodd
og nýja tvöfalda lokun, sem gerir þaö að
verkum, aö penninn þornar ekki upp og óþarfi
er að hrista hann fyrir notkun.
Sérstök lekaþétting kemur i veg fyrir leka.
Mál
logmenmng
Ritföng
Síöumúla7-9, sími 689 519.
Laugavegi 18; sími 24240.