Morgunblaðið - 03.09.1987, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1987
B 11
VEITINGAHÚS
VEITINGAHÚS
Efmenn ætla að gera sér
dagamun og setjast að snæð-
ingi íeinhverju veitingahúsi á
höfuðborgarsvæðinu er
vissulega afnógu að taka.
Hér er birtur listiyfir veitinga-
hús með vínveitingaleyfi og
erí mörgum tilvikum ráðlegt
að panta borð fyrirfram.
VEITINOAHÚS MEO
VÍNVEITINOALEYFI
ALEX
Laugavegur126
ALEX er opið alla daga nema sunnudaga
frá kl. 11.30—23.30 og er eldhúsinu lok-
að kl. 23.00. Borðapantanir í síma
24631. Matreiöslumeistari hússins er
Sigurþór Kristjánsson. Meöalverð á fisk-
rétti er kr. 640 og kjötrétti kr. 1000.
ARNARHÓLL
Hverfisgata 8-10
Á Arnahóli er opið yfir sumartímann frá
kl. 17.30—23.30, en eldhúsið lokar kl.
22.30. Matseöill er a la carte, auk sér-
réttaseðla með allt frá þremur til sjö
réttum. Borðapantanir isíma 18833.
Matreiöslumeistari hússins er Skúli
Hansen. Meðalverð á fiskrétti er kr. 900
og á kjötrétti kr. 1200.
BAKKI
Lœkjargata 8
Á Bakka er opiö daglega frá kl. 11.30—
14.30 og frá 18.00—10.30, en kaffiveit-
ingar eru í boði á milli matmálstíma.
Borðapantanireru ísíma 10340. Meöal-
verð á fiskrétti er kr. 800 og á kjötrétti
kr. 1000.
VERIÐ VELKOMIN
HÓTEL LOFTLEIÐIR
FLUGLEIDA /V HÓTEL
BLÓMASALUR
Hótel Loftlelðir
Blómasalurinn er opinn daglega frá kl.
12.00-14.30 og frá kl. 19.00-10.30,
en þá lokar eldhúsiö. Auk a la carte
matseðils er þar alltaf hlaðborð með
séríslenskum réttum í hádeginu. Borða-
pantanireru ísíma 22322. Matreiðslu-
meistari hússins er Bjarni Þór Ólafsson.
Meðalverð á fiskrétti er kr. 500 og á kjöt-
rétti kr. 900.
21.00 Sumarkvöld á Bylgjunni með Þor-
steini Ásgeirssyni.
24.00 Næturdagskrá Bylgjunnar. Um-
sjón: Bjarni Ólafur Guðmundsson.
Tónlist óg upplýsingar um veður og
flugsamgöngur.
STJARNAIM
7.00 Þorgeir Ástvaldsson.
8.00 Fréttir.
9.00 Gunnlaugur Helgason. Tónlist
o.fl. Fréttir kl. 10.00 og 12.00.
12.00 Rósa Guöbjartsdóttir. Hádegisút-
varp.
13.00 Helgi RúnarÓskarsson. Tónlistar-
þáttur. Fréttir kl. 14.00 og 16.00.
16.00 „Mannlegi þátturinn". Jón Axel
Ólafsson. Spjall og tónlist. Fréttir kl.
18.00.
18.00 íslenskirtónar. íslenskdægurlög.
19.00 Stjörnutiminn. Ókynnt gullaldar-
tónlist.
20.00 Helgi Rúnar Óskarsson kynnir lög
af breska vinsældalistanum.
21.00 Árni Magnússon. Tónlistarþáttur.
Fréttir kl. 23.00.
23.10 íslenskir tónlistarmenn leika sin
uppáhaldslög. i kvöld: Pétur Kristjáns-
son söngvari.
00.15 Stjörnuvaktin.
ÚTVARP ALFA
8.00 Morgunsjund, Guðs orð, bæn.
8.15 Tónlist.
12.00 Hlé.
13.00 Tónlistarþáttur.
19.00 Hlé.
22.00 Prédikun. Flytjandi Louis Kaplan.
22.15 Tónlist.
24.00 Næturdagskrá. Dagskrárlok.
HUÓÐBYLGJAN
AKUREYRI
8.00 í bótinni. Friðný Björg Sigurðar-
dóttir og Benedikt Barðason verða
með fréttir af veðri og samgöngum.
Auk þess lesa þau sögukorn og fá til
sin fólk í stutt spjall. Fréttir kl. 8.30.
10.00 Á tvennum tátiljum. Ómar Péturs-
son og Þráinn Brjánsson sjá um
þáttinn. Þriöjudagsgetraun, uppskrift-
ir, óskalög. Fréttir kl. 12.00 og 15.00.
17.00 Gamalt og gott. Pálmi Guð-
mundsson spilar lög sem voru vinsæl
á árunum 1955-77. Fréttir kl. 18.00.
19.00 Þættinum Gamalt og gott fram-
haldið. Dagskrárlok.
SVÆÐISÚTVARP
AKUREYRI
18.03—19.00 Umsjónarmenn svæðis-
útvarps eru Kristján Sigurjónsson og
Margrét Blöndal.
ELDVAGNINN
Laugavegur73
Eldvagninn er opinn daglega frá kl. 11.
30—23.30, en eldhúsið lokar kl. 23.00.
í hádeginu ersvokallað Kabarett hlað-
borð og stendur þaö fram eftir degi, auk
þess sem kaffiveitingar eru í boöi, en
eldhúsið opnar fyrir kvöldverð kl. 18.00.
Borðapantanir eru í sima 622631. Mat-
reiðslumeistari hússins er Karl Ómar
Jónsson. Meöalverö á fiskrétti erkr. 600
og á kjötrétti kr. 800.
FJARAN
Strandgata 55, Hafnarfjörður
Veitingahúsið Fjaran er opiö alla daga
frákl. 11.30-14.30 ogfrákl. 18.00-22.
30, en á milli matmálstíma eru kaffiveit-
ingar í boði. Matseðilinn er alhliða, en
áhersla lögð á fiskrétti. Borðapantanir
eru ísima 651213. Matreiðslumeistari
hússins er Leifur Kolbeinsson. Meðal-
verð á fiskrétti er kr. 750 og á kjötrétti
kr. 1000.
GRILLIÐ
Hótel Saga
í Grillinu er opið daglega frá kl. 12.00—
14.30og frá kl. 19.00-11.30, en
eldhúsið lokar kl. 10.30. Á milli mat-
málstíma eru kaffiveitingar í boði.
Matseðill er a la carte, auk dagseðla,
bæði fyrir hádegi og kvöld. Borðapantan-
ir í síma 25033. Matreiðslumeistari
hússins er Sveinbjörn Friðjónsson. Með-
alverö á fiskrétti er kr. 620 og á kjötrétti
kr. 1100
GULLNI HANINN
Laugavegur178
Á Gullna Hananum er opið frá mánudegi
til fimmtudags frá kl. 11.30—14.30 og
frákl. 18.00—24.00, og lokarþáeld-
húsið kl. 22.30, en um helgar er þar
opið frá kl. 18.00—01.00 og eldhúsið til
kl. 23.30. Matseöill er a la carte, auk
dagseðla. Borðapantanir í síma 34780.
Matreiðslumeistari hússins er Brynjar
Eymundsson. Meðalverð á fiskrétti er kr.
700 og á kjötrétti kr. 1000. Á Gullna
Hananum verða í sumar sýnd verk Sól-
veigar Eggerz.
HARDROCKCAFÉ
Kringlan
í Hard Rock Café er opið alla daga frá
kl. 12.00, til kl. 24.00 virka daga og kl.
01.00 á föstudags- og laugardagskvöld-
um. í boði eru hamborgararog aðrir
léttir réttir að hætti Hard Rock, auk sér-
rétta hússins og er meðalverö á sérrétt-
unum um 680 krónur. Matreiðslumeistari
er Jónar Már Ragnarsson. Síminn er
689888
BRASSERIE BORG
Hótel Borg
Veitingasalurinn Brasserie Borg á Hótel
Borg er opin daglega frá kl. 12.00— 14.00
og frá 18.00—22.30, nema föstudaga
og laugardaga þegar eldhúsinu er lokað
kl. 23.30, en opið er fyrir kaffiveitingar á
morgnana og kaffihlaðborð um miöjan
dag. i hádeginu er hlaðborð með heitum
og köldum réttum alla virka daga. Bcröa-
pantanireru i síma 11440. Matreiðslu-
meistari hússins er Heiðar Ragnarsson.
Meðalverð á fiskrétti er kr. 670 og á kjöt-
rétti kr. 950.
GREIFINN AF MONTE CHRISTO
Laugavegur11
Veitingahúsið Greifinn af Monte Christo
er opið alla daga vikunnar frá kl. 11.00—
23.30, en eldhúsinu lokarkl. 23.00.
Hlaðborð er í hádeginu. Borðapantanir
eru í sima 24630. Matreiðslumeistari
hússins er Fríða Einarsdóttir. Meðalverð
á fiskrétti er kr. 660 og á kjötrétti kr. 900.
isaiiiiiiB
ESJUBERG
Hótel Esja
Veitingastaðurinn Esjuberg er opinn dag-
lega fyrir mat, frá kl. 11.00 til kl. 22.00,
en en kaffiveitingar eru allan daginn frá
kl. 08.00. Þjónustuhorniö Kiðaberg er
öll kvöld til kl. 22.00 og á fimmtudags-og
laugardagskvöldum leikur Hinrik Bjarna-
sonleikurá gítar fyrir gesti. Borðapantan-
ireru ísíma 82200. Matreiðslumeistari
er Jón Einarsson og meðalverð á fisk-
rétti er kr. 615 og á kjötrétti kr. 900.
HÓTELHOLT
Bergstaðastræti 37
Veitingasalurinn á Hótel Holti eropinn
daglega frá kl. 12.00—14.30 ogfrá 19.
00—22.30, þegar eldhúsinu er lokað, en
á föstudags- og laugardagskvöldum er
opnaö kl. 18.00. Borðapantanir eru í síma
25700. Matreiöslumeistari hússinser
Eiríkur Ingi Friðgeirsson. Meðalverð á
fiskrétti er kr. 650 og á kjötrétti kr. 1100.
i*i;ykjavik
HOLIDAYINN
Tveir veitingasalir, Lundur og Teigur eru
á Holiday Inn hótelinu. Veitingasalurinn
Teigur er kvöldverðarsalur, opinn dag-
lega og matur framreiddur frá kl. 19.00—
23.30. Veitingasalurinn Lundur er opinn
frá 07.30 en eldhúsinu er lokað lokar
klukkan 21.00. Þar er framreiddur hádeg-
is- og kvöldverður, auk kaffiveitinga á
milli mála. Matreiðslumeistari hússins
er Jóhann Jakobsson. Jónas Þórir leikur
fyrir matargesti. Á barnum skemmta þeir
Helgi Hermannsson og Hermann Ingi
Hermannsson. Síminn á hótelinu er
689000.
HALLARGARÐURINN
Kringlan 9
í Hallargarðinum eropið daglegafrá kl.
12.00-15.00 ogfrá 18.00-23.30.
Borðapantanireru ísíma 30400. Mat-
reiðslumeistarar eru þeir Bragi Agnars-
son og Guðmundúr Viðarsson.
Meöalverð á fiskrétti er kr. 750 og á kjöt-
rétti kr. 1000.
HRESSINGARSKÁLINN
Austurstrœti 18
i Hressingarskálanum er opið alla virka
daga og laugardaga frá kl. 08.00 til kl.
23.30, en á sunnudögum er opiö frá kl.
09.00 til 23.30. Síminn er 14353.
KAFFIVAGNINN
Grandagarður
Kaffivagninn við Grandagarð er opinn
alla daga frá kl. 07.00—23.00 og er þar
í boði hádegismatur kvöldmatur og kaffi
á milli mála. Síminn er 15932.
f KVOSINNI
Austurstræti 22, Innstrætl
(Kvosinni er lokað mánudaga og þriðju-
daga, en aðra daga opnar veitingahúsið
kl. 18.00ogeropiðframyfirkl. 23.00,
en þá er eldhúsinu lokað. Boröapantanir
eru í síma 11340. Matreiðslumeistari
hússins er Francois Fons. Meðalverð á
fiskrétti er kr. 700 og á kjötrétti kr. 1000.
LAMBOG FISKUR
Nýbýlavegur 28
Daglega er opið í veitingahúsinu frá kl.
08.00—22.00, en eldhúsiö lokar á milli
kl. 14.00—18.00. Á laugardögum er opið
frá kl. 09.00—22.00 og á sunnudögum
frá kl. 10.00—22.00. Kristján Fredrikssen
ermatreiðslumeistari hússins. Meðal-
verð á fiskrétti er kr. 500 og á kjötrétti
kr. 700, en eins og nafn staöarins gefur
til kynna ereinungis matreitt úr lamba-
kjöti og fiski. Siminn er 46080.
LÆKJARBREKKA
Bankastræti 2
I Lækjarbrekku eropiðdaglegafrá kl.
11.30-14.30 og kl. 18.00-23.30, en
eldhúsinu er lokað kl. 23.15. Kaffiveiting-
ar eru á milli matmálstima. Þá er sá
háttur hafður á í sumar, að á sólskyns-
dögum grilla matreiðslumeistararhúss-
ins i hádeginu i portinu á bakvið.
Borðapantanireru ísima 14430. Mat-
reiðslumeistari hússins er Örn Garöars-
son. Meðalverð á fiskrétti er kr. 680 og
á kjötrétti kr. 980.
SKÍÐASKÁLINN
Hveradalir
f Skíðaskálanum er opið alla virka daga
frá kl. 18.00—23.30, en eldhúsinu lokar
kl. 23.00. Á laugardögum og sunnudög-
um erenfremuropiðfrákl. 12.00—14.
30 fyrir mat, en kaffihlaðborð og smárétt-
ir eru síðan i boði til kl. 17.00. en þá
opnar eldhúsið á nýjan leik. Á sunnu-
dagskvöldum er kvöldveröarhlaöborö og
á fimmtudagskvöldum eru svokallaöar
Víkingaveislur. Guðni Guðmundsson leik-
ur fyrir matargesti á laugardags- og
sunnudagskvöldum. Borðapantanireru í
sima 99-4414. Matreiöslumeistari húss-
ins er Karl Jónas Johansen. Meðalverð á
fiskrétti er kr. 700 og á kjötrétti kr. 1000.
IJU HflHI fVlfMyNCÁNNA
Verður sýnd á næstunni í Stjörnubíói:
STEINGARÐAR COPPOLA
Nýjasta mynd Francis Ford
Coppola, Gardens of Stone, sem
Stjömubíó mun sýna á næstunni,
er enn ein myndin, sem hefur
Víetnamstríðið í bakgrunni en í
þetta sinn er fjallað um áhrif þess
á hermennina sem þjónuðu heima-
fyrir. Hermenn eins og Clell
Hazard (James Caan), sem þjálfar
menn fyrir „The Old Guard“, heið-
ursvörðinn við þjóðargrafreitinn f
Arlington, sem er sögusvið mynd-
arinnar. Hazard veit að Víet-
namstríðið er ólíkt öllum öðrum.
Flestir manna hans eiga eftir að
lenda í stríðinu. Fáir munu snúa
aftur. „í þessu stríði," segir hann
„er engin víglína. Þetta er ekki
einu sinni stríð. Það er ekkert að
sigra og engin leið að vinna.“
Hinn harðsnúni James Caan fer
með aðalhlutverkið í myndinni.
sem gerist árið 1968, en á móti
honum leikur Anjelica Huston
(dóttir hins nýlátna John Hust-
ons), en hún er blaðamaðurinn og
friðarsinninn Samantha Davis,
sem verður ástfangin af Clell,
James Earl Jones er Goody Nel-
son, besti vinur Clells, D.B.
Sweeney er nýliðinn Jackie
Willow, sem þráir að komast í
stríðið, Dean Stockwell leikur
yfírmann Clells og Mary Stuart
Masterson er vinkona Jackie.
Handritið skrifaði Ronald Bass
eftir bók Nicholas Proffítt, sem
sjálfur var í heiðursverðinum í
þrjú ár og var seinna stríðsfrétta-
ritari í Víetnam fyrir vikuritið
Newsweek.
Ef myndir Coppola, eins
fremsta leikstjóra Bandaríkjanna,
eiga eitthvert sameiginlegt þema
er það sterk persónuleg tengsl,
oft innan fjölskyldunnar. Gardens
of Stone_ er engin undantekning
frá því. í myndinni er herinn hin
stóra fjölskylda. „Ég kunni því
vel að finna fjölskyldu þar sem
yfirleitt er álitið að karlaveldið
ráði ríkjum,“ sagði Coppola.
„Heiðursvörðurinn og fjölskyldan.
Mér fannst líkingin passa ágæt-
lega við það sem við vorum að
reyna að segja... Það eru svo
margir sem sjá hermenn fyrir sér
sem harða og tilfinningalausa.
Þeir tengja þá við óvinsælan mál-
stað, sem þeir eru látnir taka
þátt í. Við erum að fást við fólk
hér og það gerir verkefnið bita-
stætt."
„Þessi mynd íjallar um sam-
bönd innan fjölskylduformsins og
það vill svo til að fjölskyldan er
bandaríski herinn," segir James
Caan. „Þetta er tímalaus saga um
kennara og nemanda hans, um
föður og son, um mann og konuna
sem hann elskar." Caan hafði
ekki leikið í bíómynd í fímm ár
þegar hanna ákvað að snúa sér
aftur að kvikmyndunum í Gardens
og Stone. Þetta er fjórða myndin
sem hann leikur í undir stjóm
Coppola. Hinar þtjár eru Guð-
faðirinn, Guðfaðirinn II og
Regnfólkið (The Rain People).
Hann notaði fimm ára hléið til
að ala upp son sinn Scott. Hann
virðist hafa haft nokkuð gott af
því. Hverjar sem skoðanir manna
á Gardens of Stone hafa verið,
og þær eru misjafnar, eru menn
nokkuð sammála um að James
Caan hafí sjaldan verið betri.
James Caan og Aiyelica Huston I Gardens of Stone.
Nýliðinn Jackie WUlow (D.B. Sweeney) hittir yfirmenn sina, Clell
Hazard (Caan) og Goody Nelson (James Earl Jones).