Morgunblaðið - 03.09.1987, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1987
B 15
Myndbönd
Sæbjörn Valdimarsson
Glímt við
Bakkus
drama
Shattered Spirits ★ ★
Leikstjóri: Robert Greenwald.
Handrit Gregory Goodell.
Aðalleikendur Martin Sheen,
Matthew Laborteaux, Melinda
Dillon, Roxana Zal, Lukas Haas.
Bandarísk. 1986. Robert Green-
wald Production Inc. — Kingf
Features Entertainment. Skífan
1987. 90 mín. Bönnuð yngri en
12 ára.
Nokkuð mikil yfírborðsmennska
og óraunverulegur efnisþráður
skemma þessa mynd sem á þó
margt gott skilið. Fljótt á litið virið-
ist allt vera í sómanum hjá Martin
Sheen og flölskyldu. Huggulegasta
fólk, tveir bflar, einbýlishús. En það
er ekki allt sem sýnist, heimilis-
faðirinn er farinn að snúa sér
ískyggilega mikið að flöskunni. Við
fylgjumst með honum yfírkeyra
sjálfan sig og fjölskylduna. En hann
brýtur ekki allar brýr að baki sér
og að lokum er verið að reyna að
lappa uppá leifamar.
Shattered Spirits er ákaflega
misjöfn mynd. Sum atriðin eru
prýðisvel gerð og leikin, t.d. kemur
mjög vel fram einn sterkur þáttur
í lífí drykkjumannsfjölskyldu —
hræðslan við sjúklinginn. Annað er
öllu slakara og grynnra líkt og upp-
lausn heimilisins þegar bömin em
tekin. Einhvemveginn virkar það
ekki á áhorfandann sem skyldi.
Þetta hefði átt að vera eitt sterk-
asta atriði myndarinnar en það
rennur útí sandinn. Fram eftir lítur
allt út fyrir að myndin leysist uppí
dæmigerða AA/SAÁ grátkerlingar-
mynd, en til allrar guðslukku hlýtur
hún ekki þau örlög. Þó svo að upp-
þurrkunin sé ámóta auðvelt fyrir-
brigði og í sumum öðmm myndum
um þetta alvarlega vandamál.
Sheen er dágóður sem alkinn,
þó em fyllerístúramir hálf-timbrað-
ir og engan veginn líklegir. Dillon
er hinsvegar mjög sennileg í yfírve-
guðum lágt stemmdum leik og
krakkamir, einkum Lukas Haas
(Vitnið) og Roxana Zal (Testa-
ment) standa sig vel. Shattered
Spirits er að mörgu leyti athyglis-
verð mynd um þjóðfélagsböl sem
alla snertir, en tekur það þvi miður
heldur melódramatískum tökum.
Tylftaf
tindátum
stríðsmynd
The Dirty Dozen:
Next Mission ★
Leikstjóri: Victor McLaglen.
Byggt á handriti e. Nunally Jo-
hnson og Lukas Heller.
Aðalleikendur: Lee Marvin, Er-
nest Borgnine, Ken Wahl,
Richard Jaeckel.
Bandarísk MGM/UA 1985.
Gerð fyrir sjónvarp en sýnd í
kvikmyndahúsum utan Banda-
rikjanna. 100 min.
Það hlaut að koma að því að
hugumstórir Hollywood-framleið-
endur fengju þá frumlegu hugmynd
að gera framhald The Dirty Dozen,
stríðsmyndarinnar nafntoguðu sem
fór sigurför um heiminn undir lok
sjöunda áratugsins. Enda hafði hún
af að státa eldhressum og spenn-
andi söguþræði, líflegri leikstjóm
„karlmannaleikstjórans" Robert
Aldrich og leikaravalið var eins og
best var á kosið. Þvflíkt gengi! Lee
Marvin, Emest Borgnine, Robert
Ryan, Charles Bronson, Telly Sav-
alas, John Cassavetes, Donald
Sutherland, George Kennedy, svo
aðeins þeir helstu séu nefndir.
En það hefði verið óskandi að
fyrmefndir Hollywood-framleið-
endur hefðu haldið að sér höndum,
því framhaldið er heldur ótóttlegt
í samanburði við fyrirmyndina.
Leikaramir em annaðhvort gamal-
menni, Marvin, Borgnine, Jaeckel,
sem em þeir einu af leikhópi fyrri
myndarinnar, eða þá getulítil smá-
stimi, Wahl, Wilcox og félagar. Að
auki býður handritið ekki uppá
neina persónusköpun í líkingu við
The Dirty Dozen, þetta em allt
saman heldur flatneskjulegir tind-
átar.
Efnið er hálf-vandræðalegt að
auki. Ruddamir em að þessu sinni
sendir bak við vígstöðvamar til að
koma í veg fyrir morð á Hitler! Nóg
um það. Eitt dæmi um fáránleik
þessarar framleiðslu. Hópurinn er
náttúrlega látinn dulbúast sem þý-
skir hermenn; hvemig í ósköpunum
datt handritshöfundi í hug að hafa
einn þeirra svartan?
Margnr er
knár...
vestri
The Cowboys ★ ★ ★
Leikstjóri: Mark Rydell.
Handrit: Irving Ravetch, Harriet
Frank Jr., og WiIIiam Dale Jenn-
ings.
Tónlist: John Williams.
Aðalleikendur John Wayne,
Bruce Dem, Roscoe Lee Brown,
Coleen Dewhurst.
Bandarísk. WB 1971. WHV/TefU
1987.
Bönnuð yngri en 12 ára. 118 mín.
Þegar gull fínnst í námunda við
búgarð John Wayne sjá allir vnnu-
menn hans gult og hlaupa úr
vistinni. Það verður til þess að er
hann þarf að reka hjörð sína um
400 mflna leið á markað verður
hann að ráða unglingsstráka, ellefu
talsins, sér til aðstoðar.
Menn urðu að fullorðnast fljótt í
„villta vestrinu", og það gilti um
strákaná. Einkum eftir að bófa-
flokkur hefur drepið húsbónda
þeirra, Wayne. Góður vestri þar sem
haldast í hendur vel skrifað hand-
rit, lipur leikstjóm, skemmtilegt
leikaraval og „Duke“ Wayne í af-
bragðs formi. Persónusköpun
hlýtur að teljast harla óvenjuleg;
hópur óharðnaðra unglingspilta og
Wayne drepinn þó nokkuð fyrir
myndarlok. Sjálfsagt ofbýður ein-
hverjum ofbeldið í myndinni, þar
sem Brace Dem skapar enn einn
morðóðan skíthælinn af alkunnri
smekkvísi. Engin furða þó Nichol-
son álíti þennan vin sinn einn
meginkeppinautinn í kvikmyndaleik
f Hollywood. Hann er vægast sagt
ógeðslegur í hlutverki bófaforingj-
ans. Wayne fer myndarlega með
hlutverk sitt, að venju. Það sópar
að karlinum sem þó var farinn að
reskjast all-nokkuð þegar myndin
var tekin. Roscoe Lee Brown er
fyrsta flokks og unglingamir
standa flestir fyrir sínu. Tónlist,
kvikmyndataka og tæknileg atriði
vel úr garði gerð, enda var The
Cowboys mikil og dýr framieiðsla
í sínum tíma.
Vel þegin mynd öllum vestra-
aðdáendum og unnendum goðsagn-
arinnar John Wayne.
INNIHELDUR HVORKI LITAREFNI NÉ ILMEFNI
OFNÆMISPRÓFUÐ AF SVISSNESKUM HÚÐSJÚKDÓMAFRÆÐINGUM
JIJVENA
JUVENA
juvena
uaiut'í
“ 160/rl
íJUVENA
II.VEM
IIúVena
■ cSS
i M
JUVENA SENSITIVE SKIN LINE FYRIR ÞÍNA VIÐKVÆMU HÚÐ
\/CDHI niM’Q7
V V.I W/V.L/1 ■ V W/
innan veggja
LAUGARDALSHÖLL
BÁS 104
Sérstök kynning
á Juvena
Sensitive SkinLine
Einstakt tækifæri