Morgunblaðið - 27.09.1987, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1987
koma eða fara ef ske kynni að nafn
hans tengdist þeim kvitti um friða-
rumleitanir sem gengur. Dr. G kom
kl. 1.15 og var héma þar til um
sexleytið er hann ók af stað í úr-
hellisrigningu. Þá stóð yfirmaður-
inn vörð við ytra hliðið en
varðmönnunum var haldið í burtu.
(Ummæli Malones um ástæður
þeirrar leyndar sem hvíldi yfir heim-
sókninni eru byggðar á misskiln-
ingi.) Churchill vildi gera þinginu
fulla grein fyrir ferð Hess en her-
málaráðuneytið hélt aftur af
honum, en þar töldu menn að Þjóð-
veijar kæmust í bobba ef engar
fréttir bærust.
15. júní. Um kl. 2 eftir miðnætti
kvaðst Z vilja tala við mig. Honum
var sagt að ég gæti ekki komið því
að ég væri á vakt. Þá kvaðst Z
vera með nokkur bréf sem hann
vildi láta mig geyma fyrir sig.
Stephen, einnig úr skoska varðlið-
inu, spurði hvers vegna og hann
svaraði því til að verið væri að eitra
fyrir sér. Stephen sagði að það
væri kjaftæði og þeir rifust heiftar-
lega. Z dró fram meðalaflösku fulla
af viskíi og á miðanum á henni var
hauskúpumerki sem hann hafði
teiknað eftir lokaðri flösku sem
hann hafði nýlega fengið. Hann
sagði að í flöskunni væri eitur.
Stephen sagði að það væri vitleysa
og drakk dálítið úr henni en við það
varð Z æstur, greip um handle-ggi
hans og sagði: „Ég bið þig að láta
þetta ógert.“ Stephen kláraði úr
flöskunni og það sem eftir var úr
stóru flöskunni og sendi síðan eftir
annarri flösku sem þeir drukku
báðir úr. Stephen varð að lokum
mjög „reiður“ og greip til þess ráðs
að öskra. Að lokum öskraði hann
með miklum rosta á þýsku, „ver-
stehen", við það róaðist hann.
Stephen sagði að hann hugsaði eins
og ómerkileg og illa menntuð skrif-
stofublók. Stephen er nú fyllilega
sannfærður um að Z sé geðveikur.
Yfirmaðurinn sagði mér að ég
ætti að fara á fund Z. Hann var í
fullum skrúða þýska flughersins —
ljósbláum jakka og gúlpandi buxum
í dálítið dekkri lit með silfurlita
axlaborða, gullstjörnumar sínar og
þijú ermamerki. Hann endurtók
grunsemdir sínar og í þetta sinn
hafði hann illan bifur á lækninum,
herlækninum. Ég reyndi að fá hann
til að skilja hversu fáranlegar þess-
ar hugmyndir hans væru. Hann lét
mig fá bréfin sín sem hann bað
mig að senda „foringjanum" og
konu sinni ásamt tveimur afritum
sem hann bað mig að geyma í leyn-
um og fara með til Þýskalands í
stríðslok.
Stökk yf ir handriðið
16. júní. (Úrdráttur úr afriti af
skýrslu sem einn af yfirmönnum
Malones gaf æðsta yfirmanninum
í búðunum.) Kl. 04.00 kallaði Z inn
úr herbergi sínu og bað varðmann-
inn um að sækja lækna. Læknar
komu strax. Liðsforinginn sem var
á vakt stóð við hliðið fyrir innan
grindurnar þegar varðmaðurinn
opnaði hurðina fyrir lækninum. Um
leið og hurðin var opnuð ruddist Z
út úr svefnherbergi sínu, ýtti lækn-
inum til hliðar og kom þar með í
veg fyrir að hann gæti nokkuð að-
hafst. Hann hentist yfír handriðið
og hafnaði á næstu hæð fyrir neð-
an. Z var í einkennisbúningi sínum.
Hann kom þungt til jarðar og fór
þegar í stað að hrópa og stynja.
Læknirinn gaf honum morfín-
sprautu. Murray majór, skurðlækn-
ir í hernurn, kom á vettvang,
skoðaði Z, gaf honum aðra morfín-
sprautu og lét vinstri fótlegg Z í
spelkur og naut við það aðstoðar
Dicks majórs, en fótleggurinn virt-
ist hafa brákast ofarlega. Því næst
var sjúklingurinn borinn upp í her-
bergi sitt og lagður á her-
mannabedda.
16. júní. (Úrdráttur úr skýrsl-
unni sem Malone gaf æðsta yfir-
manni sínum um samtal sitt við
Hess eftir að sá síðarnefndi gerði
tilraun til að fyrirfara sér.) Z kvaðst
hafa skrifað fjölskyldu sinni og
skýrt frá því hvers vegna hann
ætlaði að gera það sem hann gerði,
þ.e. hann vildi ekki sturlast í Eng-
landi. Hann var sannfærður um að
hann væri að truflast andlega og
að sú truflun yrði varanleg. Hann
hafði orðið var við upphaf þessarar
þróunar og vissi til hvers hún myndi
leiða. Þetta hafði allt byijað fyrir
10 dögum með mjólkurglasinu, sem
Hess hélt að innihéldi eitur). Þá
hefðu viðbrögðin orðið alvarleg en
hann hefði náð sér. Onnur tilraun
með viskíi og pillum hefði verið
miklu árangursríkari. Þá hefðu við-
brögðin verið svo mikil að hann
hefði verið alveg ruglaður um
stund. Hann sagði að þriðja tilraun-
in væri óhjákvæmileg og myndi
leiða til þess að hann missti vitið
algerlega.
Ég sagði: „Þú ætlaðir þó ekki
að stytta þér aldur?“ Hann kvaðst
vissulega hafa ætlað að stytta sér
aldur og hefði enn í hyggju að gera
það. Hann gæti ekki sætt sig við
að verða sturlaður. Með því að fyrir-
fara sér kæmi hann fram eins og
sannur karlmaður. Hann vissi að
hann hefði hegðað sér eins og kven-
maður að undanförnu. Hann hefði
hegðað sér eins og karlmaður fyrst
eftir að hann kom hingað. En síðan
tók við tímabil svefnleysis, svefn-
leysis, svefnleysis og hann var að
brotna niður vegna áhrifa frá áfengi
og lyfjum.
Ég. sagði að hann hefði lofað
Foringjanum að fyrirfara sér ekki.
Hann sagði: „Ég gef þér drengskap-
arheit um það að ég lofaði engu.
Ég skrifaði bara að ég hefði gert
það í bréfi til hertogans af Hamil-
ton, því að ég vissi að það myndi
fréttast og koma í veg fyrir að
menn reyndu að drepa mig.“ Ég
sagði: „Gerirðu þér ljóst hversu
hræðilegar afleiðingar það hefur
fyrir breska stríðsfanga ef þú
deyrð? Hann sagðist gera sér það
ljóst en hann gæti eigi að síður
ekki sætt sig við að sturlast.
18. júní. Z sendi eftir mér síðdeg-
is og sagði mér enn og aftur frá
grunsemdum sínum um lækninn.
Þá kvaðst hann halda að Wallace,
Foley og Bames væru góðir og
heiðarlegir menn en þeir hefðu ver-
ið dáleiddir svo að þeir vissu ekki
hvað fram færi. Hann lýsti fyrir
mér erfiðleikum sínum við að hafa
þvaglát og taldi að það væri lækn-
unum að kenna. Þeir ætluðu að
láta hann sturlast af sársauka. Þá
sagði hann mér frá því hvemig
læknirinn reyndi að „svívirða" hann
með því að reyna að láta slöngu
upp eftir getnaðarlim hans án þess
að gefa honum anestik og þeir
hefðu neitað að gefa sér atrópín.
Hann sagði að læknirinn og annar
með honum hefðu hlegið og kallað
sig kveif. Ég sagði að verið væri
að kaupa atrópín og að Rees ofursti,
háttsettur læknir í hernum, væri á
leið niður. „Nei,“ sagði hann. „Rees
ofursti kemur ekki.“ Hann kvaðst
hafa áttað sig á því síðast að Rees
ofursti gerði sér grein fyrir að ver-
ið væri að eitra fyrir honum en
hann gæti ekkert við því ge: t og
_____________________________25
hann fengi ekki að koma aftur.
Þegar hér var komið bankaði vörð-
urinn á dyrnar og sagði að verið
væri að hringja. Það var Rees
ofursti.
28. júní. Z sagðist enn vera viss
um að menn væru að reyna að eitra
fyrir sér — til dæmis hefði verið
eitur í glúkosanum sem hann hefði
tekið inn. Hann spurði mjög hik-
andi hvort ég myndi vilja borða
dálítið af glúkósanum. Það væri
mikil áhætta. Ég sagði að það væri
sjálfsagt, sletti glúkosa í vatnsglas
að einum þriðja og fyllti það svo
með vatni. Ég drakk þetta í einum
teyg. Þá náði hann í töflu og spurði
hvort ég gæti tekið hana inn —
hann sagði að þetta væri meðal sem
kæmi í veg fyrir að hann gæti kast-
að af sér vatni. Ég gleypti töfluna
líka. Á meðan horfði hann á mig og
í svip hans var bæði ákafi og kvíði.
29. júní. Ég fór upp í herbergi
Z til að sýna honum að allt væri í
lagi með mig þrátt fyrir ummæli
hans um glúkosann og töflurnar.
Hann var þreytulegri og rauna-
mæddari en í gær. Hann bað mig
að halda kyrru fyrir í nokkrar
mínútur. Hann sagði: „Ef ég geng
af vitinu og dey einhvern næstu
daga viltu þá lofa mér því að fara
til hertogans af Hamilton og fá
hann til að biðja kónginn um að
láta skoða mig til að sjá hvaða eit-
ur ég hef verið látinn taka inn? Ég
sagði að það væri sjálfsagt svo
framarlega sem ég fengi til þess
leyfi frá yfirboðurum mínum. „Yfir-
mönnum þínum. Þú ert háttsettur
maður og kóngurinn hefur fyrir-
skipað þér að sjá til þess að öryggi
mitt sé tryggt." „Það er alveg rétt
og það er einmitt þetta sem við
gerum. Allir með tölu."
(Observer — G.E. þýddi.)
Laugalandsmeyjar
og kennarar
Nemendamótið 2. október nk. verður haldið í íþróttahöllinni á Akureyri og
verður húsið opnað kl. 18.00. Það stefnir í metaðsókn hjá okkur.
Ef einhvert ykkar, sem þegar hefur látið skrá sig sér fram á að komast ekki,
þá tilkynnið það vinsamlegast strax.
Frekari upplýsingar veita Þóra í síma 96-23005 og Alda í síma 96-21236.
Framkvæmdanefndin.
brother tölvu prentarar
Brother tölvuprentarinn aö gorö M-1709 hefur sérstööu á
markaönum aö þvf leytl aö hægt er aö prenta á laus blöö, t.d.
bröfsefnl, án þess aö taka samhangandl form úr, t.d. nótur.
Allir Brother prentararnlr eru meö bæöl serlal og paralleltengl.
SKIPHOLTI 9 S 622455 & 24455
r
Opera-
unneiÉr
Óperukvöld
öll sunnudagskvöld
í vetur
Kristín Sigtryggsdóttir
syngur í kvöld
Borðapantanir í síma 29499
BESTAUQANT
LA.KJARGOTU 2, II HAÐ