Morgunblaðið - 27.09.1987, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 27.09.1987, Blaðsíða 50
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1987 Flóknasti upp- skurður í sögu læknavfsind- anna? Sjötíu læknar hjálpuöust að viö að skilja símastvfburana Benjamin og Patrick Binder aö á Johns Hopkins-sjúkrahúsinu í Baltimore. Síamstvíburum gefinn kostur á eðlilegu lífi ■ Reuter Þessi suður-afríska móðir ól tvíbura, sem samvaxnir voru á höfði, fyrir níu mánuðum. Lengi beið hún úrskurðar lækna sjúkra- húss í Soweto um það hvort skilja mætti börn hennar að. Að lokum var ákveðið að skera síamstvíburana upp og hafa læknar Johns Hopkins-sjúkrahússins lofað að vera suður-afrískum starfsbræðrum sfnum inn- an handar. Barnalæknirinn Mark Rogers heldur á brúðum, sem notaðar voru til að æfa aðgerðina. Vestur-þýsku síamstvíbur- arnir, sem fyrir þremur vikum voru skildir að með skurðaðgerð, liggja enn í háifgerðu dái og fær annar þeirra næringu í æð í brjóstkassa. Tvíburarnir eru ekki enn taldir úr lífshættu, en ástand þeirra er stöðugt. Fyrir rúmri viku rumskuðu þeir fyrst úr dáinu og virtust hreyfa út- limi sína eðlilega. Þegar Theresia Binder strauk sonum sinum Patrick og Benjamin, sem samvaxnir voru á hnakka, opnuðu þeir augun fyrsta sinni eft- ir aðgerðina. En þeim eru enn gefin deyfilyf og munu ekki vakna fyllilega til iífsins fyrr en eftir mánuð. Tvíburarnir voru lagðirá skurðarborð íJohns Hop- kins-sjúkrahúsinu í Balti- more í Bandaríkjunum snemma morguns laugar- daginn 6. september. 22 klukkustundum síðar höfðu þeir verið skildir að og uppskurði, sem líkast til er sá flóknasti, sem gerður hefur verið, var lok- ið. Eftir Karl Blöndal Benjamin og Patrick Binder fæddust í Ulm í Vestur-Þýskalandi í febrúar. Þeir voru fullkomlega heilbrigðir að öðru leyti en því að höfuð þeirra voru föst saman á hnakkanum. Þetta kom í veg fyrir að þeir gætu snúið sér við eða sest upp og hefðu þeir þurft að liggja rúmfastir alla ævi, ef ekkert hefði verið að gert. Josef og Ther- esia Binder sáu fyrst hvernig komið var á fyrir fóstrinu þegar þau fóru í „sónar-skoðun“ í háskól- anum í Ulm. „Ég sá börnin og við mér blasti risavaxið höfuð með tveimur andlitum," sagði Theresia við vestur-þýska vikublaðið Bunte, sem keypt hefur birtingarrétt á sögu tvíburanna. „Mór varð hugs- að: Guð minn góður, hvernig munu þeir líta út, hvernig munu þeir geta lifað?" Fimm mánaða undir- búningur Thomas Fösel, læknir hjónanna, vissi að háskólasjúkrahúsið í Uim væri ekki tækjum búið til þess að skilja mætti tvíburana að. Hann bað dr. Mark Rogers, yfirmann barnadeildar Johns Hopkins- sjúkrahússins, að spreyta sig. Undirbúningur aðgerðarinnar hófst fyrir fimm mánuðum. í vor fór hópur sérfræðinga frá sjúkra- húsinu til Vestur-Þýskalands til þess að líta á síamstvíburana. Gerðu þeir einstaka áætlun um það hvernig mætti skilja þá í sund- ur án þess að þeir sködduðust á heila. Þegar í stað var hafist handa við að teygja á höfuðleðri drengj- anna til þess að hægt væri að sauma saman skurðinn eftir að- gerðina. Crag Dufresne lýtalæknir flaug til heimaborgar tvíburanna í vor og kom sérstökum blöðrum fyrir undir höfuðleðri þeirra. í þær var sprautaö vökva og fyrir aðgerð- ina voru þær orðnar á stærð við litlar melónur, sem stóðu út úr höfðum þeirra. í kjölfarið sigldi mikill undirbúningur. Haltínar voru fimm æfingar og notuðu læknarnir sórstakar brúður í líkamsstærð, sem festar voru saman á höfði. Minnstu mistök hefðu getað kost- að síamstvíburana, sem að öðru leyti voru heilbrigðir, heilsuna og jafnvel lífið. Sérstök skurðarborð, sem hægt er að renna í sundur, voru smíðuð fyrir aðgerðina og handa þeim, sem tóku þátt í henni, var gerður tíu blaðsíðna leiðarvísir. Þar var hverjum hluta aðgerðarinnar ræki- lega lýst. Á við f iókna hernaða r - aðgerð Læknirinn dr. Mark Rogers, sem skipulagöi uppskurðinn, Ifkti hon- um við „flókna hernaðaraðgerð". Svæfingalæknar, hjartaskurð- læknar, taugaskurðlæknar, lýta- læknar, hjúkrunarkonur, tæknimenn og rafvirkjar þurftu að leggja á sig miklar æfingar til þess að aðgerðin gengi snurðulaust fyr- ir sig. Leggja þurfti rafmagnslagnir í hluta sjúkrahússins að nýju og ganga þannig frá að rafmagnið færi ekki af þrátt fyrir mikið álag. Valin var fríhelgi til uppskurðar- ins til þess að tryggja að lítið yrði að gera og sem flestir gætu ein- beitt sér að verkinu. Þá gætu sjötíu sérfræöingar sjúkrahússins á hin- um ýmsu sviðum komið sér fyrir í skurðstofunni, og sjötfu sérfræð- ingar til viðbótar verið reiðubúnir til þess að skerast í leikinn, án þess að nokkuð annað kallaði að. Að auki var hægt að hafa sextíu tæki til að gefa blóð og blóðvökva til reiðu fyrir tvíburana. Starfsmenn Johns Hopkins- sjúkrahússins telja aö aðgerðin og meðferðin eftir hana muni kosta mörg hundruð þúsund dollara. Aft- ur á móti hafa þeir, sem tóku þátt í henni, ákveðið að þiggja ekki laun fyrir og sjúkrahúsið ætlar að standa straum af mestöllum kostnaði öðrum. „Þessi aðgerð var svo flókin að burtséð frá þvf hvernig hún gekk þá höfum við sýnt að við getum fengið meiru áorkað, en nokkurt okkar grunaði," sagði Rogers er aðgerðinni lauk tæpum sólarhring eftir að hún hófst. „Okkur hefur ekki tekist ætlunarverk okkur þótt tívburarnir hafi verið skildir að. Við teljum okkur hafa náð árangri ef uppi standa tvö heilbrigö börn," bætti Rogers við. Síðdegis á mánudag, einum og hálfum sólarhring eftir að hafist var handa, lágu tvíburarnir á gjör- gæsludeild. Benjamin og Patrick voru í Iffshættu, en líkamsstarf- semi þeirra var jöfn og stöðug. <ornabörnin eiga á hættu að inn-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.