Morgunblaðið - 27.09.1987, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 27.09.1987, Blaðsíða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1987 ÍÞRÓTTIR UNGLINGA / HANDBOLTASKÓLI VÍKINGS Þröstur Helgason og Ragnheiður Jóhannesdóttir. Þetta er hópíþrótl sem allir geta skilið og handboltinn er skemmtilegasta íþróttin - segir Þröstur Helgason, sem var á handboltaskólanum EKKERT handknattleiksfélag kemst með tærnar þar sem Víkingur hefur hælana í sigrum undanfarin ár. Árangur meist- araflokksins er flestum kunnur en einrtig fer fram öflugt ungl- ingastarf innan félagsins. En lengi má bæta og það vantar ekki kraftinn íVíkinga. Þeir hafa riðið á vaðið með sér- stakan handknattleiksskóla fyrir yngstu krakkana. Kennsla hófst seinnipart fyrri mánaðar og var líf og fjör er blaðamaður unglingasíðunnar leit inn í Rétt- arholtsskólann, þar sem kennslan fór fram. Við hittum þar fyrir Ingu Þóris- dóttur og Þorstein Jóhannes- son leiðbeinendur á þessu námskeiði. Þau sögðu að þetta væri tilraun hjá Andrés þeim Víkingum að Pétursson laða fleiri krakka til skrifar félagsins og þá fyrr. Námskeiðið var tveggja vikna og hópnum skipt í tvennt, þau yngri voru fyrir hádeg- ið en þau eldri eftir hádegið. Um 50 krakkar tóku þátt í þessu nám- skeiði og voru þau Inga og Þor- steinn ánægð með þá þátttöku. Það var gaman að sjá áhugann hjá þessum ungu þátttakendum og ekki var áhuginn minni hjá þeim eftir hádegið. Þar voru þá mættir meist- araflokksmennimir Guðmundur Guðmundsson og Hilmar Sig- urgíslason til að leiðbeina. Það hefði mátt heyra saumnál detta þegar þeir voru að segja krökkunum til, því svo vandlega gleyptu þau í sig ráðleggingar þessara reyndu leik- manna. Víkingurverður íslandsmeistari Við fengum að tmfla þrjá krakka af yngri hópnum. Þau heita: Guð- mundur Magnússon sjö ára, María Helen Eiðsdóttir 10 ára og Hugrún Harðardóttir 10 ára. Þau hafa ekki æft handbolta hingað til en em mikið að spá í að fara að æfa með Víkingum í vetur. María og Hugrún em úr Breið- holtinu, en Guðmundur er úr Fossvoginum. Stúlkurnar hafa ekki stundað aðrar íþróttir, en Guð- mundur hefur æft fótbolta og þá að sjálfsögðu með Víking. Þegar ég spurði þau hvaða félag yrði fs- landsmeistari stóð ekki á svarinu: „Víkingur verður aftur íslands- meistari, því þeir em með langbesta liðið.“ „Handboltinn skemmti- iegasta íþróttin" Eftir hádegið ræddi ég við tvo hressa krakka. Þau heita Þröstur Helgason og Ragnheiður Jóhannes- dóttir. Þröstur er 11 ára og hefur æft handbolta í 3 ár. Ragnheiður er 12 ára og hefur æft í tvö ár. Fyrsta spurningin sem við lögðum fyrir þau var hvað það væri sem gerði handbolta svona skemmtileg- an. „Það er bara allt saman,“ sagði Ragnheiður, „hraðinn, spenna, og Qöldi marka“. „Þetta er hópíþrótt sem allir geta skilið," sagði Þröstur og bætti við, „handboltinn er skemmtilegasta íþróttin.“ Þau vom nokkuð bjartsýn á árang- ur í vetur í sínum árgöngum. Þröstur sagði að vel hefði gengið í fyrravetur í 6. flokki, en þeir hefðu náð 2. sæti eftir spennandi úrslita- leik við Breiðablik. Nú væm þeir með góðan 5. flokk og ætluðu sér stóra hluti í vetur. Ragnheiður var svona hæfilega bjartsýn á gengið. Hún sagði að ekki hefði gengið of vel í fyrra en stelpurnar í flokknum hennar væm nú leikreyndari og því ætti að ganga betur í vetur. Eldri hópurinn ásamt Guðmundi Guðmundssyni og Hilmari Sigurgíslasyni. Guðmundur Magnússon, María.Helen Eiðsdóttir og Hugrún Harðardóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.