Morgunblaðið - 27.09.1987, Side 26

Morgunblaðið - 27.09.1987, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1987 vinnu, var í skólanum á kvöldin, frá klukkan sjö til ííu. Maður var nú stundum heldur slappar í skólanum eftir að hafa unnið úti allan daginn en þetta hafðist. Ég lauk hús- asmíðanámi á fjórum árum. Það var merkilegur áfangi og líka svo hitt að fá að læra. Árið 1939 máttu fimm læra húsasmíði hér i Reykjavík. Þá var atvinnuleysi og þeir pössuðu uppá það eldri menn- irnir í faginu að ekki kæmu of margir nýir. En svo kom herinn og þá breyttist allt. Ég held að við höfum aðeins verið tveir sem luku prófi, hinir fóru í vinnu hjá hern- um.“ Fyrsta brúin sem Jónas hafði yfirumsjón með smíði á var á Beru- fjarðarströndinni. Dvölin eystra var Jónasi mikill örlagavaldur því þar kynntist hann stúlku sem hann seinna giftist. „Ég var sendur einn austur árið 1944 og hélt til á bænum Foss- gerði meðan á brúarsmíðinni stóð. Þorgerður Þorleifsdóttir, kona mín, var þá kornung heimasæta í Foss- gerði. Við kynntumst þá en hitt- umst svo seinna í Reykjavík og giftumst árið 1949, þegar ég var nær þrítugur en hún rúmlega tvítug. Sumarið sem ég fór austur á Berufjarðarströnd var mikið ferða- lagasumar. Við byrjuðum á því um vorið að breikka brúna yfir gömlu Oxará áður en þjóðhátíðin yrði hald- in. Það var rétt að við gátum lokið verkinu og við vorum með tjöldin á Þingvöllum meðan á þjóðhátíðinni stóð. Svo fórum við norður í land og alla leið austur í Fljótsdal og byggðum þar tvær brýr, yfir Bessa- staðaá og Hengifossá. Svo var ég sendur einn austur eins og fyrr sagði. A næstu árum var ég með Sigurði Björnssyni við smíði á mörgum stórbrúm, t.d. brúnum yfir Ölfusá, Jökulsá á Fjöllum, Þjórsá og fleiri stórár. Á þessum árum dvaidi 'iaður alveg um kyrrt á hveijum stað þar til verkinu var að fullu lokið. Við bjuggum í tjöldum sem voru bæði með botnum og rúmstæðum. Ég hef sofið fjörutíu sumur í tjöldum en nú orðið sofum við í skúrum. Lengi hafði ég skúr sem skrifstofu en vildi miklu heldur sofa í tjaldi. Eftir að ég gifti mig var konan mín mjög oft ráðskona hjá okkur í brúarvinnunni. Lengi framan af þurfti tvær ráðskonur og var hún oftast nær önnur þeirra. Hún kom með krakkana með sér strax þeg-ar þau voru orðin tveggja ára. Við eigum sex börn, þar af eina tvíbura. Þau sumur þegar krakkarnir voru svo lítil að hún gat ekki verið með þau í tjöldum, þá fór hún austur til foreldra sinna og var með bömin þar meðan ég var í brúarvinnunni. Nú er brúarvinnuflokkurinn orðinn fámennari og þá er aðeins ein ráðs- kona svo konan mín hefur ekki verið með mér á sumrin í seinni tíð. Hér áður vom um tuttugu manns í hverjum brúarvinnuflokki, þegar unnið var við þessar venjulegu brýr. Hjá mér hafa verið margir skóla- strákar í vinnu öll þessi ár, og oft fékk ég líka bændur úr sveitinni í vinnu, sérstaklega á haustin. Stundum var ég með enn fleiri menn í flokknum t.d. þegar brúin yfír Jökulsá á Breidamerkursandi var byggð, einnig þegar unnið var við smíði brúa á Skeiðarársandi en þá vom brúarvinnuflokkarnir raun- ar fleiri en einn.“ Jónas segir mér að brúarvinnan sé fremur erfíð vinna og þung. Unnið sé með mikið af svem timbri og járni. Brúarvinna hefur þó að hans sögn breyst mikið á þessari hálfu öld sem hann hefur unnið við hana. „Áður urðum við að framleiða steypuna sjálfir, fyrst þegar ég byijaði var allt hrært á bretti,“ seg- ir Jónas. „Þá þurfti mikinn mannskap, en svo komu steypu- hrærivélar til skjalanna. Eftir stríðið vom hrærivélarnar allsráð- andi og þá komu líka kranar til að hífa steypuna í mótin og lyfta ýms- um tækjum. Svo komu gröfur og fleira þess háttar, áður þurftum við að handgrafa fyrir stöplum og það var erfitt. Herinn kom með mörg tæki hingað til lands. Við höfðum þó lítil afskipti af hernum. Ég man þó eftir að vorið 1941 vomm við ,y411ir brúar- smíðír RÆTT VIÐ JÓNAS GÍSLASON BR ÚARSMIÐ Jónas Gíslason heitir maður sem S liðlega hálfa öld hefur unnið við brúarsmíði á fs- landi. Hann hefur byggt brýr yfir ár í allflestum sveitum landsins og þekkir byggðarlög þess „næstum eins og lófann á sér,“ eins og hann orðaði það sjálfur er ég ræddi við hann einn sunnudagseftirmiðdag á heim- ili hans við Marbakkabraut í Kópavogi. Hann er yfirleitt heima hjá sér um helgar nú orðið en fer í býtið hvem mánudagsmorgun aft- ur í brúarsmiðina. Það er engin spuming hvar sumardagar lífs hans hafa liðið. Þeir hafa liðið í sól og regni ísienskrar náttúm og ekki glatað lit sínum í glímunni við að brúa vatnsföll og torleiði svo sam- ferðamenn hans gætu framvegis gengið þurmm fótum sinn veg. Sumarnóttunum hefur hann all- flestum eytt undir blaktandi tjalddúk, hvíldinni feginn eftirerfiði dagsins. Eiríkur Jónas Gíslason er fæddur að Naustakoti á Vatnsleysuströnd fyrir sextíu og sjö ámm. Þar bjuggu foreldrar hans allan sinn búskap, jörðin er nú komin í eyði en er í eigu Jónasar og systra hans, þar eiga þau sumarbústað. „Ég hef allt- af verið bundinn átthögunum sterkum böndum og átti reyndar lögheimili þar löngu eftir að ég var farinn burtu til vinnu,“ segir Jónas. „Faðir minn Gísli Eiríksson, ólst upp á Vatnsleysuströndinni, en mamma var frá Skaldabúðum í Gnúpveija- hreppi. Hún hét Guðný Jónasdóttir og var fædd 1893. Jarðskjálftaárið 1896 hmndi bærinn á Skáldabúðum og þá var heimilið leyst upp. Forldr- ar hennar áttu ekki jörðina og fóm því bæði í vinnumennsku en börnun- um sex var komið fyrir hér og þar nema því yngsta sem fylgdi móður- inni. Éftir nokkur ár sameinaðist fjölskyldan að nokkru leyti á ný er hjónin fengu ábúð á jörðinni Skrautási, skammt frá Hmna. Á Vatnsleysuströndinni var það sjórinn sem var aðalbjargræðið og svo höfðu menn eitthvað af skepn- um, við höfðum t.d. grasnyt. fyrir eina kú og nokkrar kindur. Strax og maður fór eitthvað að geta þá fór maður á sjóinn. Skólaganga mín var fjögur ár. Skólahúsið var rétt hjá okkur og við höfðum góðan kennara. Eftir fermingu fór ég í vegavinnu á sumrin og þegar ég var fimmtán ára fór ég fyrst í brúar- vinnu og þá má segja að örlög mín væm ráðin. Fyrsta brúin sem ég tók þátt í að smíða var yfir Anda- kílsá í Borgarfirði, hjá bænum Ausu. Brúarsmiður var Sigfús Kristjánsson. Eftir það var ég í brúarvinnu á sumrin en heima á veturna og réri á vertíð. Ég var hjá Sigfúsi í brúarvinnu í þijú sumur og fór þá hingað og þangað um Vesturland, mér þótti voðalega gaman að ferðast en tæki- færin vom ekki mörg til þess á þeim árum, svo þetta var mjög gaman. Þegar ég var nítján ára komst ég í nám í húsasmíði hjá Sigurði Björnssyni brúarsmiði. Ég fór þá í Iðnskólann á veturna með Hengibrúin yfir Jökulsá á Fjöllum Það er ekki að ófyrir- synju að það er hefð á íslandi að tala um að brýr séu vígðar, einar mann- virkja utan þeirra sem hljóta kirkjulega vígslu. Brúarvígsla er æfinlega hátíðleg athöfn, þannig hef- ur það verið allt frá því farið var að brúa vatnsföll hér á landi undir síðustu aldamót. Að brúa er orðtæki sem hefur yfir sér jákvæðan hugblæ í íslenskri tungu. Frá örófi alda torvelduðu vatnsföll mönnum ferðir milli bæja og landshluta og þeir eru ófáir ættfeður okk- ar sem týnt hafa lífi í tilraunum til að vaða eða sundríða straumharðar ár. Það er því eðlilegt að það hljcmi næstum eins og fagnaðarboðskapur í orðun- um, að brúa. Við tölum ekki bara um að brúa vatnsföll og torfær- ur, við tölum um að brúa bil á milli fólks og þjóða, mynda loftbrú við önnur lönd og segjum meira að segja hneyksluð, ef við heyrum einhverja vitleysu, að það sé ekki heil brú í þessu eða hinu. Eftir að farið var að byggja brýr yfir íslenskar ár þótti það jákvæð og eftirsóknarverð vinna að vera í brúarvinnu og brúarsmiðir voru hvar- vetna sérdeilis vel séðir í sveitum landsins. Jónas Gíslason í fullum herklæðum að stjórna smiði Borgarfjarðarbrúarinnar \ilja byggja hengibrýi^

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.