Morgunblaðið - 27.09.1987, Síða 29

Morgunblaðið - 27.09.1987, Síða 29
28 M0RC.UNBLAÐ1P, SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1987 JMorgmiMftfrii Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aöstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, simi 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 600 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 55 kr. eintakiö. 7,23% launahækkun Laun hækka almennt um 7,23% um næstu mán- aðamót. Akvörðun um þetta var tekin í launanefnd aðila vinnumarkaðarins á föstudag. Launanefnd Alþýðusambands íslands; Vinnuveitendasam- bands Islands og Vinnumála- sambands samvinnufélag- anna starfar á grundvelli kjarasamninganna frá því í desember 1986. Það er hlut- verk hennar að úrskurða um verðbætur á laun, verði verð- lagshækkanir meiri en miðað var við í kjarasamningum. Til þessa hefur ávallt verið sam- komulag í nefndinni um að bæta hækkun framfærsluvísi- tölunnar að fullu, enda hafa hækkanir verið á bilinu 1-2%. Nú var hins vegar ágreiningur í nefndinni og var 7,23% hækkunin ákveðin með samn- ingsbundnu oddaatkvæði Alþýðusambandsins. Vísitöluhækkun á laun er í raun ekki annað en uppfærsla launa í samræmi við verðlags- hækkanir á næstliðnum mánuðum. Margvísleg kerfi hafa verið notuð hér til að verðbæta laun eða koma í veg fýrir, að slíkar bætur leggist ofan á umsamin laun. Á stundum hefur vísitölubinding launa verið bönnuð með lög- um. í annan tíma hefur verið mælt fyrir um það í lögum eða í samningum, að launþeg- ar skuli fá ákveðið hlutfall verðlagshækkana bætt í laun- um. Þá hefur verið ákveðið, að hinir lægst launuðu fái fullar verðbætur en hinir í efri flokkunum hækkun í krónutölu. Hitt þekkist einnig að vísitölubætur, leggist óskert ofan á laun en síðan grípi stjómmálamenn í taum- ana og skerði hækkunina með lögum. Er frægt, að þannig voru launahækkanir skertar 14 sinnum á meðan alþýðu- bandalagsmenn áttu menn í ríkisstjóm á árunum 1978 til 1983. Sú skipan er sem sé í gildi núna, að ekki var samið um verðtryggingu launa held- ur voru settar á fót launa- nefndir aðila til að taka afstöðu til verðbóta. Niður- staðan er, að um næstu mánaðamót leggjast þær allar ofan á launin. Hin ólíku kerfí, sem notuð hafa verið við útreikning verð- bóta og til að beina þeim til launþega, eru ekki tilkomin vegna þess að stjórnmála- mönnum eða aðilum vinnu- markaðarins þyki það í sjálfu sér eftirsóknarvert að smíða völundarhús við stjóm at- vinnu- o g efnahagsmála. Ástæðan er einföld: almennt er sú skoðun viðurkennd sem rétt, að sjálfvirkar verðbætur á laun séu eins og bensín á verðbólgubálið. Vísitölukerfið mælir hitann og spennuna í efnahagsstarfseminni, verð- bæturnar auka síðan frekar á spennuna en minnka hana. Þess vegna er eðlilegt að velta því fyrir sér, hvort 7,23% hækkun nú kalli ekki á enn meiri hækkun næst og síðan koll af kolli þar til við erum á ný komin inn í vítahring óðaverðbólgunnar. Ríkisstjórnin hefur nýlokið við að taka ákvarðanir um fjárlagafrumvarpið og frum- varp til lánsfjárlaga fyrir næsta ár. Samkvæmt því sem ráðherrarnir segja er ætlunin að draga úr halla á ríkissjóði og minnka lántökur í útlönd- um. Ein helsta forsendan fyrir því að þetta takist er að hald- ið verði fast í svokallaða fastgengisstefnu. I stuttu máli er það ekki ætlun stjórn- arinnar að lækka gengi krónunnar. Er þessi stefna raunhæf eftir að laun hækka um 7,23%? Er ákvörðunin í launanefnd aðila vinnumark- aðarins í raun afdrifaríkari um meginstefnuna í efna- hagsmálum en allar yfirlýs- ingar fjármálaráðherra og viðskiptaráðherra og frum- vörp þeirra og flóknar reglur? Sveiflunar í íslensku efna- hagslífí eru miklar. Við höfum nú búið við mikla uppsveiflu, mikinn hagvöxt og hækkun kaupmáttar. Áhrifanna gætir alls staðar. Eftirspurn eftir vinnuafli er meiri en menn muna. Launaskrið hefur verið mikið. Sé lægðin á næsta leiti er fyrir mestu að sjá til þess að neikvæð áhrif hennar verði sem minnst. Það starf er ekki auðveldað með því að ýta nýrri verðbólguskriðu af stað. Um það ættu allir að geta samein- ast í hvaða flokki sem þeir eru eða hvort heldur þeir skipa sér í raðir launþega eða vinnu- veitenda. Einar Gerhardsen var jarðsettur á föstudag. Hann var forsætisráð- herra Noregs í 17 ár, leiðtogi norskia jafnað- armanna eða Verka- mannaflokksins þar í landi, í andspyrnuhreyf- ingunni gegn hernámsliði nasista á árum síðari heimsstyijaldarinnar, hann var handtekinn af Þjóðveijum og sat í fanga- búðunum í Saehsenhausen frá haustinu 1941. Þegar Noregur var frelsaður í maí 1945 t'ók Gerhardsen við fyrra starfi sínu sem forystumaður í borgarstjórninni í Osló. í þeirri stöðu var hann, þegar hann bauð Hákon VII Norcgskonung velkominn til ættjarðarinnar á ný 7. júní 1945. í 37 ár var hann kjörinn til trúnaðarstarfa annars vegar í borgarstjórnina í Ósló og hins veg- ar á norska stórþingið. Hann var í mið- stjórn Verkamannaflokksins í 48 ár, þar af formaður í 20 ár eftir stríðið. Forsætis- ráðherra var hann 1945 til 1951 og aftur 1955 til 1965, að undanskildum þremur vikum árið 1963. Gerhardsen fæddist í maí 1897 og var þess vegna á 91. aldurs- ári, þegar hann dó. Hann lauk gagnfræða- skólaprófi og stundaði í tvö ár tækninám í kvöldskóla. Hann vann við vegagerð hjá norsku vegagerðinni áður en hann var valinn til pólitískra trúnaðarstarfa og æðstu embætta. Við andlát Einars Gerhardsen sagði virt- asta blað Noregs Aftenposten, sem ekki fylgir Verkamannaflokknum að málum, meðal annars í forystugrein: „Staða Einars Gerhardsen meðal norsku þjóðarinnar var einstök. Okkur er ljóst, að með virkri þátttöku í stjórnmálum í meira en mannsaldur, skildi hann eftir sig djúp spor. Hugsjónir Gerhardsens og bar- áttumál hafa haft áhrif á og breytt daglegu lífi okkar allra ... I huga almennings var hann einnig „landsfaðirinn“. Að eðlisfari var Gerhardsen hófsamur, nægjusamur og hlédrægur. Hann gat virst feiminn og óframfærinn — já, stundum kom fyrir, að hann sýndist helst vilja biðj- ast afsökunar á því, að hann væri til. Honum var ekki að skapi að trana sér fram eða vekja persónulega eftirtekt. En í hinu pólitíska starfi var hann sá, sem gat tekist á við öll mál og kunni að nýta sér öll tæki til áhrifa, og hann áttaði sig einnig á mikilvægi þess að vera skjótur í ákvörðunum, þegar það var nauðsynlegt. Gerhardsen var stjórnmálaskörungur, sem lét að sér kveða af festu bæði inn á við og út á við. Hann var í hópi þeirra, sem höfðu völd og vissi, hvernig átti að beita þeim — til að hrinda í framkvæmd stefnu, sem hann trúði á.“ Eftir setuna í fangabúðum nasista komst Gerhardsen þannig að orði: „Hefði mig dreymt um það, sem gerðist eftir stríðið, þá hefði ég getað lært ensku í Sachsenhausen. Þar var nóg af góðum enskukennurum.“ Þarna vísar hann til allra þeirra umræðna, sem urðu um örygg- is- og varnarmál á árunum eftir styijöld- ina, sem lyktaði með stofnaðild Noregs að Atlantshafsbandalaginu. Þar sem Ger- hardsen lærði ekki ensku varð hann aldrei stjómmálamaður á alþjóðavettvangi, segir Jens Chr. Hauge í grein um hinn látna í Aftenposten. Hann bætir við, að Ger- hardsen hafi haft Halvard Lange sem utanríkisráðherra sinn, manninn sem varð að „mikilsvirtri stofnun bæði heima og erlendis". Þeir voru flokksbræður, annar verkamaður og hinn háskólaborgari, þeir voru hvor í sínum armi i' Verkamanna- flokknum. Þeir voru líkir í framgöngu, höfðinglega fálátir, þar til þeir brostu. Sameiginlega unnu þeir að því að móta og hrinda í framkvæmd utanríkisstefn- unni, sem Norðmenn fylgja enn. Ekki var samstarf Gerhardsen og Trygve Bratteli síður merkilegt. Bratteli varð varaformað- ur Verkamannaflokksins 1945 og síðan formaður tuttugu árum síðar, þegar Ger- hardsen dró sig í hlé frá formennskunni. Hlýja í garð íslands Einar Gerhardsen sýndi íslandi og ís- lendingum jafnan vináttu og hlýju. Til marks um það má vitna til ræðu, sem hann flutti, þegar hann bauð forsætisráð- herra íslands, Bjarna Benediktsson, velkominn í opinberri heimsókn til Noregs í maí 1965, skömmu áður en Gerhardsen lét af störfum forsætisráðherra. Þá vísaði hann til þess, að í Heimskringlu Snorra Sturlusonar væri því lýst hvernig Nor- egsríki hefði orðið til. Þær sagnir hefðu veitt Norðmönnum innri styrk í frelsis- baráttu þeirra. „Sem þjóð eigum við íslenskum frændum okkar mikið að þakka fyrir þessi tengsl við okkar eigin foitíð,“ sagði Gerhardsen. Hann vék jafnframt að því, hvernig fámenn þjóð gæti varðveitt sérkenni sín í heimi, þar sem þróunin krefst sífellt stærri efnahagslegra og tæknilegra eininga. Getum við skapað nógu stórar einingar án þess að hætta að hafa yfirráð yfir því, sem er okkar eign, og án þess að glata sérkennum okkar? spurði norski forsætisráðherrann og bætti síðan við: „Eitt er ljóst: Einangrun er ekki til neins. Við þörfnumst hins stóra heims meira en hann þarfnast okkar. Lausnin felst í því að við virkjum andlega orku okkar og nýtum sem mest við megum okkar eigin menningarlindir. Þá geta kynnin af hinu ókunna borið ríkulegan ávöxt en ekki þurrkað það út, sem er sér- stakt einkenni okkar. Ég minnist á þetta hér í kvöld, af því að íslenska þjóðin hefur fágæta hæfileika til að varðveita sérkenni sín án þess að útiloka sig frá umheiminum. Það er ein- stætt að málsamfélag sem telur innan við tvö hundruð þúsund menn skuli hafa getað ræktað eigin bókmenntir og jafnframt fylgst með því sem er að gerast annars staðar og þýtt jafn mikið af því á eigin tungu og raun ber vitni.“ Þegar til álita kom 1972, að Noregur gengi í Evrópubandalagið snerist Einar Gerhardsen gegn því. Hann hefur talið, að þá væru Norðmenn að tengjast of stórri einingu án þess að ráða sjálfir nógu miklu um eigin málefni. Þegar hann ræddi um smáríkin og hinar stóru heildir vegna komu forsætisráðherra Islands voru Norðmenn í EFTA en Islendingar ekki. Af blaðafregn- um frá þessum tíma sést, að Bjarni Benediktsson hefur rætt það við þá Ger- hardsen og Halvard Lange, sem enn var utanríkisráðherra, að íslendingar hefðu áhuga á að gerast aðilar að EFTA. „Það ræður úrslitum fyrir okkur, að eðlilegt er að við tengjumst EFTA til þess að við ein- angrumst ekki,“ sagði Bjami Benediktsson á blaðamannafundi í Ósló. Á hinn bóginn liðu fimm ár frá því að þeir Gerhardsen og Lange lýstu kostum EFTA-aðildarinn- ar, þar til íslendingar gengu í samtökin, sem varð ekki fyrr en á árinu 1970. Margt bendir til, að fari íslenskur forsætisráð- herra í opinbera heimsókn til norsks starfsbróður eftir fimm til sjö ár, standi hann frammi fyrir því, að Evrópubandalag- ið verði komið í stað EFTA á árinu 1965. Er þá jafnframt rétt að minnast þess, að 1949 höfðu ákvarðanir þeirra Einars Ger- hardsen og Halvards Lange um aðild Noregs að Atlantshafsbandalaginu mikil áhrif á afstöðu íslenskra stjórnmálamanna ekki síst þeirra Stefáns Jóhanns Stefáns- sonar, forsætisráðherra, og Bjarna Benediktssonar, utanríkisráðherra. Ríkið og skólinn í fyrrnefndri grein í Aftenposten segir Jens_ Chr. Hauge undir lokin: „Á komandi tímum verður rætt um gjörðir Gerhardsens og persónuleika hans hvað eftir annað. Sérhver kynslóð sagn- fræðinga á eftir að segja, meta og túlka söguna um Gerhardsen á sinn hátt. Sumir munu hefja hann til skýjanna, aðrir munu leitast við að gera sem minnst úr honum. Afstaðan til sögunnar og sögufrægra ein- staklinga er hluti af umræðunni á hveijum tíma, pólitískri og hugmyndafræðilegri baráttu líðandi stundar. Þannig er og verð- ur það í frjálsu landi." Um leið og tekið er undir þessi orð, skal enn minnt á það, sem Gerhardsen sagði, þegar hann þakkaði Snorra Sturlu- syni, að án Heimskringlu hefði Norðmenn skort innri styrk í sjálfstæðisbaráttunni. Vitneskja um eigin sögu og fortíð er hverri þjóð mikils virði. Undan þeirri staðreynd verður ekki vikist, þótt þau tískuviðhorf MORGUNBIAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1987 29 hafi sett of ríkan svip á íslenska skóla- stefnu undanfarið, sem gera lítið úr þekkingu á sögunni og jafnvel rækt tung- unnar. Ef til vill sjáum við merki um afleiðingar þessa, þegar við lesum um þær áhyggjur, sem margir hafa og ekki að ástæðulausu af meðferð tungunnar og af ótrúlegu kæruleysi gagnvart þjóðlegum dyggðum og sögulegri arfleifð. Dr. Arnór Hannibalsson, dósent við heimspekideild Háskóla íslands, ræöir um misbresti í framkvæmd íslenskrar skóla- stefnu í ritinu Skólastefna, sem Stofnun Jóns Þorlákssonar hefur gefið út. Þar seg- ir meðal annars í inngangi: „Það ætti þó að liggja í augum uppi, að ríkisvaldið hlýtur að miða menningar- og skólastefnu sína við gildi, sem óháð eru tískusveiflum meðal fræðimanna. Ekki verður framhjá því komist, að höfuðverk- efni ríkisrekinna skóla hlýtur að vera það að ala börn upp við hefðir og siði þjóðarinn- ar. Með því á ég við það, að ríkið hlýtur að leggja á það aðaláherslu að kenna þeim rækilega sögu þjóðarinnar. Það er höfuð- verkefni ríkisins að vernda og viðhalda sjálfstæði þess og fullveldi. Það verkefni er ekki vinnandi nema allir borgarar lýð- veldisins hafi vit, þekkingu og kunnáttu til að vinna sjálfum sér og þjóðinni allt það besta sein þeir geta. Starfsemi skóla á að miða að því að alefla menn í þeirri viðleitni. Verði misbrestur á því, er ríkið að bregðast helgustu köllun sinni." Arnór Hannibalsson telur í stuttu máli að vegna tískuviðhorfa hafi íslenska skóla- kerfið brugðist að þessu leyti og námskrár hafi byggst á hugmyndafræði, sem miðar að því að klippa á alla strengi, sem knýta daglegt skólastarf við hefðir þjóðarinnar. Hér er fast að orði kveðið. Raunar hefur það nokkuð einkennt umræður um íslensk skólamál fyrr og síðar, að jafnt gagnrýn- endur sem málsvarar ríkjandi viðhorfa grípa fljótt til stórra orða, enda eru gifur- legir hagsmunir í húfi. Mistök við mótun skólastefnu eru allt annars eðlis en þegar tekist er á við hin daglegu viðfangsefni, sem hæst ber í stjórnmálunum og snerta flest krónur og aura. Sé fíárfest í rangri skólastefnu kunna þeir sem tapa að vera ófærir um að skilja eigin vanda og átta sig á nauðsynlegum gagnaðgerðum til að varðveita menningu sína og sjálfstæði. „Því þarf að afnema söguna“ Arnór Hannibalsson skilgreinir muninn á kommúnistum og hinum „nývinstri“ á þann veg, að kommúnistar haldi dauða- haldi í þá hugmynd, að til séu svokallaðar stéttir og að grunnstéttin sé svokallaður verkalýður. Hann hafí að vísu engan áhuga á byltingunni, en staða hans sé samt sú, að hann sé í eðli sínu byltingarstétt. Með uppeldi og áróðri Flokksins megi nýta stéttina í þágu hans. Nývinstrisinnar bendi hins vegar á, að bæði kenning og reynsla sýni, að verkaiýðurinn sé gegnsýrður borg- aralegum viðhorfum og kæri sig kollóttan um byltingar. Það séu einungis þeir, sem hafi rétta vitund, sem geti beitt sér fyrir henni. Það séu menntamenn, og einkum hinir ungu og upprennandi, sem hafi þetta vitundarástand til að bera. Þeim beri því forystan. Vitundarbreytingin gerist ekki með verkfallabrölti og „stéttabaráttu", heldur með uppeldi og kennslu. Það sé því höfuðnauðsyn að ná tökum á opinberum uppeldisstofnunum. Hjá nývinstrisinnum verði uppeldisfræði og skólastarf að vett- vangi hinnar pólitísku baráttu. Náð skuli til barna á ungum aldri, á meðan dóm- greind þeirra er enn ekki þroskuð. Amór llannibalsson lýsir afstöðu ný- vinstrisinna nánar með þessum hætti: „Nývinstrisinnar leggja á það höfuð- áherslu, að ijölskyldan sé óhæf til að ala upp böm. Þess vegna eiga foreldrar ekki að hafa neinn rétt til íhlutunar um nám bama sinna í skólum. Það, sem skólar gætu best gert fyrir foreldra, er að kenna þeim að umgangast börn sín á grundvelli gagnrýninna uppeldisvísinda. Ástæðan til þess, að foreldrar eiga sem minnst að koma nálægt uppeldi bama sinna, er sú, að fjölskyldan ei' eðli sínu samkvæmt íhaldssöm stofnun. Hún innrætir saklaus- REYKJAVÍKURBRÉF Laugardagur 26. september Morgunblaðið/ÓI.K.M. um börnum siði, venjur og trú hins borgaralega þjóðfélags. Fjölskyldan er valdakerfi. Foreldrarnir ráða yfir börnum sínum. Börnin eru eign foreldranna. Börn eru vanin á hlýðni og undirgefni við for- eldrana. Foreldrar setja heimtufrekju og frelsisþörf barna sinna skorður. Þau beija inn í börnin virðingu fyrir einkvæni. Áf þessu verða börnin óvirk, jafnvel masokist- ar. Fjölskyldan er því gróðrarstía aftur- haldsins, höfuðandstæðingur stéttabarátt- unnar. Það ber því að stefna að því að útrýma henni. Fjölskyldan gerir menn samdauna hinu snargalna „síðkapitalíska iðnaðarþjóðfélagi". í því þjóðfélagi rembist hver sem betur getur að hauga saman efnalegum gæðum, sem hann getur sagt, að hann eigi. í þessu þjóðfélagi ríkir „neyslunauð". Menn eru neyddir í kapp- hlaup um sífellt hraðari og meiri neyslu. Þeim mun meiri vörur sem menn kaupa og þeim mun meira af drasli, sem menn henda á haugana, þeim mun betra fyrir neysluþjóðfélagið. Það er einmitt þetta, sem gerir menn að andlegum krypplingum. Þjóðráðið til að afnema þetta þjóðfélag er að venja börn við stjórnleysi, venja þau að harðneita því að lúta nauð og vald- boði. Skólakennsla er leiðin til byltingar- innar. Þessi skólakennsla á ekki að hafa nein tengsl við siði, venjur og trú þeirrar þjóðar, sem skólinn starfar fyrir. Það er mjög mikilvægt fyrir hugsjónina að af- nema alla kennslu um fortíð þjóðarinnar. Börn, sem læra sögu, gætu ánetjast siðum þjóðarinnar. Því þarf að afnema söguna. I staðinn á að koma athugun á nútímaþjóð- félagi því, sem nemandinn lifir í. Það efni á að matreiða í anda hinna „gagnrýnu félagsvísinda". Efni úr fortíðinni kemur þeim ekki við, nema að svo miklu leyti sem það varpar ljósi á aðstæður í nútímaþjóð- félagi. Bókmenntir fortíðarinnar eiga einnig að liggja á milli hluta. í stað þess að lesa gamlar sögur og úrelt kvæði á að kenna nemendum að meðhöndla texta, eftir nútímahöfunda að sjálfsögðu, og að leggja á þá „gagnrýnið mat“. Þannig læra börnin að samþætta visindi, taka gagnrýna afstöðu til þjóðfélagsins og virkni í við- skiptum við það. Þessi hugmyndafræði styðst við þá kenningu, að umhverfið móti manninn. Þess vegna er það eitur í beinum nývinstri- manna að halda því fram, að upplag sé mönnum gefið í vöggugjöf . . .“ Það er langur vegur milli þessara hug- mynda nývinstrisinna og skoðana og iífsstarfs Einars Gerhardsen, sem aldrei sagði skilið við sína vinstristefnu og var síðustu ár ævi sinnar á stöðugum ferðalög- um um Noreg til að kynna sjónarmið sín og lýsa eigin reynslu. Hann sagði heldur aldrei skilið við sögu og fortíð þjóðar sinnar, vitundin um það, sem hann og hún mátti þola vegna andvaraleysis gagnvart öflugum andstæðingi á stríðstímum, leiddi til ábyrgrar afstöðu til varnar- og öryggis- mála. Sú þjóð sem glatar fortíð sinni hefur varla nokkrar áhyggjur af framtíðinni. Hún flýtur áfram í tómarúmi líðandi stund- ar og gerir kröfur til allra annarra en sjálfrar sín. í sjálfumgleði og á kafí í nú- tímanum vill hún fá allt sitt fram og það á stundinni, sama hvað það kostar. „. . . Skal enn minnt á það, sem Gerhardsen sagði, þegar hann þakkaði Snorra Sturlusyni, að án Heimskringlu hefði Norðmenn skort innri styrk í sjálfstæðisbar- áttunni. Vitneskja um eigin sögu og fortíð er hverri þjóð mikiis virði. Undan þeirri staðreynd verður ekki vikist, þótt þau tískuviðhorf hafi sett of ríkan svip á íslenska skólastefnu und- anfarið, sem gera lítið úr þekkingu á sögunni og jafn- vel rækt tungunn- ar. Ef til vill sjáum við merki um afleiðingar þessa þegar við lesum um þær áhyggjiir, Sem margir hafa og ekki að ástæðu- lausu, af meðferð tungunnar og af ótrúlegu kæru- leysi gagnvart þjóðlegum dyggð- um og sögulegri arfleifð.M

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.