Morgunblaðið - 16.10.1987, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1987
B 11
TÆKNIHORNID
Philips og
geislamyndspilarinn
Myndbandstæki
Sjónvarpsskjár
ooo
o oo
PHILIPS, hollenski raf-
eindatækjarisinn, er löngu
þekktur fyrir byltingar-
kenndar nýjungar á
heimilistækjasviðinu og iðulega hef-
ur fyrirtækið reynst talsvert á
undan samtíð sinni í uppfínninga-
semi. En Philips lætur ekki deigan
síga og hefur nú nýverið kynnt enn
eina nýjungina sem á að koma sem
viðbót við önnur helstu afþreyingar-
tæki heimilanna — hljómflutnings-
samstæðuna, sjónvarpstækið og
myndbandið.
Samtenging allra þessara tækja
í eitt kerfi þekkist á mörgum heimil-
um og nú ætlar Philips að bæta við
þessa samstæðu sérstökum geisla-
spilara sem getur bæði skilað
myndefni á skjáinn og tónlist í
hljómflutningssamstæðuna.
Philips telur að þessi nýja upp-
finning geti ekki einungis aukið
tekjur tónlistariðnaðarins og tækja-
framleiðenda heldur einnig tekjur
kvikmynda- og sjónvarpsfyrir-
tækja. Þessi fyrsti geislamyndspil-
ari eða CD-video player eins og
hann er kallaður á ensku byggir á
nýrri tækni eða öllu heldur sam-
blandi af nýlegri tækni sem þegar
er fyrir hendi og ýmsir ætla að
þetta tæki marki upphafið að fullum
samruna hljómtækja og myndtækja
heimilana í eina tækjasamstæðu.
Nýi geislamyndspilarinn er vænt-
anlegur á markað i Evrópu á næsta
ári. Hann kostar um 500 sterlings-
pund eða um 30 þúsund krónur frá
framleiðenda. Hann verður að
tengja annars vegar við hljómflutn-
ingssamstæðu til að hljóðið fari um
magnarann út i hátalarana og hins
vegar við sjónvarpstækið eða sjón-
varpsskjá til að myndin komist til
skila.
Geislamyndspilarinn mun geta
leikið þrenns konar myndspilara. í
fyrsta lagi 6 þumlunga disk sem
líklega mun kosta í kringum 300
krónur og geta geymt um fimm
mínútur af myndefni og tónlist eða
um 20 mínútur af tónlistarefni ein-
vörðungu. í öðru lagi má nota 8
þumlunga disk, sem líklega mun
kosta í kringum 600 krónur og
getur geymt um 20 mínútur af
mynd- og tónlistarefni í bland á
hvorri hlið og loks 12 þumlunga
disk, sem kostna mun milli 900 og
1000 krónur og geymt getur um
eina klukkustund af myndefni og
tónlistarefni á hvorri hlið. Þar að
auki er geislamyndspilarinn þeirrar
náttúru að hann getur leikið venju-
lega geisladiska með tónlistarefni
og þegar eru fyrir á markaðinum.
Philips-menn telja að fímm þuml-
unga diskurinn sé tilvalin fyrir
hljómplötufyrirtæki til að setja á
markað „skonrokks“-myndir til að
styðja við útgáfu smáplatna. Philips
hefur í því sambandi í hyggju að
setja á markað tæki sem sérstak-
lega eru ætluð til að leika þessa
smæstu gerð diska og þar á meðal
farandtæki (portables). Mun þessi
tegund geislamyndspilara verða
talsvert ódýrari en viðameiru tækin
sem geta leikið allar þijár diska-
stærðimar. Á hinn bóginn era
efasemdir ríkjandi innan tónlista-
riðnaðarins um að 5 þumlungatæk-
in muni fá þann hljómgrann á
markaðinum sem Philips væntir. „
Hvað á fólk að gera meðan verið
er að leika 20 mlnútur af hreinni
tónlist? Glápa á auðan skjáinn eða
ráfa um herbergið," spurði for-
svarsmaður einnar hljómplötuútg-
áfunnar nýverið.
Tiltölulega hátt verð á geisla-
myndspiluranum vekur einning upp
spumingar um framtfð 5 þumlunga
disksins, sem verður lfklega sú disk—
stærðin sem sett verður fyrst á
markað f stóram stfl. Bent er á að
unglingamir, megin markhópur
smáplatnanna, hafa í fæstum tilfell-
um nægileg fjárráð til að Qárfesta
í geislamyndspiluranum. Jos Cop-
pen, markaðsstjóri Philips, er hins
vegar bjartsýnn. „Unglingamir
munu væntanlega þrýsta á foreldra
sína að kaupa þetta kerfi," segir
hann.
Philipsmenn halda þvf síðan fram
að 8 og 12 þumlunga diskamir séu
tilvalin útgáfuleið fyrir framleið-
endur sjónvarpsefnis á borð við
heimildamyndir, leiknar kvikmyndir
í fullri lengd og klassískar tónlistar-
myndir. Philips-menn telja að
almenningur sé líklegri til að kaupa
kvikmyndir á geisladiskum heldur
en á myndböndum og benda á að
frá fomu fari hafi hljómplata haft
talsverða yfirburði gagnvart hljóð-
snældunum að því leyti að almenn-
ingi hafi jafnan þótt hljómplatan
eigulegri gripur og safni þessi
vegna plötum fremur en snældum.
Svipað ætla þeir að verði upp á
teningnum þegar mjmddiskurinn
kemur á markað.
En eins og jafiian þegar nýjung-
ar era annars vegar er nóg til af
efasemdarmönnum sem hafa litla
trú á tiltækinu. Rök hina efagjömu
í þessu tilfelli era aðallega þrenns
konar. í fyrsta lagi telja þeir hættu
á ákveðinni tregðu af hálfu neyt-
enda, sem þegar eigi fullt í fangi
með að fylgjast með öllu úrvalinu
á markaðinum í hljómflutningskerf-
um og kunni því að vita ekki sitt
ijúkandi ráð. í öðra lagi benda þeir
á að skortur á bæði myndefni og
tónlistarefni fyrir þetta nýja kerfi
kunni að verða því fótakefli á við-
kvæmasta stigi f markaðssetningu.
í þriðja lagi telja efasemdarmenn-
imir að mislukkaðar fyrri tilraunir
í markaðssetningu mynddiska í
Evrópu muni hvíla eins og mara á
nýju diskunum og fæla almenning
frá.
En uppfinning Philips er allrar
athygli verð og tilraun fyrirtækisins
í markaðssetningu sömuleiðis, því
að allt veltur þetta auðvitað á því
að neytendumir láti sannfærast um bæti upp það sem fyrir er og sé frambúðar.
að hér sé á ferð tækninýjung sem komin til að vera á markaðinum til Bjöm Vignir Sigurpálsson
'A KAUPCTAÐ
Auglýsingin er ávísun á afslátt til
þín á kr. 3.000.-
Ávísunin er einfaldlega klippt úr blaðinu og framvísað til greiðslu á
hluta af verði SINGER EXCLUSIVE saumavélarinnar.
Verð aðeins Kr. 18.390.-
Afsláttur -f- Kr. 3.000.-
Þúgreiðir Kr. 15.390.-staðer.
—X----
Athugið:
Þetta gildir aðeins til 18. okt. n.k.
KAUPSTAÐUR
ÍMJÓDD
Afsláttur af
„Singer Exclusive" saumavél
kr. 3.000.-«
Gildirtil 18. okt. 1987
Þessi frábæra,
f jölhæfa saumavél býðst
nú á einstöku tilboðsverði
í tilefni opnunar glæsilegrar
sérvöruverslunar í