Morgunblaðið - 19.04.1988, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 19.04.1988, Qupperneq 2
2 B 3>UrgimÞlnÍ>i6 /ÍÞRÓTTIR ÞRIÐJUDAG UR 19. APRÍL 1988 KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ KNATTSPYRNA LYFTINGAR / ISLANDSMOTIÐ „PÉTUR Pétursson var valinn í landsleikinn gegn Norðmönn- um í október sem leið, en hann gaf ekki kost á sór í leikinn. Eg hef ekki heyrt frá honum síðan og lit svo á að hann vilji ekki leika fyrir ísland. Þetta var hans ákvörðun í haust, ég virði hana og því er hann ekki valinn fyrir leikinn gegn Ungverjum," sagði Sigi Held, landsliðsþjálf- ari í knattspyrnu, f samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. Sem kunnugt er leikur íslenska landsliðið vináttuleik við Ung- veija í Búdapest 4. maí. Ljóst er að mikil forföll verða í íslenska lið- inu, því Ásgeir Sigurvinsson, Sig- urður Grétarsson, Lárus Guð- mundsson og Friðrik Friðriksson gefa ekki kost á sér í leikinn og óvíst er hvort Amór Guðjohnsen fái að fara, þar sem Anderlecht á mikil- væga leiki framundan. Pétur Pétursson hefur verið einn af lykilmönnum landsliðsins og yfír- leitt verið fyrsti maður til að koma í leiki. Hann tók hins vegar brúð- kaupsferð fram yfír leikinn gegn Norðmönnum í undankeppni Evrópumótsins í Osló í haust og er því úti í kuldanum nú. „Meðan Pétur hefur ekki samband við mig kemur hann ekki til greina í landsliðið. En það kemur leikur eftir þennan leik og við eigum ör- ugglega eftir að ræða saman og fá botn í málið," sagði Held. mmm Slgl Hsld ræölr vlö landsllösmsnnlna SlgurA Jónsson og Pétur Pétursson. Pétur gaf akkl kost á sér I landslalk I haust gagn NorAmönnum og ar þvf akkl vallnn f IIAIA, sam lalkur vlnáttulands- lalk gagn Ungvarjum ytra á næstunnl. Morgunblaðið/Ólafur Jóhann Sigurðsson Haraldur Ólafsson snarar hér 138 kílóum á íslandsmótinu um helgina og bætir met Baldurs Borgþórssonar í grein- inni frá 1982. ^Haraldur bætti 15ára íslandsmet Guðmundar kvöld ■ Þriðji og síðasti úrslitaleikur UMFN og Hauka í úrvalsdeildinni í körfuknattleik fer fram í íþróttahúsinu í Njarðvík í kvöld og hefst klukkan 20. ■ Leikur KR og ÍR í Reykjavíkur- mótinu í knattspymu hefst á gervigrasvellinum í Laugardal klukkan 20.30. ■Tveir leikir verða á Akranesi í Norð- urlandamóti lögreglumanna í hand- knattleik. Klukkan 17.30 hefst viður- eign Frakklands og Noregs, en leikur Svfþjóðar og Danmerkur byijar klukk- an 18.45. 1. deildarfélögin lá 25 þús. kr. fyrir sigurleiki sína P élag 1. deildarleikmanna í ■ knattspyrnu og Samvinnu- ferðir/Landsýn hafa gert með sér samning fyrir íslandsmótið í knattspymu. 1. deildarkeppnin verður kölluð íslandsmót SL- deildin í sumar. SL hefur ákveðið að verðlauna þau félög sem fara með sigur af hólmi í leikjum sínum með 25 þús. kr. fyrir hvem sigur. Þá fé þau félög sem skora fjögur mörk eða fleiri í leik - 12 þús. kr. í aukagreiðslu, þannig að t.d. 4:1 sigur gefur félagi 37 þús. krónur í kassann. Einnig verður komið á sérstakri SL-getraun í sambandi við hvem leik. Áhorfendur geta keypt sér getraunaseðil og spá um úrslit leikja. Hagnaðurinn skiptist þann- ig á sölu miðanna, að 1. deiidarfé- lögin fá helming upphæðarinnar sem kemur inn, en hinn helming- urinn fer í ferðavinninga, sem eru í verðlaun fyrir að spá rétt um úrslit. KNATTSPYRNA Valur og Fram í undanúrslit Vlur vann Leikni, 2:0, í Reykjavíkurmótinu í knatt- spymu í gærkvöldi. Sigurjón Kristj- ánsson skoraði bæði mörk Vals- manna, sem leika gegn ÍR eða KR, sem mætast í kvöld, í undanúrslit- um á föstudaginn. Pétur Ormslev og Guðmundur Steinsson skoruðu fyrir Framara, sem lögðu Ármenninga að velli, 2:0, á sunnudaginn. Framarar leika annað hvort gegn Fýlki eða Víking í hinum undanúr- slitaleikr.um. Fylkir og Víkingur mætast annað kvöld. Pétur Péturs- sonútií kuldanum Ekki valinn íyrir leikinn gegn Ungverjum HANDKNATTLEIKUR Birgir tryggði lög- regluliðinu sigur Islenska lögregiulandshðið lagði franska landsliðið að velli, 22:21, í Evrópumeistaramóti lög- reglulandsliðs, sem hófst í íþrótta- húsinu í Hafnarfírði í gær. Birgir S. Jóhannsson, fyrrum línumaður úr Fram, skoraði sigurmarkið þegar tvær mín. voru til leiksloka. „Við lékum langt undir getu og nýttum ekki færin okkar," sagði Steindór Gunnarsson, liðsstjóri lögregluliðsins, sem sagðist vera aðeins ánæður með stigin tvö sem fengust. Mörk íslenska liðsins gegn Frökk- um, skoruðu: Hannes Leifsson 6, Hana Guðmundsson 5, Sigurður Gunnarsson 4, Ámi Friðleifsson, Birgur S. Jóhannsson, Valgarður Valgarðsson og Benedikt Sveins- son. Guðmundur Hallvarðsson varði mark íslenska liðsins og lék vel. V-Þjóðverjar lögðu Svía að velli, 22:21. Lyfti samanlagt 310 kg. á Akureyri um helgina HARALDUR Ólafsson frá Akur- eyri setti þrjú íslandsmet f 82,5 kg. flokki á Islandsmótinu í ólympískum lyftingum sem haldið var á Akureyri um helg- ina. Eitt metanna var orðið 15 ára gamalt; metið f saman- lögðu, en það var eign Guð- mundar Sigurðssonar, þartil á laugardag. Amótið mættu 28 keppendur frá fjórum félögum, Lyftinga- félagi Akureyrar, ÍR, Áiroanni og KR. Haraldur ólafsson var sá eini sem setti íslandsmet í fullorð- insflokki á mótinu. Hann snaraði 138 kg. og bætti þar með met Baldurs Borgþórssonar, KR, frá 1982 um Frá Stefáni Amaldssyni áAkureyri hálft kíló, jafnhattaði 174 kg. og sló þar með eigið íslandsmet, sem staðið hafði í fjögur ár, um hálft kíló, og í samanlögðu lyfti hann því 310 kg, sem er tveimur og hálfum kflóum yfír gamla metinu, sem Guðmundur átti eins og áður kemur fram. Sigurvegarar (flokkunum urðu annars þess- ir (fyrst snörun, þá jafnhöttun og loks sam- anlagður árangur): 52, S kg. fl. Sigurður Helgason, lR ..35,0 55,0 90,0 56,0 kg. fl. Snorri Amaldsson, LFA 47,5 62,6 110,0 60 kg. fl. Tryggvi Heimisson, LFA............... ...................67,6 80,0 147,6 67.5 kg. fl. Þorvaldur Rögnvaldsson, KR........... ..................96,0' 127,6 222,6 75 kg. fl. Már óskarssons, KR...80,0 97,5 177,5 82.5 kg. fl. Haraldur Ólafsson, LFA............... ..................138,0 174,0 310,0 90 kg. fl. Ólafur öm Ólafsson,Ai..95,0 117,6 212,6 100 kg. fl. AgnarBúi, KR 102,6 126,0 227,6 110 kg. fl. ÓskarKárason, KR ....120,0 120,0 240,0 + 100 kg. fl. AgnarJónsson, KR 120,0 170,0 290,0 í flokki drengja undir 16 settu Akureyringar sex Akureyrarmet og tvö íslandsmet og keppendur frá ÍR og Ármanni settu þijú íslands- met i þessum flokki. í lokahófí mótsins hlaut Haraldur Ólafsson viðurkenningu fyrir besta afrek mótsins og í félagakeppninni sigraði KR örugglega, í öðru sæti varð LFA og Ármann f þriðja sæti. Mótið fór mjög vel fram, og var framkvæmdin Lyftingafélagi Akur- eyrar til mikils sóma. Blómaskreyt- ingar settu skemmtilegan svip á íþróttahöllina.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.