Morgunblaðið - 19.04.1988, Blaðsíða 11
fttgrgtwftlaftift /IÞROTTIR ÞRWJUDAGUR 19. APRÍL 1988
B 11
Hvemig bíl
klæðist þú?
BILAR
Þórhallur
Jósepsson
skrifar
Hver hefði trúað því, að hægt
væri að selja bfla sem tísku-
vaming? Einmitt það sem Nissan
gerir, næst stærsti bílaframleiðand-
inn í Japan. Eftir að
hafa slegið í gegn á
síðasta ári með hin-
um litla og „ljóta"
(helst hægt að líkja
honum við Citroén
Braggann) Be-1,
setur Nissan nú á markað tvo nýja
„tískuhannaða" bfla, s-Cargo og
Pao, bfl sem fær nafn sitt og ímynd
frá mongólsku tjaldi!
Þessir bflar hafa haft endaskipti á
hugmyndum manna um bíla sem
tískuvörur. Þeir eru engum líkir í
útliti og þeir eru bflar dagsins í dag
(s-Cargo verður aðeins framleiddur
í tvö ár) og hafa „meðfætt" verð-
gildi fágætra muna. Be-1 var aðeins
„gefínn út“ í tíu þúsund eitökum,
sem fljótt seldust upp; nú seljast
þeir fyrir 2,3 milljónir yena sem er
eínni milljón jneira en þeir kostuðu
upphaflega. Ólíklegt er, að fleiri en
20.000 s-Cargo verði smíðaðir.
Nissan getur framleitt þessa bíla í
tiltölulega litlu magni með því að
byggja á grunni annarra gerða,
þróunarkostnaður s-Cargo var um
200 milljónir yena, sem er hundó-
dýrt fyrir nýjan bíl.
Galdurinn við að selja bfla sem
tískuvörur er, að hlaða þá auka-
dóti, sem venjulega fylgir ekki
bflum. Með Be-1 var hægt að fá
200 mismunandi hluti, þ. á m.
símakrítarkort, handklæði, regn-
hlífar og axlatöskur, allt merkt
Be-1. Sumt þessara hluta selur
Nissan beint, aðrir eru seldir af
öðrum fyrirtækjum með leyfí Niss-
an, sem fær umboðslaun fyrir.
I lok nóvember í fyrra höfðu auka-
hlutir í Be-1 selst fyrir 1,3 milljarða
yena, tífalt meira en fékkst fyrir
sölu bflanna sjálfra! Það þýðir, að
Nissan hefur fengið allan sinn
hagnað af Be-1 með sölu aukahlu-
tanna þar sem bíllinn sjálfur hefur
að öllum líkindum ekki skilað arði.
s-Cargo og Pao munu einnig koma
með sínum sérstöku aukahlutum,
vafalaust fleiri, betri og ábatasam-
ari.
s-Cargo
„Blár og
marinn vegna
hraða bflsins'
NÝR bfll, ný vél og nýr
gírkassi. Þetta stóð mértil
boða í fyrstu keppni ársins í
Rio de Janeiro. I tilefni af
þessum tímamótum ákvað ég
að raka af mér yfirvaraskegg-
ið, sem hafði verið neðan
nefs 117 ár. Reyndar kom það
til af því að ég lofaði þeim
sem smíðar vflarnar að losna
við aukaþyngd af Itkamanum,
ef hann gœti búið til örlítið
fleiri hestöfl í nýju Judd vél-
ina...
Það er heitt og rakt í Rio og
tekur tíma að venjast að-
stæðum og þvi dvaldi ég nokkra
daga á Spáni við golfíðkun til að
venjast hitanum.
Nigel Heimaland mitt,
Mansell England, hefur
skrifar aldrei talist sérs-
taklega heitt
land... Ég vann smá golfkeppni á
Spáni áður en ég tók 10 tíma flug-
ið til Rio. Eftir sturtu og nokkra
hringi á golfvelli, sem ég er farinn
að venja mig á að labba fyrir
keppni prófaði ég nýjan Villiams
bílinn.
Ég fór nokkra hringi, varkár í
fyrstu tilraun en var samt með
ágætis tima miðað við andstæð-
ingana á æfíngunni. Við lentum
í vandræðum vegna hitans, vél-
amar hitnuðu talsvert og við
rejmdum að ráða bót á því. Eftir
föstudaginn var ég með næst
besta aksturstímann, þó við vær-
um með vél sem ekki hefur for-
þjöppu. Það kom mér á óvart að
aðeins Alain Prost var fljótari á
McLaren bflnum.
Þyngdarkrafturinn
svakalegur
Það sem var ánægjulegast var
hvað bíllinn komst hratt gegnum
beygjumar. Við fómm 26 km
hægar á hraðasta kafla beinu
brautarinnar, en í beygjunum náð-
um við að vinna tíma og vomm
bara hálfri sekúndu á eftir bestu
bflunum um brautina sem var
þriggja kflómetra löng. Ég fór svo
hratt í beygjum að þyngdarkraft-
urinn var svo mikill að lappimar
þrýstust út í yfirbyggmguna, til
hægri eða vinstri eftir því í hvora
áttina ég beygði. Ég var blár og
marinn á hnjánum eftir þetta, en
bfllinn flaug áfram og það var
fyrir öliu.
Ég bjóst við að ná á verðlauna-
pall í keppninni eftir að hafa náð
öðm sæti í tímatöku og þar með
öðm sæti í ræsingu keppenda.
Vegna hitans var komið fyrir
kælirömm f hjálminn, þar sem
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsaon
Nigel Mansell skoðar hér Morgunblaðið, en hann mun skrifa reglulega
um Formula 1 kappaksturinn fyrir blaðið. Keppnistímabilið er nú ný hafíð
og ríður hann á vaðið með þessari grein.
kalt vatn rann um og hélt það
höfðinu við eðiilegt hitastig, 37
gráður. Ræsinginn var kiúður,
Ayrton Senna ók hræðilega hægt
fyrsta hringinn áður én bílamir
vom ræstir af stað. Vegna þessa
ofhitnaði vílin hjá mér og mörgum
öðmm keppendum, við verðum
að fá loft í gegnum kæliraufamar
og aka á minnst 40 til 50 km
hraða.
Prostþaut framúr og hvarf
Bfll Senna var fastur í fyrsta gír
og hann skipti um bfl, envar síðan
dæmdur úr keppni vegna þess. Á
ráslínu gaf ég allt í botn, vildi
ekki drepa á vélinni eins og stund-
um hefur hent ökumenn. Þegar
ég hafði skipt upp í fjórða gfr og
var fyrstur þaut Prost framúr og
nánast hvarf. Það munaði greini-
lega um forþjöppumar og 60
aukahestöflin. Svo æddi Ferrari
Gerhard Berger framúr, en aðrir
komust ekki framhjá mér. Ég
náði að hanga í Berger í beygjun-
um en tapaði af honum á beinu
brautinni.
Vélin byijaði að hitna óeðlilega
þegar einum þriðja keppninnar
var lokið. Ég skaust inn á viðgerð-
arsvæðið og skipt var um dekkinn
fjögur og kæiikerfíð athugað. Ég
steig á bensíngjöfina og ætlaði
af stað, en þá dó vélin og komst
ekki í gang aftur. Þetta var búið.
Mest vorkenndi ég viðgerðar-
mönnunum sem höfðu marga
mánuði unnið baki brotnu við
bflinn. En tímabilið er rétt að
byija og þó við höfum ekki kraft-
mesta bflinn, þá er bíllinn mjög
góður og gæti unnið nokkur mót
í ár. Ef allt gengur vel...
KNA TTSPYRNUFELA GIÐ
FRAM cðftn
T/.vvvÍJ Afmælisfagnaðurverðurhaldinn
Qf) A JD A Wfr^yi 29. apríl 1988í Sigtúni 3 ki. 19.30.
Ot/ |( Aðgöngumiðarogborðapantanirí
Framheimilinu v/Safamýri frá
18. apríl milli kl. 17.00 og22.00.
Pao