Morgunblaðið - 19.04.1988, Page 7
JtorgnwMaMb /ÍÞRÓTTIR ÞRWJUDAGUR 19. APRÍL 1988
B 7
LANDSMÓT
Veðrið setti strik í reikninginn
Akureyringar lengja skíðavertíðina
Velheppnaðmót
ÍMémR
FOLK
■ KYLFINGARNIR Einar L. Þórisson og Ragnar Ólafsson nældu
sér í bronsverðlaunin á heimsmeistaramótinu í golfhermi, sem fór fram
í Skotlandi. Björgúlfur Lúðviksson, var liðsstjóri þeirra (sjá mynd).
Ragnar og Einar L. byijuðu á því að leggja Argentínumenn að velli
og síðan V-Þjóðveija. Þeir léku síðan gegn Norðmönnum í undanúrslit-
um og voru óheppnir að tapa. Á síðustu braut náðist ekki að setja niður
1.30 m langt pútt, þannig að Norðmenn náðu að jafna. Á nítjándu braut
brást þeim félögum bogalistin - slóu báðir út af braut og Norðmenn
stóðu uppi sem sigurvegarar. Þeir unnu Finna síðan í úrslitaleik, en Ein-
ar L. og Ragnar tryggðu sér þriðja sætið með því að leggja Bandaríkja-
menn að velli. Ragnar náði lengstu teighöggum í keppninni. Hann sló
291 m, 290, 289, 288 (tvisvar), 287 og þá sló hann fjórum sinnum 286 m,
en alls sló hann tuttugu sinnum yfir 270 m. Norðmaður kom næstur á
blaði, með 286 m og Kanadamaður sló 272 m.
Landsmótinu á skíðum er nú
lokið, en mótið var nú hald-
ið ( fyrsta sinn eftir páska. Mó-
tið hefur ávallt verið haldið um
páska, en nú breyttu Akur-
eyringar til og seinkuðu mótinu
um eina viku.
Stemmningin var
því nokkuð frá-
brugðin, en reynslan
á eftir að leiða í ljós
hvemig menn sætta
sig við það. Vissu-
lega er það af hinu
góða ef hægt er að
lengja skíðavertíð-
ina, en hugsanlega
eru þeir færri sem
komast til mótsins
um almenna helgi.
Það sem hafði þó
mest áhrif var veðr-
ið. Mikil snjókoma
og norðan strekk-
ingur komu í veg
fyrir að mótið gæti
hafist á tilsettum
tíma, en með til-
færslum tókst að
Ijúka því á sunnu-
daginn.
Veðrið hafði vissu-
lega áhrif á úrslit í
alpagreinum á mót-
inu, sérstaklega
, fyrri hlutann. Færið
var þungt og
skyggni slæmt og margir duttu
eftir að hafa lent í djúpum
grafningum sem voru fljótir að
myndast, en í sjálfu sér er ekki
mikið við því að gera. Það var
því varla hægt að búast við
mjög glæsilegum árangri við svo
slæmar aðstæður, en menn geta
þó huggað sig við það að flestir
Þrátt fyrir að veðrið hafí verið
slæmt og erfitt að keppa eru
þó nokkrir sem óneitanlega
standa upp úr sem sigurvegarar
mótsins. Ölafur Sigurðsson frá
ísafirði sem vann til tvennra
gullverðlauna á öðru landsmóti
sínu. Það er líklega hann sem
telst „maður mótsins“. Einar
Ólafsson vann til fernra gull-
verðlauna í göngu, en það er
vart hægt að segja að það hafi
komið á óvart, enda hefur hann
verið fremstur íslenskra göngu-
manna í mörg ár. Guðrún H.
Kristjánsdóttir vann til þrennra
gullverðlauna og það var einnig
glæsilegt og þessi afrek standa
upp úr þegar litið er yfir mótið
í heild. Einnig er afrek ísfirðinga
glæsilegt. Þeir unnu 10 af 20
gullverðlaunum mótsins og mun
það vera besti árangur Isfirð-
inga á útivelli.
Framkvæmd mótsins tókst
nokkuð vel, sérstaklega ef mið
er tekið af veðrinu. Það er alls
ekki auðvelt að skipuleggja stórt
mót á skíðum þegar veðurguð-
imir eru ekki samstarfsfúsir.
En þrátt fyrir það gekk mótið
vel. Starfsmenn mótsins unnu
gffurlega mikið starf og segja
má að allir hafi lagst á eitt til
að gera mótið mögulegt.
Það var einnig góð hugmynd
að fá erlenda gesti til að taka
þátt í mótinu, Jugóslava og Svía,
sem standa framarlega í sfnum
greinum. Það hefur mikið að
segja fyrir íslenska keppendur
að mæta sterkum skíðamönnum
frá öðrum löndum. Bæði eykur
það reynslu fslendinganna og
einnig er það skemmtilegt fyrir
áhorfendur að fá að fylgjast með
erlendum keppendum.
Það er því vait hægt að kvarta
undan framkvæmd landsmóts-
ins, en það eina sem ekki var
sem skyldi var veðrið og ég hef
ekki mikla trú á að það gagni
að steyta hnefann til himins,
heldur að sætta sig við að á
íslandi er allra veðra von.
Logi Bergmann
Eiðsson
■ GLASGOW Rangers virðist
vera vel statt fjárhagslega. Graeme
Souness hefur verið iðinn við að
kaupa leikmenn og ekki sett verðið
fyrir sig. Nú vill hann ólmur fá Ian
Rush og hefur boðið Juventus 2,5
milljónir punda fyrir hann. Rush
er samt ekki á sölulista, en verði
hann seldur vill Juve fá sama og
félagið greiddi Liverpool eða 3,2
milljónir punda. En Rangers kaup-
ir ekki aðeins leikmenn. Fyrir
skömmu keypti félagið fyrirtækið
Admiral, sem framleiðir (þróttavör-
ur. Rekstur fyrirtækisins hafði
gengið illa og Rangers fékk það
fyrir innan við milljón pund, sem
þykja smáaurar á þeim bænum.
Stjómarmenn Rangers telja að
þeir geti selt Admiralvörur til um
30 milljón manns, en félagið á eftir
tvö ár af samningi við Umbro og
getur því ekki leikið í Admiralbún-
ingum um sinn.
■ JOHN Robertson hjá Hearts
hefur verið í sviðsljósinu í vetur
enda gert 30 mörk fyrir félagið á
tímabilinu. Mörg félög hafa sýnt
áhuga á pilti, en Newcastle bauð
allt í einu 750.000 pund í kappann
oggengið var frá kaupunum í gær.
■ EVERTON hefur ekki gengið
eins vel ( vetur og gert hafði verið
ráð fyrir í herbúðum félagsins og
ríkir óánægja á meðal leikmanna.
Kevin Sheedie, Trevor Steven,
Ian Snodin, Wayne Clarke og Ian
Wilson hafa þegar óskað eftir að
fara og nú hefur Gary Stevens
bæst í hóp hinna óánægðu.
■ DAVW O’Leary hefur átt við
þrálát meiðsli að stríða siðan um
jól. Önnur hásinin hefur verið að
angra hann og nú er svo komið að
uppskurður virðist vera óumflýjan-
legur. Hann verður því ekki með
Arsenal gegn Luton i úrslitum
deildarbikarkeppninnar á laugar-
daginn.
■ JUVENTUS sýndi loksins
góðan leik síðastliðinn sunnudag
er liðið vann Napolí 3:1 í ítölsku
1. deildinni í knattspymu. Fæstir
höfðu gert sér vonir um svo góðan
árangur og síst leikmennimir. Þeg-
ar staðan var orðin 3-0 fyrir Juve,
á 74. mfnútu, var Antonio Cabrini
svo glaður að hann sparkaði knett-
inum langt upp ( áhorfendastúku.
Hann var rekinn af velli fyrir vikið.
IAN Rusb lék vel í þessum sama
leik, skoraði eitt mark. „Þetta er
fyrsta mikilvæga markið sem ég
skora fyrir Juve,“ sagði hann án-
ægður að ieikslokum. Hann sagði
vinum sínum eftir leikinn að hann
hefði leikið í enskum skóm, þeim
sömu og hann var í þegar hann lék
með Leeds gegn Everton í síðustu
viku og setti þijú' mörk, en þetta
var fjáröflunarleikur fyrir John
Charles, fyrram leikmann Leeds
og Juventus. Rush viðurkennir þó
ekki að vera hjátrúarfullur...
■ INGEMAR Stenmark er
hættur við að hætta að keppa á
skíðum. Hann ætlaði að hætta eftir
vetrarleikana í Calgary, en segist
nú ætla að vera með í helstu mótum
heimsbikarkeppninnar næsta vetur.
■ LOTHAR Matth&us, þýski
landsliðsmaðurinn hjá Bayern
Milnchen, sem leikið hefur meira
en 50 landsleiki fyrir Vestur-þýska-
land, ætlar að leika með Inter
Milanó á ítalfu næstu þijú árin.
Hann undirritar samning við félagið
á fimmtudag.
■ VLADIMJR Zhigili, fyrram
sovéskur landsliðsmaður í körfu-
knattleik, hefur verið seldur frá
Dynamo Moskvu til Levski Spar-
tak í Búlgariu fyrir um 200.000
krónur. Zhigili, sem er fyrsti er-
lendi leikmaðurinn i Búlgaríu,
fær um 20.000 krónur í laun á
mánuði, en hann lék sinn fyrsta
leik með Spartak um helgina.
■ RONALD Koeman, vamar-
maðurinn sterki hjá PSV Eind-
hoven í Hollandi, var um helgina
dæmdur í þriggja leikja bann í Evr-
ópuleikjum vegna viðtals í hollensku
mánaðarriti, þar sem hann lofaði
brot félaga síns á Tigana hjá
Bordeaux í Evrópuleik liðanna i
síðasta mánuði. Koeman áfrýjaði
og verður málið tekið fyrir á sér-
stökum fundi Evrópusambandsins í
fyrramálið. Verði Koeman sýknað-
ur má hann leika með PSV annað
kvöld gegn Real Madrid, en það
er seinni leikur liðanna í undan-
úrslitum Evrópukeppninnar.
Fyrri leiknum lauk 1:1 og fór
hann fram á Spáni.
■ GREG Norman, golfarinn
snjalli frá Ástralíu, sigraði á golf-
móti í Bandaríkjunum um helgina,
fyrsti sigur hans í Bandaríkjunum
í tvö ár.
■ KNA TTSP YRNUMENN úr
Völsungi á Húsavík era nýkomnir
frá HoIIandi þar sem þeir dvöldu
í æfingabúðum yfir páskana. Þeir
léku fyrst gegn Amhein Young
Boys, sem leikur í 1. deild áhuga-
manna í Hollandi og töpuðu, 0:2.
Völsungar mættu svo liði úr 2.
deildinni ( Sviþjóð, Holmalund og
töpuðu 1:2, en Kristján Olgeirsson
skoraði mark Völsunga. Næst léku
Völsungar gegn Magna frá
Grenivík, en liðið var 5 æfingabúð-
um á svipuðum slóðum. Völsungar
sigraðu 6:3. Snævar Hreinsson
(2), Jónas Halgrímsson, Bjöm
Olgeirsson, Stefán Viðarsson og
Theodór Jóhannsson skoraðu
mörk Völsungs, en Jón Ingólfs-
son, Sverrir Heimisson og Þor-
steinn Jónsson skoraðu mörk
Magna. Völsungar mættu svo öðru
hollensku liði og töpuðu 0:2. Loks
léku þeir gegn Ramme Lusa, sem
leikur ( 2. deild í Svíþjóð og gerðu
jafntefli, 1:1. Stefán Viðarsson
skoraði mark Völsunga.
■ EGILL Árnason hf., sem auglýsir Junckers Parket á búningum
fslandsmeistara Vals, verðlaunaði Valsmenn fyrir frábæran árangur (
vetur, með því að færa þeim að ávísun upp á 200.000 kr. Hér á mynd-
inni fyrir ofan sjást Þórður Sigurðsson, formaður handknattleiksdeildar
Vals, og Geir Sveinsson, fyrirliði, með ávísunina frá fyrirtækinu.
Veðrið
Veðrið hafði mikil áhrif á framkvæmd landsmóts-
ins, eins og sjá má á þessari mynd af Einar Ólafs-
syni. Hann lét það þó ekki á sig fá og vann fern
gullverðlaun.
Aðstaður
Vegna veðurs voru brautirnar erfiðari en ella og það setti svip sinn á
mótið. Hér er það Daníel Hilmarsson 'sem fellur f svigi.
keppendur fengu álíka veður (
keppni.