Morgunblaðið - 19.04.1988, Blaðsíða 9
t-
jWorsunHaMb /ÍÞRÓTTIR ÞRJÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988
B 9
L C Z Y K
lympíuleikana
iaðsérU-21
I og félagslið
sem er að gerast annars staðar, lær-
ir af öðrum. Ég hef fylgst með hverri
einustu heimsmeistarakeppninni
síðan 1967 og verið tvisvar á
Ólympíuleikum sem er ómetanlegt
og hefur komið mér að miklu gagni
í mínu starfi.“
Skipulagning
„Stefna landsliðsins hefur verið
markviss. Sjötta sæti á Ólympíuleik-
unum í Los Angeles 1984 og í heims-
meistarakeppninni í Sviss fyrir tveim-
ur árum tala sínu máli, en fjórða
sætið á heimsbikarmótinu í Svíþjóð
í janúar er það besta hingað til að
mínu mati. Það er mikill „karakter“
í liðinu, undirbúningurinn fyrir Seoul
er góður. Leikmennirnir óttast ekki
mótherjana og með hlutlausum dóm-
urum ásamt heppni má fara langt.
Möguleikar þessa liðs á að gera vel
eru miklir. En menn verða að gera
sér grein fyrir því að sjötta sætið í
Sviss jafngildir sjöunda til áttunda
Riðillinn
íSeoul
gífurlega
erfiður
héma heima. Japanir hjálpa því mik-
ið til við undirbúning okkar fyrir leik-
ana. Greiða allan kostnað við ferð
okkar og vil ég þakka þeim kærlega
fyrir hjálpina! Síðan verður allur hóp-
urinn saman í þrjá og hálfan mánuð.
Því fylgir áhætta eins og ofæfing og
leiði, en við höfum ekki um annað
að velja. Þetta er sem póker, þú tek-
ur áhættu og vinnur eða fellur á eig-
in bragði. Islenskir þjálfarar hlógu
að undirbúningnum fyrir HM í Sviss,
töldu hann of langan og ónauðsynleg-
an. Annað kom á dagirin. Nú er undir-
búningurinn enn lengri, en við verð-
um að spyija að leikslokum. Við ger-
um allt sem við getum og stöndum
og föllum með því.
Leikurinn gegn Vestur-Þjóðveijum
8. júlí fellur ekki vel inn í skipulagn-
inguna, en á sex þjóða mótinu hér
heima í lok ágúst eigum við að vera
komnir í 85% æfingu miðað við það
hvernig liðið á að vera þegar að
Ólympíuleikunum kernur."
Þurfti að
byggja
uppfrá
arunni
að einbeita sér að verkefninu. 22-24
leikmenn verða valdir til æfínga, þeir
keppa um 15 stöður og gera ekki
annað á meðan.“
Kaflaskiptl
„Fimm ár er góður tími á sama stað,
en þá er líka rétt að gera breytingar
— annað hvort að skipta um þjálfara
eða leikmenn. Ég var fimm ár með
Víkinga og í haust hef ég verið önn-
ur fimm ár með landsliðið. Því segi
ég á þessari stundu að það er 100%
öruggt að ég hætti með liðið eftir
Ólympíuleikana. Þá er tími kominn
fyrir nýtt blóð.
Guð einn veit hvað tekur við hjá
mér, en því er ekki að leyna að ég
hef verið í viðræðum við stjórnar-
menn íslenskra félagsliða. Eins hef
ég fengið tilboð erlendis frá, en þau
eru ekki á dagskrá á meðan ég er
samningsbundinn hér. Fyrr eða
Égfer
aftur
heim til
Póllands
Jákvæðu
hliðarnar
Eg er ánægðastur með
framfarimar, sem hafa
orðið í íslenskum handknatt-
leik á undanfömum tíu árum..
Skriðunni hefur verið komið
af stað og þróunin verður ekki
stöðvuð."
Fimm árin með Víkingi eru
eftirminnileg. Það var
ánægjulegur tími og gaman
að hafa verið þátttakandi í
besta tíma félagsins í sög-
unni."
Það var erfitt að taka við
landsliðinu, en þetta hafa
verið fímm gleðileg ár — og
ekki skemmir fyrir að árangur
landsliðsins hefur aldrei verið
betri en á þessu tímabili."
Island og íslenskt mannlíf
hefur tekið gífurlega mikl-
um breytingum á þessum tíu
árum. Framfarir í einu og öllu
eru ótrúlegar og ég hef svo
sannarlega notið þess að fylgj-
ast með þessari jákvæðu þró-
un.“
IMeikvæðu
hliðarnar
Eg get sennilega aldrei
sætt mig við veðrið á ís-
landi. Reyndar er það alltaf
gott, þegar ég kem til lands-
ins, en góða tíðin stendur því
miður alltof stutt yfir.“
Sveiflumar í áliti almenn-
ings á árangri iandsiiðs-
ins eru hvimleiðar. Þegar vel
gengur eiga menn ekki til
nógu stór orð og eru í efstu
skýjum, en fara síðan eins
langt niður og hægt er, þegar
á bjátar. í þessu sambandi er
mikilvægt að fólk skilji hvaða
leikir skipta í raun máli, þegar
upp er staðið."
M
Íslendingar em of mikið fyr-
ir að fresta hlutunum, ætla
áð framkvæma á morgun, það
sem á að gera í dag. Þessi
hugsunarháttur er visst
vandamál. í handboltanum
þarf að taka á málum strax í
dag en ekki geyma verkefnin
til morguns."
Sambandsleysi milli félag-
anna og landsliðsins er
vandamál. Þjálfarar félagsliða
eru að berjast fyrir sjálfan sig
og segja að landsliðið komi
þeim ekki við, en það er
rangt.“
Morgunblaðiö/Bjerni Eiríksson
Bogdan í viðtalinu við blaðamenn Morgunblaðsins. Til hægri er Guðjón
Guðmundsson, sem verið hefur Iiðsstjóri Bogdans öll árin með Víkingi og
landsliðinu.
sæti f Seoul. Samt eru allir möguleik-
ar opnir. Sovétmenn eru bestir, en
þeir verða ekki endilega Óljrmpíu-
meistarar. Júgóslavar hafa tak á
þeim, okkur hefur gengið vel með
Júgóslava, en ekki átt láni að fagna
gegn Svfum. Skrefið til að gera betur
en í Sviss er stórt en framkvæman-
legt. En menn verða þó að gera sér
grein fyrir því að riðill okkar á
Olympíuleikunum er gífurlega sterk-
ur, þar sem við erum bæði með Sovét-
mönnum og Júgóslövum.
Hver dagur fram að ólympíuleikum
er skipulagður. Allt hefur sinn til-
gang. Leikimir gegn Japan brúa bilið
þar til æfingar hefjast á ný, þeir eru
vítamínssprauta fyrir leikmennina
Frlður
„Tíminn, sem fer f hönd, er mjög
mikilvægur. Leiknir verða 22 lands-
leikir á tveimur og hálfum mánuði
svo ljóst er að leikmennimir verða
undir gífurlega miklu álagi. Því er
nauðsynlegt að liðið fái að undirbúa
sig í friði. í fyrsta lagi verða allar
æfingar lokaðar. í öðm lagi verða
strákamir að fá nauðsynlega hvíld
án afskipta utanaðkomandi aðila.
Mörg fyrirtæki hafa styrkt og vilja
styrkja landsliðið, en menn verða að
skilja að leikmennimir eru ekki fyrir-
sætur. Þeir eiga ekki að koma ná-
lægt auglýsingum, heldur fá frið til
seinna fer ég aftur heim til Póllands,
en ég þjálfa þar ekki næsta vetur.
Pólska landsliðið er með þjálfara fram
í febrúar eða mars á næsta ári og
vegna Ólympíuleikanna þýðir ekki að
hugsa um að taka að sér pólskt fé-
lagslið.
Mér hefur liðið vel á íslandi og hef
áhuga á að vera hér áfram. Ekki fer
saman að vera með félagslið og A-
landsliðið, en félagslið og landsliðið
U-21 árs geta gengið. Það er spenn-
andi verkefni að taka við 21árs lið-
inu, því það verður andlitið út á við
innan fárra ára. Ég er til, en það er
ekki mitt að velja, heldur HSÍ að
ákveða."
Bogdan Kowalczyk
Fæddur: í Warsjá í Póllandi 12. ágúst 1946.
Eiginkona: Anna Kowalczyk.
Börn: Jacek, sjö ára, og Maijek, 11 ára.
Leikferill: „Warszawia NKA“, „AWF-Warszawa“, „Slask Wroclaw".
Landsleikir: 82 fyrir Pólland.
Þjálfaraferill: „Slask Wroclaw" (10 ár), Víkingur (5 ár), íslenska
landsliðið (5 ár - 158 landsleikir).
Titlar: Sjö sinnum pólskur meistari með „Slask“ (einu sinni sem
leikmaður og þjálfari og sex sinnum sem þjálfari), fjórum sinnum
íslandsmeistari, þrisvar bikarmeistari, fjórum sinnum Reykjavíkur-
meistari.
Árangur: með landsliðið; 6. sæti á ÓL 1984, 6. sæti á HM 1986,
4. sæti á heimsbikarmótinu 1988. Tvisvar í undanúrslit Evrópu-
keppni (Slask og Víkingur).
i