Morgunblaðið - 19.04.1988, Qupperneq 10
10 B
jHorennMnMh /ÍÞRÓTTIR ÞRHXJUDAGUR 19. APRÍL 1988
Eltt af maglnverkefnum LS nú er að gera Amarvatnsheiði að aðgengi-
legri veiðiparadís en nú er, með ýmsum framkvæmdum. Þetta er stundar-
komsveiði úr smálæk þar efra frá síðasta sumri.
Margar nefnd-
irávegumLS
byijaðar
aðstarfa
UPPTIL skamms tíma var
Landssamband Stangveiðifé-
laga á fárra vörum, utan
þeirra sem vissu um fyrirbæ-
rið en eyddu vart öðrum orð-
um f það en hrakyrðum vegna
framkvæmdarleysis. Vissu-
lega var LS magnvana og
stjórnendur þess ekki öf-
undsverðir af hlutskipti sfnu:
Að stjórna fjárvana sambandi
sem hafði innan vábanda
sinna furðu fá hinna mörgu
stangaveiðifólaga landsins.
Og viðhorf þeirra sem ekki
voru með voru á þá lund að
það hefði ekkert upp úr sér
að vera i LS. í samanburði
við LS annarra Norðurlanda
voru hér komnir litirnir svart
og hvftt. Ytra bæði styrkja
rfkissjóðir samböndin svo og
afia þau umtalsverðra tekna
með útgáfustarfsemi, happa-
drættum og fleiru. ísland átti
greinilega langt f land.
En sem betur fer, stefnir nú
til betri vegar. Ýmis sameig-
inleg hagsmunamál hafa þjappað
stangaveiðimönnum saman og
ásamt með dug-
andi stjóm hefur
LS farið að
VEKN
Guðmundur
Guöjónsson
skrifar
rumska og gefa
fyrirheit um
breytta tíma. Sem
dæmi um sameig-
inleg hagsmunamál má nefna
verðlagsmál veiðileyfa i víðu sam-
hengi. Þá er sá er þetta ritar ekki
grunlaus um að það ætti að vera
LS en ekki SVFR sem veiti for-
ystu hreyfíngunni sem nú berst
fyrir upptöku neta úr jökulvatni
og sjó. Hin mikla fjöldahreyfíng
til silúngsveiða hefur og orðið LS
tilefni til aukina umsvifa og er
nú róið að því öllum árum að
breyta allri Amarvatnsheiði í
stangaveiðialmenning með veiði-
kofum og þjónustumiðstöð og
tilbehör. Þannig mætti áfram
telja.
Þessi texti er ritaður til þess að
gera stangaveiðimönnum heyrin-
kunnugt, að LS er komið á skrið
fyrir nokkm var frá því gengið,
að all margar nefndir voru stofn-
settar. Rafn formaður Hafnfjörð
er á öðm kjörtímabili sinu og
gerði sér fljótt grein fyrir því að
ef að eitthvað ætti að gera, þá
mætti það alls ekki lenda allt sam-
an á sömu herðunum. Það yrði
að virkja sem flesta, ekki bara
stjómarmenn. Stofnaðar hafa ver-
ið 14 nefndir innan vébanda LS
og em viðfangsenfi þeirra auðvit-
að misstór og mismikilvæg, en öll
skipta þau slíku máli að þau eiga
fullan rétt á sér.. Verður nú sagt
frá nefndunum, en látið vera að
rekja hveijir sitja í þeim, það yrði
of langt mál. Enda hugmndin að
gera félögum innan aðildarfélaga
LS grein fyrir þvi hvað er á döf-
inni. Að hvaða verkefnum verið
er að vinna.
Nefndimar em: ÍSÍ-nefnd, Amar-
vatnsnefhd, Vemdunarmál, Veiði-
dagur Fjölskyldunnar, Sýningar-
nefnd, Husnefnd, Samstarfsnefnd
LS, LV og LFH, Hreint Land,
Fréttabréf LS, FélagaQöldi LS -
nefnd til að vinna að auknum fé-
lagafjölda, LS-bikarinn, Ungl-
inganefnd, Virðisaukaskattsnefnd
og Fjölmiðill Veiðimannsins.
Svo mörg vom þau orð. Án þess
að kastað sé rýrð á nokkra af
þessum nefndum, fínnst undirrit-
uðum mest til þeirrar fyrst nefíidu
koma. Með inngöngu í ÍSÍ, myndi
LS strax hljóta ríkisstyrki og þar
með væri kominn vísir af þeim
föstu tekjum sem svona samband
verður að hafa til þess að geta
tekið á máium af nauðsynlegum
þunga. Rafn HafnQörð, Sigurður
Bjamason og Karl Guðmundsson
skipa þessa nefnd og vonandi
vegnar þeim vel. Einnig hlýtur
að vera mikilvægt að LS eignist
sinn eigin fyölmiðil eða fréttabréf.
Það er ekki nóg að geta komið
því helsta sem gerist í dagblöð
og tímarit, það er of sundurlaus
boðskapur og hætt við að þannig
fari margt fram hjá mörgum.
Raunar má segja að LS sé núna
fyrst í fæðingu. Stangaveiðimönn-
um og félögum fjölgar, vinsældir
sportsins hafa stóraukist og sam-
eiginleg hagsmunamál blasa við,
við hvert fótmál. Þvi ríður á að
LS vaxi og dafni með, en sitji
ekki eftir.
BMW K-100 mótorhjóllð. Á myndinni sést hjólið I heild, breytingin við að fá ABS hemla er ekki mikil að sjá - en
gífurleg í akstri þegar á reynir.
Mótorhjól með ABS
Í rúm hundrað ár hafa menn
framleitt mótorhjól, ef talið er
frá þeim atburði, þegar Gottlieb
Daimler og félagi hans Maybach
óku fyrsta farar-
tækinu sem knúið
var sprengihreyfli
árið 1885. Það var
„mótorhjól" og í
grundvallaratriðum byggt upp á
svipaðan hátt og nútímahjól. Síðan
hafa auðvitað orðið miklar fram-
farir í smíði mótorhjóla, í fjaðrabún-
aði, byggingu grindar og véla.
Menn telja síðasta stóra skrefíð
hafa verið tekið fyrir um tveimur
áratugum þegar mótorhjól á al-
mennum markaði komu með
diskabremsur. Loksins nú kemur
annað stórt skref: BMW setja á
markað í vor K-100 hjólið með ABS
bremsum.
Mótorhjól þarf hreyfingu til þess
að halda jafnVægi. Það er einkum
snúningur hjólanna sem heldur
tækinu uppréttu, sér í lagi snúning-
ur framhjólsins. Hreyfíngin áfram
heldur því ekki í jafnvægi, nema
því aðeins að hjólin snúist. Þess
vegna gerist það, að ef ökumaður-
inn þarf að nauðhemla og fram-
hjólið læsist, þá missir hann jafn-
vægið. Framhjólið þarf að jafnaði
ekki að stöðvast nema um hálfa
sekúndu til að hjólið falli.
Nú hefur mótorhjóladeild BMW
leyst þetta vandamál, þannig að
hægt er að bremsa af öllu afli án
þess að hætta sé á að detta af þaim
sökum. ABS kerfíð er tölvustýrt og
þannig smíðað, að það sé sem ein-
faldast í viðhaldi. Það var fyrst sett
í tilraunahjól fyrir tveimur árum
og átti að koma á markað í fyrra.
Því var frestað vegna þess, að við-
vörunarkerfíð gaf of oft falska að-
vörun um að eitthvað væri að þótt
svo væri ekki. Það tók u.þ.b. ár að
komast fyrir þann vanda og nú er
BMW K-100 sem sagt að koma á
markað með ABS bremsur sem
valbúnað.
Þórhallur
Jósepsson
skrifar
Nýr S-Benzá leiðinni
STÓRI Benzinn er nú i endursköpun sam-
kvæmt áætlun. Á myndinni má ajá að
hann fer f sömu stikápu og hinir minni.
Ekki er annað að sjá, en að þeim takist
að minnsta kosti jafn vel upp með þann
stóra. Gert er ráð fyrir að hann verði
kynntur opinberlega á Genfarbflasýning-
unni 1990. Nokkrar gerðir véla verða
fáanlegar í Benzanum, þar á meðal vænt-
anlega splunkuný V-12 vél, einnig búast
menn við að hann fáist með hinu tölvu-
stýrða fjórhjóladrifi 4Matic.
Draumabjúkki
NÚ UM þessar mundir árar heldur illa hjá GM í
Ameríku. Ford hefur stolið af þeim bæði fyrsta og
öðru sætinu í sölu þar vestra. Þykjast GM-menn
mega muna sinn fífíl fegri í þeim efnum. En þeir láta
ekki deigan síga, heldur safna liði og leita hefnda. Á
sýningu sem GM hélt fyrir umboðsmenn sína og blaða-
menn á Waldorf-Astoria hótelinu í New York komu
í ljós nokkrar hugmyndir þeirra um bíla næstu framt-
íðar. Frá þeirri sýningu fóru GM-menn öllu bjartsýnni
en þeir voru þegar þeir komu. Einn bíllinn, sá sem
hvað mesta lukku vakti, var þessi sem hér sést, Buick
Luceme. Raddir hafa heyrst um að hann verði áfram-
hald af Riviera línunni, en það er ekki staðfest. Luc-
eme er lúxusvagn, fjögurra sæta með miklum há-
tæknibúnaði og öflugri vél. Hann verður framdrifínn
og V-8 32 ventla vélin þverstæð. Fjöðrun er sjálfstæð
á hveiju hjóli og með sívirkri stillingu sem bregst við
breytilegum aðstæðum. Sjálfskiptingin er fjögurra
þrepa með tölvustýrðri skiptingu og svona til að kór-
óna þægindin, þá verður startarinn af splunkunýrri
gerð, hijóðlaus.
Buick Luceme kemur e.t.v. ekki á markað óbreyttur,
en víst er talið að hann gefí til kynna hvers er að
vænta frá GM í nálægri framtíð. Bfllinn er nú á ferð
um Bandaríkin á farandsýningu GM ásamt öðrum
draumabflum og verða könnuð viðbrögð almennings.
Þau munu ráða miklu um, hvort af framleiðslu verður.