Morgunblaðið - 05.06.1988, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 05.06.1988, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JÚNÍ 1988 B 3 Allar upplýsingar við hendina... Velgengni í þeirri hörðu verðsam- keppni, sem ríkir í smásöluverslun í dag, byggist á að bjóða rétta vöru á réttu verði. Til þess að það sé hægt, þarf að vera stöðugt á verði og hafa góða heildar- yfirsýn til að geta tekið skjótar ákvarðanir, því samkeppnin gefur engum grið, sem ætlar sér að ná árangri í viðskiptalífinu. Þessvegna er nauðsynlegt að hafa réttar upplýsingar á réttum tíma. Macintosh tölvan mín gerir mér kleyft að vinna með heilmikið magn rekstrargagna, sem ég hef stöðugt verið að safna í minni hennar. Með einu handtaki get ég breytt forsendum og komist að nýrri niðurstöðu, fljótar en það tæki mig að slá einfalt reikningsdæmi á reiknivél. Með enn öðru handtaki get ég umbreytt torskildum talna- röðumí skilmerkilegar skýringarmyndir, allt án þess að eyða dýrmætum tíma í löng og ströng tölvunámskeið. Apple Macintosh allt öðmvísi tölva Með því að tengja tölvuna mína við tölvunet get ég svo kallað ffam upplýsingar úr aðaltölvu fyrir- tækisins eða frá mismunandi deildum þess og unnið samstundis úr þeim. Macintosh skapar þannig greiðan aðgang að upplýsingum og traustan grundvöll fyrir ákvarðanatöku, ekki aðeins eins og ég hafi flokk manna til að vinna með mér heldur miklu fremur eins og hópur sérfræðinga sé að verki. Tímasparnaðurinn er gífurlegur, um leið og afköstin aukast. Macintosh tölvan er meiriháttar vinnuhestur sem hvetur mann ósjálfrátt til dáða. í kapphlaupinu við timann er gott að eiga Macintosh tölvuna, vilji maður á annað borð vera með. Jón Sigurðsson, forstjóri Miklagarðs sf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.