Morgunblaðið - 05.06.1988, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 05.06.1988, Qupperneq 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JÚNÍ 1988 SKAGASTRÖND: Ögleymanlegt aö heimsækja Jóhann Pétursson á Horni GUNNAR Sveinsson er búinn að gera út báta frá Skagaströnd í 27 ár. Hann hefur átt sex báta eða hlut í bátum á þessu tíma- bili. Nú gerir hann út Auðbjörg- ina sem er 23 tonn en hana er Gunnar búinn að eiga og gera út í 11 ár. „Ég byrjaði hjá Bjama Helgasyni eins og svo margir aðrir hér, 14 ára gamall í beitningu. Hálfu ári seinna var ég kominn á sjó og hef verið þar síðan nema rétt á meðan ég fór í skólann til að ná mér í réttindi." — Nú hefur þú ekki alltaf gert út á hefðbundinn hátt? „Nei, nokkur sumur gerði ég út á reka vestur á Ströndum. Ég fékk leigða hálfa Smiðjuvíkina og fór þangað 2—4 túra á sumri, svo fékk ég líka að hirða úr Löngufjöru í Látravík hjá Jóa vini mínum á Homi. Ég fór alltaf og fyllti Auð- björgina eins og hún bar og var svo með dræsu á eftir mér allt upp í 120 spýtur. Þá rákum við keng í spýtumar, drógum síðan vír eða keðju í gegn og drógum svo allt saman á eftir okkur yfir flóann hingað heim. Þegar heim kom tók það svo langan tíma að rífa spýturn- ar í staura en síðustu fimm árin var ég kominn með sög til að saga staurana og það var mikill munur.“ — Hvemig var að koma þarna vestur snemma á vorin? „Þetta voru óskaplega skemmti- legir túrar en erfiðir. Það var svo mikið puð að koma spýtunum i sjó- inn úr fjörunni. Það var líka ógleymanlegt að heimsækja Jóhann Pétursson vitavörð á Homi. Ég Iærði það strax eftir fyrsta túrinn að það var ekki ráðlegt að heim- sækja Jóa fyrr en allt var orðið klárt til að fara heim: Jói átti nefni- lega alltaf lögg á flösku og hafði gaman af að veita gestum sínum. Strákamir hjá mér voru oft orðnir ansi framlágir þegar komið var fram undir morgun í heimsókn hjá Jóa. Sjálfur varð ég að passa mig af því ég þurfti að standa fyrsta spölinn heim á leið.“ — Hvað voruð þið lengi á leið- inni heim með spýtumar? „Við vorum yfírleitt þetta 17—18 tíma frá Homi sem venjulega er svona 7 tíma stím.“ — Kom aldrei neitt fyrir í þess- um ferðum? „Nei, það getur nú ekki heitið. Einu sinni sigldi þó bátur á dræs- una aftur úr okkur og sleit hana í sundur. Það tók okkur langan tíma að smala því saman aftur á Auð- björginni drekkhlaðinni. í einum túmum kom fólk til okkar þar sem við vomm að hirða rekann í Fum- fírði, en þar hafði ég leyfi líka, og fór að hella yfír okkur svívirðingum fyrir að vera að stela af rekanum. Það kom í ljós að þetta var fólk sem átti hagsmuna að gæta í einum þriðja af víkinni og hélt okkur vera að stela frá sér. Þegar ég loksins komst að gat ég bent aumingja fólkinu á að tala við eigendur þess helmings sem ég var með á leigu því það hittist svo vel á að eigend- umir vom staddir þama í landi. Þá sljákkaði í fólkinu og það lét mig í friði eftir það.“ — Gunnar, ertu hættur í rekan- um? Ég er nú með víkina á leigu enn- þá svo það er aldrei að vita hvað maður gerir í sumar. Eitt er víst að ekki mun mig vanta mannskap því margir hafa pantað að koma með ef ég fer i rekatúr." Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson Gunnar Sveinsson um borð í báti sínum, Auðbjörgu. Tók fjóra tíma að ná rækjutrollinu inn STEFÁN Jósefsson útgerðar- maður og skipstjóri á Ólafi Magnússyni var að landa þrem tonnum af rækju, eftir sólar- hrings túr, og var þungur á brún- ina þegar fréttaritari hitti hann að máli á bryggjunni á Skaga- strönd. „Það slitnaði hjá okkur annar vírinn og við vomm i fjóra tíma að ná draslinu innfyrir. Það er helvíti hart því þetta vom nýir vírar, við vomm ekki búnir að taka nema fímm hol með þeim. Það var að vísu vonskuveður, 6-7 vindstig og haugasjór en víramir eiga að þola það, að minnsta kosti meðan þeir em nýir. Ég var farinn að halda um tíma að við næðum því alls ekki innfyrir því slitum við niður bómuna aftur á og allt ætlaði að fara til andskotans. En það hafðist loks eftir fjóra tímana. Þá var ekki um annað að ræða en hypja sig heim til að raða þessu dóti saman upp á nýtt.“ Hvemig hefur fiskiríið verið? „Það er búið að vera sæmilegt á rækjunni það sem af er. Við emm búnir að fá 13 tonn í tveimur túmm sem er mikið betra en í fyrra. Það má kannski þakka það að við emm með nýja hlera frá Karli Bemdsen, sem hafa reynst okkur miklu betur en hleramir sem við vomm með áður.“ Fréttaritari þakkaði fyrir spjallið og kom sér burtu því Stefán er ekki maður sem lætur tefja sig leng- ur en nauðsyn krefur. Ó.B. Morgunblaðið'.Ólafur Bcmódusson Stefán Jósefsson um borð í Ólafi Magnússyni. Sveinn Garðarsson um borð i Stakkanesinu. Mér hefur alltaf gengið illa að fiska í bönkum Skagaströnd. SVEINN Garðarsson var í „víra- slag“ í blíðunni, þegar fréttarit- ari fór sunnudagsrúntinn á bryggjuna. Sveinn hefur verið á sjó frá því hann var 14 ára gam- all, á alls konar fiskiskipum. „Við emm að klára að splæsa vírana því við ætlum að fara út klukkan eitt,“ sagði Sveinn, en hann er stýrimaður á Stakkanesinu, sem er 247 tonna rækjubátur frá Skaga- strönd. Sveinn, þú varst sjálfur með út- gerð héma á ámnum? »Já, ég er búinn að eiga fjóra báta og alltaf lent á sama steinin- um. Auðvitað var maður að brasa í þessu án þess að eiga nokkra peninga, og einhvem veginn lenti ég alltaf í einhveiju sem varð til þess að ég þurfti að selja. Einu sinni t.d. hækkuðu lánin á bát sem ég átti um 1,8 milljónir á einni nóttu vegna gengisfellingar. Annað skipti kom það upp að skrúfan á bát sem ég átti var ónýt og ég varð að kaupa nýja upp á tvær milljónir. Það þyk- ir kannski ekki mikið í dag, en þeg- ar maður gerir út á Guð og lukk- una þá getur. það riðið manni að fullu.“ Hvemig er að vera á djúprækju- veiðum? „Það er yfírleitt ágætt. Það er dregið svona 6-8 tíma svo þetta er frekar rólegt. Auðvitað getur það verið slæmt eins og oft f vetur í náttmyrkri og stórhríð 6-7 vindstig- um innan um ísinn sem var á fleygi- ferð. Þá er það aðalatriðið að hafa góðan kastara því radarinn er mjög takmarkaður við svona skilyrði.“ OLAFUR' MAGNUSSON SKAGAST«ÖND- *

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.