Morgunblaðið - 05.06.1988, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JÚNÍ 1988
b m
ísafírði. í frægri grein sem Hörður
Ágústsson skrifaði í Birting 1962
og kallar Af minnisblöðum málara
segir hann m.a. á einum stað:
.. ísafjarðarkaupstaður er und-
arlegt pláss, í aðra röndina eins og
safn til byggingarsögu íslands allt
frá síðara hluta átjándu aldar, þar
sem lesa má svipi húsa frá helstu
skeiðum sögu okkar eftir að timbur
varð aðal byggingarefni hérlendis
— heillandi verkefni fyrir þá sem
unna hinni vanmetnu grein, bygg-
ingarlistinni.
I Neðstakaupstað, eins og ís-
hins vegar vöruskemmu frá tíð ein-
okunarkaupmanna en Hörður segir
engan vita aldur hennar með vissu.
Það er „því sem næst í upphaflegri
mynd, einstætt hús í sinni röð, ein-
ir 19 metrar að lengd, 10 metrar á
breidd og 7 metrar upp í burst, allt
plankabyggt og örugglega innflutt
tilhöggvið frá Noregi", fullyrðir
Hörður.
Reyndar hefur sitthvað skýrst
um aldur húsanna fjögurra í
Neðstakaupstað frá því Hörður
skrifaði þessa grein sína. í grein
sem Jóhann Gunnar Ólafsson,
Jón Sigurpálsson, safnavörður, sést hér í verbúðinni sem komið
hefur verið upp í sjóminjasafninu en á borðinu fyrir framan hann
eru ýmsir munir sem tilheyrðu verbúðalífinu á árum áður.
fírðingar nefna elstu hús kaupstað-
arins fremst á Skutulljarðareyrinni,
er heildstæðasta samstæða húsa af
elstu gerð sem uppi stendur á ís-
landi í dag.“
Húsin sem nú standa eftir í
Neðstakaupstað eru fjögur — Tjöru-
húsið sem er frá 1734 og er elsta
hús landsins, Krambúðin sem er nú
íbúðarhús bókavarðar héraðsbóka-
safnsins, Faktorshúsið þar sem nú
er bústaður safnavarðar byggða-
safnsins, og Tumhúsið sem áður
er nefnt. Hörður Ágústsson telur
tvö þau síðastnefndu sérlega at-
hyglisverð. Faktorshúsið er yngra,
telur Hörður, frá upphafí fríhöndl-
unartímans og líklega fyrsta kaup-
mannshús staðarins, „sérlega geð-
þekkt verk, listaverk liggur mér við
að segja, og án efa langfegursta
hús sinnar tegundar á íslandi", seg-
ir Hörður. Tumhúsið segir hann
sýslumaður, skrifar í Ársrit Sögufé-
lags ísfírðinga 1967, segir hann frá
því að Sigfús Andrésson, sagnfræð-
ingur, hafí veturinn 1966 fundið í
þjóðskjalasafni uppboðsauglýsingu
um sölu á Neðstakaupstað en þessa
auglýsingu sendi sölunefnd einok-
unarverslunarinnar stiftamtmanni
með tilmælum um að hann dreifði
henni og birti. í auglýsingunni eru
taldar upp allar þær eignir sem
vora til sölu og getið stærðar allra
húsanna og byggingarárs. Þar sést
að Faktorshúsið er byggt 1765,
Krambúðin 1757 og Beykisbúðin
eða Tjörahúsið eins og það kallast
nú árið 1734. Um aldur Tumhúss-
ins segir Jóhann Gunnar síðan:
„En í auglýsingunni er úr því
leyst, að Tumhúsið var byggt á
áranum 1784-1785. Er þá kominn
í leitimar aldur allra hinna fomu
bygginga í Neðstakaupstaðnum,
Jón Sigurpálsson, safnavörður, og Jón Páll Halldórsson, formaður
stjómar Byggðasafns Vestfjarða, i Neðstakaupstað.
framreiknað til núvirðis, og þar af
er um þriðjungur styrkir frá fram-
angreindum aðilum. Þá er þess og
að geta að þegar það var samþykkt
árið 1986 að leggja niður sjóða-
kerfi sjávarútvegsins, var ákveðið
að veija hluta af eftirstöðvum úreld-
ingarsjóðs fískiskipa til varðveislu
sjóminja. Byggðasafn Vestflarða
fékk hluta af því fé til uppbygging-
ar sjóminjasafnsins og það er ekki
síst því að þakka að kleift er að
opna safnið nú á sjómannadaginn."
Mikið um dýrðir
Það tilefni er ekki að ástæðu-
lausu. „Á þessu sumri era einmitt
liðin 50 ár frá því að sjómannadag-
urinn var fyrst haldinn hátíðlegur
hér á landi, en_ það var einmitt í
Reykjavík og á Ísafirði," segir Jón.
„Stjóm byggðasafnsins, en í henni
era auk mín Geir Guðmundsson í
Bolungarvík, Pétur Kr. Hafstein,
ísafirði, og Hagalín Guðmundsson
í Innri-Hjarðardal í Önundarfírði,
þótti því sjálfsagt að opna sjóminja-
deild safnsins formlega í tilefni af
þessum merku tímamótum og efna
til samkomu með þátttöku sjó-
mannadagsráðanna á Þingeyri,
Flateyri, Suðureyri, Bolungarvík,
Súðavík og ísafírði. Þama er því
um að ræða tvö sýslufélög og tvo
bæi og með þessu vill stjóm
byggðasafnsins undirstrika að safn-
ið er sameign allra þessara staða.
Við eigum von á fjölmenni frá öllum
þessum stöðum, enda er þetta
fyrsta tilraun sjómannadagsráð-
anna hér um slóðir til að hafa hluta
hátíðahaldanna í tengslum við sjó-
mannadaginn sameiginlegan. Sjó-
mannadagurinn hefur líka alltaf
skipað dálítið sérstakan sess í hug-
um fólks hér fyrir vestan. Hann er
ekki eiginlegur baráttudagur heldur
fjölskylduhátíð og því raunveruleg-
ur hátíðisdagur. Það verður því
áreiðanlega mikið um dýrðir að
þessu sinni."
Þrjátíu minniháttar slys í svissnesk
um kjarnorkuverum á síðasta ári
Sviss:
Bem, Reuter.
Samkvæmt nýlegum fréttum frá Sviss urðu þrjátíu minniháttar
óhöpp í svissneskum kjarnorkuverum á síðasta ári þrátt fyrir að
fyllsta öryggis væri gætt. Svissnesk kjarnorkuver framleiða um 40%
þeirrar orku sem þarf i landinu.
Þetta hlutfall eykst líka stöðugt
þ.e. ef marka má árlega skýrslu
svissnesku orkustofnunnarinnar
þar sem segir að þeir fímm kjarna-
ofnar sem era notaðir til fram-
leiðslu kjarnorku í landinu vinni
riú 21.7 biljónir kílovatta af orku
á móti 21.3 biljónum kílóvatta á
síðasta ári.
Ráðamenn í Sviss segja að ekk-
ert þeirra 30 óhappa sem átt hafa
sér stað á árinu hafi valið skaða á
nánasta umhverfi og að óhöppin
hafí öll strax verið tilkynnt til ör-
yggiseftirlitsins.
Þrátt fyrir þessa yfirlýsingu
ráðamanna era umhverfísvemdar-
menn í Sviss áhyggjufullir. Þeir
óttast slys í líkingu við Chemobyl
slysið á dögunum og vilja láta loka
öllum kjamorkuveram í landinu.
Borgaryfírvöld í Cenf hafa líka
lýst áhyggjum sínum yfír hraðvirk-
um kjamaofni frönska Super -
Fönix versins sem staðsettur er í
Creys - Malville í grend við
Grenoble aðeins 75 kílómetra frá
Genf. Það er kraftmesti kjamaofn
veraldar en hann hefur ekki verið
í notkun síðan í maí á síðasta ári
þegar upp komst um leka í honum.
AUMA - Augtys & maikaðsmál hf.
Veldu Steinvara 2000
gegn steypuskemmdum
Steinvari 2000 hefur sannað yfirburði sína við
íslenskar aðstæður og hefur Steinvari 2000 svo
sannarlega reynst vel gegn steypuskemmdum.
Steinvari 2000 hefur þá einstöku eiginleika að
vera þétt gegn vatni í fljótandi ástandi, en
hleypa raka í loftkenndu ástandi auðveldlega í
gegnum sig, um tvöfalt betur en hefðbundin
plastmálning.
• Veitir steininum einstaka vörn gegn slagregni
• Hleypir raka úr steininum mjög vel í gegnum sig.
• Smýgur vel og bindur duftsmitandi fleti.
• Þolir að málað sé við lágt hitastig.
• Þolir regn fljótlega eftir málun.
• Grunnun yfirleitt óþörf.
• Frábær viðloðun.
Vandaðu valið og veldu
útimálningu við hæfi.
málning'lf