Morgunblaðið - 26.06.1988, Síða 1

Morgunblaðið - 26.06.1988, Síða 1
idirgiutMafrfö PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 1988 BLAÐ 15 FráFmtey fínnskíií skóga angt inni í skógum Finnlands er hús. í húsinu býr kona . . Þetta gæti verið byrjun á ævintýri. 0g kannski er þetta einmitt byijunin á ævintýri, ævintýri um telpuna úr Flatey á Breiðafirði sem nú um Jónsmessuna heldur upp á sjötugsafmæli sitt inn í skógum Finnlands. Þar hefur hún átt heima í íjörutíu ár, verið bóndakona á stórum bæ, með kýr, svín og kornrækt. Leið stúlkunnar frá Flatey til býlisins Rantala við strendur Paijanne, næststærsta stöðuvatns Finnlands, var löng og á köflum mjög ströng. Hún lá m.a. um Kvennaskólann í Reykjavík, hjúkrunarskóla í Danmörku og sjúkrahús í Berlín á síðasta ári heimsstyijaldarinnar. Frá Berlín var leiðin til baka til Danmerkur að hluta farin fótgangandi í flóttamannahópi og í lok ferðarinnar hafði berklaveikin náð tökum á stúlkunni. í Danmörku beið vist á berklahæli á Jótlandi og sú vist varð örlagarík. Hún heitir Ásta, stúlkan úr Flatey, og er Sigurbrandsdóttir. Ég hafði ekki dvalist lengi í Finnlandi þegar ég heyrði talað um Ástu. Hana Ástu sem hefur verið eins og mamma námsmanna og annarra íslendinga hér, umvafið þá elskulegheitum heima á Rantala og sótt allar þær íslendingasamkomur í Helsinki sem hún hefur mögulega getað, þótt leiðin þangað sér 150 kílómetrar. í viðurkenningarskyni fyrir það sem hún hefur gert í þágu íslands og íslendinga hér í Finnlandi var henni veitt fálkaorðan og hún er heiðursfélagi í íslandsvinafélaginu Islandia, svo og í Félagi íslendinga í Finnlandi. í myndasafni íslendingafélagsins eru Ásta Sigurbrandsdóttir myndir af Ástu í ísiendingahópi, heima og heiman, m.a. á íslenskum búningi, og einnig myndir af manninum hennar, Jussa Peltola, en hann lést árið 1981. „Hann Jussi var alveg einstakur — elskulegur og rausnarlegur við okkur,“ segja Islendingar hér, sem þekktu hann og minnast hans með söknuði. Þegar ég spurði Ástu hvort hún vildi í stuttu máli segja mér sögu sína svo setja mætti á blað, fylla upp i stutta kafla sem hún hafði sagt mér áður, hikaði hún og sagði: „Ég veit það ekki Þórdís mín. Ég hef verið beðin um þetta áður, en ekki viljað. Ég er svo hrædd um að upprifjunin ýfi gömul sár, sem hafa verið lengi að gróa. En þú ert auðvitað hjartanlega velkomin til mín — þótt ég lofi engu.“ i SJÖTUGSAFMÆLIS HEIMSÓKN TIL ÁSTU SIGURBRANDSDÓTTUR PELTOLA, SEM HEFUR BÚIÐ 40 ÁR í FINNSKRISVEIT

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.