Morgunblaðið - 26.06.1988, Side 8

Morgunblaðið - 26.06.1988, Side 8
8 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 1988 Kína: Fjórðungurinn atvinnulaus? Peking. Reuter. NÆRRI fjórðungi vinnuaflsins í kínverskum borgum er ofauk- ið og atvinnuleysi er því ekki aðeins óhjákvæmilegt, heldur bráðnauðsynlegt fyrir efna- hagslífið. Sagði svo á mánudag í opinberum málgögnum kínverskum en löngum hefur ekki mátt nefna á nafn atvinnu- leysi í ríkjum kommúnismans. Dagblað alþýðunnar sagði á mánudag, að allt að 30 milljónir manna af þeim 130 milljónum, sem starfa í borgum landsins, hefðu ekkert að gera og létu tímann líða á vinnustað við spila- mennsku, sjónvarpsgláp og annan óþarfa. Sagði í blaðinu, að kostn- aðurinn við að greiða fólki laun fyrir að gera ekki neitt næmi helmingi afrakstrarins af ríkis- fyrirtækjunum og væri þetta ástand að breyta Kínverjum í slæpingjaþjóð. í tímaritinu Efnahagstíðindum var tekið enn dýpra í árinni og sagt, að atvinnuleysi væri ekki aðeins óhjákvæmilegt, heldur hollt fyrir efnahagslífið. í kapit- alískum löndum væri jafnan skýrt frá atvinnuleysinu en í sósíalísk- um væri reynt að fela það inni á vinnustöðunum. Flokkur Lánstími Ávöxtun Gjalddagi l.fl. D 2 ár 8,5% l.feb’90 ’ l.fl. D 3 ár 8,5% 1. feb ’91 l.fl. A 6/10 ár 7,2% l.feb’94-’98 Tryggðu sparifé þínu örugga óvöxtun núna! 30. júní lýkur sölu spariskírteina ríkissjóös með 8,5% raunvöxtum til tveggja ára Nú eru síðustu forvöð að ávaxta sparifé þitt með spariskírteinum ríkissjóðs, sem bera 8,5% raunvexti til tveggja ára (gjalddagi 1. febrúar 1990). Sölu á þeim lýkur .nú um mánaðamótin. Sala á spariskírteinum með 8,5% raun- vöxtum til þriggja ára og spariskírtein- um með 7,2% raunvöxtum til allt að 10 ára heldur áfram. Spariskírteini ríkissjóðs eru að fullu verðtryggð og með þeim getur þú ávaxtað sparifé þitt á háum vöxtum á öruggan og einfaldan hátt. Nú hafa forvextir á ríkisvíxlum hækkað í 32,5% sem jafngildir 40,3% eftirá greiddum vöxtum miðað við 90 daga lánstíma. Ríkisvíxlar eru örugg og arðbær leið til að ávaxta skammtímafjármuni. Verðtryggð spariskírteini til sölu núna: Spariskírteini ríkissjóðs fást í Seðla- banka íslands og hjá löggiltum verð- bréfasölum, sem m.a. eru viðskipta- bankarnir, ýmsir sparisjóðir, pósthús um land allt og aðrir verðbréfamiðlarar. Ríkisvíxlar fást í Seðlabanka íslands. Einnig er hægt að panta þá þar, svo og spariskírteinin, í síma 91-699863, greiða með C-gíróseðli og fá víxlana og spariskírteinin síðan send í ábyrgðar- pósti. Sþariskírteini ríkissjóðs erv verðtryggð og bera auk pess báa vexti RÍKISSJÓÐUR ÍSLANDS Réð fram úr rúnum Maya- indíánanna Bonn, Reuter. LEYNDARDÓMAR Maya-indí- ána, sem réðu ríkjum í suður- hluta Mexíkó og Mið-Ameríku 350-800 eftir Krist, hafa verið afhjúpaðir eftir að hafa valdið fornleifafræðingfum miklum vangaveltum í aldir, að því er vestur-þýska tímaritið Stern skýrði frá á miðvikudag. Tímaritið greindi frá því að vest- ur-þýski fomleifafræðingurinn Wolfgang Gockel hefði ráðið fram úr rúnum Maya-indíána. Þær voru ristar með steináhöldum í mjúkan kalkstein, líkjast femingslaga myndum og sýna fígúmr manna, dýra og fugla, og óhlutkennd mynstur. í Stern segir að myndirn- ar lýsi valdabaráttu og samdrætti karla og kvenna, ófriði og náttúru- hamfömm, og gefi til kynna þróaða menningu. Fomleifafræðingar höfðu talið að rúnirnar væm dulmálsskilaboð milli presta og að þær yrðu líklega aldrei skýrðar. Rannsóknir Gockels leiða meðal annars í ljós, að sögn tímaritsins, að þegar fyrirhuguð var blóðfórn hefðu Maya-indíánar fastað og neitað sér um kynlíf í nokkra daga. Indíánarnir hefðu síðan fengið blóð til að blíðka guð- ina með því að karlmennirnir hefðu stungið í kynfæri sín og konurnar í tungur sínar. Tímaritið hefur eftir Gockel að hann hafi getað ráðið fram úr rún- unum eftir að hafa uppgötvað að mál Maya-indíána byggði á mor- femum, minnstu merkingarbæm einingum máls, eins og kínverska. Fangelsaður fyrir að bíta eyra af manni Dubai, Reuter. PAKISTÖNSKUM klæðskera að nafni Mohammed Ghulam var ósköp kalt í vinnunni um daginn. En þótt Mohammed væri kalt neitaði vinnufélagi hans að slökkva á loftkælingunni. Þá beit Mo- hammed af honum eyrað. Hann var dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir Iíkamsárás en þar sem hinn 48 ára gamli Mohammed baðst vægðar á tilfmningaríkan hátt, sá dómarinn aumur á honum og stytti dóminn í 3 mánuði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.