Morgunblaðið - 26.06.1988, Page 18
18 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 1988
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Skákin er vinsæl meðl leikmanna og þeirra sem stjórna; Jón Oddsson teflir við Stefán Halldórsson
og Gunnar Orn Kristjánsson, formaður knattspyrnudeildar, við sovéska þjálfarann Youri Sedov.
andi leiki íslandsmótsins. Menn
héldu hópinn, horfðu á Evrópu-
keppnina í sjónvarpinu, fóru í
laugina, tókust á í skák eða fengu
mýkjandi nudd.
Forsvarsmenn hópsins sögðu
nauðsynlegt að koma svona sam-
an og vera út af fyrir sig. Liðið
þyrfti að festa sig í sessi í fyrstu
deildinni og nýjum leikmönnum í
hópnum væri nauðsyn að kynnast
hinum.
- Sig. Jóns.
Jónína Bjartmartz, gjaldkeri,
brá sér á þrekhjólið með syni
sínum, Birni Orra Péturssyni.
Á fullri ferð í vatnsrennibraut-
inni á Hótel Örk; Atli Einarsson
og Andri Marteinsson.
Keshia Knight Pulliam ætlar að verða læknir eða flugmaður
þegar hún verður stór.
KESHIA KNIGHT PULLIAM
Ríkasta 8 ára
barn í heimi
Keshia Knight Pulliam er ekki
mjög þekkt undir sínu rétta
nafni. Aftur á móti er hún elskuð
og dáð af milljónum sjónvarpsáhorf-
enda um allan heim, þegar hún
bregður sér í gervi hinnar glaðlyndu
og ú'örugu Rudy í framhaldsmynda-
þáttunum „Fyrirmyndafaðir". Kes-
hia hefur leikið yngstu dótturina í
Huxtable-Qölskyldunni í þijú ar og
ekki er ólíklegt að hún sé allra vin-
sælasta persónan í þáttunum.
Þrátt fyrir að Keshia er aðeins 8
ára, er hún mjög heppin að vera
sjónvarpsstjama í Bandaríkjunum.
•Hún fær u.þ.b. 210.000 krónur í
laun á viku, sem þýðir að árstekjur
hennar eru tæpar 11 milljónir
króna. Þegar Keshia er búin að
kaupa sér leikföng og það nauðsyn-
legasta, fer afgangur launa hennar
inn á bankareikning sem hún getur
ekki hreyft við fyrr en hún er orðin
fjárráða. Gera má ráð fyrir að Kes-
hia verði forrík ung kona þegar hún
fapr yfírráð yfír fjármunum sínum.
Það eru foreldrar hennar, James
og Denise Knight Pulliam sem eru
svona forsjál. Þau ætla að spara
tekjur Keshiu þangað til hún verður
fullorðin.
Keshia var aðeins 3 ára þegar hún
fór að leika í auglýsingum og um
svipað leyti varð hún bamastjama
í þáttunum „Sesame Street". James
og Denise, foreldrar hennar hafa
alltaf hugsað vel um sína hæfileik-
aríku dóttur. James vann sem bréf-
beri en þegar litla dóttir hans fór
að þéna meiri peninga en hann ,
sagði hann upp bréfberastarfinu og
gerðist umboðsmaður Keshiu. Den-
ise, móðir hennar er alltaf viðstödd
upptökur og er það mikill styrkur
fyrir Keshiu
Keshia er harðákveðin að í vera
dugleg í skólanum þrátt fyrir að
mikill tími fer í vinnuna við þætt-
ina. Mamma hennar hjálpar henni
að fara yfír námsefnið þegar tími
gefst og gengur það ágætlega.
Keshia hefur neftiilega alls ekki
hugsað sér að verða leikkona þegar
hún er orðin stór, heldur vill hún
verða læknir eða flugmaður. Hún
segir, „Ef ég verð læknir, get ég
læknað Cosby pabba þegar hann
verður veikur en ef ég verð flug-
maður, get ég boðið honum í flugt-
úr.“ Bill Cosby hefur umgengist
Keshiu eins og sína eigin dóttur og
þykir henni mjög vænt um hann.
COSPER
Hvernig ferðu að því að gefa þessi vinstrihandarhögg?