Morgunblaðið - 26.06.1988, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 26.06.1988, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 1988 B 27 Fallinn engill; Bruno Ganz leikur Damiel. áhyggjum, vonum og girndum. í myndinni vill Wenders meina að það sé í hinum smáa og einfalda munaði sem ánægjan býr — að sofa frðmeftir á sunnudögum, drekka bolla af heitu kaffi, borða, snertast. Og það er raunar fyrir hvatningu „verndarengils“ Dami- els (er Peter Falk leikur) sem þess- ar ánægjulegu athafnir vinna sigur yfir almætti og ódauðleika. „Samkvæmt skilgreiningu er englum meinað að njóta lífsins lystisemda," segir Wenders. „Þeir geta ekki lyft bók, þeir vita ekki hvað þungi, bragð og litir eru. Þeir þekkja ekki efnisheiminn. Þeir þekkja aðeins kjarna hlutanna, ef svo má segja. Svo ég hugsaði með mér: Þetta er verulega leiðinlegt fyrir þá að þekkja ekki tilfinningar. Þeir geta ekki fundið til. Eilífðin hlýtur að vera hryllilega leiðinleg." Og áfram heldur hann: „Persón- ur fyrri mynda minna eru aldrei sérlega ánægðar. Þær eru alltaf óhamingjusamar, alltaf að kvarta. Mér fannst kominn tími til að hætta kvörtununum — ég vissi það áður en ég vissi hvernig mynd ég ætlaði að gera. Ég vissi að ég mundi ekki gera enn eina mynd um mann sem hleypur í burtu. I lok París, Texas, gekk Travis raun- verulega af sviðinu sem fulltrúi allra þessara manna sem ég hafði fengist við áður. Þess vegna fannst mér að næsta mynd mín mundi ekki vera um flæking sem væri algerlega óhamingjusamur. Ég vissi að hún mundi hafa þessa tilfinningu að einfaldur munaður getur veitt mönnum ánægju. Én það er ekki hægt að koma hreint fram og segja það í bíómynd, það yrði leiðinlegt. Það er of mikið af „Er ekki lífið dásamlegt" — of líkt Donnu Reed. Sjálfur trúi ég ekki á engla. Engl- arnir eru aðeins líkingar og það sem þeir eru í rauninni að segja okkur er að hver sem er getur verið sinn eigin engill og sem börn geymum við engil innra með okk- ur. Við getum enn komist í snert- ingu við barnið." Og hann bætir við: „Einhvernveginn segir myndin þetta en ekki á eins væminn hátt og ég gerði rétt í þessu." Úr American Film. Midler og Tomlin. Svo berast þær fréttir frá Hollywood að þar sé komin ný tegund af myndum í tísku. Það eru myndir sem segja frá því þegar ungir verða gamlir og gamlir ungir, synir verða föður- legir og feður eins og krakkar. Út á það ganga myndir eins og „18 Againl", „Vice Versa" (á leið- inni í Stjörnubíó), „Like Father, Like Son" og sú nýjasta og vin- sælasta, „Big“ meðTom Hanks. Annar handritshöfundur henn- ar er Anne Spielberg (systir Steve) en leikstjóri er Penny Marshall. Myndin segir frá Josh Baskin sem vill verða stór (vegna þess að stelpan sem hann er skotinn í er stærri en hann) og prufar að setja fimmtíukall í óska- vél í nærliggjandi skemmtigarði. Tom Hanks Næsta dag vaknar hann og er orðinn þrítugur í útliti en hugsun- in er jafn barnsleg og áður. Alúðarþakkir til allra er glöddu mig á 100 ára afmœli mínu með heimsóknum, gjöfum og skeytum. Ég bið guð að blessa ykkur. Elísabet Jónsdóttir, Sólvallagötu 74, Reykjavik. iAm IMIMM RÆTAST! Hvort sem þlg dreymir um að svífa í fallhlíf yfir Hollandi; þjóta á seglbrettum um Miðjarðarhaf- ið; horfa á tyrkneskar magadansmeyjar eða ferðast með Síberíuhraðlestinni höfum við réttu ferðina fyrir þig. HOLLAND Hjólað um landið þvert og endilagt; faríð á nám- skeið í fallhlífarstökki eða siglingum. Helgarferðir til Amsterdam. TYRKiiND Sólaríanda- og œvintýraferðir í senn. Moskur og lyrkneskir nœturklúbbar heimsóttir. MALTA Sól, sjór og seglbretti. kafað í leit að skipsflökum og neðansjávarhellum. RUSSLAND Ferð með hinni vfðfrœgu og œvintýralegu Sfberfuhraðlest frá Helsinki til Yokohama f Japan, með viðkomu m.a. í Moskvu og Leníngrad. ÍSRFVEL EGYPTALAND Vikuferðir á söguslóðir Egyptalands og ,Landsins helga'. Gist á samyrkjubúi, sögu-A. frœgir staðir heimsóttir eða legið f sólinni. 1 Ferðast frá Hong Kong. Siglt niður Li-ána, ^ fjallaborgin Chongqing og Huang Guoshu- foss skoðuð. ÓVENJULEGAR FERÐIR FYRIR VENJULEGT FÓLK! FERÐA SKRIFSTOFA STÚDENTA Hringbraut, sími 16850 Veiði- menn Vöruhús Vesturlands Borgarnesi í VÖRUHÚSIVESTUR- LANDS fæst allt sem þarf að hafa í veiðiferðina: Matur, allar veiðivörur, úrval af sportfatnaði (ogjafnvel sá stóri líka). Komið við hjá okkur í sumar VÖRUHÚS VESTUR- LANDS Birgðamiðstöð veiðimannsins sími 93-71 200

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.