Morgunblaðið - 09.07.1988, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 09.07.1988, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1988 Davíð Oddsson til Hull og Grimsby Borgarstjórahjónin í Reykjavík fara ásamt tíu manna fylgdarliði í heimsókn til Grimsby og Hull i nœstu viku. Borgarstjóri fer f boði borgarstjórnanna i Grimsby og Hull og mun meðal annars skoða fiskmarkaði og rœða við forystu- menn i atvinnulífi. Borgarstjórar Grimsby og Hull komu hingað til lands í boði Reybjavíkurborgar í fyrra. Samkvæmt upplýsingum frá borg- arritara fer borgarstjóri til Lundúna sunnudaginn 10. júlí og munu full- trúar bæjarstjómanna í Grimsby og Tilraunir með þynnra steypulag á vegum ÞEIR sem aka um Reykjanes- braut kannast við að viða situr bleyta eftir í hjólförum eftir rigningar og veldur slysa- hættu. Þar er vegurinn mjög slitinn og er talið brýnt að gert verði við hann innan tiðar. Nokkur undanfarin ár hafa Sementsverksmiðja ríkis- ins, steypustöðin BM Vallá og Vegagerð rfldsins staðið fyrir tilraunum með steinsteypt of- análag. í fyrra kostaði Vega- gerðin tilraun við Keflavíkur- veg, á móts við kirkjugarð Hafnarfjarðar. Lagt var fjög- urra sentimetra þykkt steypu- lag á hundrað metra vegar- kafla. Hefur tilraunin gefist vel, að sögn Guðmundar Guð- mundssonar, framkvæmda- stjóra Sementsverksmiðju ríkisins. „Þetta hefur ekki verið rejmt annars staðar og er vandamálið aðailega fólgið í því hvort steyp- an bindist við undirlagið, sem í þessu tilfelli er steypa. Yfírleitt er þykktin á milli 7 og 14 senti- metrar þegar verið er að endur- leggja steypu, en á þessum spotta er þykktin aðeins Qórir sentimetrar,“ sagði Guðmundur. Steypan er vatnslitil og lfkist helst undirlagsmöl og er hún lögð á vegi með sömu tækni og notuð er við malbikunarframkvæmdir. Að sögn Guðmundar hefur til- raunin gefíst vel og virðist sem steypan bindist vel við undirlag- ið. Verði raunin sú að viðgerðir á slitbundnum vegum fari fram á þennan hátt má telja vfst að um verulegan spamað fyrir þjóðar- búið sé að ræða. Fjögurra senti- metra þykkt af steypu er nokk- um veginn sambærileg í verði við malbiksframkvæmdir en end- ingin er tvöfalt meiri. Vegagerð- in hefur uppi áform um að leggja svipað lag á vegarspotta vestar á Reykjanesbrautinni á næst- unni. Hull taka á móti honum þar. Heim- sókninni til Grimsby og Hull lýkur föstudaginn 15. júlí. í Grimsby og Hull eru fjölmörg íslensk fisksölufyrirtæki og mun borgarstjóri kynna sér viðskipti ís- lendinga. Davíð Oddsson dvelur í Grimsby á mánudag og þriðjudag en í Hull miðvikudag og fímmtudag. Að sögn Jóhanns Sigurðssonar í Lundúnum bjóða íslensk físksölufyrirtæki, Eim- skip og SÍS, borgarstjórahjónunum til veislu á miðvikudag. Boðið hefur verið hátt á fímmta hundrað gestum í veisluna, þar á meðal öllum helstu viðskiptamönnum íslensku físksölu- fyrirtækjanna í Bretlandi, bæjar- stjómum Grimsby og Hull og íslensku sendiherrahjónunum. Hilm- ar B. Jónsson mun sjá um mat og veisluföng. Að sögn Jóhanns er þetta stærsta móttaka sem íslendingar hafa efnt til f Bretlandi. Að heimsókninni lokinni munu borgarstjórahjónin fara til Dyflinnar. Kátir piltar á Laugavegi Morgunblaðið Einar Falur HAFNFIRSKA gleðisveitin Kátir piltar kættu áheyrendur á Laugaveginum í gær er þeir léku þar nokkur lög sin fyrir gesti og gangandi. Framfærsluvísitalan undir rauða strikinu í flestum kjarasamningum: Friðurinn verður örugg- lega úti fyrsta nóvember - segir Guðmundur J. Guðmundsson formaður VMSI Selfoss: Eldur kom upp í bifreið ELDUR kviknaði f sendiferðabif- reið á Selfossi skömmu eftir há- degi í gær. Slökkviliði gekk greiðlega að ráða niðurlögum eldsins en bifreiðin skemmdist þó mikið að sögn lögreglu. Ekki urðu slys á mönnum þegar kviknaði í bifreiðinni af Ford Econ- oline gerð sem ekið var eftir Engja- vegi á Selfossi. Trúlega hefur eldur kviknað út frá bilaðri bensínleiðslu, en að sögn lögreglu var bensínslóði á eftir bílnum. Framfærsluvísitalan í júlíbyrj- nn reyndist rétt undir viðmiðun- armörkum i Akureyrarsamning- unum svokölluðu, en 0,5% yfir rauða strikinu í gildandi kjara- samningum Dagsbrúnar og 9 annarra verkalýðsfélaga innan Verkamannasambands íslands. Guðmundur J. Guðmundsson formaður Dagsbrúnar og Verka- mannasambands íslands segist telja litlar Iíkur á að komi til endurskoðunar á samningum þessara félaga enda hafi VMSÍ samið um það við Vinnuveitenda- sambandið og Vinnumálasam- bandið að fella samningana sam- an í einn samning, þótt félögin 10 hafi ekki öU samþykkt það formlega enn. Guðmundur sagð- ist hinsvegar telja afar hæpið að rauða strikið, sem sett er 1. nóv- ember, haldi og þá verði friður- inn úti. Rauða strikið í samningi Verka- mannasambandsins, sem gerður var í febrúar, miðaðist við að fram- færsluvísitalan færi ekki yfír 261 stig 1. júlí, en sá samningur var felldur í öllum aðildarfélögum sam- bandsins nema tíu. í seinni samn- ingnum, sem kenndur er við Akur- eyri, miðaðist rauða strikið við 263 stig en vísitalan mældist 262,4 stig. Guðmundur J. Guðmundsson sagði við Morgunblaðið að í lok maí hefði verið gert samkomulag milli VSÍ, VMSÍ og VMSS að fella þessa samninga saman í einn samning með venjulegum fyrirvara um sam- þykki aðildarfélaga. Guðmundur sagðist ekki vita hve mörg af þess- um 10 félögum væru búin að af- greiða þetta samkomulag, a.m.k. væri það ekki búið formlega hjá Dagsbrún, en sér þætti þó ólíklegt að menn færu að svipta þessu öllu í sundur út af 1,4 stigum. Snorri Snorrason hagfræðingur VSÍ sagði við Morgunblaðið að þeg- ar hann og Ari Skúlason hagfræð- ingur ASÍ hefðu á sínum tíma gert verðbólguspár fyrir rauðu strikin hefðu þeir miðað við 6% gengis- fellinguna sem kom í kjölfar samn- inganna í febrúar. Hins vegar hefðu þeir ekki gert ráð fyrir 10% gengis- fellingunni í maí. Það væri því ljóst að verðbólguspáin hefði verið of há á sínum tíma en aðilar hefðu viljað hafa ákveðið svigrúm. Það væri þó ánægjulegt að rauða strikið hefði haldið nú, annars hefði orðið mikill ófriður á vinnumarkaðinum. Guðmundur J. Guðmundsson sagði að þótt flestir hefðu reiknað með að rauða strikið héldi nú gegndi öðru máli með vísitöluviðmiðunina 1. nóvember, sem er 272 stig, sér í lagi eftir að gengisfellingin kom í maí. „Ég er ekki viss um að allar verðhækkanir vegna hennar séu komnar fram nú, en í nóvember verða áhrifín komin fram að fullu og þá verður einnig komin inn hækkun á landbúnaðarvörum í september. Ríkisstjómin þarf því að gera vel ef vísitalan á ekki að fljúga yfír rauða strikið 1. nóvém- ber, auk þess sem þá kemur strögl um það hvort heimilt sé að borga umfram rauðu strikin vegna bráða- birgðalaganna. Mér sýnist því allar líkur á að þetta sé aðeins gálga- frestur hjá ríkisstjóminni og friður- inn verði örugglega úti 1. nóvem- ber,“ sagði Guðmundur J. Guð- mundsson. Umferðarlagabrot: ' Kærur hafa tvöfaldast Bílbeltanotkun dregur úr alvarlegum slysum FJÖLDI þeirra ökumanna sem kærður er fyrir umferðarlagabrot hefur farið vaxandi að undanförnu. Nemur fjölgun kæra allt að helmingi milli tímabila á þessu ári og i fyrra. í maimánuði í ár voru 1319 ökumenn kærðir fyrir umferðarlagabrot á móti 723 í sama mánuði í fyrra. Samhliða þessu hefur dregið úr mikið slösuðum farþegum i umferðarslysum og segir lögreglan að bílbeltanotkun hafi tvímælalaust stuðlað að þeirri þróun. Ómar Smári Ármannsson, aðal- varðstjóri í umferðardeild, segir að af þeim 1319 ökumönnum sem kærðir voru beri hæst kærur fyrir of hraðan akstur. í maí í ár voru þessar kærur 727 en 301 í fyrra. Júnímánuður kemur aðeins betur út hvað fjölda kæra varðar, í ár voru tæplega 1100 ökumenn kærð- ir á móti rúmum 900 í fyrra. „Skýringin á þessari aukningu er tvíþætt. Ökumenn gefa nú oftar en ekki tilefni til afskipta lögreglu vegna umferðarlagabrota og hins- Hafþórsmálið: Fjórar útgáfur tíl af miðlínumii Frá Kristni Benediktssyni blaðamanni Morgunblaðains á Dohmbanka. RÚNAR Björgvinsson skip- og í fjórða lagi getur verið um stjóri á Grindvíking GK sem nú er staddur á Dohrnbanka segir að það geti verið um fjór- ar mismunandi miðlínur að ræða milli Grænlands og ís- lands eftir þvi við hvað er mið- að. „Þetta eru íslenska mælingin, danska mælingin sem tekur mið af tveimur sketjum við Grænland sem eru horfin, þýsku sjókortin skekkju í lórantækjum að ræða. segir Rúnar. „Ágreiningurinn um þessa miðlínu getur munað allt að 4 sjómílum eftir því við hvað er miðað. Mjög áríðandi er að fá úr því skorið hvar lfnan er því um gífurlega hagsmuni er að ræða þegar rækja gefur sig til héma megin við línuna enda er hún stærri og verðmeiri eftir því sem austar dregur." vegar hefur lögreglan skipulagt vinnu sína betur en áður,“ segir Ómar Smári. „Þetta þýðir þó ekki að við kærum allar smáyfirsjónir sem við sjáum, þvert á móti sleppur fólk oftast með áminningu ef um smáyfirsjón er að ræða en við höld- um ekki neinar tölur yfir slík til- felli.“ Ómar segir að frá því að sektar- ákvæði í bílbeltanotkun var lögleitt í mars hafí orðið töluverð fækkun á mikið slösuðu fólki í umferðinni, einkum farþegum f framsæti bif- reiða. „Bflbeltanotkunin hefur því tvímælalaust sannað gildi sitt því ætla má að mun fleiri noti nú belt- in en áður,“ segir hann. Mikið slösuðum f umferðinni fækkaði úr 13 í maí í fyrra og niður í 5 í maí í ár. í júní hinsvegar voru 6 mikið slasaðir sem er sama tala og í fyrra. Lítið slösuðum fjölgaði síðan um helming í júní í ár, voru 18 á móti 9 í fyrra.'Þá voru 89 teknir ölvaðir við akstur í júní en þessi tala hefur verið á bilinu 70-80 undanfama mánuði. Aðspurður um helstu orsakir umferðaróhappanna undanfarið segir Ómar Smári að þær megi einkum rekja til sofandaháttar öku- manna. „Þama kemur einnig til aðgæsluleysi, virðingarleysi fyrir hraðatakmörkunum og tillitsleysi gagnvart öðmm vegfarendum,“ segir hann. Helstu ráð til úrbóta segir Ómar Smári vera að allir leggi sitt af mörkum og að ökumenn séu vak- andi fyrir því sem þeir em að gera í umferðinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.