Morgunblaðið - 09.07.1988, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 09.07.1988, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1988 Felipe Gronzales stokkar upp ríkisstjórn Spánar Madrid, Reuter. FELIPE Gonzales, forsætisráðherra Spánar, kunngerði í gær breytingar á ríkisstjórn landsins. Er þetta gert til undirbúnings kosningunum 1990, en Gonzales er spáð sigri í þeim. Eftirtektar- vert er, að Gonzales lét Jose Barrionuevo, innanríkisráðherra, víkja og við starfinu tekur Jose Luis Corcuera, verklýðsfrömuður. Barrionuevo hefur sætt stöðugri ámæli fyrir að neita að láta rann- gagnrýni frá því aðhann tók við starfínu, enda er á verksviði ráðu- neytis hans að fjalla um kröfur Baska um fulla heimastjóm. Upp á síðkastið hefur hann einnig sætt saka sögusagnir um leynilega sjóði innan lögregluliðs landsins. Gonzales lét Barrionuevo taka við ráðuneyti samgangna og ferða- mála. Noregur; Ráðstefna á vegum SÞ um umhverfisvemd Ósló, Reuter. TVEGGJA daga ráðstefna um ræn iðnríki, einkum Bretland og umhverfismál á vegum Samein- Vestur-Þýskaland, um að „flytja uðu þjóðanna hefst í dag í Ósló. út“ mengun af þessu tagi. Markmið hennar er að hraða Gonzales skipti alveg um fjóra ráðherra, þá sem voru í embættum iðnaðarráðherra, samgöngu, menntamála og dómsmála. Hann færði einn annan, auk innanríkis- ráðherrans fyrrverandi, milli ráðu- neyta og tilnefndi tvo sem hafa ekki setið í stjóm áður. Athygli vekur, að hann gerði engar breyt- ingar á ráðherrum utanríkismála, fjármála og vamarmála. Það þykir sýna að Gonzales tel- ur sig býsna ömggan í sessi, að hann blakaði ekki við Carlos Solc- haga, fjármálaráðherra. Sá hefur sætt mikilli gagnrýni af hendi verklýðsforystunnar. Svíþjóð: Hótaði lögreglunni að myrða Lisbet Palme Stokkhólmi. Reuter. LÖGREGLAN sagði í gær, að borist hefðu hótanir um að myrða Lisbet Paime, ekkju Olofs heitins Palme forsætisráðherra, sem myrtur var 1986. Lögreglan sagði, að maður, sem ekki lét nafns síns getið, hefði hringt til aðalstöðva lögreglunnar í Stokkhólmi síðla á fimmtudags- kvöld og hótað að drepa Lisbet Palme og aðra konu til, sem ekki var nafngreind. Maðurinn talaði sænsku með útlendum hreim. Lisbet Palme dvelst nú í sumar- leyfi á eyjunni Gotlandi í Eystra salti og hefur öryggisvarsla veri efld þar. „Við emm að rannsaka símtalið, sagði Ake Torstensson, „en höfur enn enga vísbendingu í höndunum.' Ströng öryggisvarsla hefur veri um Lisbet Palme, allt frá því a eiginmaður hennar var myrtur. Hú: er bamasálfræðingur að mennt, e: hefur undanfarið starfað mest fyri Bamahjálparsjóð Sameinuðu þjóð anna, auk þess sem hún hefur tek ið þátt í aðgerðum gegn kynþátta aðskilnaði. Kona í New York sést hér ásamt ketti sínum miiyónaborginni reyna nú að fegra umhverfi við veggmynd í Clark-stöðinni í sölum neðanjarð- farartækjanna sem talið er að notuð séu af 3,7 aijárnbrauta borgarinnar. Umferðaryfirvöld í milljónum manna á hveijum degi. baráttunni við að bjarga lífríki jarðarinnar og koma umhverf- isverndarverkefnum á laggirn- ar með hjálp Sameinuðu þjóð- anna. „Sameinuðu þjóðimar em í ein- stakri aðstöðu til að hrinda slíkum verkefnum í framkvæmd og sú staðreynd hve margir háttsettir menn á vegum SÞ sækja þessa ráðstefnu sýnir hve alvarlegum augum menn líta umhverfísvanda- mál þau sem við blasa," sagði norskur embættismaður. Meginmarkmið ráðstefnunnar er að velta fyrir sér framfömm í umhverfísvemd síðan í fyrra er gefín var út „Sameiginleg framtíð okkar“, skýrsla á vegum Um- hverfís- og þróunarstofnunar SÞ, undir forsæti Gro Harlem Bmnd- tland, forsætisráðherra Noregs. í skýrslunni var lögð áhersla á að hagstjóm miðaði að því að vemda og auka náttúmauðlindir fremur en blóðmjólka þær mis- kunnarlaust. Líklegt er að skógardauða vegna súrs regns og mengun sjáv- ar beri á góma á ráðstefnunni en norska stjómin hefur sakað vest- * Norður-Irland; Sprengjur granda þremur BRESKUR hermaður lést af völdum sprengjugildru í Belfast í gærmorgun. Þetta gerðist er hermenn voru að fjarlægja rusl af völdum annarrar sprengju sem sprakk á fimmtudagskvöld og drap tvo óbreytta borgara en fjórir særðust. Sprengingamar urðu í vestur- hluta Belfast-borgar, sem aðallega er byggð kaþólsku fólki, skammt frá sundlaug. Fjöldi bama var í lauginni er fyrri sprengingin varð á fimmtudagskvöldið. Talið að henni hafí verið beint gegn lög- reglu- og hermönnum sem hafa bækistöð skammt frá og hafí sprengjan verið fjarstýrð. Enginn hafði lýst ábyrgð á hendur sér vegna ódæðanna er síðast fréttist. Fyrir rúmri viku særðist ung stúlka er sprengja írska lýðveldis- hersins, IRA, sem kaþólskir menn standa að, sprakk undir skólabíl í landaborginni Enniskellen. Öku- maður bílsins var mótmælendatrú- ar og í varaliði hersins. Reuter * Ivan ekkigefinn Starfsmaður hjá Sothesbys, bresku fyrirtæki sem frægt er fyrir uppboð á listaverkum, sést hér halda á málverkinu „ívan grimmi“ eftir sovéska málarann ílja Glazunov. Málverkið var metið á 28 þúsund sterlingspund á fysrta alþjóðlega listaverkaupp- boðinu sem fyrirtækið hefur haldið í Sovétrikjunum en því lauk í Moskvu í fyrrakvöld. Perú: Vargas Llosa líklegur forsetaframbj óðandí Líma. Reuter. Rithöfundurinn Mario Vargas Llosa kom á miðvikudag aftur til heimalands síns, Perú, eftir þriggja mánaða dvöl í Evrópu og Bandaríkjunum. Skýrt var frá þvi að Vargas Llosa væri nú orðinn forystumaður nýrrar stjórnmála- hreyfingar, Lýðræðisfylkingar- innar. „Ég get ekki sagt frá því hvort ég verði forsetaframbjóðandi (Lýð- ræðisfylkingarinnar) vegna þess að hreyfíngin á eftir að taka ákvörðun í þeim efnum," sagði Vargas Llosa á fréttamannafundi á fimmtudag. Forsetakosningar verða í landinu eftir tvö ár en núverandi forseti er jafnaðarmaðurinn Alan Garcia. For- menn tveggja stærstu flokka íhalds- manna í landinu, Femando Belaunde Terry, fyrrum forseti, og Luis Bedo- ya fögnuðu Vargas Llosa við heim- komuna. Þeir hafa báðir lýst yfir stuðningi við rithöfundinn. Vargas Llosa, sem er 52 ára og einn af þekktustu rithöfundum Róm- önsku Ameríku, hóf bein afskipti af stjómmálum á síðasta ári þegar hann veitti forstöðu andófí gegn áformum Garcia forseta um að þjóðnýta einka- banka og stórfyrirtæki. Hann segist einnig vilja hverfa frá þeirri stefnu forsetans að neita að greiða af er- lendum skuldum ríkisins en þær nema um 15,5 milljörðum Banda- ríkjadala. Stefna Garcia hefur leitt Marío Vargas Llosa til þess að Alþjóða gjaldeyrissjóður- inn og Alþjóðabankinn hafa synjað ríkinu um meiri lánafyrirgreiðslu. List til allra Reuter
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.