Morgunblaðið - 09.07.1988, Blaðsíða 48
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1988
48
fclk í
fréttum
PAUL NEWMAN OG ROBERT REDFORD
Alltaf jafnunglegir
Robert Redford ásamt nýju kærustunni, Soniu Braga, sem leikur
á móti honum í kvikmyndinni Milagro.
Paul Newman lét nýlega reisa sumarbúðir fyrir börn
sem eru haldin krabbameini eða öðrum lífshættuleg-
um sjúkdómum.
Robert Redford og Paul New-
man virðast alltaf jafnung-
legir og hafa lítið breyst í ára-
tugi. Margir hafa furðað sig á
þessu en elli kerling virðist ekki
hafa roð við þeim.
Paul Newman lítur ekki út fyr-
ir að vera eldri en fimmtugur en
í reynd er hann orðinn 63 ára.
Robert Redford segir um félaga
sinn: „Ef maður verður eins og
Paul Newman með aldrinum, þá
er allt í lagi að eldast."
Sjálfur er Robert Redford al-
gjört undur. Hann er 13 árum
yngri en Paul Newman sem þýðir
að hann er orðinn fimmtugur.
Samt sem áður er hann eins og
unglingur í vextinum og ekki eitt
einasta grátt hár farið að sjást.
Robert er mikill vinnuþjarkur
og kannski er það ástæðan fyrir
því að hann fitnar ekki. Hann er
nefnilega ekkert að vanda
fæðuvalið og er mjög sólginn í
„draslfæði" eins og það kallast.
Þrátt fyrir að Robert geri engar
leikfímiæfíngar, hefur hann enn
sömu málin og þegar hann var í
menntaskóla. „Það er alltof erfitt
fyrir mig að æfa kraftlyftingar,“
segir hann. „Guð skapaði mig
svona og hann hefur ekki ennþá
tekið það frá mér.“
Ef Robert verður eins lánsamur
og Paul Newman mun hann
a.m.k. halda útlitinu til ársins
2000. Hann hefur þegar gert sínar
ráðstafanir til að halda sér ung-
legum. Sagt er að það yngi menn
upp að ná sér í unga konu. Nú
hefur Robert sagt skilið við Lolu,
eiginkonu sína, sem hann hefur
verið giftur í áratugi og náð sér
í kærustu sem heitir Sonia Braga.
Þau léku saman í kvikmyndinni
Milagro og ástin virðist blómstra.
Paul Newman hefur hinsvegar
verið hamingjusamlega giftur í
30 ár og tekur til fótanna ef ein-
hver glæsikvendi eru að eltast við
hann. Hann notar aðrar aðferðir
en Robert Redford til að halda sér
unglegum. Hann gerir þrekæfing-
ar, hleypur daglega og hefur það
einnig fyrir vana að stinga andlit-
inu á sér ofan í klakavatn á hverj-
um morgni. Margir telja að það
sé leyndarmálið á bak við hrukku-
laust andlit hans.
Eitt helsta áhugamál Pauls eru
hraðskreiðir bílar, en hann segir
að hitaeiningarnar hreinlega gufi
upp þegar hann þeysist um á glæ-
sikerrunum sínum.
Hraðskreiðir bílar eru þó ekki
eina áhugamál Pauls. Hann hefur
helgað sig góðgerðarstarfsemi og
nýlega lét hann reisa sumarbúðir
fyrir börn sem eru haldin krabba-
meini og öðrum lífshættulegum
sjúkdómum.
Robert Redford getur ekki ann-
að en dáðst að Paul og hefur sagt
um hann: „Það eina sem ég veit
um Paul er að hann lítur stórkost-
lega vel út, hann á sand af seðlum
og styrkir góð málefni."
Frú Svava Sigmar og séra Eric H. Sigmar ætla að dvelja á íslandi
í tæpt ár.
VESTUR-ÍSLENSK PRESTSHJÓN
Ætla að dvelja á
Islandi í tæpt ár
Séra Eric H. Sigmar og Svava
kona hans komu nýlega til
Islands og ætla að dvelja hérlend-
is í tæpt ár. Þau hjónin eru vina-
fólk séra Karls Sigurbjörnssonar
prests og fjölskyldu hans. Séra
Eric og Svava munu búa á heim-
ili séra Karls á meðan á dvölinni
stendur en séra Karl og fjölskylda
hans hafa haft húsaskipti við Eric
og Svövu og munu dvelja á heim-
ili þeirra í Aubum í Wasington-
ríki í Bandaríkjunum. Þar ætlar
séra Karl að stunda framhaldsnám
í eitt ár.
Þetta er í sjötta sinn sem séra
Erie kemur til Islands. Árið 1953
kom hann fyrst til landsins og var
hér við nám í guðfræði við Há-
skóla Islands í 8 mánuði. Á meðan
á dvölinni stóð, lærði Eric ísiensku
og hefur haldið henni ágætlega
við síðan.
Séra Eric hefur þjónað til prests
í rúm 40 ár og er nú kominn á
eftirlaun. Þau hjónin ætla að taka
því rólega á íslandi, ferðast um
og hitta fólk sem þau þekkja. Þau
hafa komið hingað það oft áður
að þau hafa kynnst mörgum ís-
lendingum sem þau hefðu gaman
af að hitta aftur. Þau eiga einnig
heilmikið af ættingjum hér. Eric
er ættaður úr S-Þingeyjarsýslu en
Svava er ættuð úr Skagafirði.
Afar og ömmur þeirra Erics og
Svövu fluttust til Kanada og
Bandaríkjanna á árunum 1872-
1883. Þau voru með fyrstu Islend-
ingunum sem fluttu til Vestur-
heims á sínum tíma. Séra Eric
ólst upp í Mountain, sem er vest-
ur-íslensk byggð í Norður-Da-
kota-fylki í Kanada. Sú byggð
kallaðist áður Vatnabyggð. Faðir
hans, séra Haraldur Sigmar, var
lengi prestur þar og þjónaði í
kirkju sem heitir Víkurkirkja.
Hann predikaði á íslensku allt til
ársins 1935 en þá var bytjað að
messa á ensku.
Svava Sigmar ólst hinsvegar
upp í Geysisbyggð við Winnipeg-
vatn í Manitoba í Kanada. Geysis-
byggð var á svæði sem kallast
Nýja-ísland og var nokkurs konar
nýlenda íslendinga í Kanada.
Fyrir nokkrum árum gegndi
séra Eric biskupsembætti við hið
evangelísk-lútherska kirkjufélag
íslendinga í Vesturheimi. Á þeim
árum komu nokkrir prestar frá
íslandi til að þjóna söfnuðum í
þessu kirkjufélagi. Það voru séra
Bragi Friðriksson, séra Ólafur
Skúlason, séra Hjalti Guðmunds-
son, séra Jón Bjamason og séra
Ingþór ísfeld Indriðason.
Séra Eric kom hingað í annað
sinn árið 1959 og tók þátt í bisk-
upsvígslu séra Sigurbjöms Einars-
sonar sem fulltrúi Vestur-íslend-
inga.
Árið 1977 komu Eric og Svava
aftur til íslands en þá hafði Eric
verið beðinn um að halda fyrirlest-
ur á prestastefnu sem haldin var
á Eiðum.
Síðan komu þau árið 1983 þeg-
ar karlakórinn Vesturbræður frá
Seattle, sem Eric var félagi í, kom
hingað til lands í söngferðalag og
hélt tónleika víða um landið.
Árið 1986 kom séra Eric í
fímmta skipti til landsins til að
vera viðstaddur vígslu Hallgríms-
kirkju í Reykjavík. Þá fæddist sú
hugmynd að séra Karl Sigur-
björnsson og séra Eric myndu
hafa húsaskipti í eitt ár.
Séra Eric og Svava eiga fimm
börn og ijögur barnabörn. Yngsti
sonur þeirra heitir Thor og hefur
verið við nám í London í Eng-
landi. Hann ætlar að koma til Is-
lands á næstu dögum og dveljast
hjá foreldrum sínum í sumar. Eric
og Svava eru einnig að vona að
fleiri af bömum þeirra sjái sér
fært að heimsækja þau á meðan
á íslandsdvölinni stendur.
Séra Eric og Svava munu ekki
þurfa að láta sér leiðast hér á landi
því að þau þekkja fjölda fólks um
allt land. Sunnudaginn 3. júlí að-
stoðaði séra Eric við messu í Hall-
grímskirkju í boði séra Jóns
Bjarnasonar og í dag mun hann
taka þátt í messu í Bústaðakirkju
ásamt séra Ólafi Skúlasyni. Séra
Gísli Kolbeinsson hefur einnig boð-
ið honum að predika og syngja
við messu þann 31. júlí í Flatey á
Breiðafirði.
Eric og Svava eru mjög ánægð
með að fá þetta tækifæri til að
dveljast á íslandi og fínnst miklar
framfarir hafa átt sér stað síðan
þau komu fyrst hingað til lands
fyrir 35 ámm.