Morgunblaðið - 09.07.1988, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 09.07.1988, Blaðsíða 58
58 MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1988 ■ KNA TTSPYRNUMAÐUR- INN snjalli, Igor Belanov er ekki of bjartsýnn á að hann spiii með ítalska liðinu Atlanda á næsta keppnistímabili. Belanov hefur mikinn áhuga á að spila utan Sov- étrikjanna bæði launanna vegna og eins til þess að auka reynslu sína sem knattspymumaður. Hann er þó frekar svartsýnn á að lið hans Dynamo Kiev láti hann fara. Forr- áðamenn Atlanda halda því fram að þegar hafi verið samið um Bel- anov, en sovéska knattspymusam- bandið neitar því alfarið. Talsmaður ítalska liðsins sagði í gær að þrátt fyrir vandamál við samningagerð, væm Italir bjartsýnir á að Belanov spilaði í þeirra herbúðum næsta keppnistímabil. MALEMAO, brasilíski knatt- spyrnumaðurinn sem leikið hefur með Atletico Madrid undanfarið, hefur verið seldur til ítalska liðsins Napoli. Samingurinn er virði rúm- lega 180 milljóna kr. Talsmaður spænska liðsins sagði að Alemao hefði skrifað undir tveggja ára samning. Alemao sem er 26 ára 'y gamall, gekk til liðs við Atletico 1986. Hann verður þriðji erlendi leikmaður Napoli. Fyrir em þeir Maradona og samlandi Alemao, Oliveira Gareca. ■ UNGVERSKA knattspymu- stjaman Lajos Detari mun verða áfram hjá v-þýzka félaginu Eintracht Frankfurt að sögn stjórarformanns félagsins. Gríska félagið Olympiakos hafði áður lýst því yfir, að það væri búið að kaupa kappann. ■ JIM McLean, þjálfari skozka liðsins Dundee United, hefur sagt upp störfum til þess að mótmæla því að hann var dæmdur í 4000 punda sekt og bannað að fara út að hliðarlínu í leikjum til að hvetja sína menn. ■ BANDARÍSKA körfuknatt- leiksliðið Atlanta Hawks mun fara í 12 daga keppnisferð til Sovétríkj- anna 20. júlí. Þar mun það meðal annars keppa við sovézka landsliðið. ■ SAMTÖK enskra knatt- spymuliða hafa samþykkt að fresta leikjum þeirra liða, sem enskir landsliðsmenn leika með, laugar- daginn 15. október. Ástæðan er sú, að 19. október leika England og '*-» Svíþjóð á Wembley í undankeppni HM. Bobby Robson verður vafa- laust ánægður með að fá aukinn tíma til undirbúnings, því að enska landsliðið er undir mikilli pressu að standa sig vel eftir hrakfarir á EM. „Sofnuðum á verðinum“ - sagði Atli Hilmarsson, eftir að V-Þjóðverjar höfðu skorað sigurmarkið eftir aukakast þegar fimm sek. voru til leiksloka HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ Alfreð Oíslason var ekki tekinn neinum vettlingatökum af leikmönnum v- þýska liðsins. Hér taka tveir hálstak á honum. Sagt eftir leikinn: „Lékum gegn sterku liði sem hafði dómar- ana með sér“ Bogdon, landsliðsþjálfari ís- lands, var ánægður með leik sinna manna þrátt fyrir ósigurinn. „Þetta eru betri úrslit en við reikn- uðum með. Við vorum að leika í V-Þýskalandi, gegn sterku lands- liði, sem hafði dómarana með sér. „Við erum hér til að fá æfingu, sjá hvar við stöndum nú í upphafi und- irbúningsins fyrir Ólympíuleikana í Seoul. Það komu margir vankantar fram, sem við munum fínpússa fyr- ir átökin í Seoul. Strákamir hafa nægilegt þrek, en þeim vantar meiri æfingu með knöttinn," sagði Bogd- an. Kristján Arason „Vamarleikurinn var góður hjá okkur. Það var sárt að tapa. Eg neita því ekki að það er sárara að tapa fyrir Vestur-Þjóðveijum held- ur en öðrum. Ég hef leikið hér og því hafði ég mikinn metnað að standa uppi sem sigurvegari." Páll Ólafsson „Leikurinn var góður og vil lékum vel í fyrri hálfleiknum, en síðan kom þreyta í ljós. Við erum aðeins búnir að ná 70% krafti. Það var grátlegt að tapa svona á síðustu sekún- tunni. Það kom fram í leiknum að við erum ekki í nægilega góðri sam- æfingu, enda höfum ekki æft mikið með knött. Fjögur misheppnuð víta- köst má rekja til þess að við höfum lítið verið með knött á milli hand- anna.“ „ÞAÐ var grátlegt að láta Vest- ur-Þjóðverjana skora sigur- markið svona rétt fyrir leikslok. Við sofnuðum á verðinum þeg- ar þeirtóku aukakastið," sagði Atli Hilmarsson, eftir að íslenska landsliðið hafði mátt þola tap, 18:19, í HSV-höllinni í Hamborg. „Það var sárt að tapa, því að við lékum vel - hraðan handknattleik, en þreytan fór að segja til sfn undir lokin, þannig að við vor- um ekki nægilega vakandi," sagði Arli. Ulrik Roth skoraði sigurmarkið þegar aðeins fimm sek. voru til leiksloka. Danskir heimadómar- ar, sem dæmdu leikinn, gáfu V- Þjóðveijum tæki- LogiB. færi til að halda Eiðsson knettinum síðustu skrifarfrá mínútuna, án þess am org v ag dæma töf á þá. Þegar sjö sek. voru til leiksloka dæmdu þeir aukakast á íslendinga. Leikmenn Íslands reiknuðu þá með að knettinum yrði kastað til Andre- as Dörhöfer, sem hafði skorað mörg mörk eftir aukaköst. Jú, Dörhöfer fékk knöttinn, en hann lék á leik- menn íslenska liðsins - í staðin fyrir að skjóta, sendi hann knöttinn inn á línu til Roth, sem vippaði knettinum yfir Einar Þorvarðarson og sigur V-Þjóðveija var í höfn. „Vestur-Þjóðveijamir fengu of mikið út úr aukaköstum sínum. Við höfum ekkert æft vöm gegn þeim og áttum því ekkert svar til. Það var aftur á móti mjög slæmt að við nýttum ekki fjögur vítaköst í leikn- um,“ sagði Kristján Arason. Kristján Arason gaf tóninn í leikn- um og skoraði fyrstu tvö mörk ís- lands. Þegar V-Þjóðveijar komust yfir, 4:2, lokuðu íslensku leikmenn- imir vöminni og skorðu fimm mörk í röð, 4:7, án þess að V-Þjóðveijar gátu svarða. Alfreð Gíslason, Atli Hilmarsson og Þorgils Óttar Mathi- esen tættu þá oft v-þýsku vörnina í sundur. ísland var yfir, 10:12, í leikhléi. Kristján skoraði, 10:13, en þá kom slæmur kafli og V-Þjóðveijar skor- uðu fimm mörk gegn einu, 15:14 og síðan komust þeir yfir, 17:15, eftir að Stefan Hcker hafði varði vítakst frá Sigurði Gunnarssyni, en áður hafði hann varði tvö vítaköst og Michael Kriter, eitt - frá Al- freð, Páli Ólafssyni og Kristjáni Arasyni. Jakob Sigurðsson og Þorgils Óttar náðu að jafna, 17:17. Þá skoraði Rúdiger Neitzel, 18:17, en -Karl Þráinsson jafnaði, 18:18, þegar 1.06 sek. var til leiksloka. Eftir- leiknum hefur verið lýst. íslenska liðið lék vel á köflum - sérstaklega í fyrri hálfleik, en þá var mikill hraði og fallegar fléttur í sóknarleik liðsins. Þorgils Óttar og Einar Gunnarsson voru bestu menn liðsins. Atli, Kristján Arason, sem var sterkur í vöminni ásamt Alfreð, léku vel. Dönsku heimadómaramir settu svip á leikinn, en þeir „stálu“ fjórum mörkum af íslenska liðinu, með því að flauta of fljótt. V-Þýskaland - ísland 19 : 18 íþróttahöllin í Hamborg. Vináttulandsleikur í handknattleik, föstudagur 8. júlí 1988. Gangur leiksins: 0:1, 1:2*, 4:2, 4:7, 7:8, 7:10, 8:11, 10:12. 10:13, 12:13, 15:14, 15:15, 17:15, 17:17, 18:17, 18:18, 19:18. Áhorfendur: 2.680. Mörk íslands: Þorgils Óttar Mathiesen 5, Kristján Arason 4, Atli Hilmarsson 2, Karl Þráinsson 2, Jakob Sigurðsson 2, Guðmundur Guðmundsson 1, Alfreð Gíslason 1/1. Varin skot: Einar Þorvarðarson 13. Mörk V-Þýskalands: Jochen Fraatz 5/2, Rúdiger Neitzel 4, Andreas Dörhöfer 3, Ulrich Roth 2, Stefan Schöne 2, Michal Lennert 1, Wolfgang Kubitzki 1 og Frank Löhr 1. Dómarar: Ole Christensen og Per Godesk Jörgensen frá Danmörku. Brottrekstrar: ísland í sex mín. og V-Þýskaland í tólf mín. FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR________ || HANDKNATTLEIKUR Ingrid Kristian- senfrá keppni í sex vikur NORSKA hlaupadrottningin Ingrid Kristiansen, sem hefur haft yfirburði í langhlaupum kvenna undanfarin ár, verður frá keppni næstu sex vikur vegna blöðrumyndunar í eggja- stokkum. ■ ngrid Kristiansen fór í læknis- I rannsókn eftir að hafa fundið til l óþæginda í 10 km hlaupinu á Bi- i slettmótinu í Ósló um síðustu helgi | en þá tapaði hún sínu fyrsta hlaupi i í iangan tíma. Læknar segja að engin hætta sé á ferðum. Meinið Petre Ivanescu kennir íslensk- um þjálfunim Ingrid Kristlansen muni sennilega læknast af sjálfu sér þannig að hún þurfi ekki að gangast undir skurðaðgerð. Aftur á móti má hún ekki ofreyna sig og má einungis stunda mjög léttar æfíngar og ekki keppa í sex vikur. EINN kunnasti handknattleiks- þjálfari heims, Petre Ivanescu, hefur fallist á ósk HSÍ um að halda fyrirlestur fyrir íslenzka þjáifara síðar í þessum mán- uði. Jafnframt fá þjálfararnir að fylgjast með tveimur æfing- um hjá veztur-þýzka landslið- inu. Þetta er mikiil hvalreki fyr- ir íslenzka þjálfara því Ivanes- cu hefur ekki áður gefið þjálfur- um kost á siíkri fræðslu. Ívanescu er Rúmeni og margfald- ur heimsmeistari með rúmenska landsliðinu. Hann hefur náð frábær- um árangri sem þjálfari þýzku fé- lagsliðanna Gummersbach og Essen og nú síðast sem þjáifari vestur- þýzka landsliðsins. Ivenescu heldur fund með þjálfur- unum föstudaginn 22. júlí kl. 16 og að honum loknum verður fylgst með tveggja tíma æfíngu þýzka landsliðsins. Á laugardagsmorgnin- um verður aftur fylgst. með æfingu og að henni lokinni verður fundur. Þjálfararnir munu síðan fylgjast með landsleikjum Islands og Vest- ur-Þýzkalands í Laugardalshöll. Miðað er við að þjálfarar hafí lokið B- stigs prófi. Þátttöku skal til- kynna til stjórnar HSÍ sem fyrst. Petre Ivanescu er talinn ein snjall- asti þjálfari heims í dag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.