Morgunblaðið - 09.07.1988, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1988
9
Vapona og Shelltox
Lyktarlausu flugnafælurnar
fAst A öllum helstu shell-stöbum og
Í FJÖLDA VERSLANA UM LAND ALLT.
V
Skeljungur h.f.
SMAVÖRUDEILD- SÍMI: 681722
/
KAUPÞING HF
Húsi verslunarinnar • sími 686988
VEXTIR Á
VERÐBRÉFAMARKAÐI
Víkan 3. - 9. júlí 1988 T*
Vextir umfram Vextír
Tegund skuldabréfa verðtryggingu % alls %
Einingabréf
Einingabréf 1 12,9% 33,2%
Einingabréf2 9,6% 29,3%
Einingabréf3 19,5% 40,9%
Lífeyrisbréf 12,9% 33,2%
Skammtímabréf 8,0% áætlað
Spariskírteini ríkissjóðs
laegst 7,2% 26,5%
hæst 8,5% 28,0%
Skuldabréf banka og sparisjóða
lægst 9,7% 29,4%
hæst 10,0% 29,8%
Skuldabréf stórra fyrirtækja
Lind hf. 11,0% 30,9%
Glitnirhf. 11,1% 31,0%
Sláturfélag Suðurlands
l.fl. 1987 11,2% 26,0%
Verðtryggð veðskuldabréf
lægst 12,0% 32,1%
hæst 15,0% 35,7%
Fjárvarsla Kaupþings mismunandi eftir samsetn-
ingu verðbrcfaeignar.
Heildarvextir annarra skuldabréfa en Einíngabréfa eru sýndir
miðað við hækkun lánskjaravísitölu síðastlíðna 3 mánuði.
Raun- og nafnávöxtun Einingabréfa og Lífeyrisbréfa er sýnd
miðað við hækkun þeirra síðastliðna 3 mánuði.
Flest skuldabréf er hægt að endurselja með litlum fyrirvara. Ein-
ingabréf er innleyst samdægurs gegn 2% innlausnargjaldi hjá
Kaupþingi og nokkrum sparisjóðanna. Spariskírteíni eru seld á
2-3 dögum og flest önnur skuldabréf innan tveggja vikna. Fé í
Fjárvörslu Kaupþings er ofiast hægt að Iosa innan viku.
íþróttir og smáfiskar
í Staksteinum í dag er staldrað við tvö ólík efni. Annars vegar
er vitnað í ársrit knattspyrnudeildar Breiðabliks, þar sem sr.
Kristján Einar Þorvarðarson, sóknarprestur, ritar um heilbrigði
og gildi íþrótta. Þá er vitnað í nýtt hefti af tímaritinu Sjávarfrétt-
um, þar sem meðal annars er fjallað um smáfiskadráp.
Hollar
lífsreglur
Knattspyrnudeild
Breiðabliks hefur nýlega
sent frá sér ársrit sitt.
Þar ritar sr. Kristján Ein-
ar Þorvarðarson um heil-
brigði og gildi iþrótta og
segir meðal annars:
„Við lifum á öld há-
tækni, sem innan læknis-
fræðinnar kemur fram í
ótrúlegum möguleikum,
t.a.m. tæknifijóvgun og
líffæraflutningum milli
manna. Samt er það svo
að læknavísindin standa
ráðþrota gagnvart mikl-
um vágesti, sem skekur
og hrærir alla heims-
Eyggðina. Hér er átt við
hinn alræmda sjúkdóm
sem nefndur hefur verið
eyðni eða alnæmi.
Einungis á félagsleg-
um og siðferðilegum
grundvelli er unnt að
sporna gegn almennri
útbreiðslu þessa alvar-
lega sjúkdóms. Abyrg
kynhegðun hvers ein-
staklings byggist á skyn-
samlegri breytni hans,
sem vissulega grundvall-
ast á því hversu heil-
steyptum siðferðisþroska
viðkomandi hefur náð,
rétt eins og gildir um
ábyrga afstöðu gagnvart
reykingum, áfengis- og
eiturlyfjaneyslu.
En hvað hafa þessi at-
riði með íþróttir að gera?
Jú, iðkun iþrótta og ár-
angur á þvi sviði er kom-
inn undir skynsamlegu
lífemi og góðri ástund-
un. Þar er keppt að settu
marki, stefnt að til-
teknum árangri. Sá er
vill ná langt í sinni
íþróttagrein leggur allan
sinn metnað þar að veði.
Góður iþróttamaður
heldur þess vegna i
heiðri hollar lífsreglur.
Hann leitast við að iðka
það eitt sem stuðlar að
andlegu og líkamlegu
heUbrigði.
I öllum mannlegum
samskiptum ríkir ýmist
góður eða slæmur
„andi“. Þetta á við um
bekkjardeildina, fjöl-
skylduna, vinnustaðinn,
iþróttaliðið og hverskyns
félagsskap annan. Til
þess að íþróttmenn i til-
teknu kcppnisliði geti
leikið saman til árangurs
verður að rikja „góður
andi í liðinu". Þ.e.a.s. öll
samvinna og samskipti
meðal liðsmanna verða
að mótast af jákvæðu og
góðu hugarfari. Á sviði
iþrótta reynir nyög á
hæfni manna hvað þetta
varðar og félagslegur
þroski og ögun eflist að
miklum mun hjá þátttak-
endum. Allir verða að
virða „leikreglumar",
bæði gagnvart samheij-
anum og andstæðingn-
um. Þessu reyna menn
að framfylgja bæði innan
vallar og utan.“
Smáfiskadráp
í nýjasta hefti Sjávar-
frétta er rætt við Jakob
Jakobsson, forstjóra Haf-
rannsóknastofnunar, og
meðal annars vikið að
smáfiskadrápi með þess-
um hætti. Er Jakob
spurður, hvort hann hafi
ástæðu til að ætla að
smáfiskadráp sé stundað
hér við land í umtalsverð-
um mæli. Jakob svarar:
„Okkar gögn benda
ekki til þess að smáfiska-
dráp sé stundað í gríðar-
lega miklum mæli, en
hins vegar er því ekki
að leyna að menn koma
stundum hingað á Haf-
rannsóknastofnun og
lýsa því yfir, að á til-
teknum skipum sem
sjaldnast em nefnd á
nafn sé fleygt geysimiklu
af undirmálsfiski í hafið.
Stundum er talað um að
afla úr heilu togi sé
fleygt. Ég veit ekki
hveiju trúa skal en við
höfum ekki gögn sem
sanna þetta og meðan svo
er ætla ég ekki að halda
þvi fram að smáfiski sé
fleygt í miklum mæli.
Manni virðist þó skjóta
skökku við, að sam-
kvæmt aflaskýrslum er
undirmálsfiskur veruleg-
ur hluti (10%) af afla til-
tekinna togara, þótt aðrir
sem sækja á sömu mið
landi ekki einum einasta
undirmálsfiski, sam-
kvæmt sams konar
skýrslum.
Sé það tilfellið að smá-
fiskadráp sé stundað i
stórum stíl, sem ég vil
þó alls ekki fullyrða, þá
hefur það auðvitað þær
afleiðingar að þessi fisk-
ur skilar sér ekki i afla
siðar meir, en auk þess
veldur það þvi að við
misreiknum stærð ár-
ganganna, þar sem sá
útreikningur byggist á
lönduðum afla og áætl-
aðri náttúrulegri dánar-
tiðni."
Enn spyija Sjávar-
fréttir: Menn sunnan-
lands og norðanlands
hafa löngum deilt um það
hvemig skynsamlegast
sé að nýta þorskstofninn.
Sunnanmenn eru and-
snúnir þvi, að þorskurinn
sé veiddur i rikum mæli
áður en hann nær þeim
aldri að hann sæki á
hrygningarstöðvamar
fyrir Suðurlandi, en
norðanmenn deila á
sunnanmenn fyrir að
veiða fiskinn áður en
hann nær að hrygna.
Hvemig metur þú þessi
rök?
„Hér er verið að draga
myndina alltof sterkum
dráttum. Tillaga okkar
er sú, að dregið verði úr
sókn i stofninn í heild,
bæði smáf iskinn og eldri
fiskinn. Það er ekki
raunhæft að loka alveg
uppeldisstöðvunum og
taka allan aflann á ver-
tiðinni. Að visu var þetta
gert i injög miklum mæli
hér áður fyrr en er ekki
raunhæft nú. Ef við hins
vegar byggðum þorsk-
stofninn upp og fengjum
fleiri árganga inn i veið-
ina, þá myndi hlutfall
smáfisks í aflanum
minnka af sjálfu sér. Ef
meira væri til af eldri
fiski drægju menn sjálf-
krafa úr sókninni i smá-
fiskinn. Þá gætu bæði
norðan- og sunnanmenn
unað glaðir við sitt.“
Skeljungur h.f
Nýlistasafnið:
Sýningu
Alans Johns-
tons að ljúka
SÍÐASTI dagur sýningar Skot-
ans Alans Johnstons í Nýlista-
safninu verður sunnudagurinn,
10. júli.
Alan er fæddur árið 1945 og býr
í Endinborg. Hann tók þátt í sam-
sýningu fjögurra útlendinga í efri
sal Nýlistasafnsins í febrúar sl. en
er nú kominn aftur með einkasýn-
ingu. Á henni eru 10 myndir, þar
af ein veggteikning, einn brons-
skúlptúr, og afgangurinn verk unn-
in með gessó, blýanti og koli á
striga. Alan Johnston sýnir mest í
New York, Þýskalandi og Japan.
Nýlistasafnið hefur gefið út bækl-
ing með myndum og texta í tilefni
sýningarinnar.
Afmæll sreikningur
15 mánaða binditími. 7,25% ársvextir umfram verðtryggingu.
L
Landsbanki
Islands
Banki allra landsmanna