Morgunblaðið - 09.07.1988, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1988
AF INNLENDUM
VETTVANGI
HJÖRTUR GÍSLASON
Afurðaverð lækkar - fiskverð hækkar:
Mílljarða króna tekjumissir
og ört vaxandi tap frystingar
Sainhæfing veiða og vinnslu virðist vera í rúst og skerðir verulega mögulegan hagnað
Síðastliðið ár var sérkennilegt fyrir sjávarútveginn. Verð
fyrir afurðir hafði aldrei verið hærra, en tap var engu að
síður á rekstri flestra greina hans, meðal annars vegna slakrar
stöðu dollarsins, mikils fjármagnskostnaðar og misgengis
tekna og kostnaðar vegna fasts gengis og verðbólgu
innanlands. Aflabrögð voru góð og gjaldeyristekjur í raun
miklar, þó ekki dygði það til upp í kostnað og eyðslu. Á þessu
ári hefur enn snarast á merinni, afurðaverð lækkar svo nemur
milljarða tekjumissi á einu ári, fjármagnskostnaður eykst
stöðugt, verð á fiski til vinnslu hækkar, vinnulaun hækka og
verð á allri þjónustu. Verð fyrir afurðirnar nú er svipað og
það var árið 1986, toppurinn er fallinn. Háa verðið var
óraunhæft og gat ekki staðizt. Stjórnendur Coldwater og
Iceland Seafood í Bandaríkjunum vöruðu við því í samtölum
við íslenzka fjölmiðla á siðasta ári, að boginn væri spenntur
til hins ítrasta, strengurinn gæti brostið og verðið fallið.
Verðfallið hefði því ekki átt að koma neinum á óvart og við
hefðum ekki átt að falla í þá gryfju að miða afkomuspár og
afkomu þjóðarinnar við toppinn og eyða hagnaðinum strax.
Þó sú speki sé gömul, að gott sé að eiga eitthvað til mögru
áranna, á hún ekki hvað sízt við nú.
Fá teikn um betri tíð
Sé litið á verðþróun helztu
frystra fiskafurða í hveiju
markaðslandi, kemur í ljós, að í
Bandaríkjunum hefur verð á þorsk-
flökum verið mjög stöðugt frá'síðari
hluta ársins 1983 fram á árið 1986.
Þá fer það að hækka mun hraðar
og- var í hámarki sfðastliðin ára-
mót. Lengst af var verðið frá 1,50
dölum upp í 1,59 á pundið þar til
stöðug hækkun hófst er verðið fór
upp í 1,62 dali á þriðja ársfjórðungi
1986. Um síðastliðin áramót var
það 2,21, lækkaði strax niður í 2,02
og síðar niður í 1,85. Upp úr miðju
ári 1983 var þorskblokkin seld á
1,16 dali, en lækkaði næstu misser-
in og fór lægst í 1,02. í upphafí
ársins 1986 fór verðið að hækka,
komst í 1,55 í upphafi síðasta árs
og í 2 dali í lok þess. Nú er verðið
1,50. Skýring verðhækkunarinnar
á sínum tíma var meðal annars
aukin fískneyzla í kjölfar upplýs-
inga um hollustu fískáts samfara
minnkandi framboðs vegna slakrar
stöðu dalsins. Nú fer framboð vax-
andi, dalurinn er að styrkjast lítil-
lega, en neyzla minnkandi, enda
verð of hátt. í bandarísku upplýs-
ingabréfi um sölu sjávarafurða
vestra, segir í maíútgáfu að sala
sé hreinlega léleg og fá teikn á lofti
um betri tíð. Sé aðeins reynt að
huga að áhrifum markaðslögmál-
anna á sjávarafurðasöluna, virðist
minnkandi neyzla og aukið framboð
benda til lækkandi verðs. Kanada-
menn bjóða þorskblokkina nú á 1,35
og hafa auk þess lækkað verð á
þorski upp úr sjó vegna lækkandi
afurðaverðs. Færeyingar hafa einn-
ig lækkað þorskverðið til útgerðar,
en Norðmenn segjast munu hætta
að flytja frystan fisk utan vegna
þess hve mikið tap sé á framleiðsl-
unni. Jafnframt krefst fiskiðnaður-
inn þar milljarða íslenzkra króna í
styrki vegna bágrar stöðu.
Offramboð á ferskum
og frystum fiski
Miðað við að verð á þorskflökum
fyrir Bretlandsmarkað sé sett á 100
síðari hluta árs 1983, koma nokkr-
ar verðsveiflur í ljós, allar upp á
við þar til á þessu ári. Á fyrsta
ársfjórðungi 1985 var verðið komið
i 115, fór í 121 í upphafí 1986 og
í 154 í lok þess árs. Það verð hélzt
megnið af síðasta ári, en féll síðasta
fjórðunginn niður í 150. Nú er verð-
ið um 137. Verð á ísfíski seldum
héðan í Bretlandi fór hækkandi frá
árinu 1983 til síðasta árs. 1983 var
verðið að meðaltali 59 pens, 69
árið eftir, næst 77, svo 92, 94 pens
á síðasta ári, en hefur farið lækk-
andi á þessu. Yfírleitt er verðið
hæst yfír vetrarmánuðina en dalar
á milli. Eftir fyrstu fímm mánuði
þessa árs var meðalverðið 90 pens
og fór lækkandi milli mánaða.
Astæða hefur þótt til þess að draga
úr útflutningi á ferskum físki með
opinberri reglugerð til þess að reyna
að hamla gegn frekari verðlækkun.
Fulltrúar frystingarinnar telja að
vaxandi framboð á ferskum físki á
brezku mörkuðunum hafí valdið
verðlækkuninni. Venjulega lækkar
verð með vaxandi framboði og físk-
ur er fískur hvort sem hann er fryst-
ur eða ekki. Ljóst er að framboð
er of mikið, hvort það er að kenna
ferskfískútflytjendum eða frysting-
unni. Skiptar skoðanir hafa verið
um það hvort skili þjóðarbúinu
meiri tekjum ferski eða frysti físk-
urinn, en óyggjandi niðurstöður um
Hvemig sem á því stendur, virðist tæpast borga sig að draga fisk
úr sjó. Tap er sagt á veiðum og vinnslu, afurðaverð lækkar svo
skiptir milljörðum og vaxandi styrkur Bandaríkjadalsins hefur lítið
að segja.
það liggja ekki fyrir, en einnig verð-
ur að taka tillit til verðmætasköpun-
ar í landi og beinna og óbeinna
skatta vegna vinnslunnar. Minnki
framboð ekki, en það er einnig
mikið frá öðrum þjóðum vegna
styrkrar stöðu pundsins, má búast
við enn frekari verðlækkunum.
Vestur-þýzki mark-
aðurinn viðkvæmur
Svipaða sögu er að segja af
helztu mörkuðum okkar í Vestur-
Evrópu. Verð á ufsablokk breyttist
lítið árin 1983 og 1984. Verðið
sveiflaðist talsvert árið 1985, fór
úr 100 (fóst viðmiðun sett á þriðja
ársfjórðung 1983) í 116 og niður í
105. Á síðustu tveimur árum hefur
verðið svo sveiflazt milli 129 í upp-
hafí árins 1986 í 145 í lok sama
árs. Nú er verðið 134 og hefur
ekki verið lægra síðan í upphafí
1986. Mjög svipaða sögu er að segja
af verðþróun á grálúðublokk. Verð
á ferskum fiski í Vestur-Þýzka-
landi, sem er að mestu leyti karfí
var 1,94 mörk árið 1983, 2,08 1984,
2,46 1985, og 2,49 árið 1986. I
fyrra varð það hins vegar 2,16
mörk. Á fyrsta ársfjórðungi þessa
árs var verðið heldur hærra en á
sama tíma síðasta ár, en hefur síðan
verið lægra. Styrk staða marksins
hefur verið hvetjandi til útflutnings
á Þýzkaland, en miklar sveiflur á
framboði, einkum héðan, hafa
reglulega valdið verulegu verðfalli
á markaðnum. Um þessar mundir
er framboð í minna lagi og verð
hátt. Þýzki markaðurinn hefur ver-
ið mun viðkvæmari fyrir sveiflum
á framboði en sá brezki.
Litlar líkur á verð-
hækkun á saltf iski
Verð á saltfíski hefur sveiflazt
eins og verð á öðrum sjávarafurð-
um. Sé meðalverðið í dölum sett á
100 árið 1980, kemur í ljós að
næsta ár hækkaði það um 14%, en
næstu fjögur árin var það fyrir
neðan 100. 1986 fór það í 127 og
178 á síðasta ári. Á þessu ári hefur
verið hins vegar lækkað. Saltfískur-
inn fer að stærstum hluta til Portú-
gals og Spánar og er þar margt,
sem veldur sveiflum á verði. Salt-
fískurinn er seldur til þessara landa
fyrir bandarilqadalidali (innan
ákveðinnar gengiskörfu) og sveiflur
á þeim gjaldmiðli, mikil hækkun á
árunum 1982 til 1985, og lækkun
síðan, ráða miklu um verðið. Það
er bundið ákveðinni gengisj^örfu,
þannig að þegar dalurinn hækkaði
sem mest, lækkaði verð talið í hon-
um nokkuð, en þegar hann lækk-
aði, hækkaði verðið á ný. Sem
dæmi um áhrif þessa má nefna, að
frá 18. maí til 4. júlí hækkaði gengi
dalsins um 5,5%, en á sama tíma
hækkaði skilaverð til framleiðenda
aðeins um 0,5% í íslenzkum krón-
um. Framboð og eftirspum em eft-
ir sem áður ráðandi afl og verð
hefur að nokkru leyti ráðist af sam-
keppni við Norðmenn. Spánn og
Portúgal hafa nú gengið í Evrópu-
bandalagið og tollar þess á saltfisk
hafa þegar haft áhrif til verðlækk-
unar. Eftirspum er lítið minni en í
fyrra, en meira framboð er á Evr-
ópumarkaði, einkum vegna birgða
í Noregi vegna loknur markaðsins
í Brasilíu. Spumingin snýst um það
hvort hvort um frekari verðlækkan-
ir verði að ræða, meðal annars í
formi hækkandi innflutningstolla
EB.
Fiskverð fylgir verðbólgu
fremur en afurðaverði
Erfítt er að nálgast meðalverð á
fiski upp úr sjó hér á landi. Helzta
viðmiðunin er útreiknað verð í fram-
legðarreikningum fískvinnslunnar.
Verð á fískinum er mismunandi
eftir stærð og gæðum og yfírborg-
anir tíðkast víða. Þá er verð á físk-
mörkuðunum yfírleitt hærra en í
öðmm viðskiptum. Meðalverð í
framlegðarreikningum gæti því ver-
ið óraunhæft að því leytinu, að það
sé hvergi greitt. Það gefur engu
að síður glögga mynd af verðþróun,
þegar það er skoðað. í ársbyijun
1982 var þetta meðalverð hjá SH
5,03 krónur og fór ört hækkandi í
mikilli verðbólgu. Það þrefaldaðist
á tveimur ámm og í lok ársins 1985
var það komið í 20,44. Síðan þá
hafa hækkanir ekki verið eins örar,
enda verðbólga minni. í lok ársins
1986 var verðið 25,06 og í lok
3retland þorskur
Fiskverö
Bretland ferskfiskur
83 1984 1985 1986 1987 88
Fiskverð
Saltfiskur í
l
Bandaríkin þorskflök
mzm
83 1984 1985 1986 1987 88
Morgunblaðið/BS
Verðþróun helztu afurðaflokka, sem seldir eru í Bretlandi. Þorsk-
flök með roði í brotinni línu, verð á ferskum fiski í súlum og þors-
kverð hér heima til samanburðar, táknað með skyggða fletinum.
Þróun á verði saltfisks og þorskflaka í Bandaríkjunum. Saltfiskverð-
ið er sýnt með súlum, þorskflakaverðið með brotinni línu og þors-
kverð hér heima með skyggða fletinum.