Morgunblaðið - 09.07.1988, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1988
Hveragerði:
Listmuna-
sýning
vegria vina-
bæjamóts
Hveragerði.
VINABÆJAMÓT hefst í Hvera-
gerði í dag, 9. júlí, og stendur í
tvo daga. Unnið hefur verið
margháttað undirbúningsstarf
síðustu vikur svo allt megi til
takast.
Einn liður í dagskrá mótsins er
sýning á ýmsum munum hagleiks-
manna í Hveragerði og var hún
sett upp í Hótel Ljósbrá og verður
hún opin á opnunartíma hótelsins
frá kl. 8 að morgni og til 22 að
kvöldi.
Sýndir eru margskonar munir.
Sigurður Sólmundarson sýnir
myndverk unnin úr náttúrulegum
eftium.
Ásgarður c/o Erlendur Magnús-
son sýnir minjagripi, sérsmíði og
útskurð. Ingvar Sigurðsson sýnir
minjagripi og olíu- og krítarmyndir.
Kara Jóhannesdóttir hefur ann-
ast blómaskreytingar á sýningunni
og víðar vegna mótsins.
- Sigrún
Kaldurjúní
í Breiðuvík
Morgunblaðið/Sigrún Sigfúsdóttir
Hagleiksmenn í Hveragerði. Frá vinstri Ingvar Sigurðsson, Sigurður
Sólmundarson og Erlendur Magnússon.
Breiðuvik.
ILLA hefur viðrað í júní og þó
sérstaklega seinni hluta mánað-
arins. Trjágróður skemmdist
mikið og gras spratt lítið. Fugla-
varp eyðilagðist i stórum stíl og
gæftir voru með afbrigðum
slæmar.
Júnímánuður var rysjóttur og
kaldur. Sunnan- og suðvestan átt
ríkjandi, úrkomusamt og oft hvass
og úfinn sjór sem um vetur væri.
Tijágróður fór illa víða, visnuðu
tijálauf og dóu. Grasspretta var
mjög hæg, bæði á túnum og í út-
haga og sýnist mér að sjórok hafi
skemmt gróðurinn þar sem vindur
stóð af hafi.
Fuglavarp fór illa. Kríuvarp eyði-
lagðist að mestu, sumir halda að
mávurinn hafí átt nokkum þátt í
að eyðileggja kríuvarpið, að hann
hafí étið undan kríunni. Mávurinn
sást oft í stórum hópum hér á tún-
um og virtist hann vera að leita að
æti. Rituvarpið í kiettunum við sjó-
inn fór illa, því sjórokið sópaði
hreiðrunum undan ritunni, sérstak-
lega neðan til í björgunum.
Lítill afli barst á land í júní,
gæftir slæmar og frekar tregur
afli þá daga sem gaf á sjó.
Nú er hafin bygging fjögurra
sumarhúsa í sumarbústaðahverfínu
við Amarstapa, í viðbót við þau hús
sem ég hef áður getið um í fréttum.
Mikill fjöldi af fólki kom hér á nes-
ið þann 1. og 2. júlí og ók ég með
fólk fyrir Jökul til Ólafsvíkur og
hef ég aldrei séð slíkan fjölda af
bílum á þessari leið. Taldi ég 18
bíla á afleggjaranum sem liggur af
þjóðvegi niður að sjó að fjárrétt sem
er sunnan við Beravík, og einnig
var fjöldi bfla niður við Djúpalón
og á leið þangað. Veður var yndis-
legt þennan dag og kjörið til nátt-
úruskoðunar.
Á þessum slóðum var mikið um
huldufólk í gamla daga, en lítið
hefur orðið vart við það á síðari
áram, þó mun eitthvað af huldu-
fólki hafa þama búsetu enn og
syngja í Söngkletti og Tröllakirkju.
- F.G.L.
Ályktun háskólaráðs:
Reynt verður að hnekkja
embættisathöfn ráðherra
HÁSKÓLARÁÐ samþykkti á
fundi sinum i gær eftirfarandi
ályktun í tilefni af veitingu lekt-
orsstöðu í stjómmálafræði við
félagsvisindadeild og vegna
gagnrýni á málsmeðferð innan
Háskóla íslands. í háskólaráði
sitja háskólarektor, forsetar
allra deilda Háskólans, tveir full-
trúar háskólakennara og fjórir
fulltrúar stúdenta, tveir frá
Vöku og tveir frá Röskvu.
Ályktun háskólaráðs er svohljóð-
andi:
1. Háskólaráð mótmælir harðlega
veitingu menntamálaráðherra á
stöðu lektors í stjómmálafræði
við Félagsvísindadeiid Háskóla
íslands. Með embættisgerð þess-
ari hefur ráðherra brotið frek-
iega á þá meginreglu ftjálsra
háskóla að þar veljist menn til
starfa á grandveili hæfni tii
kennslu og rannsókna á tiiteknu
sérsviði.
2. Háskólaráð vísar á bug ásökun-
um menntamálaráðherra um
vanhæfni og hlutdrægni dóm-
nefndar við mat á umsækjendum
um lektorsstöðu þessa, enda
hefur hann ekki tilgreint neinar
sérstakar vanhæfnisástæður og
ber hann þó sönnunarbyrðina
fyrir staðhæfíngum sínum.
Að beiðni Félagsvísindadeild-
ar var fulltrúi rektorst skipaður
í dómnefndina. hann gegndi þar
hlutverki umboðsmanns, gætti
formsatriða og tryggði að fyllsta
hlutleysis væri gætt við nefhdar-
störf. Þessu hlutverki gegndi
prófessor Jónatan Þórmundsson,
varaforseti háskólaráðs.
3. Menntamálaráðherra feilst ekki
á þá niðurstöðu dómnefndar að
Hannes H. Gissurarson hafí ekki
sýnt hæftii til að kenna undir-
stöðugreinar stjómmálafræði.
Ráðherra telur að doktorspróf i
stjómmálafræði frá Oxford
hljóti að sanna slíka hæfni. Stað-
reyndir málsins era þær að
Hannes H. Gissurarson hefur
ekki stundað formlegt nám í
stjómmálafræði, hann hefur
ekki tekið nein námskeið í þeirri
grein svo að vitað sé og hefur
ekki sýnt með ritstörfum sínum
að hann hafí þá þekkingu á
helstu kenningum og rannsókn-
araðferðum í greininni að hann
teljist hæfur tii kennslu í undir-
stöðugreinum hennar.
Það er ekki óvenjulegt að
menn stundi doktorsnám á sér-
sviði, sem fella má undir fleiri
en eitt fræðasvið. Hliðstætt
dæmi má nefna um afgreiðslu á
stöðu í efnafræði. Meðal um-
sækjenda var efnilegur sérfræð-
ingur með doktorspróf í eðlis-
efnafræði.sem er ein af sérgrein-
um efnafræðinnar. Þessi um-
sækjandi var ekki taiinn hæfur
vegna þess að undstöðumenntun
hans var í eðlisfræði en ekki í
efnafræði.
Undirstöðumenntun Hannes-
ar H. Gissurarsonar er í heim-
speki og sagnfræði en ekki í
stjómmálafræði. Doktorsnám á
tilteknu sérsviði fræðigreinar
tryggir ekki að sá sem hliit eigi
að máli hafi hlotið þá grunn-
menntun í fræðigreininni sem
nauðsynleg er til kennslustarfa
í undirstöðugreinum hennar.,
4. Háskólaráð mótmælir þeim
vinnubrögðum ráðherra að veita
lektorsstöðuna á grandvelli með-
mæla fyrrverandi kennara að-
eins eins umsækjanda. Slíkar
umsagnir era ekki frá hlutlaus-
um aðilum eins og ráðherra gef-
ur í skyn því kennarar leitast
eðlilega við að gera hlut nem-
enda sinna sem mestan. Ráð-
herra hefði getað með rökstuddu
áliti hafnað dómnefndarálitinu
og krafíst þess að ný dómnefnd
yrði skipuð.
5. Háskólaráð mótmælir þeirri til-
raun ráðherra til að hafa áhrif
á kennslu í Háskóla íslands með
þeim hætti að veita stöðuna á
grundvelii sérskoðana eins um-
sækjanda á eðli og hlutverki
stjómmálafræði. Kennslufrelsi
6.
Háskólans hafa ráðherrar virt
allt frá stonun hans þar til nú-
verandi ráðherra gefur út hina
sögulegu greinargerð 30. júní
sl. Það er einsdæmi að ráðherra
gefí út þá yfirlýsingu að kenn-
arastöðu við Háskóla íslands
skuli veita á grandvelli sérskoð-
ana.
Því miður hefur ráðherra kosið
að beita veldi sínu þvert á anda
þeirra laga sem nú era í gildi.
Hefur hann sýnt fádæma hroka
í tilraun sinni til að kúga Háskól-
ann. Hákskólaráð átelur ráð-
herra harðlega fyrir framgöngu
hans í máli þessu. Auk þess sem
þegar er talið hefur hann lítils-
virt Háskólann með því að til-
kjmning um stöðuveitinguna og
bréf til rektors og háskólaráðs
vora fyrst send fjölmiðlum áður
en þau bárast réttum aðilum.
7. Háskólaráð mun láta athuga
lagalega stöðu Háskólans í þessu
máli í því skyni að hnekkja þess-
ari embættisathöfn ráðherra.
Hellufluffvöllur:
Islandsmót
í svifflugi
hefst í dag
ÍSLANDSMÓT í svifflugi hefst á
Hellu-flugvelli i dag, laugardag-
inn 9. júlí. Flugmálafélag íslands
gengst fyrir mótinu og mun það
standa í 9 daga, en þvi lýkur
sunnudaginn 17. júli.
Fimmtán keppendur munu taka
þátt í mótinu, sem verður hið fjöl-
mennasta sem haldið hefur verið
til þessa. Meðal þáttakenda verður
þekktur bandaríksur svifflugmaður,
Tom Knauff, en hann hefur meðal
annars sett heimsmet í svifflugi.
Þetta er í annað sinn sem Tom
Knauff keppir hérlendis.
Móttstjóri verður Baldur Jóns-
son, en auk hans verða í mótstjórn
Tómas Waage, Hólmgeir Guð-
mundsson og Þorgeir Magnússon.
Ráðgjafi mótstjómar verður Guð-
mundur Hafsteinsson veðurfræð-
ingur, en hann hefur sérstaklega
kynnt sér erlendis veðurspár fyrir
svifflug.
Ályktun félagsvísindadeildar:
Niðurlag féll út
ÞAU mistök urðu við vinnslu
Morgunblaðsins í gær að niður-
lag ályktunar deildarfundar
félagsvísindadeildar Háskóla
íslands á blaðsíðu 22 féll út.
Blaðið biðst velvirðingar á þess-
um mistökum og birtir hér lo-
kakaflann, sem út féll:
„Mikil alvara hlýtur að búa að
baki þegar menntamálaráðherra
sakar Háskóla íslands um mis-
brest í starfí og þess verður að
krefjast að ráðherrann hafi gildar
ástæður tii slíkra ásakana og
traust rök fyrir gerðum sínum í
framhaldi af þeim. Ráðherra
byggir hins vegar ásakanir sínar
á afar ótraustum rökum og rang-
færslum, og ekki tekur betra við
er hann réttlætir gerðir sínar í
framhaldi af árásum sínum á
dómnefnd háskólans og félagsví-
sindadeild. Að leita til fyrrverandi
kennara aðeins eins úr hópi um-
sækjendanna og óska eftir um-
sögn um hann er ekki aðeins gróf
móðgun við Háskóla íslands, held-
ur brýtur sá gemingur á réttind-
um og sanngimiskröfum hinna
umsækjendanna.
Ef ráðherrann vantreystir verk-
um dómnefndar háskólans jafn-
mikið og hann gefur í skyn hefði
verið eðlilegra að óska eftir því
við háskólann að ný dómnefnd
yrði skipuð til að fjalla um alla
umsækjendur að nýju. Sú leið sem
menntamálaráðherra hefur nú
valið til að réttlæta skipun í lekt-
orsstöðu í stjórnmálafræði brýtur
gegn öllum hefðum um samskipti
háskólans og ráðuneytisins og
gerir embættisfærslu hans alla
hina tortryggilegustu.
Ef þau vinnubrögð og röksemd-
ir sem menntamálaráðherra hefur
beitt í þessu máli verða grandvöll-
ur embættisveitinga í framtíðinni
þá gætu menntamálaráðherra og
eftirmenn hans á skömmum tíma
eyðilagt faglegan styrk og
vísindalegt sjálfstæði Háskóla ís-
iands. Fara verður 50 ár aftur í
tímann til þess að fínna hliðstæðu
við embættisveitingu Birgis ísleifs
Gunnarssonar en þá mótmæltu
allir prófessorar við háskólann
pólitískri misnotkun kennslumála-
ráðherra á veitingavaldinu. Þeir
sögðu m.a.:
„Vér lítum svo á, að embættis-
veiting sú, sem hér um ræðir, sé
fullkomið og skýlaust brot á
sjálfsákvörðunarrétti háskólans
og mótmælum henni eindregið af
þeim sökum, enda er með henni
skapað fordæmi, sem getur orðið
stóram hættulegt og skaðlegt
háskólanum í framtíðinni.“
Félagsvísindadeild beinir þeim
tilmælum til háskólayfirvalda að
leitað verði allra leiða til að
hnekkja embættisveitingu þessari
og því fordæmi sem hún gæti
skapað í háskólastarfi hér á landi.
Samþykkt á deildarfundi fé-
lagsvísindadeildar 7. júlí 1988.
Þórólfur Þórlindsson, deild-
arforseti félagsvísindadeild-