Morgunblaðið - 09.07.1988, Page 33

Morgunblaðið - 09.07.1988, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1988 33 Morgunblaðið/Bjöm Bjömsson Myndlistarkonurnar Sólveig Baldursdóttir (t.v.) og Ragnheiður Þórs- dóttir við verk sin á sýningunni í Safnahúsi Skagfirðinga. Sauðárkrókur: Myndlistarviðburð- ur í Safnahúsinu Sauðárkróki. NÝLEGA opnuðu fimm ungir myndlistarmenn sýningu á verk- um sínum í Safnahúsinu á Sauð- árkróki. Um er að ræða högg- myndir, vefnað, málverk og teikningar auk módelfatnaðar úr leðri. Stendur sýningin til 10. þessa mánaðar. Þeir myndlistarmenn sem nú sýna verk sín hér á Sauðárkróki eru: Sólveig Baldursdóttir mynd- höggvari, en hún stundaði nám í Myndlista- og handíðaskóla íslands á árunum 1980—81, en síðustu 6 árin hefur Sólveig stundað nám við Akademiuna í Óðinsvéum og í Carr- ara á Ítalíu. Sólveig hefur haldið sýningar á verkum sínum á Ítalíu og í Danmörku, en þetta er hennar fyrsta sýning hér heima. Gréta Sörensen útskrifaðist úr MHÍ textfldeild, árið 1983. Vann á leðurverkstæði á árunum 1983—84, en síðan hefur hún stundað mynd- menntakennslu á Ólafsfirði. Þetta er hennar fyrsta sýning. íris Frið- riksdóttir útskrifaðist úr MHÍ textfldeild 1984 og stundaði fram- Leiðrétting í föstudagsblaðinu urðu mynda- brengl í greininni um Dalasýslu. Myndirnar eru hér birtar aftur með réttum myndatextum. Morgunblað- ið biðst velvirðingar á þessum leiðu mistökum. Þorsteinn Pétursson oddviti í Fellsstrandarhreppi. haldsnám í Maastrict Hollandi 1984—86. Síðan hefur íris unnið að list sinni, og hefur hún áður sýnt verk sín í Stokkhólmi og í Hollandi, en einnig tók hún þátt i samsýningu á Kjarvalsstöðum árið 1985. Ragnheiður Þórsdóttir út- skrifaðist úr MHÍ textfldeild 1984 en fór síðan til Kalifomíu til fram- haldsnáms við John F. Kennedy University á árunum 1984—85. Ragnheiður hélt einkasýningu á Akureyri 1986 og er þetta hennar önnur sýning. Ragnar Stefánsson útskrifaðist einnig árið 1984, úr málaradeild MHI. Stundaði nú síðast framhaldsnám í New York og hefur tekið þátt í allmörgum samsýningum hér heima. Þykir Skagfirðingum allnokkur fengur að þessari sýningu og sér- staklega fyrir það að hún er haldin á þeim tíma sem sjaldan er listvið- burða von hér, þá ekki síður fyrir þá sök að þrír af hinum fimm ungu myndlistarmönnum eru Skagfírð- ingar og sýna nú á heimaslóðum, en síðast en ekki síst af því að sýn- ingin er góð, hér eru á ferðinni þróttmiklir ungir myndlistarmenn, sem mikils má vænta af í framtíð- inni. — BB Jósefsdalur: Torfæru- keppni á sunnudag ÞRIÐJA keppnin sem gefur stig til Islandsmeistarakeppninnar i torfæruakstri verður haldin við Jósefsdal nærri Bláfjöllum á sunnudaginn. Verður það í fyrsta skipti sem haldin er torfæru- keppni á þessu svæði, sem er í grennd við Gömlu kaffistofuna svokölluðu. Verða allir helstu ökumennirnir sem beijast um íslandsmeistaratitilinn meðal keppenda. Sjö jeppar eru skráðir 'í flokk sérútbúinna jeppa, en ellefu í flokk óbreyttra. Keppt verður bæði í klif- urþrautum og tímabrautum, sem oftast ráða úrslitum í torfæru. Reykvíkingurinn Haraldur Ásgeirs- son á. Jeepster-jeppa hefur forystu í íslandsmeistarakeppninni, en meðal andstæðinga hans verða Bergþór Guðjónsson frá Hvolsvelli og Guðbjöm Grímsson úr Reykjavík, en þessir kappar börðust grimmt í sfðustu keppni. 'O INNLENT Stuðmennirnir Jakob Magnússon, Ragnhildur Gísladóttir og Egill Ólafsson verða i hópi þeirra skemmtikrafta sem fram koma á Atlavíkurhátíðinni. Verslunarmannahelgin: Stuðmenn, Bubbi og Strax í Atlavík LEYFI hefur nú fengist fyrir útihátíð í Atlavík um verslunar- Eden: Málverk ogpostulín MÁLVERKA- og postulínssýning Ríkeyjar Ingimundardóttur, myndhöggvara, stendur nú yfir í Eden í Hveragerði. Á sýningunni em 38 verk, postu- línsmyndir og málverk. Ríkey út- skrifaðist úr Myndlista- og handíða- skóla íslands vorið 1983. Hún hefur einnig stundað keramíknám við sama skóla. Þetta er 8. einkasýning Ríkeyjar. Sýning stendur til 11. júlí. Eitt málverkanna á sýningunni. mannahelgina. Það er Ung- menna og íþróttasamband Aust- urlands sem stendur fyrir hátíð- inni og meðal skemmtikrafta verða Bubbi Morthens og hljóm- sveitirnar Stuðmenn og Strax. Vegna hertra reglna um útihátíð- ir á gróðursælum stöðum, svo sem í Hallormstaðaskógi, vom lengi vel áhöld um hvort leyfi fengist fyrir stórhátíð í Atlavík á þessu sumri. Það leyfi hefur nú fengist. Auk þeirra landskunnu hljómlistar- manna sem áður em nefndir munu ýmsir fleiri skemmtikraftar koma fram á hátíðinni. í þessu sambandi má nefna að Stuðmenn hafa ekkert verið á ferðinni það sem af er árinu og er ekki að efa að aðdáendur þeirra munu nú fagna óvæntri end- urkomu þeirra félaga í Atlavík um verslunarmannahelgina. Kristján Sæmundsson hrepps- stjóri í Saurbæjarhreppi. Stúdentaráð: Nemendur eiga kröfu á að fá hæfustu kennara STÚDENTARÁÐ Háskóla íslands kom saman til fundar á fimmtu- dagskvöld og samþykkti eftirfarandi ályktun vegna skipunar Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar i stöðu lektors í stjórnmála- fræði við félagsvísindadeild: SHÍ mótmælir harðlega vinnu- brögðum menntamálaráðherra við skipun í lektorsstöðu í stjóm- málafræði hinn 30. júní sl. Með þeirri ráðstöfun teiur SHÍ ráð- herra hafa vegið að því faglega sjálfstæði sem Háskóli íslands hefur og ber að hafa í eigin mál- um. SHÍ minnir ennfremur á mikil- vægi þess að fagleg sjónarmið grundvalli stöðuveitingar við Há- skólann sem og annars staðar. Stúdentar eiga kröfu á, að til skólans séu ávallt ráðnir hæfustu menn sem völ er á hvetju sinni. SHÍ telur, með skírskotun til dóm- nefndarálits, að svo hafi ekki ver- ið með fyrmefndri skipun í lekt- orsstöðu í stjómmálafræði þar eð niðurstaðan „hæfur að hluta" er ekki fullnægjandi þegar kostur var á tveimur hæfum mönnum. SHÍ lýsir yfír fullu trausti til forráðamanna félagsvísindadeild- ar og treystir því að dómnefnd hafi verið skipuð hæfum mönnum og niðurstöðum hennar megi treysta. SHÍ beinir þeim eindregnu til- mælum til menntamálaráðherra að vinnubrögð sem þessi verði ekki að fordæmi við stöðuveiting- ar í framtíðinni. Slík þróun væri mjög óæskileg og jafnvel lamandi fyrir Háskólann sem sjálfstæða vísinda- og menntastofnun. SHÍ tekur undir áskomn opins fundar stjómmálafæðinema ,og deildarfundar félagsvísindadeild- ar, að staða lektors í stjórnmála- fræði verði skipuð hæfum manni. Afstaða SHÍ byggir á eftirfar- andi rökum: í lögum og reglugerð um Há- skóla Islands er víða að finna ákvæði sem tryggja eiga íhlutun- arrétt Háskólans í eigin málum, m.a. við veitingu dósents- og próf- essorsembætta. Er það lagaskylda að skipa beri dómnefndir og má eigi veita embætti nema meiri- hluti nefndar telji umsækjanda hæfan, skv. 11. gr. laganna. Með ákvæðum sem þessum er greini- legt að ætlun löggjafans er að tryggja ákveðið faglegt sjálfstæði Háskólans. Ennfremur beinir SHÍ þeim til- mælum til ráðherra að stöðuveit- ingavald við Háskólann verði með lagabreytingu fært til háskólaráðs en vald ráðherra einskorðað við formlega staðfestingu þeirrar ákvörðunar. Löngu er viðurkennt að full þörf væri á að sambærilegar regl- ur giltu við ráðningu í lektorsstöð- ur, enda var reglugerð breytt á þann veg sl. sumar. Dómnefndir hafa gjaman verið skipaðar af deildum til að meta hæfni um- sækjenda er lektorsstöður eru auglýstar, til að undirstrika að fagleg sjónarmið grundvalli með- mæli deildar með umsækjanda. Reglur á borð við hina fyrr- greindu eru eðlilegar og æskileg- ar, end«i er Háskólinn æðsta menntastofnun þjóðarinnar — þar er hina faglegu þekkingu að fínna, en ekki í menntamálaráðuneytinu. Ganga verður út frá því að við Háskólann starfí fremstu fræði- menn þjóðarinnar hveiju sinni. Mat þeirra manna á því hveijir teljist hæfir til að stunda þar kennslu og rannsóknir hlýtur að verða að leggja til grundvallar við stöðuveitingar. Mat annarra fræðimanna er því óviðkomandi og sé farið að því, þvert gegn mati fræðimanna Háskólans, hlýt- ur það að teljast vantraust á þá menn og móðgun við Háskóla ís- lands ög þá sem þar starfa. Enn- fremur hlýtur það að teljast aðför að þvi sjálfstæði er skólanum er sérstaklega tryggt með Háskóla- logunum. Ráðherra hefur vissu- lega hið endanlega veitingarvald, en væntanlega til að velja úr hópi þeirra er hæfir teljast af deild eða dómnefnd sé hún skipuð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.