Morgunblaðið - 09.07.1988, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1988
45
Frystitogararnir:
Fisldnimi er tæplega hent
frá borði í miklum mæli
- kannski verður „einn uggi að
mörgum fiskum“, segir Þórður
Árelíusson, veiðaeftirlitsmaður
„ÉG TEL að ekki sé mikið um það, að fiski sé hent frá borði
á frystitogurunum. Það fer reyndar alveg eftir skipstjórunum;
að þeir hafi þolinmæði í mikilli veiði til að stöðva veiðar, ef
vinnslan hefur ekki undan. Einnig að menn freystist ekki til
að rýma fyrir dýrari fiski, með því að ryðja ódýrari fiski út.
Ég held að langflestir skipstjórar hafi það í heiðri að fiski sé
ekki hent og gæðin séu ávallt sem mest, enda er afkoma áhafna
frystitogara undir því komin að hátt verð haldist fyrir góðan
fisk. Skip fá fljótlega á sig óorð, ef illa er farið með fisk og
undir sliku óorði vilja sómakærir skipstjórar ekki liggja, enda
getur einn uggi fljótt orðið að mörgum fiskum, þegar sagan
breiðist út. Áríðandi er að skip, sem vinna aflann um borð, séu
útbúin til að vinna allar tegundir, svo ekki þurfi að henda fiski
af illri nauðsyn,“ sagði Þórður Árelíusson, veiðaeftirlitsmaður,
í samtali við Morgunblaðið.
Akureyrin og Oddeyrin, tvö af frystiskipum Akureyringa
Úr vinnslusal Frera RE
Nokkuð hefur borið á fullyrð-
ingum þess efnis að frystitogar-
arnir hendi miklu af fiski í sjóinn.
Veiðaeftirlitsmenn hafa í auknum
mæli farið í veiðiferðir með frysti-
togurunum og verður svo áfram
eftir nokkurt hlé vegna grálúðu-
veiða togaranna. Morgunblaðið
hafði vegna þessa samband við
Þórð Árelíusson, veiðaeftirlits-
mann, en hann fór fyrir nokkru
í veiðiferð með frystitogaranum
Örvari frá Skagaströnd. Þórður
sagði, að hann teldi ekki að fiski
væri í teljandi mæli hent frá borði
þessara togara. Þeir fengju til
dæmis 40 til 50 krónur fyrir heil-
frystan smáþorsk með haus og
það gæfi tæpast tilefni til þess
að henda honum. Nægur tími
ætti að vera til að handflaka þá
fáu fiska, sem væru yfír 90 sent-
ímetrar á lengd, svo litlar líkur
væru á því að honum væri hent.
Hins vegar gæti það verið að skip-
stjórar gættu þess ekki nægilega
að vinnslan hefði undan veiðunum
og eitthvað af fiski væri óunnið,
þegar næsta hal væri tekið. Þá
gæti verið að fiskinum úr fyrra
halinu yrði hent. Einnig gæti ver-
ið að ódýrari fiskur eins og ufsi
viki fyrir þorski. Þá mætti geta
þess, að allur smáfiskur, sem
væri hausaður og frystur um borð,
teldist til aflakvóta til að koma í
veg fyrir að menn færu í kringum
stærðarmörkin.
Þórður sagði, að hann þekkti
aðeins til um borð í Örvari og þar
væri allt til fyrirmyndar. „Mér
fannst á þeim, að þeir tækju nærri
sér ásakanir um að þeir hentu
fískinum og þætti ómaklega að
sér vegið,“ sagði Þórður. Hann
sagði að mjög ör þróun hefði ver-
ið í útgerð frystitogara. Örvar
hefði byijað fyrstur fyrir rúmum
6 árum og hinir fylgt í kjölfarið.
Líklega yrðu þeir orðnir 19 um
áramótin. Um borð í þessum skip-
um væri vaxandi áherzla lögð á
góðan aðbúnað og mikið hugsað
um að fræða mannskapinn um
vinnsluna og markaðinn, sem fisk-
urinn færi á. Hann hefði til dæm-
is hitt marga vana sjómenn, sem
segðust hafa lært margt, sem
þeir ekki vissu áður, á námskeið-
um fyrir áhafnir frystihogara.
Þórður fór í þessa veiðiferð að
beiðni sjávarútvegsráðuneytisins
til að kynnast vinnubrögðum,
vinnslu og nýtni á físki um borð
í frystitogara auk venjubundinna
eftirlits- og mælingastarfa á mið-
unum. Hann lýsir nokkuð ná-
kvæmlega gangi mála um borð
og aðstöðu til veiða og vinnslu.
Þá fjailar hann sérstaklega um
vinnslu helztu fisktegunda. í
skýrslu sinni um túrinn segir hann
meðal annar svo:
„Eftir að hafa fylgzt með karfa-
vinnslunni um borð í Örvari er ég
fullviss um að betri nýtingu og
nýtni er vart hægt að fram-
kvæma, því nánast allur sá karfi,
sem kom í móttökuna, var unninn
til frystingar....
Ufsinn er unninn fyrir Bret-
landsmarkað. Hann er flokkaður
strax við blóðgun eftir stærð og
meðhöndlaður líkt og þorskurinn
við hausingu, flökun og pakkn-
ingu. Flökin eru flokkuð eftir
stærð í þijár pakkningar. Stór
ufsi er handflakaður, en sé þess
þörf, er um að ræða ufsa sem er
yfir 90 sentimetra stór. Þessi stóri
ufsi, sem ekki veiddist í miklu
magni í ferðinni, var handflakaður
jafnóðum, en ekki var um að ræða
það mikið, að það tefði fyrir...
Ýsan er öll unnin í flök á Bret-
landsmarkað. Hún er hausuð og
fer þaðan í flökunarvélina, sem
flakar allar ýsumar, allt frá grað-
ýsu niður í kóð. Nýtnin er því
mjög góð...
Langa, keila, steinbítur, lúða
og skötuselur voru með í afla, en
í mjög litlum mæli. Langan, keilan
og steinbíturinn voru hausskorin
og heilfryst, nema ef svo lítið
fékkst af þessum tegundum að
ekki næðist í pakka í nokkrum
hölym. Lúðan, stærsta langan,
skötuselur og stór karfí (aldamó-
takarfi) voru stt niður í lest og
látin ftjósa þar til vinnslu í landi...
Allur þorskur var flakaður með
roði á Bretlandsmarkað, nema
fískur undir 50 sentímetrar. Hann
er slægður strax og heilfrystur
með haus. Stór þorskur, stærri
en 90 sentímetrarer handflakaður
vegna hættu á að hann skemmi
hnífa í hausingarvél og einnig
flakast hann ekki nógu vel í flök-
unarvélinni. Hann er flokkaður
frá við blóðgun og flakaður strax
eftir blóðgun.
Alltaf er bytjað á að blóðga
fískinn strax eftir að hann er
kominn í móttökuna og þegar
mjög stór höl eru tekin, kemur
öll áhöfnin í það verk til að fiskur-
inn missi ekki gildi sitt sem hrá-
efni. Að öðru leyti er frívaktinni
skipt í þrennt, þannig að þrír
menn vinna í einu þtjá tíma í senn
við að losa úr frystitækjum og
setja blokkirnar í kassa. Þannig
fá allir að minnsta kosti 6 tíma
heila vakt í hvíld á sólarhring.
Ekki get ég látið mörg orð falla
um hringorminn, því ekki var það
mikið af honum að það seinkaði
fyrir vinnslunni. Að sögn áhafnar
dregur hann stórlega úr afköst-
um, ef hann er fyrir hendi af ein-
hvetju ráði og hefur komið fyrir
að þurft hefur að yfirgefa veiði-
svæði, þar sem hringormur var í
fiski í miklum mæli.
Alls tók veiðiferðin átján og
hálfan sólarhring. Veitt var á
karfamiðum vestur af Reykjanesi
í tíu sólarhringa. Á Norðurland-
smiðum við þorskveiðar var verið
í sex og hálfan sólarhring. f sigl-
ingu, frágang frá afla eftir að
veiðum lauk, þrif og fleira fóru
tveir sólarhringar. Samtals öfluð-
ust í veiðiferðinni 483,2 tonn upp
úr sjó, þar af 306,5 tonn af ós-
lægðum þorski. Aflaverðmæti
áætlað um 28,3 milljónir króna,
sem er að meðaltali um ein og
hálf milljón á úthaldsdag.
Hlé var gert á veiðum í sam-
tals 31 klukkustund, þegar sýnt
var að vinnslan hefði ekki undan.
10 tíma tók að vinna upp aflann
eftir að veiðum var hætt. Lengst
beið fískur í 10 tíma úr sama
hali eftir því að hann væri tekinn
til vinnslu og liðu 16 til 17 tímar
þangað til síðasti fískurinn úr
þessu hali fór í vinnslu. Algeng
afköst voru um 50 tonn á sólar-
hring af óslægðum fiski.
Af ofansögðu sést að afköstin
um borð í Orvari eru mikil og
umhyggja fyrir því, að fiskur sé
ávallt nýr og góður, þegar hann
er unninn. Þarna hjálpast allt að,
myndarlega rekið skip af útgerð,
sem ekki líður fyrir peningaleysi,
stjórnsamir yfírmenn og velþjálf-
uð og hörkudugleg áhöfn. Áfla-
brögðin í veiðiferðinni voru eins
og þau gerast albezt og þá reynir
á þolrif skipstjórans að kasta ekki
aftur, ef kominn er það mikill
afli að hætta er á að hann bíði
vinnslu of lengi. Græðgin verður
að víkja fyrir skynseminni. Hugs-
unin um tonnafjölda gildir ekki á
frystitogara, heldur verðmæti
vinnslunnar og að markaðurinn
fái allt af fisk í sem hæstum
gæðaflokki."
laugardaga
8QP-I8QP
sunnudaga
IIQP-I8QP
ÁTAKILANDGRÆÐSLU
LAUGAVEGI120.105 REYKJAVlK
SiMI. (91)29711
Hlaupareiknlngur 261200
BúnaAarbanklnn Hellu
•O c
s-s
o‘—