Morgunblaðið - 29.07.1988, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 1988
9
Þýsk bók um verk
uimin í íslenskum ám
SNEMMA á þessu ári kom út bók
í Diisseldorf í Vestur-Þýskalandi
er nefnist Naturaquarelle Island
1987 og segir frá ferð þýska
listamannsins Mario Reis í kring-
um ísland í fyrrasumar og sér-
stæðum athöfnum hans í náttú-
runni. Utgáfa bókar þessarar
vakti strax athygli og forsíða
eins virtasta listatimarits heims,
„Kunstforum" er tileinkuð bók-
inni. Texta í bók listamannsins
rita þeir Bragi Ásgeirssonm list-
málari og Dr. Lutz Tittel og eru
þeir á ensku, þýsku og íslensku.
Þegar Mario Reis var staddur
hér á landi ritaði Bragi Ásgeirsson
grein um list hans í Morgunblaðið.
I grein Braga segir: „Maðurinn
vinnur í vatnslitum, ekki þessum
eiginlegu og sígildu, sem fást í
verslunum, heldur þeim einu uppr-
unalegu, sem felast í vatninu sjálfu.
Hann lætur einfaldlega árnar búa
til myndirnar fyrir sig. Leggur
ramma, sem bómullardúkur er
strengdur á, í árnar sem á vegi
hans verða, og lætur liggja þar í
ákveðinn tíma. Árnar bera með sér
mismunandi jarðveg, sem dúkurinn
drekkur í sig, og þær eru mismun-
andi straumþungar, sem kemur
fram í mismunandi tilbrigðum og
Eitt verka Mario Reis í vinnslu í
Botnsá.
þannig nær hann fram í senn mis-
munandi áferð, lit- sem tilbrigði í
dúkinn. Þannig fékk hann brúnan
lit á Austfjörðum, en úr jökulám
nær svört tilbrigði."
Mario Reis skilgreindi feril mynd-
sköpunar sinnar í París 1977 á eftir-
farandi hátt: „Vatnið vinnur á dúk-
inn, drekkur dúkinn, flytur dúkinn,
umkringir dúkinn, þrengir sér i
dúkinn, ber dúkinn, þrýstir á dúk-
inn, snertir dúkinn, lemur dúkinn,
hvirflar dúknum, hylur dúkinn,
sameinast dúknum, breytir dúkn-
um. °g gefur dúknum hluta af eðli
sínu.“
SVIÐGERÐAR- OG
VATNSÞÉTTINGAR-
EFNI SEM GERA
MEIRA EN AÐ DUGA
THORITE
Framúrskarandí viðgerðar-
efni fyrir steypugalla.
Þannig sparar það bæði
tíma og fyrirhöfn við móta-
uppslátt ofl. Thorite er til-
valið til viðgerða á rennum of'.
ACRYL60 J
Eftir blöndun hefur efnið
tvöfaldan þenslueiginleika,
tvöfaldan þrýstieiginleika,
þrefaldan sveigjanleika og
áttfalda viðloðun miðað við
venjulega steypu.
WATERPLUG
Sementsefni sem stöðvar
rennandi vatn. Þenst út við
hörnun og rýrnar ekki.
Þetta efni er talið alger bylt-
ing.
THOROGRIP
Thorogrip er sementsefni,
rýrnar ekki, fljótharðnandi.
Þenst út við þornun og er
ætlað til að festa ýmsa
málmhluti í stein og stein-
steypu.
RR BYGGINGAVÖBUR HE
Suðurlandsbraut 4, S(mi 33331 og Nethyl 2, Ártúnsholti, Slmi 671440
Tíminn
MÁLSVARl FRJÁLSLYNWS, SAMVWNU 0G FÉLAGSHYGGJU
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn oa_
CramcAl" - "
Vinsælir foringjar
Framsóknarmenn vita að þeir hafa á að skipa
mikilhæfum forystumönnum, þeim Steingrími
Hermannssyni og Halldóri Ásgrímssyni. Fað eru því
Foringjarnir
í Tímanum í gær birtist lofræða um „foringj-
ana“ sem hefði sómað sér vel í hvaða norð-
ur-kóreska dagblaði sem er. Greinin fjallaði
þó ekki um Kim II Sung heldur formann og
varaformann Framsóknarflokksins. í Stak-
steinum í dag eru birtar glefsur úr þessari
þakkargjörð auk þess sem litið er á svör
þeirra Markúsar Arnar Antonssonar og Jóns
Óttars Ragnarssonar um hvernig best sé
að bregðast við aukinni samkeppni íslenskra
sjónvarpsstöðva við erlent sjónvarpsefni
gegnum gervihnött.
Erlend sam-
keppni
Þeir Markús Om Ant-
onsson, útvarpsstjóri, og
Jón Óttar Ragnarsson,
sjónvarpsstjóri Stöðvar
2, svara í Alþýðublaðinu
í gær hvemig þeir teþ'i
að íslensku Ijósvakafjöl-
miðlamir eigi að bregð-
ast við samkeppni við
erlendar sjónvarpsstöðv-
ar, en þeim erlendu
stöðvum fjölgar nú dag
frá degi sem hægt er að
ná útsendingum frá inn
á íslensk heimili með að-
stoð móttökudisks.
í svari sínu segir Jón
Óttar Ragnarsson meðal
annars: „Gervihnattar-
sjónvarp er vara sem
ekki selur sig sjálfa hér,
því íslendingar vilja hafa
texta við sjónvarpsefni
sitt, reynslan af mynd-
bandaleigum sannar
þetta. Þess vegna verða
þessar gervihnattarsend-
ingar aldrei mjög vinsæl-
ar hér. Koma erlendra
sjónvarpsstöðva verður
einungis krydd í graut-
inn en aldrei uppistaða í
íslenskri sjónvarpshorf-
un. Okkar svar er að
hafa nýrra og betra efni
og auka síðan jafnt og
þétt innlenda dagskrár-
gerð.“
Fólkvill
íslenskt efni
Forstöðumaður
Ríkisútvarpsins, Markús
Óm Antonsson segir í
viðtali við Alþýðublaðið:
„Við teljum eðlilegustu
og um leið einu réttu við-
brögðin við þessu að stór-
auka innlenda dagskrár-
gerð, að meira verði
framleitt af islensku
sjónvarpsefni til mót-
vægis við þetta [erlenda
efni]. Viðbrögð fólks í
þeim löndum sem þegar
hafa gervihnattarsjón-
varp inni á hveiju heim-
ili sýna að það vill fyrst
og fremst horfa á sitt
eigið sjónvarp, á efni sem
stendur því næst.
Við viljum sjá hlut inn-
lends efnis aukast vem-
lega í sjónvarpinu og
lögðum fram tillögu fyrir
fjárlög næsta árs sem
felur í sér að hlutur inn-
lendrar dagskrár færi í
42% á næsta ári og i 50%
á árinu 1990. Það er hins
vegar spuming hvað
hægt er að spenna bog-
ann hátt í svo fámennu
þjóðfélagi. Við getum
ekki borið aðstöðu okkar
saman við til dæmis BBC,
það yrði dýrt fyrir hinn
almenna notanda. En
markmiðið hlýtur að
vera að auka innlenda
dagskrárgerð til mót-
vægis við erlent efni.“
Morgunblaðið hefur
margsinnis vakið athygli
á þeirn hættum er smá-
þjóð stafar af erlendum
menningaráhrifum sem
steypast yfir í kjölfar
aukinnar alþjóðlegrar
fjölmiðlunar. Otextaðar
útsendingar i gegnum
gervihnött em hluti af
þeirri hættu.
Það er þvi fagnaðar-
efni að þeir Markús Óm
Antonsson og Jón Óttar
Ragnarsson leggja báðir
ríka áherslu á að þessari
nýju samkeppni verði að
mæta með auknu
íslensku efni. En ef við
ætlum okkur að sigra þá
sjálfstæðisbaráttu sem
við nú stöndum frammi
fyrir gæti reynst nauð-
synlegt að ganga skrefi
lengra en að auka hlut-
fall innlendrar dagskrár-
gerðar og texta allt er-
lent efni. Það sjónarmið
skal þvi itrekað af hálfu
Morgunblaðsins að at-
huga beri í fullri alvöru
möguleikami á þvi að láta
íslenska leikara tala inn
á erlent sjónvarpsefni
almennt.
„Vinsælir for-
ingjar“
Framsóknarmenn
hafa að undanfömu
gerst undarlega likir
Norður-Kóreumönnum i
háttalagi, en þar i-landi
hefur sú list þróast einna
lengst, að dásama lands-
föðurinn eða „foringj-
ann“ i ræðu og riti. Gott
dæmi um þetta er skóg-
ræktarferð sem ungir
framsóknarmenn
skmppu i en hápunktur
þeirrar ferðar var gróð-
ursetning hrislu til heið-
urs leiðtoganum er hlaut
nafnið „Foringjatréð".
Annað dæmi mátti sjá i
Txmanum í gær i forystu-
grein er bar yfirskriftina
„Vinsælir foringjar". Var
þar visað til þeirra
Steingríms Hermansson-
ar og Halldórs Ásgrims-
sonar.
Timinn segir i forystu-
greininni að orsak vin-
sælda þeirra Steingríms
og Halldórs „sé að leita
í forystumönnunum
sjálfum — manngerðinni
— og þeirri framkomu
sem þeim er eðlileg á
hinu pólitíska sviði.“
Tíminn heldur siðan
áfram i látlausum dúr að
prisa kosti „foringj-
anna“:
„Steingrimur Her-
mannsson sagði sjálfur i
sjónvarpsviðtali ... að
honum þætti vænt um
fólk og þá leið um þjóð-
ina alla. Slíkur þanka-
gangur hlýtur að vera
mildlsvert veganesti fyr-
ir mann, sem lagt hefur
út á ólgusjó stjómmál-
anna. Fólk finnur að
hann varðar um hag þess
og vill láta eins gott af
sér leiða og aðstæður
leyfa. Þetta sjónarmið
kemur undanbragðalaust
fram við öll tækifæri.
Sjónarmiðið er ekki til-
gerð sljómmálamanns,
sem vill koma sér vel.
Steingrimur talar af ein-
lægni um stjómmál og
segir hveiju sinni það
sem honum býr i brjósti
og hefur reyndar hlotið
marga skrokkskjóðu fyr-
ir hjá andstæðingum."
Að þessu loknu snýr
Tíminn sér að persónu
Haildórs Ásgrímssonar:
„Hjá Halidóri Ásgríms-
syni skin traustleikinn af
hveiju verki sem hann
vinnur. Eins og
Steingrimur vill hann
fólki og þjóð vel og vinn-
ur henni það gagn sem
hann má. Afstaða hans i
viðkvæmum deilumálum
byginr á þrauthugsuðum
grunni, þar sem 'miðað
er að þvi að ná sem best-
um árangri, standa fast
við orð og gerðir og
bregðast hvergi í þvi sem
honum hefur verið trúað
fyrir.“
Nánari upplýsingar fást hjá Verðbréfaviðskipt-
um, Laugavegi 7 og hjá verðbréfadeildum í
útibúum bankans um land allt.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Bankabréf Landsbankans eru gefin út af Landsbankanum og aðeins seld
þar. Bankabréf eru verðtryggð miðað við lánskjaravísitölu og árs-
ávöxtun er nú 9,75% umfram verðtryggingu. Endursölutrygging
bankans tryggir ávallt örugga endursölu. Bankabréf Lands-
bankans eru eingreiðslubréf, til allt að fimm ára, og eru
seld í 50.000,-, 100.000,- og 500.000,- króna einingum.
Gjaldfallin bankabréf bera almenna sparisjóðsvexti
þar til greiðslu er vitjað.