Morgunblaðið - 29.07.1988, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 1988
Garðar Gíslason f s-
landsmeístarí í svifflugi
ÍSLANDSMÓT í svifflugi 1988 var haldið á Helluflugvelli
dagana 9.—17. júlí. Slík mót eru haldin annað hvert ár.
Að þessu sinni voru keppendur 15 talsins en oftast áður
hafa þeir ekki verið nema 8—11 talsins. Meðal keppenda
var heimsfrægur bandarískur svifflugmaður, Tom Knauff,
en hann keppti hér einnig árið 1984.
Morgunblaðið/Bergþóra Garðarsdóttir
íslandsmeistarinn, Garðar Gíslason, og kona hans, Nína Kristjáns-
dóttir.
Keppendur og fjölskyldur þeirra
ásamt aðstoðarmönnum keppenda
komu sér fyrir á Helluflugvelli í
tjaldbúðum og hjólhýsum á föstu-
deginum 8. júlí. Hver keppandi
þarf með sér minnst einn og ekki
meira en 3 aðstoðarmenn. Má því
ætla að alls hafi verið 60—70
manns samankomnir á Helluflug-
vellj mótsdagana.
Á laugardeginum 9. júlí setti
formaður svifflugdeildar Flugmála-
félags íslands, Garðar Gíslason,
íslandsmót í svifflugi 1988. Bauð
hann keppendur og mótsgesti vel-
komna og hvatti keppendur til að
sýna gætni og forsjá í keppninni.
Fól hann síðan Baldri Jónssyni
stjóm mótsins en hann er eini ís-
lendingurinn sem lokið hefur svif-
flugs-afreksstiginu Gull-C, flognu
á Islandi. Honum til aðstoðar voru
þeir Hólmgeir Guðmundsson og
Tómas Waage. Veðurfræðingur
mótsins var Guðmundur Hafsteins-
son en hann hefur sérstaklega sótt
nám erlendis í veðurspám fyrir svif-
flug.
Til að draga svifflugumar á loft
voru notaðar 3 flugvélar samtímis:
TF-TUG, Piper Pawnec 235 hest-
afla, flugmaður Marvin Friðriks-
son, flugvélstjóri, TF-TOG, Cessna
Birddog (C305A) 213 hestöfl, flug-
menn Gunnar Arthursson, flug-
stjóri, og Sigurður Benediktsson,
verkfræðingur, TF-RVK, Cessna
172 HX Hawk 195 hestöfl, flug-
maður Karl ísleifsson, forstjóri.
Fyrsta mótsdaginn var veður
óhagstætt til flugs og var keppni
aflýst.
Annar dagur mótsins: Veðurútlit
Námskeið
fyrir for-
eldra fatl-
aðrabama
NÁMSKEIÐ fyrir foreldra og
aðstaðdendur fatlaðra barna
verða haldin í Reykjadal í Mos-
fellssveit í september og október
nk. Námskeiðin eru tvö, hið fyrra
er fyrir foreldra unglinga, en
hið síðara fyrir foreldra barna á
forskólaaldri og fyrstu skólaár-
in. Hámarksþátttaka foreldra er
15.
Það em félögin Þroskahjálp,
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra,
Styrktarfélag vangefinna og Sjálfs-
björg landssamband fatlaðra, sem
standa fýrir námskeiðunum. Haldin
verða tvö helgamámskeið, frá
24.-25. september fyrir foreldra
unglinga og 29.-30. október fyrir
foreldra bama á forskólaaldri og
fyrstu skólaárin.
Ekki er gert ráð fýrir bama-
gæslu á þessum námskeiðum, eins
og verið hefur á fyrri námskeiðum,
og er reiknað með því að foreldrar
sofí á staðnum. Hámarksfjöldi þátt-
takenda er 15 foreldrar. Gert er ráð
fyrir 3-4 foreldmm utan af landi
og er þeim greiddur ferðakostnað-
ur, að því er segir í fréttatilkynn-
ingu frá félögunum.
Fyrirlesarar á báðum námskeið-
iunum verða læknir, sálfræðingur,
félagsráðgjafi og foreldri, ekki þó
þeir sömu á báðum námskeiðunum.
Allar nánari upplýsingar veitir
Kristín Jónsdóttir, þroskafjálfi og
framkvæmdastjóri námskeiðanna,
sem jafnframt sér um innritun.
var lélegt en fór batnandi. Var þá
lagt verkefnið Hella/Geysir í
Haukadal/Hella, en það er samtals
106,5 km. Aðeins einn keppandi,
Magnús Ingi Óskarsson, náði að
fljúga lágmarksvegalengd en til
þess að keppnisdagur teljist gildur
þurfa að minnsta kosti 3 keppendur
að fljúga lágmarksvegalengd. Aðrir
keppendur flugu aðeins heima við
og lentu allir á Hellu. Síðdegis þenn-
an dag brast á með þmmum og
eldingum og fór þá rafmagn og sími
af á Helluflugvelli. En öryggis
vegna hafði mótsstjóm tiltækar
varafjarskiptastöðvar, sem komu
sér vel við þessar aðstæður.
Þriðji mótsdagur: Þá var lagt
verkefnið Hella/Rauðnesstaðir (NA
við Þríhyming)/Skálholt (í Bisk-
upstungum)/Hella. Vegalengd 104
km. Aðeins einn keppandi, Garðar
Gíslason, náði að fljúga lágmarks-
vegalengd. Flaug hann Hella/Rauð-
nefsstaðir, en lenti síðan aftur á
Hellu, þar sem sýnt þótti að aðrir
keppendur næðu ekki að gera gild
flug. Svifflugskilyrði vom ekki góð
þennan dag.
Fjórði dagur: Hvern líklegan
keppnisdag árla morguns er farið
veðurathugunarflug á vélflugu, bú-
inni tækjum til að mæla þurrt og
rakt hitastig lofthúpsins, svipað og
er gert frá Keflavíkurflugvelli dag
hvem. Út frá niðurstöðum mælinga
þessara getur veðurfræðingur
mótsins spáð með nokkm öryggi
hæð skýjabotna og styrk upp-
streymis (THERMIC). Svifflug-
menn hafa mjög góða reynslu af
svifflugspám Guðmundar Haf-
steinssonar, veðurfræðings. Ljóst
er að veðurfræðingur _er ómissandi
aðili á stórmóti sem íslandsmóti í
svifflugi. í samræmi við veðurspá
Guðmundar var lagt svokallað
POST-flugverkefni milli 8 hom-
punkta. Verkefnið felst i því að
fljúga milli þessara hompunkta í
hvaða röð sem keppandi kýs, til að
safna vegalengd, en má ekki fljúga
tvisvar milli sömu staða nema fljúga
á þriðja hornpunkt á milli. Jafn-
framt er æskilegt að ljúka fluginu
aftur heima á Helluflugvelli, því
útilending getur kostað keppanda
allt að 300 stig. Keppendur náðu
mjög góðum árangri í þessu verk-
efni þó þetta væri í fyrsta skipti
flogið hér á landi.
Bestum árangri í vegalengd náði
Tom Knauff, 183 km, en lenti utan
Helluflugvallar. Mestum meðal-
hraða náði Magnús Ingi Óskarsson.
En flestum stigum og þar með best-
um árangri dagsins náði Þorgeir
Ámason.
Fimmti dagur: Nú var lagt verk-
efnið þríhyrningsflug, Hella/Búrfell
í Grímsnesi/Hruni/Hella, 106,4 km.
Fjórir keppendur luku verkefninu
og aðeins einn keppandi af 15 náði
ekki að fljúga lágmarksvegalegnd.
Bestum árangri náði Garðar Gísla-
son en hann flaug þríhyrninginn á
2,15 klst. eða 47 km/klst. en hann
á einnig innanlandsmetið í 100 km
þríhymingsflugi sem er 64
km/klst., sett á sömu braut 1984.
Öðrum besta árangri náði Eggert
Norðdahl. Meðalhraði hans var 34
km/klst. Þess má geta að einn
keppandi sem Iauk verkefninu var
rúmar 6 klst. að fljúga vegalengd-
ina og meðalhraðinn var 17
km/klst. Eftir þennan dag var búið
að ná gildu íslandsmóti (2 gildir
keppnisdagar).
ið Hella/Búrfellsvirkjun (ísa-
kot)/Hella, 88,8 km. Aðeins 2 kepp-
endur af 15 luku verkefninu, þeir
Tom Knauff og Björn Björnsson.
Meðalhraði Toms í fluginu var 41,3
km/klst. en hraði Bjöms 41,0
km/klst. Tímamunur á þessum
tveimur keppendum í fluginu var
rúmlega 1 mínúta. Þetta var síðasti
flugdagurinn, þar sem veður versn-
aði og svifflugskilyrði urðu ekki
fleiri daga. Þó bundu keppendur
miklar vonir við sunnudaginn 17.
júlí þar sem veðurfræðingar höfðu
spáð hægri norðanátt og léttskýj-
uðu. Þennan dag varð hins vegar
blíðviðri, kyrrt loft og lægstu ský
í 500 m hæð en svifflugurnar em
dregnar í 600 metra hæð á keppnis-
degi og hækka sig oftast í 1000 m
hæð áður en farið er yfir marklínu.
Keppnisfundi var frestað þrisvar
sinnum eða til kl. 13.00 þar sem
fyrirsjáanlegt var að veður mundi
ekki batna til keppnisflugs. Vom
mótsslit boðuð kl. 15.00.
Verðlaun: Á gildu íslandsmóti í
svifflugi em veitt eftirfarandi verð-
laun: Keppni í svifflugi er mjög
vandasöm og margþætt. Keppendur
þurfa að undirbúa flug sitt mjög
vandlega og uppfylla ákveðin skil-
yrði. T.d. á keppnisdegi þarf kepp-
andi að ljósmynda verkefni dagsins,
sem mótsstjóm kynnir og merkir
inn á kort eða töflu. Síðan verður
hann að sanna sig með myndatöku,
handan við hornpunkta, innan
ákveðins geira og að lokum mynda
einkennisstafi svifflugu sinnar og
lokar síðan filmu sinni með því að
ljósmynda aftur verkefni dagsins á
korti mótsstjórnar. Ef eitthverju af
framangreindum atriðum er áfátt,
má búast við að flug viðkomandi
keppanda verði dæmt ógilt.
Mótsslit
Mótsslit fóm fram á Helluflug-
velli við mikið fjölmenni yngri og
eldri svifflugmanna ásamt fjöl-
skyldum og gestum þeirra. Tómas
Waage las upp úr dagbók mótsins
og síðan tók Baldur Jónsson móts-
stjóri við og gerði grein fyrir úrslit-
um mótsins og afhenti verðlaun og
viðurkenningar til keppenda og
starfsmanna mótsins.
íslandsmeistari í svifflugi 1988
er Garðar Gíslason, Svifflugfélagi
íslands, sem hlaut 2216 stig. Hann
hlaut Jóhannes Hagan-bikarinn fyr-
ir flest stig á gildu íslandsmóti í
svifflugi. Jafnframt hlaut hann
Morgunblaðið/Guðrún Halldórsdóttir
Mótsstjórn f.v.: Hólmgeir Guðmundsson, Tómas Waage og Baldur
Jónsson.
Sjötti dagur: Nú var lagt verkefn-
Mnrgunblaðið/Guðrún Halldórsdóttir
Keppendur á íslandsmótinu. Aftari röð f.v.: Þórir, Eggert, Björn, Garðar, Höskuldur, Þorgeir, Hörður,
Snæbjöm og Kristján. Fremri röð f.v.: Daníel, Magnús, Steinþór, fyrrverandi íslandsmeistari, Fannar
og Sigmundur.
íslandsmót í svifflugi 1988 — Úrslit:
Nafn keppenda Skrás. teg. Dagur 1 Röð Dagur 2 Samt. stig Röð Dagur 3 Samt. stig Röð
Garðar Gíslason TF-SLS, LS 3-17 698 3 1000 1698 1 518 2216 1
Björn Bjömsson TF-SPO, PIK 20 B 704 2 346 1050 6 1000 2050 2
Eggert Norðdahl TF-SAS, Ka 6 CR 680 4 979 1659 2 335 1994 3
Þorgeir Ámason TF-SAG, ASW-19 965 1 483 1448 3 503 1951 4
Steinþór Skúlason TF-SAE, Ka6 E 277 8 846 1123 5 317 1440 5
Kristján Sveinbjömsson TF-SIK, Vasama 234 9 946 1180 4 105 1285 6
Sigmundur Andrésson TF-SOL, St. Astir 628 6 135 763 8 345 1108 7
Magnús I. Óskarsson TF-SIS, Club Libelle 645 5 182 828 7 164 992 8
Höskuldur Frímannsson TF-SAR, K 8 122 11 469 591 9 152 743 9
Fannar Sverrisson TF-SAV, K 8 287 7 0 287 12 389 677 10
Hörður Hjálmarsson TF-SON, BG 12/16 0 13-14 252 252 13 330 582 11
Daníel Snorrason TF-SAM, K 8 109 12 328 437 10 0 437 12
Snæbjöm Erlendsson TF-SBM, Mistral C 226 10 173 399 11 0 399 13
Þórir Indriðason TF-SHK, SHK 0 13-14 60 60 14 0 60 14
Gestur: Tom Knauff TF-SIA, HP-16 891 332 1223 1006 2229