Morgunblaðið - 29.07.1988, Qupperneq 29
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 1988
Útgefandi flttWfaftife Árvakur, Reykjavík
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson.
Aðstoðarritstjóri Björn Bjarnason.
Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, ÁrniJörgensen.
Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 70 kr. eintakið.
Að umgangast
landið
V erslunarmannahelgin:
Veðrið ræður vali
flestra ferðalanga
Morgunblaðið/Einar Falur
„Dýrt að fara á útihátíðir," sögðu þeir Jón H. Bertels og Björn Birg-
isson.
Sjálfsagt verða fleiri ís-
lendingar á ferð um
landið um þessa helgi en
nokkra aðra helgi ársins.
Það er auðvitað ánægjulegt,
enda skiptir miklu, að þjóðin
kynnist landinu sínu. Þau
tengsl við landið, sem verða
til við slík kynni eru líkleg
til þess að efla baráttuþrek
íslendinga frammi fyrir
sókn erlendra áhrifa. Við
hljótum að sækja kraft til
landsins og sögunnar í þeirri
baráttu.
En ástæða er til að hvetja
ferðamenn til þess að hafa
tvennt í huga, ekki sízt um
þessa helgi, þegar svo
margir eru á ferðalögum.
Annað er að vanda sig í
umgengni við landið. Hitt
að gera sér grein fyrir því,
að Island getur verið hættu-
legt land að ferðast um, eins
og dæmin sanna. Landið á
í vök að veijast. Uppblástur
er gífurlegur. Umgengni á
vinsælum ferðamannastöð-
um er slæm. Gróður er troð-
inn niður og alls kyns rusli
er fleygt út um víðan völl.
Þjóðin þarf að gera bragar-
bót. Væntanlega vill fólk
ekki ganga þannig um
heimili sín, að þau verði eins
og ruslahaugur. Landið er
heimili okkar allra og við
eigum heldur ekki að ganga
um það, eins og það sé
ruslahaugur.
í þessu samhengi er ekki
ör vegi að minna á, að
áfengi og ferðalög fara illa
saman. Það er raunar ill-
skiljanlegt, að fólk hafi
áhuga á að ferðast um ís-
land og kynnast stórbrotinni
náttúru þess og hafa áfengi
með í för. Til hvers er þá
farið?
Landið er líka hættulegt.
Mörg sorgleg dæmi eru um
það á undanfömum árum,
að útlendingar, sem hér
hafa verið á ferð hafa ekki
gætt sín á þeim hættum,
sem víða eru. Ámar geta
verið hættulegar, eins og
dæmin sanna, jöklarnir
einnig svo og fjöllin. Það
verður aldrei farið of var-
lega á ferðalögum um ís-
land. Það er ástæða til að
hvetja ferðafólk mjög ein-
dregið til að hafa þetta í
huga.
En umferðin um þessa
helgi, og raunar alltaf, er
líka hættuleg. Agi í umferð
er minni en víða annars
staðar. Þess vegna er það
svo, að ökumaður, sem fer
í einu og öllu eftir settum
reglum, er samt sem áður
ekki óhultur, hvorki á þjóð-
vegum eða í þéttbýli eins
og dæmin sanna. Glanna-
legur akstur er með slíkum
endemum í umferðinni hér,
að með ólíkindum er. Því
miður er fátt, sem bendir
til þess, að þetta ástand fari
batnandi en margt, sem
gefur vísbendingu um, að
það fari versnandi.
Umferðaryfirvöld og lög-
regla hafa árum saman
staðið fyrir miklu átaki til
þess að koma umferðar-
menningu okkar íslendinga
í betra horf. Þetta mikla
átak hefur vafalaust skilað
einhveiju en árangur er
samt sem áður ekki nægi-
legur. Kannski verður niður-
staðan sú, að ekki verði
hægt að ná tökum á um-
ferðinni hér nema með því
að herða viðurlög stórlega.
En þótt ýmislegt megi
finna að umgengni lands-
manna við landið og fólkið,
sem um það ferðast er auð-
vitað ljóst, að margt já-
kvætt hefur gerzt í þessum
efnum. Það er t.d. skemmti-
legt til þess að vita, að fólk
fer nú í langar gönguferðir,
kannski dögum saman um
óbyggðir. Það er líka
ánægjulegt, að ferðalög á
hestum eru tíðari en áður.
Fýrir nokkrum áratugum
var þess gjarnan getið í ár-
bókum Ferðafélags íslands,
hvar hagar væru góðir í
óbyggðum. Ferðir á hestum
um þá hluta landsins eru
orðnar svo algengar, að
fyllsta ástæða virðist til að
taka þá upplýsingastarf-
semi upp á ný!
MIKILL fjöldi fólks verður á
ferðinni um helgina. Margir
munu eflaust sækja útihátíðir af
einhveiju tagi en þær eru orðnar
átta talsins; Þjóðhátíð, Atlavík-
urhátíð, Fjör ’88 á Melgerðismel-
um, Bindindismótið í Galtalæk,
Bjarkalundur ’88, Klausturlíf
’88, Vík ’88 og á Hvanneyri verð-
ur kristilegt mót. Búist er við
hátt á annað þúsund manns í
Þórsmörk en færri verða líklega
á öðrum stöðum svo sem á Laug-
arvatni, í Þjórsárdal, Húsafelli
og á Þingvöllum.
Ekki verður ljóst fyrr en seinni
partinn í dag, föstudag, hversu
margir fara með langferðabílum
frá Umferðamiðstöðinni og hvert
straumurinn þaðan liggur. Þó feng-
ust þær upplýsingar að um 800
manns hefðu pantað far með Aust-
urleið til Þórsmerkur og hátt á
annað þúsund manns til Þorláks-
hafnar á leið til Vestmannaeyja.
A vegum Ferðafélags íslands
fara flestir í Þórsmörk og fullbókað
er á tjaldstæði félagsins í Langadal
en þar munu 350 manns dvelja.
Frá Ferðafélaginu Útivist fara
30—40 manns í Þórsmörk og um
40 manns í ferð um nágrenni Eldgj-
ár.
Að sögn Einars Sigurðssonar
blaðafulltrúa Flugleiða höfðu flestir
pantað far með flugvélum félagsins
til Vestmannaeyja í dag og þaðan
til Reykjavíkur á mánudag. Um
160 manns höfðu pantað flugfar
til Akureyrar í dag og til baka á
mánudag. Svipaður fyöidi hafði
pantað far til Egilstaða í dag en
rúmlega 100 til baka á mánudag.
Flugleiðir fljúga einnig með tals-
verðan ijölda til þessara áfanga-
staða á laugardag en þá er fjöldi
pantaðra flugfara til Vestmanna-
eyja ekki mikið meiri en til Akur-
eyrar og Egilsstaða. Þessar tölur
eiga eflaust eftir að hækka í dag.
■— Blaðamaður og ljósmyndari
Morgunblaðsins fóru í miðbæinn
og Kringluna og tóku nokkur ung-
menni tali. Af þeim virtust flest
ætla til Eyja eða í Þórsmörk.
Kunningjarnir fara flestir í
Þórsmörk
Jón H. Bertels 17 ára og Bjöm
Birgisson 18 ára ætluðu ásamt
kunningjum sínum í Þórsmörk.
„Það er svo dýrt að fara á útihá-
tíðir. Við fórum reyndar í Húsafell
í fyrra og skemmtum okkur stór-
vel.“ Aðspurðir hvert straumurinn
lægi sögðu þeir að flestir þeirra
kunningjar færu í Þórsmörk.
Við hittum næst að máli íjórar
hressar 18 ára stelpur í bæjarvinn-
unni. Kristín Pétursdóttir sagðist
ætla á Þjóðhátíðina í Eyjum. Þegar
við spurðum hana hvort það væri
ekki dýrt, svaraði hún: „Nei, nei,
pabbi borgar." Kristín fór í Húsa-
fell í fyrra en þar var ein fjölmenn-
asta hátíðin þá. „Straumurinn ligg-
ur á Þjóðhátíðina í Eyjum í ár og
þess vegna fer ég þangað."
Stöllur hennar Karólína Einars-
dóttir og Karitas Eggertsdóttir
voru ekki á sama máli og ætla
ásamt vinum sínum í Þórsmörk.
„Það er líka mun ódýrara en að
fara á Þjóðhátíðina." Helga Ferdin-
andsdóttir var hins vegar á leið til
Ítalíu og ætlaði ekki að ferðast
neitt innanlands um helgina.
Fórum eftir veðurspánni
„Við fórum eftir veðurspánni
þegar við ákváðum hvert halda
skyldi," sögðu þeir félagamir Eirík-
ur Jónsson, Kristján Guðjónsson
og Magnús Ragnarsson, allir 18
ára gamlir. „Við ætluðum á Mel-
gerðismela en hættum við vegna
veðurspárinnar og förum því á
Laugarvatn. Okkur finnst of mikið
vesen að fara til Eyja. Við erum
hræddir við að verða strandaglópar
þar og komast ekki heim fyrr en
á þriðjudag. Á Laugarvatni verða
„Völdum Laugarvatn vegna veðurspárinnar," sögðu þeir Eiríkur Jónsson, Kristján Guðjónsson og Magn-
ús Ragnarsson.
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 1988
29
Stelpurnar í bæjarvinnunni: Karitas Eggertsdóttir, Kristín Pétursdóttir, Karólína Einarsdóttir og Helga
Ferdinandsdóttir.
„Skemmtilegra á skíðum en úti-
hátíðum,“ sagði Anna Margrét
Birgisdóttir.
líka flestir kunningjar okkar og
vinnufélagar," sögðu þeir vinimir
að lokum.
Hef fengið nóg af
útihátíðum
„Mér datt ekki einu sinni í hug
að fara á einhveija af útihátíðun-
um, enda búinn af fá minn skammt
af slíku,“ sagði Vilhjálmur Árnason
20 ára. Vilhjálmur sagðist ætla að
hafa það gott á Laugarvatni um
helgina.
Vinnufélagi Vilhjálms Daði
Bragason, 25 ára og nýgiftur,
kvaðst ætla í gönguferðir um Land-
mannalaugar og nágrenni um helg-
ina. „Við fömm sex saman og ætl-
um að skoða okkur um og njóta
„Það verður fjör í Eyjum.“ Félagamir Ómar Ketilsson, Ólafur Eyþórsson, Hlynur Gestsson, Pétur Ólafs-
son og Gunnar Guðmundsson.
„Datt ekki einu sinni i hug að
fara á útihátíð,” sagði Vilhjálmur
Árnason.
veðursins sem vonandi verður
gott,“ sagði Daði.
í Centrum í Kringlunni hittum
við afgreiðslustúlkuna Önnu Mar-
gréti Birgisdóttur. Hún er 17 ára
og sagðist fara á skíði í Kerlingar-
fjöll um helgina. „Ég hef farið einu
sinni á Þjóðhátíð í Eyjum en mér
finnst miklu skemmtilegra á
skíðum."
Fullir tilhlökkunar á leið til
Eyja
Fyrir utan Kringluna mættum
við fimm drengjum, þeim Ómari
Ketilssyni, Ólafi Eyþórssyni, Hlyni
Gestssyni, Pétri Ólafssyni og Gunn-
ari Guðmundssyni sem allir eru á
aldrinum 16—17 ára. Þeir réðu sér
Daði Bragason: „Ætla í göngu-
ferðir um Landmannalaugar.”
varla fyrir kæti og sögðust vera á
leiðinni til Eyja. „Við förum með
rútu til Þorlákshafnar og þaðan
með Heijólfi. Ætlunin var reyndar
að fara á Melgerðismela en veð-
urspáin er betri fyrir Eyjar svo við
ákváðum að fara þangað." Til-
hlökkun þeirra félaga leyndi sér
ekki og um kostnaðinn sögðu þeir
að ferðin kostaði hvem þeirra allt
að 20 þúsundum króna. Þegar þeir
voru spurðir hvort þeir ætluðu að
tjalda í Eyjum sögðu þeir að tjöld
og svoleiðis væru algert aukaat-
riði, það yrði örugglega nóg af
tjöldum á staðnum. Að lokum
sögðu þeir: „Jú, jú, auðvitað tökum
við tjald með okkur.” Og þar með
fóru þeir félagarnir hlæjandi á
braut.
Kvennaþingið í Ósló:
SjáJfstæðiskonur kynna
stefnu sína og starfsemi
ásamt flokkssystrum
Fimmtán sjálfstæðiskonur
leggja leið sína á norræna
kvennaþingið í Ósló, sem hefst
um helgina. Þar munu þær
flytja 7 erindi og vera með
kynningarbás, auk þess sem
þær sýna myndband, sem þær
hafa látið gera af þessu tilefni.
„Það er að sjálfsögðu mikill
hugfur í okkur. Við ætlum,
ásamt hægri konum frá hinum
Norðurlöndunum, að kynna
stefnu okkar og starfsemi, sem
felst ekki hvað síst í því að vinna
með körlum. Við teljum að
svona þing styrki okkur i jafn-
réttisbaráttunni og sýni að það
er dugur í konum,“ sagði Þór-
unn Gestsdóttir, formaður
Landssambands Sjálfstæðis-
kvenna.
Hægri konur á Norðurlöndum
halda ráðstefnu þriðjudaginn 2.
ágúst þar sem fjallað verður um
konur og fjölskylduna. Ragnhildur
Helgadóttir, alþingismaður mun
þar flytja erindi fyrir hönd íslensku
kvennanna. Þá mun Inga Jóna
Þórðardóttir, formaður íjölskyldu-
nefndar ríkisstjórnarinnar gera
grein fyrir stefnu ríkisstjórnarinn-
ar í málefnum fjölskyldunnar.
Einnig ræðir Sólveig Pétursdóttir
varaþingmaður hvort aukin stjórn-
málaþátttaka kvenna hafi áhrif á
réttarstöðu barna. Erindin þrjú eru
þáttur Sjálfstæðiskvenna í sam-
starfi við hægri konur á Norður-
löndum.
Fjögur erindi verða flutt á dag-
skrá sem Landssamband hægri
kvenna verður með degi síðar.
María E. Ingvarsdóttir fjármála-
stjóri útflutningsráðs og varaþing-
maður, mun flytja erindi um þátt
kvenna í Iðnsögu íslands, Jóna
Gróa Sigurðardóttir borgarfulltrúi ■
Qallar um frumkvæði kvenna í r
atvinnulífinu, Katrín Fjeldsted
borgarfulltrúi ræðir um fjölskyldu-
mál og einnig Salome Þorkels-
dóttir alþingismaður, sem mun
fjalla sérstaklega um umferðarör-
yggismál. Að loknum erindunum
verður sýnt myndbar.d er nefnist
„Stjórnmál í daglegu lífi sjálfstæð-
iskvenna“. Þar er brugðið upp
myndum af starfi sjálfstæðis-
kvenna fyrr og nú og sýnt hvernig
stjórnmál félttast inn í daglegt líf
og starf átta sjálfstæðiskvenna,
þeirra Ásdísar Rafnar, lögmanns
og formanns jafnréttisráðs ís-
lands, Drífu Hjartardóttur, bónda
að Keldum á Rangárvöllum,
Katrínar Fjeldsted, læknis og
borgarfulltrúa, Jóhönnu Thor-
steinsson, fóstru, Salome Þorkels-
dóttur alþingismanns, Halldóru
Georgsdóttur, vaktstjóra í plast-
verksmiðju, Ingu Jónu Þórðardótt-
ur, formanns útvarpsráðs og fram-
kvæmdastjórnar Sjálfstæðis-
flokksins og Ragnhildar Helga-
dóttur alþingismanns. Þórunn
sagði að myndbandið hyggðust
konumar nota í félagsstarfí næsta
vetur og yrði það væntanlega sýnt .
víða um land. Til að kosta gerð
þess hefðu Sólveig Pétursdóttir,
Árdís Þórðardóttir framkvæmda-
stjóri og Hjördís Gissurardóttir
kaupmaður séð um íjáröflun.
Þá verða sjálfstæðiskonur með
bás á meðan þinginu stendur og
verða þar kynnt störf sjálfstæðis-
manna í máli og myndum. Lögð
verður aðaláhersla á útgáfustarf-
semi.
Morgunblaðið/BAR
Hópur sjálfstæðiskvenna sem fer á kvennaþingið í Ósló með eitt vegg-
spjalda sem verða í sýningarbás kvennana.
w»
Loðskinn hf. á Sauðárkróki:
Framleiðslan
tvöfaldast
„SLÁTURFÉLAG Suðurlands
selur Loðskinni allar kindagær-
ur sínar næstu 10 árin og við
það mun framleiðsla Loðskinns
tvöfaldast og starfsmönnum
fyrirtæklsins fjölga eitthvað en
þeir eru nú um 50 talsins,” sagði
Þorbjörn Árnason, fram-
kvæmdastjóri Loðskinns hf. á
Sauðárkróki í samtali við Morg-
unblaðið. Loðskinn hefur einnig
keypt allar sútunarvélar SS og
verða þær afhentar í haust.
„Undanfarin ár höfum við keypt
120 til 130 þúsund kindagærur á
ári af sláturhúsum sem ekki eru
í Sambandinu eða SS og kaupum
svipaðan fjölda af SS þannig að
framleiðslan tvöfaldast hjá okk-
ur,“ sagði Þorbjörn. „Við höfum
sútað gærurnar í mokkaskinn sem
við höfum aðallega selt til Ítalíu,
Finnlands, Danmerkur og Svíþjóð-
ar og erum búnir að selja fram-
leiðslu þessa árs. Loðskinn skilaði
hagnaði í fyrra og ég er bjartsýnn
á að við getum selt alla framleiðsl-
una, enda þótt hún tvöfaldist.
Við setjum upp söltunarstöð á
Suðurlandi í húsnæði SS þar sem
kindagærur verða saltaðar og
klipptar,” sagði Þorbjörn.