Morgunblaðið - 14.08.1988, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 14.08.1988, Qupperneq 25
 Glæsileiki og frábær gæði Sjón er sögu ríkari INNRÉTTINGA- OG HÚSGAGNAVERSLUN ELDHÚSKRÓKURINN Köku-Dyngja Það eru líklega ekjfi ýkja margir saumaklúbbar gangandi á þessum árstíma, en þó veit ég um fáeina. Þeim eru sérstaklega tileinkaðar þessar uppskriftir. Möndluhúðuð Tosca-kaka Gómsætur möndlumassinn of- an á þessari köku gerir hana allt- af vinsæla þegar hún er borin fram. Svo hentar hún vel til geymslu í frysti. 200 g smjör eða smjörlíki, 2V2 dl sykur, 2 egg, 1 tesk. vanillusykur, 20 möndlur, 3 dl hveiti, 1 tesk. lyftiduft, IV2 dl köld mjólk. Möndlumassinn: 1 dl möndlur, V2 dl sykur, 50 g smjör eða smjörlíki, 1 matsk. hveiti, 1 matsk. mjólk. Hrærið smjör og sykur vel sam- an þar til hræran er orðin ljós. Bætið eggjunum út í, einu í einu, og hrærið vel í á meðan. Hrærið svo vanillusykri og möluðum möndlunum saman við. Blandið saman hveiti og lyftidufti og sig- tið það út í hræruna. Bætið mjólk- inni út í, og hellið svo deiginu í vel smurt og hveiti stráð form með lausum kanti, um 22 sm í þvermál. Bakið kökuna í 175 gráðu heit- um ofni í um 40 mínútur þar til hún er nærri fullbökuð. Möndlumassi: Grófmalið möndlumar og setjið þær ásamt öllu öðru sem í mas- sann fer í skaftpott og látið suð- una koma upp. Smyijið massan- um yfir kökuna og bakið hana áfram í um 225 gráðu heitum ofni í um 5 mínútur, eða þar til massinn er fallega gulur. Látið kökuna kólna í forminu. Möndlubaka Þetta er smjördeigsbotn fylltur með inöndlumassa. Ekki er verra að bera bökuna fram með jarðar- beijum og þeyttum ijóma. Hún geymist einnig vel í frysti. Smjördeig: 2 dl hveiti, V2 dl sykur, 100 g smjör eða smjörlíki. Fylling: 80 g smjör eða smjörlíki, 1 dl sykur, 2 egg, 100 g fínmalaðar möndlur. Hnoðið vel saman hveiti, sykur og smjör þar til deigið er mjúkt og jafnt, og látið það svo standa smástund á köldum stað. Þrýstið svo deiginu í smurðan ofnfastan disk eða bökunarform, um 20 sm í þvermál. Þá er það fyllingin. Þeytið vel saman smjör og sykur. Bætið eggjunum út í, einu í einu, og hrærið vel í á meðan. Svo er fínmöluðum möndlunum hrært saman við. Hellið fyllingunni niður í deigið í bökunarforminu og bakið í 175 gráðu heitum ofni í 20-30 mínút- ur. Sykurkaka sem leynir á sér Kökuna má borða eins og hún kemur fyrir, eða með ýmsum beij- um og ávöxtum, til dæmis kíví, vanillusósu, mjúkís eða þeyttum ijóma. Er góð bæði með kaffi og sem ábætir. 200 g smjör eða smjörlíki, 200 g kartöflumjöl, 1 tesk. lyftiduft, 3 egg, 200 g sykur, 2 matsk. koníak. Hrærið smjör, kartöflumjöl og lyftiduft mjög vel saman. Þeytið egg og sykur saman í annarri skál þar til létt og ljóst. Bætið koníakinu út í. Blandið svo eggja- hrærunni smátt og smátt saman við deigið. Hellið deiginu í vel smurt og hveitistráð hringform, um IV2 1. Bakið kökuna í um 175 gráðu heitum ofni í um 40 mínút- ur. Notið pijón til að ganga úr skugga um að kakan sé fullbök- uð. Pijónninn á að koma svo til þurr upp úr kökunni. Verði ykkur að góðu, Jórunn. Eldhúsinnréttingar íslensk framleiðsla á hagstæðu verðL Margir möguleikar á efni og útliti, staðlað eða sérsmíðað. MANSTU ÚTSÖLUNA 0KKAR í FYRRA? Verslun: Reykjavíkurvegi 68, 222 Hafnarfirði, sími 54343. BARNAULPUR FRÁ Kr. 1990 SUNDFATNAÐUR FRÁ Kr. 390 DANSFATNAÐUR FRÁ Kr. 490 ADIDAS FRÁ Kr. 890 UTSALA Sendum í póstkröfu samdægurs. Nýtt kreditkortatímabil. ® J® Sportvöruverlsunin^ ÉT"" r~a Bikarmn Skólavörðustíg 14 - Símar: 24 5 20 & 1 70 54

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.