Morgunblaðið - 14.08.1988, Qupperneq 26
MORG.yNB^AÐIÐ.SUNJfUDAG^ l^ÁG.ÚST 1988
.26 ,1
ffclk ff
fréttum
OFNÆMI
Ofnæmi hrjáir frekar borg-
arbúa en dreifbýlisfólk
Borgarbúar fá frekar einhverskonar ofnæmi en dreifbýlisfólk. Þetta
kemur fram í nýlegri rannsókn sem gerð var vítt og breitt um Banda-
ríkin. Yfir sextán þúsund manns á aldrinum 6-74 ára voru ofnæmisprófað-
ir með skinnprófum, og var úrtakið handahófskennt.
Það kom í ljós að vel menntað fólk, eða vel efnað fólk, hafi fremur
einhversskonar ofnæmi en það fólk sem á styttra nám að baki eða hefur
minni fjárhag til umráða. Algengast er ofnæmi hjá fólki á aldrinum 18-24
ára. Einn þriðji hluti karla og einn fjórði hluti kvenna í úrtakinu reynd-
ust vera með ofnæmi af algengari gerðinni, til dæmis fýrir húsryki og
hundahárum.
Af þeim sem voru efnalitlir reyndust 15% vera með ofnæmi, en 25%
þeirra ríku áttu við
ofnæmisvandamál.
Af borgarbúum
reyndust 22% hafa
ofnæmi, en einungis
16% í dreifbýlinu.
Flestir ofnæmis-
sjúklingamir bjuggu
í Norðurríkjum
Bandaríkjanna, eða
25% þátttakenda.
Færri komu frá
Miðríkjunum, og
langfæstir, sem
reyndust með of-
næmi komu frá Suð- Mjög algengt er að fólk hafi ofnæmi fyrir
urríkjunum. húsdýrum.
Steven Spielberg stendur í skilnaði
Hún hreifst af
Ogilvy við
fyrstu kynni.
STEVEN SPIELBERG
Ung blondína
heillar Spielberg
Steven Spielberg hefur verið
giftur í mörg ár leikkonunni
Amy Irving, og eiga þau saman
þriggja ára son. En nú er skilnaður
í aðsigi og ástæðan er sögð leikkon-
an Kate Capshaw, sem lék í mynd-
inni Indiana Jones. Því er spáð að
skilnaðurinn verði sá dýrasti í
Hollywood.
Sagt er einnig að Kate sé úti
eftir peningum Stevens, en hingað
til hefur leikstjórinn ekki gengið
um eins og sláttuvél og stráfellt
ljóskur svo vitað sé. Hann er ein-
mitt þekktur fyrir að vera fjölskyldu
sinni trúr, og erfíðasta raunin er
sögð sú að flytja frá syni sínum.
Það er sjálfsagt ekki ofsögum sagt,
þetta með skilnaði, hvað þá með
frægðina.
Kate Capshaw hefur heillað
leikstjórann.
Jerry vill ekki búa í óvígðri sambúð með Jagger.
UMFERÐARMÁL
Sex fjölskyld-
ur voru verð-
launaðar
Um verslunarmannahelgina
stöðvaði lögreglan sex
bílstjóra sem reyndust fullnægja
skilyrðum um notkun á öryggis-
búnaði bifreiða, um löglegan hraða
og um bifreið í góðu ástandi. Lög-
reglumenn og starfsmenn Umferð-
arráðs veittu verðlaun frá Umferð-
arráði og Nesco, þijár TEC hljóm-
tækjasamstæður og 3 Olympus
myndavélar. Börn víða um land
fengu púsluspil í verðlaun og harð-
fískpoka frá Tannvemdarráði, fyrir
notkun á öryggisbúnaði. Dreifíng
verðlauna fór fram með aðstoð
Landhelgisgæslunnar.
Verðlaunahafar voru: Kolbeinn
Gunnarsson og fjsk., Alfreð Tuli-
nius og §sk., á A - númeri, Ingi-
mar Andrésson og fjsk., Indriði
Valdimarsson og fjsk. á E - núm-
eri, Birgir Axelsson og Qsk. á G -
númeri og Bjöm F. Bjömsson og
fjsk., úr Reykjavík.
Hjónin Anna Ásdís Björnsdóttir og Kolbeinn Gunnarsson ásamt börnum taka
við hamingjuóskum frá Valgeiri Guðmundssyni lögreglumanni.
MICK JAGGER OG JERRY HALL
Jerry Hall tekur
saman
við enskan lávarð
w
Isíðustu viku tók Jerry Hall allt sitt hafurtask og
sleit samvistum við Mick Jagger, sambýlismann
sinn um tíu ára skeið. Og þetta umrót vegna 30 ára
lávarðs, sem er sagður tröllríkur og gullfallegur. Mick
Jagger er rasandi. Jerry vildi ganga í hjónaband en
hann hefur ekki viljað kvænast henni. Eftir að hafa
staðið í skilnaði leiðist honum allt lögfræðingsstúss,
hann er ekki sagður treysta á hjónabönd meir. Þau
Jerry eiga tvö lítil börn saman, Elisabeth Scarlett 4ja
ára og James 2ja ára.
Jerry og Ogilvy hittust fyrst í síðasta mánuði í
brúðkaupi hjá sameiginlegum vini. Eftir það hafa þau
oft sést, og er sagt að Ogilvy sé jafnvel í giftingar-
hugleiðingum. Hann á litla höll með þrettán manns
í þjónustu, og hesta og kýr í haga. Jerry er sjálf ekki
á flæðiskeri stödd, og hefur aflað sér morðfjár meðal
annars með því að leika í auglýsingum.
Sagt er að Mick Jagger vilji fá hana og bömin til
sín aftur, og geri ítrekaðar tilraunir til þess. Enn sem
komið er gengur það illa og tekur hún lávarðinn fram
fyrir óvígða sambúð með söngvaranum fræga.