Morgunblaðið - 16.10.1988, Page 2
2 B
Nemendaleikhús
Leiklistarskólans
hefur
leikárið
með
frumsýningu
tveggja
einþáttunga
Það varlífogfjörí
Lindarbæ þegar blaðamaður
leit þar inn eitt kvöldið í
vikunni. Verið var að leggja
síðustu hönd á leikmyndina,
Ijósin þurfti að stilla örlítió
betur, leikstjóri,
leikmyndahönnuður og
Ijósameistari báru saman
bækur sínar og leikendurnir
sjálfir-næsti
útskriftarárgangur
Leiklistarskóla íslands-
voru viðbúnir kalli
sýningarstjórans um að
æfing væri hafin.
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16: OKTÖBER 1988
■ Brúðkaupsveisla smáborgaranna í algleymingi.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Efni þessarar fyrstu sýningar Nemenda-
leikhússins í haust er tveir þekktir einþát-
tungar; Smáborgarabrúðkaup eftir Bert-
holt Brecht í þýðingu Þorsteins Þorsteins-
sonar og Sköllótta söngkonan eftir Eug-
ene Ionesco í þýðingu Karls Guðmunds-
sonar. Þá hefur Flosi Ólafsson þýtt einn léttúðugan
söngtexta sem sunginn er í einþáttungi Brechts. Hvor-
ir tveggja einþáttungamir hafa verið fluttir áður hér-
lendis; Smáborgarabrúðkaup
þó aðeins einu sinni, af Herra-
nótt Menntaskólans í
Reykjavík. Sköllótta söng-
konan hefur oftar stigið á
íslenskt leiksvið og hafa ýmsir
leikhópar spreytt sig á þessum
grínagtuga en þó alvarlega
einþáttungi absúrdistans Io-
nescos.
Brecht skrifaði einþáttungs-
farsa sinn um brothætta inn-
viði smáborgarafjölskyldunnar
við upphaf 3. áratugarins en
Sköllótta söngkonan leit aftur
ekki dagsins Ijós fyrr en á 6.
áratugnum. Brecht og Ionesco
eru sjaldnast taldir upp í sömu
andránni; Brecht aðhylltist
róttækt leikhús og mótaði því
sérstakt yfirbragð sem hann
rökstuddi í leikritum sínum
sem og annars staðar í ræðu
og riti. Ionesco telst hins vegar
til þekktustu fulltrúa leikhúss fáránleikans þar sem til-
gangsleysi mannlegrar tilveru - fáránleikinn - er oftast
viðfangsefnið. í þessum tveimur einþáttungum mætast
þeir tvímenningar þó á miðri leið því þeir eru að fjalla
um sama fyrirbærið, hina borgaralegu fjölskyldu, fjöl-
skyldulífið og tengslin milli einstaklinganna; sjónarhorn
þeirra eru ólík og en sameinaðir í eina kvöldskemmtan
verður úr þessum tveimur einþáttungum bráðskemmti-
Iegur og marghliða efniviður.
Árgangurinn í Nemendaleikhúsinu að þessu sinni
telur 8 manns (sjá nöfn þeirra og myndir á síðunni)
en sér til fulltingis hafa þau við þessa sýningu fengið
leikarana Emil Gunnar Guðmundsson og Andra Öm
Clausen. Aðrir sem taka þátt og leggja hönd á plóginn
eru Guðrún Sigríður Haraldsdóttir leikmyndahönnuður.
Egill Öm Ámason ljósameistari, Ólafur Öm Thoroddsen
tæknimaður, Hilmar Öm Hilmarsson sér um leikhljóð
og Þórunn Sveinsdóttir saumar búninga. Bríet Héðins-
dóttir er leikstjóri sýningarinnar.
Steinunn Ólafsdóttir
árgangur 1962.
■ Helga Braga Jónsdóttir
árgangur 1964.
■ Ólafur Guðmundsson
árgangur 1965.
■ Bára L. Magnúsdóttir
árgangur 1964.
■ Sigurþór Albert Heimisson
árgangur 1962.
■ Elva Ósk Ólafsdóttir
árgangur 1964.
■ Christine Carr
árgangur 1965.
■ Steinn Á. Magnússon
árgangur 1964.