Morgunblaðið - 16.10.1988, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 16.10.1988, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. OKTÓBER 1988 B 5 og allir sem þar voru létust." Ottó starfaði sem fyrr segir sem yfirmaður reiknivélaverkstæða þýska fyrirtækisins í Saxlandi á árunum 1942 til 1944. Þá hélt hann til Kaupmannahafnar í framhalds- nám og lauk þaðan prófi sem „fin- mekaniker" frá Teknologisk Insti- tut 1946. Það hvarflaði aldrei annað að honum en að fara heim að stríðinu loknu og er hann hafði lok- ið framhajdsnámi sneri hann aftur heim til íslands. Sama ár, 1946, stofnsetti Ottó Skrifstofuvélar hf. „Fyrsta árið starfaði ég einn við viðgerðir á skrifstofuvélum, hafði þá aðstöðu í skúr í Mjóstræti 10 en flutti árið 1950 að Laugavegi 11. Síðar réð ég til mín lærling þar sem ég hafði svo til strax meira en nóg að gera enda var skortur á mönnum sem lært höfðu viðgerðir á skrifstofuvélum. Fyrirtækið rak ég til 1967 og hafði starfsmönnum þá fjölgað úr tveimur í 32 og um- svifín aukist að sama skapi. Á þess- um árum gekk fyrirtækjarekstur þó víðast hvar erfiðlega m.a. vegna gjaldeyris- og innflutningshafta. og urðu Skrifstofuvélar hf. fyrir barð- inu á því. Árið 1950 fékk ég umboðið fyrir IBM en ísland var þá eitt af fáum löndum sem það hafði engin við- skipti við. Reyndar var IBM hvar- vetna rekið í gegnum eigin útibú í hveiju landi en hér leyfðu landslög ekki erlendan fyrirtækjarekstur og því var mér fengið umboðið í hend- ur. í maí 1967 tókust samningar um að IBM keypti þann hluta í Skrifstofuvélum hf. sem sá um rekstur þeirra tækja. Var þetta mikið happaspor og þróuðust bæði fyrirtækin vel upp frá þessu. Á þessum tímamótum gerðist ég for- stjóri IBM og stjórnarformaður Skrifstofuvéla hf. Hjá IBM starfaði ég til 1982 en þá dró ég mig í hlé vegna aldurs. Skrifstofuvélar hf. seidi ég svo til Gísla J. Johnsen sf. á síðasta ári en eigendur þess störf- uðu hjá IBM um árabil á meðan ég gegndi forstjórastöðunni. Svo ég veit að fyrirtækið er í góðum höndum. Ég hef reyndar ekki alveg sagt skilið við það því ég sit enn í stjóm þess og hef þar skrifstofu.“ Tölvur framtíðarinnar mun auðveldari í notkun — Ertu ánægður með ævistarf- ið? Útstilling á ritvélum í verslunar- glugga Málarans í Bankastræti. Myndin er tekin í kringum 1955. verða fyrir okkur eins sjálfsagt og ómissandi tæki og bíllinn og verður þar að auki langtum auðveldari í notkun en hún er nú. Margir munu geta unnið á tölvu heima fyrir og léttir það vafalaust umferðarþung- ann. Vonandi mun lyklabömum sömuleiðis fækka og þá verður enn- þá meira gaman að vera mamma.“ Stjórnleysi okkar stærsta vandamál Við ræðum um breytingar á fyr- irtækjarekstri, stjómmálaástandið í landinu og mannlífíð. „Við íslendingar eigum í raun aðeins við eitt vandamál að etja og það er stórt," segir Ottó ákveðinn. „Það er stjómleysi, sama hvert litið er. Við þolum engan aga og öll önnur vandamál okkar era afleiðing þessa, ekki orsök. Af þessum sökum tekst engum að stýra okkar bless- aða landi. Sömu sögu er að segja um fyrirtækjarekstur nú til dags en skipulagsleysið og stjómleysið víða í fyrirtækjum er hreint með ólíkindum. Við íslendingar lifum í eilífu kapphlaupi við verðbólguna og ekki era nema sex til átta ár síðan menn fóra að gera sér grein fyrir því að hún væri böl. Annars er ég lítið gefinn fyrir slíkt svart- sýnishjal. Ég lít frekar í átt til unga fólksins sem er að verða svo há- menntað og hvert öðra efnilegra. Það á vonandi eftir að láta gott af sér leiða. Það má þó gæta þess að fara sér ekki of geyst, það er best að taka stigann í þrepum. Á það reyndar við um okkur alla íslend- inga.“ Trúin kemur jafiivægi á líf okkar Ottó hefur starfað mikið að fé- lagsmálum í gegnum árin en gefíð sig mest að málefnum kirkjunnar. Um árabil hefur hann verið safnað- arfulltrúi í Bústaðasókn og átt sæti á kirkjuþingi. Einnig er hann stjóm- arformaður útgáfunnar Skálholt og fulltrúi biskups í Þjónustumiðstöð kirkjunnar. Hann er inntur eftir því hvort atvikið í húsagarðinum forð- um hafi orðið til þess að hann fékk áhuga á trúmálum. „Nei, ég hef alla tíð verið trú- hneigður og umrætt atvik breytti engu þar um. Að mínu mati er trú- in afskaplega þýðingarmikil. Boð- skapur kristninnar kemur jafnvægi á líf okkar og ekki mun_ af veita í lífsgæðakapphlaupinu. Á stærstu stundum lífsins s.s. við skímir, við sterkar taugar norður. í fyrra- sumar fóram við hjónin í hnattferð sem var vissulega áhugaverð. Síðar um sumarið fór síðan ég með vini mínum í tíu daga ferð um hálendið og sú ferð sló allt út sem ég hef séð á lífsleiðinni. Ferðin var stór- kostlegt ævintýri hreint út sagt og ekki spillti fyrir hve veðrið var ynd- islegt." Sérstök þjóð með sérstakar þarfir Ottó kveðst alla tíð hafa verið hraustur og lifað góðu fjölskyldu- lífí, en þau hjónin eiga íjögur upp- komin böm. „Ég syndi á hveijum morgni og er ekki í nokkram vafa um að það hefur stuðlað að góðri heilsu minni. Ég er ævinlega mætt- ur tíu mínútur í sjö við útidyr sund- laugarinnar í Laugardal og bíð þess að þær verði opnaðar. Það er nokk- uð spaugilegt en það er alltaf sami hópurinn sem bíður við dymar og komi það fyrir að ég sé aðeins seinni en venjulega þá er mínu plássi við dymar haldið fyrir mig! Svo hitt- umst við sama fólkið í heita pottin- um og skröfum um allt milli himins og jarðar. Og sú umræða og félags- skapurinn svona í morgunsárið ger- ir manni ekki síður gott en sundið sjálft, svo mikið er víst. Þeir sem séð hafa sig um í út- landinu era alltaf að róma kráarlíf- ið og fmnst það eitthvað s_em við föram hroðalega á mis við. Ég held að heitu pottamir í laugunum komi alveg í stað kránna í útlöndum og víst er að engin hætta er á að pott- amir verði misnotaðir eins og bjór- inn. Já, ég er harður á þvi að við höfum ekkert við bjórinn að gera, bara ekki nokkurn skapaðan hlut. Mörgum finnst að við eigum að fá að að hafa bjór, eins og aðrir. En það er ekki rétt, við eram sérstök þjóð með sérstakar þarfír og við „Já, ég tel það hafa verið mjög áhugavert og ég er meira en ánægð- ur. Ég starfaði öll þessu ár með afbragðs góðu fólki sem reyndist vel í alla staði. Og ég hef ekki ástæðu til annars en vera bjartsýnn á að fyrirtækin sem ég hef byggt upp muni ganga vel, því að nýju eigendurnir era harðduglegir." — Hver heldurðu að þróunin verði á tölvusviðinu? „Síðastliðin ár hefur þróunin ver- ið mjög ör og verður ekki minni næstu fímm árin. Töivan á eftir að Fyrsta skrifstoftivélasýningin á Islandi haldin í kringum 1964 í nýrri viðbyggingu gamla Versl- unarskólans við Þingholtsstræti. Frá vinstri: Jóhann Gunnarsson yfirmaður tæknideildar Skrif- stofuvéla hf., dr. Gylfi Þ. Gísla- son þáverandi menntamálaráð- herra, Ottó A. Michelsen for- stjóri Skrifstofuvéla hf. og lengst til hægri Gísli V. Einarsson form- aður skólanefndar Verslunar- skóla íslands. fermingar, giftingar og jarðarfarir er kirkjan ávallt athvarf, því megum við ekki gleyma." Hann kveðst vera mikill náttúra- lífsunnandi, enda búi hann á yndis- legu landi. „Ég og kona mín Gyða Jónsdóttir höfum ákaflega gaman af því að ferðast um ísland og virða fyrir okkur hijúfa náttúrana. Hún er engu lík. Við hjónin eigum hús á Sauðárkróki og þangað föram við hvenær sem tækifæri gefst. Hún Gyða mín er fædd og uppalin á Króknum eins og ég og því höfum þurfum ekkert á því að halda að vera eins og aðrir.“ Ottó segir það fjarn sér að setj- ast í helgan stein. „Á meðan ég held heilsu ætla ég að einbeita mér að hinum ýmsu félagsmálum sem ég hef starfað að í gegnum árin. Einnig á ég eftir ýmis ófrágengin mál varðandi Skrifstofuvélar. Ég sit inni með þekkingu og lífsreynslu sem ég hef öðlast á löngum starfs- ferli og vil gjarnan nýta hvort tveggja sem best.“ Viðtal: Bergljót Friðriksdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.